Morgunblaðið - 06.06.1975, Page 17

Morgunblaðið - 06.06.1975, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1975 17 Súezskurður opnaður: Mikil hátíðahöld og fögnuður í Port Said Samdóma álit að opnunin sé fram- lag til friðar í heimshlutanum Port Said5. júní Reuter. AP ANWAR SADAT Egyptalands- forseti opnaði Súezskurðinn við hátíðlega og litrfka athöfn f dag og sfðan sté forsetinn um borð f tundurspilli og var siglt frá Port Said f suðurátt. Fyrsta erlenda skipið seifi sfðan lagði inn á skurðinn var frá Kuwait og á eftir fylgdu skip frá Grikklandi, Sovét- ríkjunum, Kína og Júgóslavfu. IYIunu þau liggja á Beizkavatni f nótt og halda för sinni áfram þeg- ar morgnar. Skotið var af 21 fallbyssuskoti, skip þeyttu eimpípur og blásið var i lúðra í bann mund er Sadat forseti kom á vettvang. Forsetinn og aðrir sem tóku til máls lögðu áherzlu á og rifjuðu upp afrek egypzka hersins sem réðst yfir skurðinn í október 1973. Sadat benti og á hversu mikil- vægt framlag opnun skurðarins væri til tryggingar friði bæði f þessum heimshluta og annars staðar og sagði að Egyptar hefðu sýnt og sannað í verki að þeir vildu tryggja frið og öryggi. Hann lofaði þá ákvörðun ísraela að fækka verulega í hersveitum sín- um á eystri bakka skurðarins og sagði það mikilvægt skref. Sagði forsetinn að nú gæti komið til mála að taka upp þráðinn að nýju sem slitnað hefði í marz sl. eftir að sáttatilraunir Kissingers utan- ríkisráðherra Bandarikjanna fóru út um þúfur. Ekki vildi þó Sadat láta.f ljós óraunhæfa bjartsýni, en kvaðst nú vonbetri en um langan tíma að lausn fyndist. Varnarmálaráðherra Israels, Shimon Peres, fagnaði í dag opn- un Súezskurðarins og sagðist von- ast til að þetta gæti leitt til friðar í Miðausturlöndum. Væri þetta togar hafa einnig tjáð sig á já- kvæðan hátt um opnun skurðar- ins. Samgönguráðherra Israels, Yaaeobi, sagði af gefnu tilefni í dag að Egyptar hefðu gefið skrif- legt loforð um að ísraelar fengju leyfi til að láta flutningaskip fara um Súezskurðinn, bæðiisraelskog eins önnur sem væru að flytja AP-símamynd. TundurspiIIirinn „Sjötti október" siglir f áttina að Súezskurði f gær, umkringdur fjölmörgum smábátum, þar sem menn létu óspart f ljós fögnuð sinn. Sadat Egyptalandsforseti sigldi fyrsta spölinn með tund- urspillinum eftir að hann hafði haldið ræðu og opnað skurðinn formlega til siglinga. mikilvægt fyrir öryggi þessa heimshluta en umfram allt meg- inreglumál hvað Egypta snerti. Hann sagði, að það yrðu mikil mistök ef Egyptar tækju upp á því að lýsa yfir stríði á hendur Israelum eins og nú væri málum komið. Ýmsir aðrir ísraeiskir Ieið- Engmfækkuní Bandaríkiaher Washington, 5. júní. AP. BANDARlSKA Öldungadeildin felldi í dag tillögu um að fækkað yrði um 200 þúsund manns í her- Æ FRETTIR liði Bandarikjanna á erlendri grund. Var tillagan, sem Mike Gravel, öldungadeildarþingmað- ur frá Alaska bar fram, felld að viðhöfðu nafnakalli. Þá var einnig felld viðbótartillaga um 10 þúsund manna fækkun. I gær felldi Öldungadeildin einnig til- lögu um niðurskurð á 30 milljarða dollara fjárveitingu til vopna- smiða og -kaupa. Alan Cranston þingmaður frá Kaliforniu sagði i ræðu að fyrir fall S-Vietnams og