Morgunblaðið - 06.06.1975, Page 27

Morgunblaðið - 06.06.1975, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JUNl 1975 27 Kveðja: Valdimar Ragnar Valdimarsson Fæddur 13. júlí 1927. Dáinn 3. maí 1975. Mætur maður er kvaddur. Minningarnar leituðu á hug- ann, eftir að hann pabbi kom til mín og sagði mér, að hann Valdi bróðir sinn væri dáinn. Þessi fregn kom mér ekki mjög á óvart. Ástæðan var sú, að þessi elsku- legi frændi minn hafði legið á sjúkrahúsi siðan í september s.l., þar sem hann háði óslitna baráttu við ólæknandi sjúkdóm, þó ekki væri nema47 ára gamall. Það var eins með hann og svo marga aðra sem kvaddir eru svo ungir á fund feðra sinna, að hann var ekki við- búinn að kveðja þetta jarðneska líf. Hann var svo fullur af lífsþrótti og talaði um framtíðaráform sín allt fram til síðustu stundar. Hann var mjög samvizkusamur maður í vinnu sem öðru og lengst af ævinni starfaði hann við vél- stjórn, bæði til sjós og í landi. Nú síðast á Dælustöðinni á Kefla- víkurflugvelli. Ég hef heyrt sagt, að þar sem Valdi hafi verið við vélstjórn, hafi verkið verið svo vel og snyrtilega af hendi leyst, að vart hafi verið hægt að finna hreinlegri vélasal. Valdi var kvæntur Fanneyju Björnsdóttur, móðursystur minni, og bjuggu þau fyrstu hjúskapar- árin ásamt dætrunum þremur, Ragnheiði, Eygló og Hafdisi, í Tjarnarkoti í Sandgerði, þar sem fjölskylda mín bjó einnig. Þessar tvær fjölskyldur voru eins og ein stór fjölskylda, svo samhentar voru þær. Síðar fluttist Valdi með fjölskyldu sína til Y—Njarðvíkur. Nokkrum árum seinna lauk ég skyldunámi mínu í Sandgerði, en gagnfræðanámi þurfti ég að Ijúka í Keflavik og bjó ég þau tvö námsár á heimili Valda og Fanneyjar, sem tóku mér eins og ég væri ein af dætrum þeirra. En fyrsti skóladagurinn er mér ætið minnisstæður, því að honum lokn- um fannst mér, að áframhaldandi skólaganga væri óhugsandi, því kunnátta mín í hinum ýmsu námsgreinum var i engu sam- ræmi við kunnáttu skólafélaga minna, sem virtust eiga talsvert lengri skólagöngu að baki. Buguð af vonleysi hélt ég heim á leið, þar sem Valdi tók á móti mér með eftirvæntingu í augum og spurði hvernig mér hefði gengið. Við settumst við eldhúsborðið og eftir að ég hafði sagt honum ástæðuna fyrir vonleysi mínu, bað hann mig blessaða að hafa ekki áhyggjur af slíkum smámunum, því þessu væri hægt að koma í lag. „Ég tala við vin minn, sem er kennari og bið hann að kenna þér það sem á vantar“. Þannig gat Valdi ætíð gert lítið úr áhyggjum annarra með þvi að byggja upp nýja von, sem hann stóð vörð um, Deutschsprachige Stenotypistin mit guten Steno- und Schreib- mashinenkenntnissen aushitfsweise ab sofort fiir ca. 3 Monate gesucht. Botschaft der Bundes- republik Deutschland Tel. 19535 Þýskumælandi hraðrit- unarstúlka með góða kunnáttu bæði í hraðrit- un og vélritun óskast strax um 3 mánaða skeið vegna forfalla. Sendiráð Sambandslýð- veldisins Þýskalands, simi 19535. Strásykur 1 kg. kr. 210 Gr. baunir Ora 1/1 kr. 130 Smjörlíki 1 stk. kr. 138 Hveiti 10 Ib. kr. 397 Ritskex kr. 86 Yfir 20 teg. af kexi á kjarapöllum Fiskibollur 1 /2 kr. 88 Úrbeinað hangikjöt á kjarapöllum Kaffi einn pakki á kr. 109 Kjöt í heilum skrokkum Opið til kl. 10 í kvöld og til hádegis á morgun Kostaboð á kjarapöllum KJÖT OG FISKUR SELJABRAUT 54.S1MI: 74200 svo lengi sem hann taldi þurfa. Fanney hefur verið stoð og styrkur mannsins síns til síðustu stundar og votta ég henni, dætrunum, aldurhniginni