Morgunblaðið - 06.06.1975, Síða 18

Morgunblaðið - 06.06.1975, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1975 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sfmi 22 4 80 Áskriftargjald 700,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið að hefur verið stefna núverandi ríkis- stjórnar frá því hún tók við völdum að styrkja stöðu þeirra, sem búa við lægst laun í þjóðfélaginu. Jafn- framt hefur ríkisstjórnin lýst yfir því, að ekki sé grundvöllur til verulegra og almennra kauphækkana við þær erfiðu aðstæður, sem við stöndum nú and- spænis. Þessi stefna ríkis- stjórnarinnar hefur verið samhljóða yfirlýsingu Al- þýðusambandsins um þetta efni. Nú hefur hins vegar komið í ljós eins og í febrú- arsamningunum, að yfir- lýsingar Alþýðusambands- ins um þetta efni eru orðin tóm.ie Raunverulegar kröfur eru allt aðrar. Undirnefnd skipuð full- trúum úr samninganefnd- um Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambands- ins reiknaði út fyrr í vik- unni, hvað raunverulega fælist í kauphækkunar- kröfum Alþýðusambands- ins eins og þær voru sam- þykktar á baknefndarfundi 22. maí. Þar var farið fram á 38,5% hækkun á 6. taxta Dagsbrúnar og sú sama krónutala kæmi siðan til hækkunar á aðra kaup- taxta og sem grunntala inn i ákvæðis- og bónustaxta. Jafnframt hefur samninga- nefnd Alþýðusambandsins krafizt þess, að hærri launamenn, sem ekki hafa fengið launajöfnunarbæt- ur fái þær nú til viðbótar öðrum kauphækkunum. I raun réttri þýðir þessi kröfugerð, að hálauna- menn innan Alþýðusam- bandsins fá hlutfallslega meiri kauphækkanir en láglaunamennirnir, þótt látið sé í veöri vaka, að sama krónutala komi á alla kauptaxta. Ástæðan er sú, að þessi upphæð kemur sem grunntala á ákvæðis- og bónustaxta og álagslið- irnir hækka því að sama skapi. Samkvæmt útreikn- ingum undirnefndar beggja samningsaðila hefur komið í Ijós, að þessi kröfugerð þýðir í reynd 17.333 kr. kauphækkun til láglaunamanna en allt að 43.000 kr. hækkun til iðnaðarmanna. Þannig er það raunveruleg krafa Al- þýðusambandsins, að til- tölulega lágt launað skrif- stofufólk fái 33% kaup- hækkun, verkamenn um 38%, en iðnaðarmenn, er hafa miklu mun hærra kaup fyrir, fái 52,2% kaup- hækkun. Það er því rangt, sem haldið hefur verið fram, að hærri launamenn eigi samkvæmt kröfum Al- þýðusambandsins að fá hlutfallslega lægri kaup- hækkun og þannig eigi að stuðla að launajöfnun. Þegar dæmið hefur verið reiknað til enda eiga þeir hærra launuðu að fá hlut- fallslega meiri kauphækk- anir en aðrir. Það er ekki einvörðungu, að Alþýðusambandið hafi sett fram kauphækkunar- kröfur, sem engan veginn fá staðizt við núverandi að- stæður og forystumönnum þess er ljóst, að þýða nýja kollsteypu, heldur hefur það einnig staðið að kröfu- gerð, sem í raun réttri eykur á launamismun. Hverjum manni ætti þó að vera ljóst, að engar for- sendur eru fyrir slíkri kröfugerð. Fram til þessa hafa menn verið á einu máli um, að nauðsynlegt væri að bæta launakjör þeirra, sem nú eiga við mesta erfið- leika að etja vegna dýr- tíðarinnar. Hitt hefur jafn- framt verið ljóst, að þessu marki yrði ekki náð án nýrrar kollsteypu, nema þeir, sem betur eru staddir leggi nokkuð af mörkum og fresti kröfum um grunn- kaupshækkanir þar til rofar til á ný í efnahags- málunum. En það líður Með lögum viðreisnar- stjórnarinnar vorið 1971 var lagður grund- völlur að þeirri hækkunum á bótum almannatrygg- inga, sem komu til fram- kvæmda í tið vinstri stjórn- arinnar. Frá því að núver- andi ríkisstjórn var mynduð hafa síðan verið ákveðnar verulegar hækkanir á tryggingabót- unum. Til marks um það má nefna, að full tekju- trygging einstæðs ellilíf- eyrisþega hefur hækkað frá því í september um 76%, en full tekjutrygging hjóna hefur hækkað á sama tíma um 65,6%. Ríkisstjórnin hefur hækkað ellilífeyri og tekju- tryggingu í fullu samræmi við verðlagshækkanir. 