Morgunblaðið - 13.08.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. AGÚST 1975
3
„Hreintneyðarástand
hefði getað skapazt’ ’
„Hér var um að ræða
mjög víðtæka en væga
matareitrun, og mun láta
nærri að um 1300 manns
hafi veikzt, en þetta hef-
ur nú gengið yfir og má
búast við að fyrstu sjúkl
ingarnir af þeim 44, sem
lagðir voru í sjúkrahús
verði útskrifaðir í
kvöld“, sagði Bragi
Ólafsson aðstoðarborgar-
læknir í samtali við Mbl.
í gær. Hann sagði að
sýnishorn hefðu verið
tekin af matnum, sem
fólkið, þátttakendur f
kristilega stúdentamót-
inu, borðaði f borðsal
Laugardalshallarinnar,
þar sem mótið hefur far-
ið fram, og þau send f
ræktun, og mætti vænta
niðurstöðu þeirrar rækt-
unar eftir 2 daga. Þór-
hallur Halldórsson hjá
Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur tjáði Mbl.,
að grunur manna beind-
ist að kjötinu, sem notað
var í aðalréttinn, sem var
unghæna með hrfsgrjón-
um og grænmeti.
Bragi Ólafsson sagði að Birg-
ir Guðjónsson læknir, sem var á
læknavakt, hefði gert borgar-
læknisembættinu viðvart um
eitrunina um fimmleytið í gær-
morgun og þá beðið um aðstoð.
Halldór Jónsson, aðstoðar-
borgarlæknif hefði þá þegar
farið á staðinn og auk þess
hefði Ólafur Ingibergsson
læknir komið á vettvang og 4
hjúkrunarkonur og læknanemi
af Landakotsspítala. Sent hefði
verið eftir lyfjum og sjúkrahús-
um gert viðvart. 44 hefðu verið
það veikir, að læknar hefðu tal-
ið nauðsynlegt að leggja þá inn,
hinum hefði verið veitt að-
hlynning á staðnum.
Hringt f
læknavakt
kl. 04.30.
I samtali við Mbl. sagði Birgir
Guðjónsson læknir að hringt
hefði verið til sln um kL 4.3Q og
tilkynnt að í Vogaskóla hefði
hópur fólks veikzt af uppköst-
um og niðurgangi. Er hann
hefði komið á staðinn hefði að-
koman verið fremur slæm,
mikill fjöldi af veiku fólki hefði
beðið í röðum eftir að komast á
salerni og legið á gólfinu þar.
Hann hefði þegar sent eftir
hægða- og verkjastillandi lyfj
um, en um svipað leyti fengið
fregnir af því að ástandið væri
svipað I öllum þeim skólum,
sem þátttakendur dveldust I.
Ljóst hefði því verið að um víð-
tæka matareitrun væri að ræða.
Hann hefði þá haft samband
við lyfjadeildir sjúkrahúsanna
til að skýra frá þessu og jafn-
framt við almannavarnir og
beðið um aðstoð því að ástandið
hefði getað orðið líkt því, eins
og um hópslys væri að ræða.
„Ég vil sérstaklega hrósa i
þessu sambandi viðbrögðum
Landakotsspftala, án þess að
gera hlut hinna spftalanna
Aœtlun
almannavarna
um hópslys
var sett í gang
Hjúkrunarkona veitir einum mótsgesta aðhlynningu.
A14. hundrað
mannsfengu vœga
matareitrun
minni, sem sendi þegar í stað 4
hjúkrunarkonur og læknanema
á staðinn. Hópurinn kom svo
saman I Álftamýrarskóla, þar
sem við skiptum með okkur
verkum og gengum sfðan á röð-
ina og skoðuðum hvern sjúkl
ing fyrir sig og gáfum lyf.
Slökkviliðið sá um að flytja I
sjúkrahúsin þá sjúklinga, sem
við töldum nauðsyniegt að
leggja inn og sfðan hlutuðust
almannavarnir til um að Rauði
krossinn serrdi hjúkrunarfólk f
skólana, er lfða tók á morgun-
inn til að veita fólki aðhlynn-
ingu. Þetta gekk allt mjög vel
og skipulega fyrir sig þótt fram
hefðu komið ýmsir gallar í kerf-
inu, sem menn eru sammála um
að hægt verði að leiðrétta og
verði leiðréttir. Það má segja að
hér hafi farið betur en á horfð-
ist í fyrstu, þvi að ef um alvar-
lega matareitrun hefði verið að
ræða, hefði getað skapazt algert
neyðarástand, og ég vil að lok-
um segja að mér finnst mjög
varasamt að láta á 14. hundrað
manns borða sama mat eins og
gert hefur verið á þessári ráð-
stefnu."