móður, systkynum og öðrum ástvinum mína dýpstu samúð og bið Guð að styrkja þau í sorginni. Með þessum fáu og fátæklegu orðum vil ég þakka mínum elsku- lega frænda fyrir allar samveru- stundirnar og allt sem hann hefur fyrir mig gert. Blessuð sé minn- ing hans. Fari hann í friði. Bróðurdóttir. Athugasemd VEGNA fréttar í Mbl. s.l. laugar- dag um hrun brúar yfir Kópa- vogsgjána hefur bílstjóri vöru- bílsins, sem dró gröfuna, Ásbjörn Helgason, haft samband við blað- ið. Kvað hann það ekki rétt vera í fréttinni, að billinn hefði verið á töluverðri ferð. Þvert á móti hefði hann ekið löturhægt í 2. gir og vart verið yfir 10 km hraða á klukkustund. Nýr kaupfélags- stjóri á Höfn KAUPFÉLAG Austur- Skaftfellinga hélt aðalfund sin síðastliðinn laugardag, fundinn sátu auk stjórnar og endurskoð- enda 24 fulltrúar. Heildarvélta félagsins á árinu 1974 var 11,74 milljónir; aukning 430 milljónir eða 57,8%. Fjárfestingar námu 145 milljónum, afskriftir nær 13 milljónum, rekstrareikningur' sýndi tap 4 milljónir 787 þúsund, heildarvinnulaun voru 182 milljónir 957 þúsund. söluskattur var greiddur 45 milljónir 884 þúsund. Framleiðsla í frystihúsi var 112, 476 kassar, saltfiskur 770 lestir, mjólkur-innlegg var 1 milljón 892 þúsund lítrar, aukning 2,36%. Slátrað var 28136 kindum og 695 nautgripum. Fulltrúar á aðalfundi SlS voru kosnir Ásgrímur Halldórsson og Óskar Helgason Asgrímur Halldórsson sem verið hefur framkvæmdastjóri félagsins í 23 ár lætur af störfum hinn 1. ágúst, en mun halda áfram störfum hjá félaginu. I hans stað hefur Hermann Hansson verið ráðinn framkvæmdastjóri. Gunnar. Gunnar á Kjarvalsstöðum GUNNAR I. Guðjónsson listmál- ari heldur nú sýningu á 84 verka sinna á Kjarvalsstöðum. Góð að- sókn hefur verið að sýningunni og margar myndir hafa selzt. Sýning- unni lýkur n.k. sunnudagskvöld. — Fimm milljón- um var tortímt Framhald af bls. 16 nema Petrovsky. Einungis þrir af 102 aðalmönnum og varamönn- um miðstjórnar Kommúnista- flokks Úkrainu héldu velli. Allir sautján ráðherrar stjórnar Úkraínu voru handteknir. Allir ritarar hinna ýmsu flokksdeilda landsins féllu. Hreinsanirnar tóku til hverrar einustu stofnunar lýðveldisins. Forystumenn iðnfyrirtækja ríkis- ins, borgar- og sveitarstjórna, mennta- og vísindastofnana hurfu hundruðum saman. Rithöfunda- samband Úkralnu var nánast þurrkað út. . . Stalín og Khruchschov hafði nú tekið að losa sig við alla fyrri forystumenn Úkralnu og fyllt skörðin með nýjum mönnum, sem höfðu vakið athygli á sér með skilyrðislausri samstöðu með eða áhuga á hinum nýju stjórnarhátt- um. Þetta levsti samt ekki erfið- leika þeirra félaga með úkralnsku þjóðina. Stalfn sagði Roosevelt á fundi þeirra á Yalta, að „hann ætti I erfiðleikum með Úkrafnu, og völd hans væru þar ótrygg". Hann harmaði það sfðar, að ekki væri viðráðanlegt að flytja alla úkrafnsku þjóðina nauðungar- flutningum eins og hann hafði leikið smærri þjóðir eins og Chechena og Kalmyka. í blaðinu á morgun verður enn gripið niður ! bók Roberts Conquest um ógnar- stjórn Stalíns Þar segir frekar frá hinum alræmdu hreinsunum, „réttarhöldum" og þrælkunarbúðum AÐ KAUPA VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RlKISSJÓÐS JAFNGILDIR FJÁRFESTINGU í FASTEIGN EINFALDASTA OG HAGKVÆMASTA FJÁRFESTINGIN SKATT- OG FRAMTALSFRJALS TIL SÖLU f ÖLLUM BÖNKUM — ÚTIBÚUM SPARISJÓÐUM OG HJÁ NOKKRUM VERÐBRÉFASÖLUM SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.