1 lok þessa mánaðar koma enn á ný til framkvæmda hækk- anir á þessum greiðslum. í því sambandi má nefna, að ellilífeyrir ásamt fullri tekjutryggingu einstakl- þeim mun lengri tími þar til við náum okkur upp úr þessum öldudal, eftir því sem við köllum fleiri koll- steypur yfir okkur. Nú þegar kröfugerð ASl hefur verið brotin til mergjar hlýtur sú spurning að vakna fyrir hverja lág- launafólkið er að berjast í verkföllum þeim, sem boðuð hafa verið 11. júní n.k. inga hefur þá hækkað um 44% frá því í september. Á sama tíma hefur fram- færsluvísitala hækkað um 43,4%. Hækkun á ellilíf- eyri og fullri tekjutrygg- ingu hjóna er þá orðin 40% frá því í september. Þegar hækkun tekju- tryggingarinnar kemur til framkvæmda i lok þessa mánaðar hefur hún sam- tals hækkað hjá einstæðum ellilífeyrisþegum úm 82% og hjá hjónum um 71%. Hér er um verulegar hækk- anir að ræða. Ríkisstjórnin hefur með þessum hætti tryggt óbreyttan kaupmátt ellilífeyris og tekjutrygg- ingar. Það er umtalsverður árangur eins og nú er ástatt. Jafnframt er öllum ljóst að halda verður áfram þeirri viðleitni að bæta kjör og aðstöðu þeirra öldruðu í þjóðfélagiriu, þess fólks sem lagt hefur grundvöllinn að islenzka velferðarþjóðfélaginu með þrotlausri vinnu. Fyrir hver ja er barizt? Hækkun ellilífeyris og tekjutryggingar eftir Elínu Pálmadóttur Sá sem ferðast, er stundum beðinn um að segja frá og sýna myndir frá fjarlægum stöðum. I frásögn af Malasíu hefi ég stund- um á undanförnum tveimur árum sagt eitthvað á þessa leið, og það rifjast upp nú: „í rauninni er mjög fróðlegt nú á timum að kynnast Malasíu, þar sem ósköpin byrjuðu alveg á sama hátt og í Viet Nam með skæru- hernaði kommúnískra terrorista árið 1948, én þar sem atburðirnir tóku aðra stefnu eftir 1 2 ára blóð- ugt og skelfilegt frumskógastrið. í Malasiu var öðru visi tekið á mál- um. Ekki með þvi að senda sifellt stærri og meiri hersveitir með óttalegri vopn á vettvang, heldur fyrst og fremst með þvi að veita skelfdum tómthúsmönnum i skóg- arjöðrunum skjól i „nýju borgun- um" svonefndu og vinna hug þeirra með bættum kjörum. Um 'h milljón fékk þar jarðnæði og húsa- skjól. Þannig var hægt að veita þeim vernd, svo ekki var mögulegt að hræða þá til að veita neinum lið eða matvæli. Eins var landið þegar á leiðinni að fá frelsi og komast undan 140 ára nýlendu- stjórn Breta, svo ekki var hægt að kalla þetta baráttu fyrir frelsi. Eins féllu Malajarnir og Bretarnir, sem þá studdu, ekki i þá freistni að tortryggja alla Kínverja i landinu, þó skæruliðarnir væru kinverskir flokkar, sem höfðu staðið með Bretum i frumskógahernaðinum gegn Japönum, er lögðu undir sig allt þetta landsvæði í heimsstyrj- öldinni. Þannig einangruðust skæruliðarnir smám saman í skóg- unum, matarlausir og hraktir, og var svo útrýmt að mestu. En smá- hópar eru enn norður undir landa- mærum Thailands, þar sem þeir eru í frumskóginum og berjast fram og aftur við landamærin. For- ustan er enn talin vera i höndum gamla kommúnistaleiðtogans og skæruliðans Chin Peng. En þetta er lengri og flóknari saga en svo að hún verði sögð i stuttu máli. Kannski er henni ekki