Rannsókn
heilbrigðiseftirlitsins
Þórhallur Halldórsson hjá
Heilbrigðiseftirliti Reykja-
víkurborgar skýrði Mbl. frá þvf
að menn frá eftirlitinu hefðu
þegar f gærmorgun farið inn f
Laugardalshöll og veitingahús-
ið Glæsibæ, sem annazt hefur
matseld fyrir mótsgesti til að
gera nauðsynlegar rannsóknir
og taka sýnishorn. Auk þess
hefðu sjúkrahúsin tekið sýnis-
horn hjá þeim sjúklingum, sem
lagðir voru inn. Þessi sýnishorn
hefðu verið send f ræktun og
væri niðurstöðu að vænta eftir
2—3 daga. Ekki væri með vissu
hægt að segja fyrir um hvað
eitruninni hefði valdið, en
grunur manna beindist einkum
að kjötinu, sem notað hefði ver-
ið I aðalréttinn, unghænum.
Síðan hefði f samráði við
Halldór Júlíusson veitinga-
mann f Glæsibæ, eldhúsi húss-
ins verið lokað og alger hrein-
gerning og sótthreinsun fram-
kvæmd á húsakynnunum í
öryggisskyni. Sömu ráðstafanir
hefðu verið gerðar í Laugar-
dalshöll og f skólunum, þar sem
ráðstefnugestir búa. Þá hefði
veitmgamaðurinn f Glæsibæ
endurnýjað allar hráefnisbirgð-
ir sínar. Þórhallur sagði að fólk-
ið hefði flest verið farið aði
hressast um hádegisbilið og að-
eins neytt léttrar fæðu í dag, að
læknisráði, tes, brauðs, og
ávaxta.
Hópslysaáætlun
í gang
Eins og fram hefur komið
tóku Almannavarnir rikisins
þátt í aðgerðum vegna þessa
atviks, þvf svo hefði getað farið,
að algert vandræðaástand
skapaðist, Ifkt og um hópslys
væri að ræða. Hafþór Jónsson
erindreki hjá Almannavörnum
sagði Mbl að Birgir Guðjónsson
læknir hefði fyrst haft sam-
band við sig kl. 05.30 til að gera
sér viðvart, og síðan 15 mfnút-
um seinna, og þá sagt að ástand-
ið væri orðið það alvarlegt, að
flytja þyrfti fjölda sjúklinga í
sjúkrahús. Skv. áætlunum
hefði hann þá þegar haft sam-
band við sjúkrahúsin til að
kanna móttökugetu þeirra.
Landspftalinn var með neyðar-
vakt og því ákveðið að hlífa
- honum eins og hægt vaeri. Sfð-
an hefði það verið hlutverk Al-
mannavarna skv. áætlunum að
raða sjúklingunum niður á
sjúkrahúsin. Það hefði gert
ástandið mjög viðráðanlegt að
eitrunin hefði verið væg og því
ekki þurft neina skyndilega
fjöldaflutninga á sjúkrahúsin,
flutningarnir hefðu dreifzt á
tímabilið frá 05.30 til hádegis.
„Notum aðeins nýjasta
og bezta hráefnið“
Síðdegis i gær höfðum við
samband við Halldór Júlíusson
veitingamann í Glæsibæ, sem
sagði: „Við hörmum að sjálf-
sögðu þetta atvik, allir höfðu
verið mjög ánægðir með matinn
frá okkur, enda ekkert notað til
matargerðarinnar annað en það
sem við töldum nýtt og gott
hráefni. Ég frétti af þessu í
morgun, er ég var ásamt mínu
starfsliði að undirbúa morgun-
verðinn handa fólkinu. Eg
stöðvaði samstundis alla matar-
afgreiðslu úr eldhúsinu og
hafizt var handa um allsherjar
hreingerningu og sótthreinsun
á staðnum f öryggisskyni og
skipti að sjálfsögðu um allar
Grunur
um að
kjötmeti
hafi valdið
eitruninni
hráefnisbirgðir. Menn frá Heil-
birgðiseftirlitinu hafa unnið
með okkur hér f dag til að fylgj-
ast með. Maturinn, sem á boð-
stólum var í gærkvöldi, var
unghæna með grænmeti og
hrfsgrjónum og fs á eftir. Sýnis-
horn hafa verið tekin af öllu
þessu og send til ræktunar og
bfðum við eftir niðurstöðum af
þeirri ræktun.
Að lokum höfðum við sam-
band við Sigurbjörn Sveinsson
formann Kristilega stúdenta-
félagsins síðdegis f gær, þar
sem hann var staddur f Laugar-
dalshöll, og spurðum hann um
ástandið. Sigurbjörn sagði að
yfir 90% mótsgesta hefðu
aldrei veikzt mjög illa og þetta
gengið yfir á nokkrum klukku-
stundum. Menn hefðu tekið
þessu atviki með mikilli ró og
gamansemi og væru nú nær all-
ir hressir og kátir og mótshald-
ið færi fram skv. áætlun. „Eg
vil leggja á það áherzlu að sam-
skipti okkar við Glæsihæ hafa
verið mjög góð og almenn og
mikil ánægja með matinn það-
an,“ sagði Sigurbjörn að lokum.
Langflestir fengu aðeins vægt tilfelli og tóku gieði sfna fljótlega aftur eftir léttan málsverð.
Ljósmyndir Br. H.