Kambódiu hefði hann verið tilbúinn til að styðja stórfellda fækkun, en í ljósi þeirra atburða, sem gerzt hefðu, væri slikt orðið hættulegt og myndi eyðileggja NATO og SEATO og einangra Bandaríkin frá umheiminum. vörur til Israels. Samkvæmt frétt- um i kvöld var líberskt skip á leið til skurðarins með sykurfarm sem á að fara til Israels, en fréttum bar ekki saman um þetta mál. Sögðu sumir ekkert hæft í að skipið væri á leið til tsraels. Yaacobi sagði að reyndist svo vera að skipið sem hann taldi vera að koma frá Suður Kóreu, ætti að flytja farm til Israels, myndi á það reyna, hvort Egyptar stæðu við skuldbindingar sínar, þegar að því kæmi að skipið sigldi upp skurðinn, Bandaríska utanríkisráðuneyt- ið staðfesti í dag, að Egyptar og Israelar hefðu gert með sér leyni- samning í sambandi við aðskilnað og brottflutning herjanna i fyrra frá Súezskurði. Talsmaður ráðu- neytisins vildi þó hvorki játa né neita ísraelskum fullyrðingum um að þessi samningur kvæði á um að skip sem væru á leið til ísraels með vörur, þótt þau væru frá öðrum þjóðum, fengju að fara um Súezskurðinn. Talsmaðurinn vildi heldur ekki tjá sig um það sem samgönguráðherra Israels hafði sagt um að Egyptar hefðu gefið skriflegt loforð um málið með meðalgöngu Bandaríkjanna. — En það er ekki vafi á að ein- hvers konar samkomulag er í gildi, sagði hann. Aftur á móti vísuðu ýmsir áhrifamenn Egypta á bug þessum fullyrðingum Israela og sögðu enga leynisamn- inga hafa verið gerða við þá. Fréttamenn inntu Sadat eftir því í dag hvernig hann liti á þetta mál og sagði hann: ,,Það skref sem tsraelar stigu er mjög uppörvandi, en spurningin um flutningaskipin er ekkert vanda- mál og það eina sem máli skiptir er þetta: ætlum við að stefna áfram á friðarbraut eður ei?“ Hátíðin í dag var haldin í risa- stóru skipslaga tjaldi og tugir þús- unda manna tóku þátt í hátíða- höldunum. Sigldu menn á smá- bátum um höfnina í Port Said og veifuðu fánum og blómum í fögn- uði sínum. Minnstu munaði að blaðamenn fengju ekki aðgang að hátíðasvæðinu og skarst í odda milli þeirra og öryggissveita. Upp- lýsingamálaráðherra Egypta gekk þá í málið og komust blaðamenn og Ijósmyndarar inn á svæðið fáeinum mínútum áður en Sadat birtist. Fréttastofum ber saman um að allir líti á opnun skurðarins sem tímamótamál en framtlð hans sé þó engan veginn tryggð, þar sem stærð skipa hefur gerbreytzt á þessum átta árum og mörg skip geta alls ekki um hann farið. Hins vegar leggja Egyptar mikið kapp á að öll skip af hæfilegri stærð noti hann vegna þess mikla tíma Framhald á bls. 20 Paul Keres lézt í gær Einn merkastur skákmaður á þess- ari öld, segir Friðrik Ólafsson Moskvu 5. júni Reuter. EISTLENZKI skákmeistarinn Paul Keres lézt úr hjartaslagi í Helsinki í dag, en hann hafði við- komu þar á leið til Sovétríkjanna af móti í Kanada. Keres varð 59 ára gamall. Tass-fréttastofan skýrði frá láti hans og sagði að hann hefði þrívegis orðið Sovét- meistari, fjórum sinnum Ólympíumeistari og þrívegis Evrópumeistari. Friðrik Ólafsson, stórmeistari, hefur alloft teflt við Paul Keres síðast á Tallinmótinu fyrr á þessu ári. Mbl. leitaði eftir skoðun hans á hinum látna skákmeistara: — Hann var án efa einn