lokið. Marg- ir á þessum slóðum reikna með að þegar baráttunni Ijúki i Viet Nam, færist átökin yfir Thailand og Malasíu. Og nú er semsagt komið að þvi. Óttinn við það, var þegar áberandi fyrir rúmum tveimur árum, þó ennþá fremur í Thailandi en Mala- siu, enda nær Laos, Kambodiu og Viet Nam. sinum fornu erfðafjend- um. f fyrstu töldu Thailendingar sér bezt borgið með veru sinni i SEATO, Suðaustur-Asiu bandalag- inu, sem Ástralia, Frakkland, Nýja Sjáland, Pakistan. Filippseyjar, Thailand. Bretland og Bandarikin stofnuðu haustið 1954, sem varnarbandalag gegn framsókn kommúnista i Asíu, og svo með veru bandarisks herliðs á hervöll- unum i landinu. f aukinni skelf- ingu sinni nú, sem heyra má gegn- um allar gerðir Thailendinga, ef grannt er hlustað, reyna þeir að gripa til annarra og öruggari ráða. — að vingast i snatri og sem mögulegt er við sigurvegarana við landamæri þeirra. Thailendingar hafa alltaf verið býsna glúrnir að bjarga sér. Þeir eru einasta landið í Austur-Asiu, sem alltaf hefur tekist að halda frelsi sinu, þrátt fyrir landamæra- strið við nágrannana I Birma, Laos og Kambodiu, og siðar ásókn ný- lenduveldanna, sem lögðu hvert landið á fætur öðru undir sig. Sagt er, að það hafi ávallt bjargað Thai- lendingum hve slyngir og raunsæ- ir samningamenn þeir voru og góðir diplómatar. Thailendingar segja um Chulalonghorn kóng eða Rama V, sem missti i samningum alls 90 þúsund fermilna land, m.a. Kambodiu til Frakka og Malasiu til Englendinga, að honum hafi þó tekizt að halda frelsi landsins. Sé Siam likt við mann og töpuðu landsvæðunum við limi hans, þá hafi kóngur fórnað limunum til að bjarga hjartanu, svo hann gæti haldið áfram að lifa. Og segja megi að gamla Siam eða Thailand hafi við þetta orðið þéttari og samstilltari kjarni. Enda þýðir Thai frjáls og nafnið táknar þvi landið frjálsa. En Thailendingar gerðu á 19. öld samninga um viðskipti og vináttu við Bandarikjamenn, Breta, Frakka. Dani, Portúgali, Hollendinga, Þjóðverja, Svia, Norðmenn, Belgíumenn og Itali, sem allir lofuðu að láta landið i friði gegn hlunnindum á móti. Og siðast við Japani. sem fengu i heimsstyrjöldinni að vera i og fara yfir landið, gegn þvi að hernema það ekki eins og löndin í kring. En um það vildu menn helzt ekki ræða lengur i Thailandi. Vonandi tekst þeim eins vel að vingast við þá, sem kunna að ágirnast þá nú — og halda hjartanu frjálsu. Ekki er auðvelt að skilja og vita í svo framandi landi. Þegar ég i fyrri ferðinni til Thailands 1970 var að rembast við að sjá og skilja — oft með misjöfnum árangri. sagði fréttamaður CBS sjónvarps- ins bandariska uppörvandi við mig: — Ég er búinn að vera frétta- maður hér i Suðaustur-Asiu í 20 ár og sima nær daglega heim ein- hverjar fréttir. Og það er fjölmargt sem ég veit ekki og skil ekki ennl Þetta reyndi ég að láta mér að kenningu verða. En eitt er nauð- synlegt á slíkum stað. að skjlja eftir fyrirframgerðar skoðanir, sem verða gjarnan svo einfaldar og auðveldar á jafnfjarlægum stað sem fsland er. Það er sannarlega ekki gott að átta sig á ástandinu i Thailandi á stjórnmálasviðinu. Maður fær aldrei bein svör við neinu. allt er undir yfirborðinu. Ekki leikur vafi á þvi að spilling er mikil i stjórn- kerfinu, og auðugar ættir b/sna áhrifamiklar. En þar sem slik spill- ing er mjög ríkjandi og hefur verið lengi f löndum Suðaustur- Asfurikjunum, virðist almenningur ekki setja það mikið fyrir sig þó að þaðsé spurt. Þaðsem kvartað er undan, er fremur of mikil óper- sónuleg miðstjórn i