Morgunblaðið - 06.06.1975, Page 34

Morgunblaðið - 06.06.1975, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNl 1975 Þung sókn fslendinga að marki Austur-Þjóóverja í landsleiknum í gærkvöldi. Marteinn Geirsson ð í höggi við einn af varnarmönnum Þjóóverjanna, sem neytir sýnilega allra bragða að koma f veg fyrir að hann nái aó skalla. Elmar Geirs son (nr. 8) og Jóhannes Eðvaldsson (til vinstri) eru við öllu búnir ef knötturinn berst fyrir markið. t þetta sinn höfðu Þjóðverjarnir betur, en oft skall hurð nærri hælum við mark þeirra. Stærsti dagur íslenzkrar knatt- spyrnu er þýzka stórveldið var að velli lagt í glæsilegum leik í gær STÖRA stundin f fslenzkri knattspyrnu rann upp f gærkvöldi er fslenzka landsiiðið gekk með sigur af hólmi yfir Austur- Þjóðverjum f landsleik sem fram fór á Laugardalsvellinum f gærkvöldi. 2—1 urðu úrslit leiksins, og ef það er mögulegt að vera óánægður með nokkurn skapaðan hlut hjá fslenzka landsliðinu var það helzt það, að þvf skyldi ekki takast að skora fleiri mörk f fyrri hálfleik, er það réð bókstaflega lögum og lofum á vellinum, og oft var um hreina nauðvörn að ræða hjá Þjóðverjum, liðinu sem varð f 5.—6. sæti f sfðustu heimsmeistarakeppni, og vann þá ekki ómerk- ara afrek en það að verða eitt liða til þess að sigra vestur-þýzku heimsmeistarana. Það er langur vegur frá 14—2 tapinu fyrir Danmörk á árunum í það að sigra eitt bezta lið í heimi. En úrslit leiksins í gær færðu öllum knattspyrnuheiminum heim sönnur þess að á tslandi er nú lið sem getur jafnvel boðið hinum beztu byrginn. Eftir leik Islands og Frakklands á dögunum stóð allur knattspyrnuheimurinn á öndinni af undrun yfir þvf að Islendingar skyldu „ná“ jafntefli, en hvað verður sagt nú. Sigur yfir Austur-Þjóðverjum í leik þar sem fslenzka liðið var hreinlega betri aðilinn og átti mun fleiri og hættulegri tækifæri. Það leikur ekki á tveimur tung- um að þetta austur-þýzka lið var til muna sterkara en franska Iandsliðið sem lék hér á dögun- um. Leikmenn þess eru allir mjög lfkamlega sterkir og greinilega þrautþjálfaðir. Það fékk þó fá tækifæri til þess að sýna snilli sína í þessum leik, — það var ekki fyrr en undir lokin, er Islending- arnir voru hreinlega þrotnir að kröftum að Þjóðverjarnir áttu meira í leiknum, en eins og oft áður sýndi íslenzka liðið þá snillldarleik í vörninni, og gaf hvergi á sér færi. Þýzki þjálfarinn Bushner, sem fylgdist með leik Islands og Frakklands á dögunum, hefur greinilega töluvert af þeim leik lært. Hann hefur þá séð að veik- leiki fslenzka liðsins lá í því að leikmennirnir höfðu ekki náegjan- legt úthald, og því freistuðu Þjóð- verjarnir þegar frá upphafi þess að „keyra“ hraðann upp eins mik- ið og mögulegt var í þeirri von að úthaldið brysti algjörlega hjá ts- lendingum í seinni hálfleiknum. En það hefur sjálfsagt komið þeim meira en lftið á óvart að íslenzka liðið svaraði f sömu mynt — hafði betri tök á hraðanum og hreinlega yfirspilaði þýzka liðið oftsinnis í fyrri hálfleiknum. Þannig voru t.d. ekki liðnar nema tvær mínútur af leiknum er dæmdar höfðu verið tvær horn- spyrnur á þýzka liðið og mark þeirra bjargazt naumlega. Til að byrja með í leiknum f gær máttu Þjóðverjarnir heita góðir ef þeir komust að ráði fram yfir miðju. Hvað eftir annað komst mark þeirra í hættu, og þeir urðu að beita hreinni neyðar- vörn til þess að sleppa við mörk. Áhorfendur voru strax með á nótunum í þessari góðu byrjun og hvöttu íslenzka liðið ákaflega og hafði það tvímælalaust mikil áhrif. Búbbi skorar Einhvern veginn var það