Morgunblaðið - 06.06.1975, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JUNl 1975
23
Tíu hreppa skóli rís í Varmahlíð
læti hennar og eðlislægu elsku-
semi.
Ég óska þessari öldnu vest-
firzku kempu allra heilla á slíku
merkisafmæli hárrar elli, og að
hún megi njóta bæði nú og síðar
göfugs hjartalags síns og fórnar-
lundar. Hún hefur aldrei verið
kröfuhörð fyrir sjálfa sig — má
varla til þess hugsa, að nokkur
hafi neitt fyrir henni — en hefur
haft til að bera þann metnað og þá
reisn, sínum til handa, sem höfð-
ingjum sæmir. Um hana mátti
segja á vissu skeiði ævinnar:
„Konungs hafði hún hjarta í kot-
ungs barmi“. Siðar lifði hún betri
tíma.
Megi þessi góða kona liía
óbuguð og sem heilust heilsu til
hinztu stundar og minnast þess í
viðjum ellinnar, sem henni er
hugljúfast og kærast frá svo
Iöngum og stundum ströngum
ævidegi. Guð blessi Halldóru ævi-
kvöldið og Ijái henni likn með
þraut.
Vinur að vestan.
Sönglög
Eyþórs gefin út
Nýlega voru gefin út á ný 15
sönglög eftir Eyþór Stefánsson
tónskáld á Sauðárkróki og er út-
gefandinn Guðrún dóttir hans.
Lögin voru fyrst gefin út 1971, en
sú útgáfa er löngu uppseld. Heft-
ið verður eingöngu til sölu í
Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helga-
dóttur í Vesturveri í Reykjavík.
Eyþór Stefánsson er löngu þjóð-
kunnur sem tónskáld og hafa
mörg laga hans náð mikilli hylli,
m.a. „Lindin“, „Mánaskin“ og
„Bikarinn". Eyþór verður 75 ára á
vetri komanda. Hann á í fórum
sínum mörg lög, sem aldrei hafa
verið gefin út, en útgáfa þeirra er
fyrirhuguð síðar.
TlU hreppar í Skagafirði hafa
sameinast um einn skóla og er
nýja skólahúsið í byggingu í
Varmahlíð. Verður þar grunn-
skóli skv. nýju lögunum, en mis-
jafnt eftir hreppum hve margir
árgangar sækja þangað nám.
Tveir hreppanna hafa alla
kennslu í Varmahlfðarskóla,
Seyluhreppur og Skarðshreppur,
en aðrir eru með 2—5 árganga.
Þeir eru Staðarhreppur, Akra-
hreppur, Viðvfkurhreppur, Hóla-
hreppur, Hofshreppur, Hofsós-
hreppur, Haganeshreppur og
Holtshreppur. Ráðgert er að í
skólanum verði 180—200
nemendur úr þessum hreppum og
verður þeim ekið að og frá skóla,
þar sem unnt er.
Fyrsti áfangi skólahússins, sem
teiknað er af Hrafnkeli
Thorlaeius arkitekt, er 59% af
heildarstærð hússins. Er hann í
byggingu og ætlunin að þessum
fyrsta áfanga verði lokið i árslok
1975. t þeim áfanga er i A-húsi
heimavist fyrir 30 nemendur,
mötuneyti, ibúðir starfsfólks,
kennara og gæslúmanns,
geymslur og fleira. I B-húsi eru
allar kennslustofur, lesstofur,
bókasafn og geymslur. Fyrsti
áfangi er 1430 ferm að stærð, ann-
ar áfangi 1220 ferm. Siðar er ráð-
gert að reisa stjórnunardeild og
kennarabústað ásamt skólastjóra-
bústað, samtals 913 ferm og loks
íþróttahús, um 860 ferm að stærð,
og 500 fermetra heimavistarhús
til viðbótar. 'Þá yrði samanlagt
skólahúsnæði 4920 ferm að stærð.