af fremstu skákmönnum þessarar aldar, sagði Friðrik, — og þykir mér andlátsfregn hans mjög hryggileg. Hann hefur staðið eins og brimbrjótur I skáklistinni í fjóra áratugi og sennilega hafa fáir skákmenn jafnari útkomu en hann allan þann tíma, sem hann hefur verið í skákinni. Oft réð því óheppni ein eða nánast tilviljun, Framhald á bls. 20 Jafntefli hjá Karpov Portoroz Júgóslaviu 5. júní. Reuter. ANATOLY Karpov varð að láta sér nægja jafntefli i skák sinni við Júgóslavann Bruno Parma f 3. umferð Vidmarskákmótsins í Portoroz í gær og hefur heims- meistarinn nú 2'A vinning og er efstur ásamt þeim Hort frá Tékkóslóvakfu og Glicoric frá Júgóslavíu. Glicoric sigraði landa sinn Plan- inc í 41 leik, en Planinc sigraði á þessu móti 1969. Glicoric hefur aldrei sigrað á mótinu, en tvisvar orðið í öðru sæti. Hort sigraði Rudi Osterman. Önnur úrslit i þriðju umferð voru þau, að Barle frá Júgóslaviu gerði jafntefli við Kúbumanninn Garcia, Ljubojevic og Furman frá Sovétríkjunum gerðu einnig jafntefli, en Fur- man, sem er 54 ára að aldri, er elzti keppandi mótsins — og hann er jafnframt þjálfari Karpovs. Portisch sigraði Musil frá Júgó- slavíu, landi hans Velimirovic sigraði landa sinn Karner og Mariotti frá Italíu og Ungverjinn Ribli gerðu jafntefli. Alls verða tefldar 15 umferðir og eru 1. verð- laun 2000 dollarar. Stórfelld gengis- felling í Argentínu Buenos Aires, 5. júní. AP. ARGENTINUSTJÓRN fellcli í dag gengi gjaldmiðils síns, pesos, og fást nú 30 peso fyrir Banda- rfkjadollar í stað 15 áður. Er þetta önnur meiri háttar gengis- fellingin þar f landi á tveimur mánuðum, en 3. marz var gengið felit þannig að 15 peso fengust fyrir dollar f stað 10. Celestino Rodrigo efnahags- málaráðherra landsins, sem tók við embætti á mánudag, tilkynnti um ráðstafanirnar og sagði þær vera nauðsynlegar vegna verð- bólguóreiðu I landinu. Þá til- kynnti hann einnig um stórfelld- ar hækkanir á bensini, rafmagni og gasi. Hækkar bensínlítrinn úr 4,80 peso í 13,50. Er þetta mesta hækkun, sem um getur í sögu landsins. Þá hækkaði rafmagns- verð um 75%, og á mánudag verð- ur tilkynnt um vaxtahækkanir. Rodrigo er þriðji efnahagsmála- ráðherrann í Peronistastjórninni sem tók við i maí 1973. Verðbólg- an í landinu er nú áætluð um 80% á ársgrundvelli. Helmingur Onassisauð- æfanna til góðgerðarmála Jacqueline Aþenu, 5. júni. AP. Cristina Onassis tilkynnti í dag, að skv. fyrirmælum í erfðaskrá föður síns, Aristoles Onassis, myndi helmingnum af auðæfum hans, verða varið til góðgerðamála í Grikklandi. Verður sérstök stofnun sett upp til að annast framkvæmd málanna. Er þetta gert til minningar um son Onassis, Alexander, sem fórst í flugslysi f janúar 1973. Fyrrnefnd stofn- un verður skráð f Liecthenstein 1 tilkynningunni var ekkert minnst á hve mikið fé vaéri um að ræða, en getgátur eru um að eignir Onassis hafi numið um 1 milljarði dollara. Ekki er vitað hve mikinn arf ekkja Onassis, Jacqueline Kennedy Onassis hlaut, en vitað er að Onassis ánafnaði Cristinu mestan hluta þeirra eigna, sem ekki fara til góðgerðamáfa. Onassis lézt I París í marz sl. eftir langvar- andi veikindi. Onassis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.