þann- ig að manni fannst markið liggja í loftinu. Það gat ekki verið að vörn Þjóðverjanna heppnaðist í það ó- endanlega. Og á 12. mínútu bar sókn íslenzka liðsins árangur. Dæmd var aukaspyrna á Þjóð- verja á þeirra eigin vallar- helmingi. Knettinum var spyrnt inn að markinu, beint á höfuð Ólafs Júlíussonar, sem flestir áttu von á að myndi freista þess að skalla á markið. En Ölafur var fljótur að átta sig og skallaði knöttinn fyrir fætur Jóhannesar Eðvaldssonar (Búbba), sem sneri baki í markið. Og áður en fjöl- menn þýzk vörn gat komið við vörnum hafði Búbbi spyrnt knettinum aftur fyrir sig í hjól- hestaspyrnu, algjörlega óverjandi fyrir þýzka markvörðinn. Stór- glæsilegt mark og var ekki að furða þótt allt ætlaði um koll að keyra á áhorfendapöllunum. Hurð nærri hælum Markið virkaði sem vítamfns- sprauta á fslenzka liðið og það hélt áfram mikilli stórsókn að marki Þjóðverjanna á næstu mín- útum. Aðeins tveimur mínútum eftir að Búbbi hafði skorað, bjarg- aðist mark Þjóðverjanna á næsta yfirnáttúrulegan hátt. Mikill þungi var þá í sókn Islending- anna, og kom að lokum há send- ing inn í markteiginn, þar sem Búbbi stökk öðrum hærra og skallaði. Virtist knötturinn á leið f netið, en því miður — hann smaug aðeins yfir þverslána. Annað stðrglæsilegt mark Eftir fyrstu 20 mínúturnar tók leikurinn að jafnast. Þjóðverjar náðu af og til sóknum, en fáar voru hættulegar. Mjög mikil hreyfing var á leikmönnum fslenzka liðsins og þar með tókst að stöðva flestar sóknaraðgerð- irnar í fæðingu. Sigurður Dags- son átti því fremur náðuga daga í markinu, en þegar hann náði knettinum sköpuðu langar út- spyrnur hans mikla hættu. Á 32. mínútu höfðu Þjóðverjar átt skot að íslenzka markinu, sem Sigurður handsamaði auðveld- lega. Hann spyrnti síðan knettin- um langt út á vallarhelming Þjóð- verjanna vinstra megjn. Þar tókst Ásgeiri Sigurvinssyni með harð- fylgni að ná til hans, og sýndi síðan það sem ekki er á færi nema afburða knattspyrnumanna. Hann lék aðeins nær marki Þjóð- verjanna og spyrnti síðan með svo föstu skoti á markið að það var ekki hægt að koma auga á knött- inn fyrr en hann söng í netinu að baki Júrgens Croy markvarðar. Það er örugglega langt síðan islenzkir áhorfendur hafa orðið vitni af öðru eins þrumuskoti og þarna'var um að ræða. Erfiður seinni hálfleikur Það var fyrirfram vitað mál að seinni hálfleikur leiksins myndi verða fslenzka liðinuerfiður. Bæði var þreytan af hinum gifurlega hraða í fyrri hálfleiknum farin að segja til sín og eins var þá á móti vindi að sækja. Menn spurðu hver annan? Tekst strákunum að halda þessu — og setningin: Þeir þurfa þó að skora þrjú til þess að vinna heyrðist af vörum margra. Spurningin varð áleitnari, þeg- ar Þjóðverjum tókst á 3. mínútu hálfleiksins að minnka muninn með stórglæsilegu marki sem Jílrgen Pommerenke skoraði. Þvaga hafði myndazt fyrir fram- an fslenzka markið og úr henni barst knötturinn til Pommerenke sem afgreiddi hann rakleiðis með föstu skoti i markhornið vinstra megin niðri, án þess að Sigurður ætti möguleika, þrátt fyrir góða tilburði. En þar með var líka saga stór- veldisins öll. Islenzka liðið gaf ekkert eftir. Hver einasti maður liðsins virtist staðráðinn í að berj- ast til þrautar. Þreytan sagði til sfn, en leikmönnunum tókst að pressa fram aukakraft úr líkama sínum — þann kraft sem þurfti til þess að halda Þjóðverjunum frá markinu. Þeir sóttu reyndar meira og voru meira með knött- inn, en þau tækifæri sem þeir fengu uppi við markið voru telj- andi á fingrum annarrar handur. Hins vegar