Morgunblaðið - 06.06.1975, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 06.06.1975, Qupperneq 36
ALLTÁ EINUM STAÐ 83155 iM 83354 BOLHOLTI 4 REYKJAVÍK BYGGINGAÞJÓNUSTA FÖSTUDAGUR 6. JUNl 1975 Ljósm. Mbl. Friðþjófur Helgason. SIGUR t IIÖFN — Dómarinn hefur flautað leikinn af og áhorfendur hlaupa inn á völlinn og taka þátt f óstjórnlegri gleði leikmannanna. Ungir aðdáendur þyrpast að Ásgeiri Sígurvinssyni. Sambandsstjórnarfundur Vinnuveitendasambands tslands var haldinn f gær klukkan 16. Fundurinn fjallaði fyrst og fremst um samningamálin og heildarstefnumörkun í þeim. Vinnuveitendasambandið hefur nú fengið verkfallsboðanir frá 55 verkalýðsfélögum víðs vegar að af landinu. Mjög miklar umræður urðu á fundinum og f lok hans var einróma samþykkt tillaga er varð- ar verksviptingaraðgerðir. Tillagan er svohljóðandi: „Sambandsstjórnarfundur Vinnuveitendasambands Islands samþykkir að boða til almenns félagsfundar um verksviptingar- aðgerðir." Ákveðið var að halda félagsfund um framangreint efni næstkomandi mánudag klukkan 17. Barði Friðriksson, skrifstofu- stjóri VSl, sagði að VSI hefði áð- ur farið út í verksviptingarað- gerðir eða verkbannsaðgerðir á einstök félög, en aldrei hefði ver- ið farið út í verkbönn á heilar Samkomulag í ríkisverksmiðjudeilunni: Vfeðalkauphækkun um 11% SAMNINGAR við starfsfólk rfkisverksmiðjanna, Aburðarverksmiðju rfkisins, Sementsverksmiðju rfkisins og Kfsiliðjunnar h.f. voru undirritaðir um hádegisbil f gær eftir að samningafundur hafði staðið f um það bil 45 klukkustundir. Helztu niður- stöður samninganna, sem byggðir eru á starf4smati, eru um 11% meðaltalshækkun á dagvinnutaxta starfsfólksins. Inni f þeirri tölu eru þó ekki 4.900 krónurnar, sem Kjaradómur hefur nú dæmt inn f alla launaflokka og sé tekið tillit til þess er meðal- talshækkunin rétt tæplega 12%. Sumir starfsmenn fá óverulegar hækkanir, en aðrir fá hækkun, sem er talsvert hærri en meðaltalshækkunin. Kjara- samningurinn gildir til 1. maf 1976 og kemur þvf ekki til verkfalls starfsfólksins hinn 11. júnf næst- komandi. Samkvæmt upplýsingum Guð- mundar Einarssonar, formanns vinnumálanefndar ríkisins, mun það vera Áburðarverksmiðjan eða starfsfólk hennar sem fer tiltölu- lega bezt út úr samruna þessara kjarasamninga þar sem laun þar voru ívið lægri en f hinum verk- smiðjunum. Enginn starfsmaður lækkar i iaunum, en sumir hækka allnokkuð og þá einkum vakta- vinnumenn. Þó munu laun fyrir örfá störf lækka, en þeir starfs- menn sem fyrir eru lækka ekki — aðeins nýir menn, sem koma inn fara á þessa nýju skala. Sums staðar hækkar dagvinnukaup, en álagsprósenta lækkar aftur á móti. Morgunblaðið ræddi f gær við aðila deilunnar, sem þá var leyst. Halldór Björnsson, formaður samninganefndar starfsfólksins, sagði að mesti sigurinn í þessum samningum hefði f raun verið sá að þessu starfsmati var komið f höfn. Meginniðurstaðan sagði hann að væri sú að i þessum verk- smiðjum hefði verið mjög mis- munandi launakjör, sem nú hefðu verið samræmd. Alls staðar nytu menn nú sömu starfsfaldurs- hækkana, sömu veikindadaga og sömu orlofsdagafrfðinda. I samningum er verðtrygging, þannig að breyting verður á launatöxtum f sambandi við al- menna kjarasamnínga samkvæmt nánara samkomulagi milli aðila. Halldór kvað samning þennan einsdæmi á tslandi, en i samningsgerð við ÍSAL hefði það verið mun auðveldara viðfangs, þar sem þá var gerður samningur frá upphafi starfrækslu verk- smiðjunnar. I þessum samningum varð að taka tillit til venju sem skapazt hefði í hverri verksmiðju fyrir sig. Hann sagði að samnings- gerðin hefði reynt gífurlega á vilja fólksins til að sameinast og kvað hann menn hafa á aðdáunar- verðan hátt reynt að leysa þau óteljandi vandamál, sem upp hefðu komið. Auðvitað hefði gott samstarf samninganefndanna verið forsenda samninganna. Höskuldur Jónsson, talsmaður Framhald á bls. 20 starfsgreinar. Hann kvað ekki vera um neina stefnubreytingu VSÍ að ræða, en aðstæður í þjóð- félaginu