Áætlað var að áfangi sá, sem nú
er unnið að myndi kosta 85 millj
króna, en heildarkostnaður er nú
orðinn 57 millj. Ríkissjóður greið-
ir um það bil 77% stofnkostnaðar
skólans og hrepparnir sameigin-
lega 23%, i hlutfalli, sem samið er
um þeirra á milli.
Borað hefur verið eftir heitu
vatni austan i Reykjahól við
Varmahlið í Seyluhreppi, til að fá
heitt vatn til skólabyggingarinnar
og var árangur góður. Fengust 17
sekundulítrar af 86 gráðu heitu
vatni, sem talið er nægja fyrir
1000 manna bæ.
Teg. 202
Ný tegund frá Berkemann. Með vel gerðu innleggi
Nr. 36—40. Litir: Hvítt og rautt lakkleður
Verð 2.760.
Velour-Toffler. Teg. 404.
Fyrsta sinn sem við getum boðið þessa
gerð úr rússkinni mjúkt og þægilegt.
Nr. 36—40. Litir: Dökkblátt og sand.
Verð: 3.290
Teg. 402.
Möguleiki á að vikka yfir ristíiia
Litir: Hvitt og brúnt.
Verð nr. 38—40 kr. 4.215
Verð nr. 41—46 kr. 4.450.
leg. 208.
Krossviðarsóli og kork
hæll með svampsólum.
Tágribspúðum og tágripi
Litur: Rautt skinn
Nr 37—40
Verð kr. 3.060
Hann veit svo sem hvað til hans friðar heyrir
BERKEMANN töflur,
það er nokkuð, sem maður VGlt hvað er.
Orginal sandalar. Teg. 104
Þessa tegund höfum við haft
Ikk. stöðugt á boðstólnum
' mör9 ár. Að þessu
C ‘ /7 ;é sinni er hællinn
J aðeins hærri og hefur
.^0 það likað mjög vel.
Nr. 36—40.
Litur: Hvitt, Verð 2.745.
Ruby. Teg. 704.
Leðurskór með hinu góða Berkemann
korkinnleggi. 30 mm hælar.
Nr. 37—40. Litir: Hvltt og beige.
Verð kr. 600.
Teg. 359.
Mjög vinsæl gerð. Nr. 36—40
Litir: Rautt og gult, lakk, skinn
Verð:3.455.
Sommer-töflur. Teg. 414.
Mjög vinsæl tegund.
Lirit: Hvitt! nr. 36—42. ,
Verðkr. 3.290 k
Brúnt i nr 40—46
Verð kr. 3.81 5 V
Soft-toeffler. Teg. 424^^^"^^^^
Nr. 37—40. Litir: Hvitt og hummer (Ijósbrúnt)
Verð kr.: 4 780
Teg. 359.
Sama útlit og teg. 359
Þó með þeirri nýjung
að hægt er að þrengja^^HH
eða vlkka efri ólina
Nr. 36—40. . „
Litur: Blátt skinn f
Verð: 4.285 V_
Kiesel. Teg. 772.
Fallegar karlmannatöflur úr skinni með hinu góða
Berkemann korkinnleggi. Skórnir gefa góðan stuðning
Nr 40—45. Litur: Brúnt. Verð kr 6.315
Brasilia. Teg. 372
Nýtískufegt og fallegt snið og að
sjálfsögðu með Berkemann innleggjum. Nr. 36
Litir: Hvltt, blátt og rautt skinn. Verð: 3.920
Teg. 401.
Litur: Svart skinn, sóli dekktur
Verðnr. 38—40 kr. 3.590
Verð nr. 41 —47 kr. 3.950.
Póstsendum samdœgurs
Allar gerðirnar, sem eru úr tré eru léttar og pólerað tréð
1. flokks frágangur. Allar með svamp sólum.
Domus Medica
Egilsgötu 3.
Pósthólf 5050.
Slmi 18519.
Einnig nýkomið fjölbreytt úrval af tréskóm frá Danmörku og Finnlandi
ásamt ódýrum fallegum kvenskóm frá Ítalíu o.fl. o.fl.