áttu íslendingar af og til skyndisóknir sem sumar hverj- ar voru stórhættulegar. Þó aldrei eins og á næst sfðustu mínútu leiksins er Ásgeir Sigurvinsson átti skot af um 30 metra færi á þýzka markið, sem markvörður- inn hélt ekki, heldur missti frá sér til Matthíasar Hallgrímssonar, sem tókst að skjóta en þá var Croy vel á verði og tókst að bjarga f horn. — Þetta eru ekki skot frá Ásgeiri, þetta eru högg, sagði Sig- urður Dagsson, íslenzki landsliðs- markvörðurinn eftir æfingu landsliðsins á dögunum, og getur starfsfélagi hans í þýzka markinu örugglega tekið undir það eftir þennan leik. Hvergi veikur hlekkur A þvf var enginn vafi, að ís- lenzka liðið sýndi í gærkvöldi þann bezta leik sem ísienzkt laodslið hefur sýnt fyrr og sfðar. Það var enginn veikur hlekkur í liðinu og baráttan gffurleg. Tony Knapp, lands- liðsþjálfari, tók þann kost- inn að gera breytingar á liðinu frá Frakkaleiknum. Hann valdi Hörð Hilmarsson f stað Karls Hermannssonar og lét Elm- ar Geirsson byrja í stað Matthías- ar Hallgrímssonar. Má mikið vera ef það hefur ekki verið skynsam- leg ráðstöfun, þar sem Elmar ógn- aði stórkostlega með hraða sfnum og dugnaði. Beztur af öllum góðum i þessum leik var Ásgeir Sigurvinsson. Hann hafði hreint ótrúlega yfir- ferð á vellinum, var í sókn og síðan kominn í vörn á næsta and- artaki. Þá voru sendingar Ásgeirs vandaðar og nákvæmar, og mark- ið sem hann skoraði var hreint stórkostlegt. Eftir að hafa séð As- geir leika á móti jafngóðum liðum og Frökkum og Austur- Þjóðverjum er óhætt að fullyrða að hann er að komast f fremstu röð knattspyrnumanna í heimin- um. Jóhannes Eðvaldsson átti einn- ig stórkostlegan leik í gær og markið sem hann skoraði var þannig að ekki er á færi nema afburða knattspyrnumanna að gera slikt. Búbbi var einnig klett- ur í vörninni, og stöðvaði ófáar sóknir Þjóðverjanna sem reka átti endahnút á með skalla. Guðgeir Leifsson lék þarna sinn bezta leik fyrr og síðar, og voru Þjóðverj- arnir f eilífum vandræðum með hann, og tókst oft ekki að stöðva hann nema með grófum brotum. Annars má þaó ef til vill teljast ósanngjarnt að vera að nefna einn Islending öðrum betri i þessum leik. Liðið vann sem heild, og það sigraði í þessum leik og vann hið glæsilega afrek sem heild. Þar er ef til vill mesti munurinn á ís- lenzkri knattspyrnu frá þvf sem áður var. Leikmennirnir þekkja hvern annan, og leika skipulagt kerfi, sem þeir kunna og vita hvað gera skal i hverju og einu tilviki. Sem fyrr segir var lið Þjóðverj- anna eitt það bezta sem sézt hefur á Laugardalsvellinum og þar val- inn maður í hverju rúmi. Beztu leikmennirnir voru þó þeir JUrg- en Croy, markvörður, sem bjarg- aði oft stórkostlega, miðjumenn- irnir Siegmar Vátzlich og Konrad Weise og framherjinn Jurgen Pommerenke, sem var potturinn og pannan i öllum sóknum Þjóð- verjannar Dómari Dómari í leiknum í gærkvöldi var Foote frá Skotlandi og línu- verðirnir voru einnig skozkir: Smith og McKenzie. Ekki er hægt að hrósa dómaranum fyrir frammistöðu sfna. Hann var afar- ónákvæmur og lét Þjóðverjana komast upp með óþarflega gróf brot, sérstaklega þó bakhrinding- ar. Var á stundum sem hann vildi gera allt til þess að auðvelda þeim leikinn. Áhorfendur Ekki má gleyma þætti áhorf- enda í þessum leik. Gffurleg stemmning var á áhorfendapöll- unum, og undir lok leiksins, þeg- ar mest á reið, létu þeir vel til sfn heyra og börðu íslenzka liðið áfram — til glæsilegasta sigurs sem íslenzkt knattspyrnulið hefur unnið fyrr og sfðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.