neyddu VSl til þess og sérstaklega væri staða atvinnu- veganna bágborin. Hann kvað verkfallsaðgerðirnar bera að með nokkuð almennari hætti en oftast áður og kvað hann þetta vera varnaraðgerðir aðila, sem væru óvenju illa undir það búnir að taka sér launagreiðslur á meðan tekjur fyrirtækjanna eru engar. Kröfur ASI: Fela í sér yfir 80% kauphækk- un trésmiða MORGUNBLAÐIÐ birti í gær ákveðna útreikninga, sem gerðir voru af sér- stakri nefnd vinnuveit- enda og launþega á vegum samninganefnda ASl og vinnuveitenda. Kom þar fram, að hækkun iðnaðar- manna vegna krafna ASl gæti orðið allt að 52,4%. Nú hefur blaðið fregnað að trésmiðir fari mun betur út úr þessu, þar sem prós- entuhækkun vegna krafn- anna verður á níunda tug prósentna. Þetta stafar m.a. af þvi, að reiknitala trésmiða er miklu lægri en tímakaup þeirra. Ef síðan kemur sama krónutala eins og-nú er talað um ofan á reikni- töluna eins og kaupið, þá þýðir það, að ákvæðisvinna trésmiða hækkar hlutfalls- lega meira en nokkuð ann- að. Miðað við þessar kröfur er hækkun almennu félag- anna á bilinu frá 33—39%. Fékk rós í hnappagat BJÖRGVIN Sigurðsson, einn samninganefndarmanna ríkis- ins, fékk óvæntan glaðning í fyrrinótt á samningsfundi um starfsmat rikisverksmiðjanna. Tvær konur voru í samninga- nefnd starfsfólksins, Þórunn Valdimarsdóttir frá Verka- kvennafélaginu Framsókn og Kristin Jónasdóttir frá sama félagi. Skömmu eftir miðnætti Framhaid á bls. 20 Hvað segja forystumenn láglaunafólksins?: Allt of mikið tillit tekið til betur launuðu hópanna FRÉTT Morgunblaðsins frá í gær, þar sem skýrt er frá útreikn- ingum á kröfum ASl og hvað þær f raun þýða, þegar þær eru reiknaðar inn f ákvæðisvinnutaxta iðnaðarmannafélaganna, hefur að vonum vakið athygli. Þessar tölur eru nú til umræðu innan vébanda ASt og baknefndarfundur hefur verið boðaður á mánudag. Mbl. leitaði f gær til nokkurra forystumanna almennra verkalýðs- félaga og spurði þá álits á tölunum. Svör þeirra fara hér á eftir: Eðvarð Sigurðsson, formaður Dagsbrúnar sagði að ef þessir útreikningar væru hinir sömu og gerðir hefðu verið fyrir lok- aðan samningafund, þá vildi hann ekkert um þá segja. Hins vegar væri það ljóst, að ef svona aðferðir væru notaðar kæmi ákaflega misjöfn tala út. „Þetta er mál, sem við erum að ræða innbyrðis og því vil ég sem allra minnst um þetta segja." Guðmundur H. Garðarsson, formaður Verzlunarmanna- félags Reykjavikur, sagði: „Þessi reikningsniðurstaða kemur mér ekki á óvart. Ég varaði við þessu á baknefndar- fundi ASl hinn 22. maí síðast- liðinn og greiddi þess vegna atkvæði á móti heildarsam- stöðu, sem fæli þetta í sér. Ég taldi þá og tel enn, að þetta skaði samningsstöðu almennu félaganna og möguleika þeirra til að ná kjarabótum vegna þeirra, sem hafa mesta þörf fýr- ir hana, en það er fólkið í al- mennu félögunum, fast launa- fólk, hvar í stétt, sem það er að finna.“ Jón Heigason, formaður Ein- ingar á Akureyri sagði: „I þess- um útreikningum kemur ein- mitt það fram, sem gert hefur það að verkum að ég hefi verið á öndverðum meiði við forystu ASI. Ég tel að allt of mikið tillit sé tekið tii betur launuðu hóp- anna og þegar atkvæði voru greidd um þetta á baknefndar- fundinum var maður auðvitað ekki búinn að kynna sér til fullnustu, hver útkoman yrði. Sat ég þvi hjá við þessa atkvæðagreiðslu, en fann hins vegar tóninn á fundinum, að þessir betur launuðu hópar vilja fá fullar bætur og ef það verður niðurstaðan og þetta fari á sama veg og i síðustu samningum — að allar kaup- bætur renna út í verðlagið jafn- harðan — verður ávinningur- inn ekki sem skyldi. Það, sem við stöndum raun- verulega frammi fyrir í verka- lýðshreyfingunni og þá sérstak- lega þeir, sem eru að berjast fyrir þeim lægst launuðu, að launakerfið er orðið svo flókið. Það er greinilegt að þeir, sem eru á bæði bónus-, ákvæðis- og premiukerfum, bera miklu Framhald á bls. 20 Beita vinnuveit- endur verkbanni?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.