Bangkok og stjórnvöld þannig úr sambandi við landsbyggðina og fjarlæga staði. Embættismenn hennar og lög- reglumenn eru sendir frá höfuð- borginni og stjórna samkvæmt fyrirmælum þaðan, en heimamenn geta litið aðhafzt i eigin málum. Sumir sögðu mér, að þó stjórnin vildi skera niður spillingu og bæta úr, þá vanti skipulag og getu til að koma þvi i framkvæmd. Töldu flestir, sem ég átti tal við, að viljinn væri kannski fyrir hendi, en allt gengi hægt þar í landi. Thai- lendingar sjálfir væru þannig gerð- ir. Þó Thailendingar séu aldrei ánægðir með hlutina eins og þeir eru, þá vilji þeir fara hægt í breyt- ingar, útskýrðu menn. Þeim falli betur þróun en bylting. Ef hver og einn hefði innbyggðan sálrænan hraðamæli og hann væri stilltur á hraða, sem bezt hentar honum til aðstarfaog lifa sinu lifi á heimilinu og i þjóðlifinu yfirleitt, þá sé hraðamælir Thailendingsins frem- ur stilltur á lento eða hægt en allegro — hratt. Og það sýnist mér sannarlega að geti verið rétt. Þegar ég heyri fréttirnar frá Thailandi nú, þá þykir mér slæmt að stormsveipur með miklum flóð- um kom í veg fyrir að ég kæmist til Chienmai, hinnar fornu höfuð- borgar Thailands og norðurhlut- ans yfirleitt. Þar er það, sem landamæri Thailands liggja að Laos og að Birma. Þar er Mekong fljót, þar sem Thai Laosar og Thai- lendingar, sem í rauninni er sama fólkið, hafa í aldaraðir farið frjáls- lega yfir landamærafljótið hver til annars og þekkjast ekki i sundur. Þar eru þorp víetnömsku flótta- mannanna. sem lentu milli stríð- andi aðila og flúðu yfir Laos, þar til þeir lentu i Thailandi, þegar Ho Che Min leiddi Viet Nama i barátt- unni gegn Japenum í seinni heimsstyrjöldinni og siðan gegn Frökkum — þessir Vietnamar i Thailandi sem Thailendingarnir tortryggðu alltaf sem kommún- ista. Og þarna norðurfrá eru her- flugvellirnir, sem Bandarikjamenn hafa flogið frá til að gera loftárásir á Norður Viet Nama og Ho Che min leiðina, flutningaleið Norður- Vietnama gegn um Laos. Þar eru lika skæruliðarnir i fjöllunum og terroristarnir, sem koma inn i þorpin og neyða þorpsbúa til að veita stuðning — drepa mann og annan til að halda þeim skelfdum — enda litil vörn í stjórnvöldum landsins, svo langt frá miðstjórn- inni i Bangkok. Hún hefur lengst af gert lítið fyrir ibúa þessara af- skekktu héraða landsins og þeim þvi hvorki nærtæk né kær. En semsagt, ég komst ekki þarna norður eftir og mun þvi ekki reyna að útskýra hvernig málum er hátt- að þar. Kannski fær ég tækifæri til þess siðar. Nú er ég svolítið betur búin til að skilja þetta fólk, eftir nokkur kynni af þvi, hugsunar- hætti þess og lifsskilningi á þess- um tveimur ferðum þangað. Mað- ur ætti liklega að láta sér varnað- arorð Anonymousar karlsins sér að kenningu verða, er hann sagði: Sagan er no'kkuð, sem aldrei gerð- ist, skrifuð af mönnum sem ekki voru þar. Flestir Thailendingar virðast raunar litinn áhuga hafa á stjórn- málum og stjórnsýslu og tala lítið um slikt. Þeir lifa i gjöfulu og hlýju landi, þar sem allt grær. Þeir hafa lítið og lifa á litlu, en eru glaðir og áhyggjulausir. Brosa sinu hlýlega brosi við öllu og öllum. Mér þótti fengur að kynnast svo Ijúfu, lifs- glöðu og eðlilega tillitssömu fólki, sem aldrei hefur heyrt Einar Bene- diktsson nefndan, en kann þó flestum betur að hafa gát i nær- veru sálar. Og mér finnst skelfilegt ef yfir það á að ganga, þó ekki sé nema brot af ósköpunum frá Viet Nam — sama hvaða tilgangi það á að þjóna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.