Morgunblaðið - 06.06.1975, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.06.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JUNt 1975 13 Tðnllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON Sinfóníu- tónleikar Stjórnandi: Karsten Andersen Einleikari: Aaron Rosand EFNISSKRA: Geirr Tveitt Harðangurskviða Brahms Fiðlukonsert í D-dúr op. 77 Nielsen Sinfónía nr. 5 op. 50 Harðangurskviðan eftir Geirr Tveitt verkaði á undirritaðan sem losaraleg syrpa smálaga og Voru sumir kaflarnir svo stuttir að varla svaraði kostnaði að vera að standa i svona nokkru, að minnsta kosti ekki fyrir heila hljómsveit, og þá ekki fyrir áheyrendur sem varla komnir i ró voru sífellt rifnir upp til að klappa. Aaron Rosand er frábær fiðl- ari og lék hann Brahms konsertinn af öryggi og mikilli tilfinningu. Til að létta and- rúmsloftið lék Rosand, sem aukalag, tilbrigði eftir Paga- nini af hreint ótrúlegri tækni. Carl Nielsen er sérstætt tón- skáld og stendur á mörkum hefðbundinna vinnubragða og hljóðbyltingar 20. aldarinnar. Verkið er samið I skugga fyrri heimsstyrjaldarinnar og undir þrúgandi ótta vegna nýrrar stríðshættu. Miskunnarlaus sláttur hertrommunnar, sem er hvorki I tengslum við hljóðfall eða tónblæ verksins, er eins og villimannleg innrás i friðsæla menningu. Þetta voru síðustu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar tslands á þessum vetri og hefur sveitin sjaldan verið jafn góð og nú i vetur. Það er ánægjulegt að heyra hve mörgum af okkar hljóðfæraleikurum hefur farið fram og má þar nefna, að öðr- um ólöstuðum, Kristján Stephensen, sem á þessum tón- leikum var sveitinni til mikils sóma. Jón Asgeirsson. Kammer- tónleikar Strokkvartett Guðnýjar Guðmundsdóttur, ásamt Graham Tagg. EFNISSKRA: Mozart Kvintett í C-dúr, K 515 Beethoven Kvartett nr. 11, op. 95 Bartok Kvartett nr. 1, op. 7 Kammertónlist er jafnvel tal- in erfiðari I flutningi en tónlist fyrir einleikshljóðfæri. Þó að deila megi um slíkt, er víst, að i kammertónlist er fólginn fjár- sjóður fegurðar, sem ekki verð- ur numinn af annari tegund tónlistar. Þar finnast ekki hrekkir eða óvandað tungutak. Þar er ekki ybbast upp á neinn, en sá sem vill njóta hennar, verður að leita fegurðarinnar með auðmýkt. Sama máli gegn- ir um flutning slikrar tónlistar. Tónmálið er eins og helgur texti og ógætileg meðferð hans er vanhelgun. Fáum er gefin þessi auðmýkt hjartans. Kammermúsik-klúbburinn er fámennur félagsskapur, eins og sýndi sig á þessum tónleikum. Það gegnir furðu, ef miðað er við aðstæður, hve kvartett Guð- nýjar Guðmundsdóttur stendur sig vel. Erlendis þykir það ærinn starfi að leika í kvartett og stendur Ijómi af lífsstarfi góðra kammertónlistarmanna. Hér á landi er flutningur Framhald á bls. 14 MIKIÐ ÚRVAL AF NÝJUM VÖRUM Terylenejakkar með og án hettu. Adapti jakkar, flauelisjakkar, leðurjakkar. X X X X Terylenekápur, flaueliskápur, jerseykápur, crimplenekápur. X X X X Dragtir. Buxnadragtir, pils, buxur. X X X X ATH.VERÐ OG GÆÐI • T • Vá. KAPAN LAUGAVEGI 66 Sími25980. Höfum opnaö fatamarkaö aö Snorrabraut 56. & Allar stæröir karlmannafata á mjög jj hagstæöu verði. Fataverksmiöjan GEFJUN Snorrabraut 56. SEPJunnR- fatnmnrknður! Ko: GÍÐA vöruhynninff L VERÐUR í KJÖRBÚÐ KAUPFÉLAGS HAFNFIRÐINGA, GARÐAFLÖT, GARÐAHREPPI, FÖSTUDAGINN 6. JÚNÍ FRÁ KL. 4—6 SÍÐDEGIS. mió í búðina og bragóió G [^ÐA- Ó ÐALSPYLSU og fáió uppskriftir! Þar munu húsmæórakennarar á vegum Kjötiðnaóarstöóvar Sambandsins kynna nýjungar frá stöðinni og gefa ráóleggingar um matreióslu. ....... 1 Goða vörurnar eru framleiddar við bestu aðstæður og undir ströngu eftirliti eigin rannsókna- stofu. fe. ..........——t3 g::ði fyrirgóéan mai

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.