Morgunblaðið - 13.08.1975, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.08.1975, Blaðsíða 24
AUííLÝSINGASÍMINN ER: 22480 AUGLVSINGASÍMINN ER: 22480 2H»r0unbl«Íii)> MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGtJST 1975 3 bátar tekn- ir í landhelgi Voru 15 mílur fyrir innan 12 mílurnar! LANDHELGISGÆZLAN Ljósm. Mbl. Sigurgeir. NÓTIN UM BORÐ — Skipverjar á aflaskipinu Sigurði RE, taka risavaxna nótina um borð. Tvo vörubíla þurfti til að koma henni niður á bryggju. frgtt bls ^ ) Utiræktað grænmeti: 30 tií 50% uppskeru- brestur eftir tegundum stóð í gær þrjá togbáta frá Grundarfirði að meintum Roksala í biblíum á hringveginum Fíladelfíusöfnuðurinn i Reykja- vík pantaði á þessu ári biblíur hjá Hinu islenzka bibliufélagi fyrir 1 millj. kr. Samkvæmt upplýsing- um Einars Gíslasonar forstöðu- manns safnaðarins hefur sala á biblíunum og sérprentuðum bibl- iuritum gengið mjög vel. Meðal annars tóku hjón í Fíladelfiusöfn- uðinum með sér bibliur I skemmtiferð á bil sínum I kring um landið, og á hringveginum seldu þau biblíur fyrir 144 þús. kr. Tveir félagar úr söfnuðinum fóru til Suðausturlands í júlí og seldu þar biblíur og aðrar kirkju- legar bækur fyrir 700 þús. kr. Hafa fleiri skip farið yfir 135 tonna markið? NO ER verið að athuga hvort fleiri sildveiðiskip en Loftur Baldvinsson EA hafi farið yfir 135 tonna aflamarkið, sem síld- veiðiskipunum i Norðursjó er sett. Morgunblaðinu er kunn- ugt um, að bæði örn KE og Skarðsvík SH liggja undir grun um að vera komin yfir þetta mark. Skarðsvik seldi t.d. í fyrradag, en gaf þá upp, að síldin væri fengin fyrir vestan 4. gráðu, þar sem frjáls veiði er. Við athugun kom i ljós, að skipið hafði einnig selt 8. ágúst s.I. eða 3 dögum áður. Það er því ómögulegt, að síldin hafi fengizt á þeim slóðum, þar sem minnst 5—6 sólarhringa ólöglegum veiðum á miðj- um Breiðafirði, um 15 mil- ur innan 12 mílna mark- anna. Voru þetta bátarnir Gustur SH 24, Sigurfari SH 105 og Gullfaxi SH 125. Mál skipstjóranna verða væntanlega tekin fyrir hjá sýslumanninum í Stykkis- hólmi í dag. Landhelgisgæzlan hefur undan- farið fengið fjölda kvartana um gróf landhelgisbrot víða við landið, en mikil þoka hefur haml- að því að hægt væri að standa þrjótana að verki. I gær barst slík kvörtun frá Breiðafirði og var þá mögulegt að fara í landhelgisflug. Tók landhelgisgæzlan á leigu nýja Cessnuvel Sverris Þóroddssonar, TF-GTS. Skipherra var Bjarni Helgason. Kom flugvélin að bátunum um klukkan 14 og voru tveir þeirra að togveiðum en einn að taka inn veiðarfærin. Þeir voru allir á svipuðum slóðum, um 15 mílur fyrir innan 12 mílurnar. Eins og fyrr segir hafa margar kvartanir komið til Landhelgis- gæzlunnar að undanförnu um gróf landhelgisbrot. Enda þykir löghlýðnum sjómönnum það hart að fá þann afla á viku sem lög- brjótarnir fá kannski á einni nóttu með þvi að skrapa botninn upp I harða landi, eins og einn starfsmaður Gæzlunnar orðaði það i samtali við Mbl. I gærkvöldi. FULLTRÍIAR frá hollenzku Fokker-flugvélaverksmiðjunum hafa verið hér á Iandi undanfarna daga til viðræðna við yfirstjórn Landhelgisgæzlunnar vegna fyr- irhugaðra flugvélakaupa Gæzl- unnar. Sagði Pétur Sigurðsson forstjóri f samtali við Morgun- blaðið f gær, að væntanlega yrði gengið frá kaupunum f dag, mið- vikudag. Eins og fram kom f frétt- um fyrir skömmu, hefur rfkis- stjórnin veitt 450 millj. króna til kaupa á nýrrí gæzluflugvél. MJÖG siæmar horfur eru nú með uppskeru á útiræktuðu grænmeti s.s. rófum, hvftkáli og blómkáli. Pétur Sigurðsson sagði i gær, að Fokkervélin, sem nú er verið að semja um, yrði alveg ný og að nokkru leyti sérsmíðuð fyrir Landhelgisgæzluna. Sagði Pétur, að vegna hinnar stóru landhelgi yrði vélin að vera búin aukaelds- neytisgeymum og erfitt væri og dýrt að breyta notuðum vélum. Þvi væri heppilegast að fá nýja vél beint frá verksmiðjunni, en það þýddi aftur að nekkur bið yrði á því að hún kæmist í gagnið. Hin kalda og þurra veðrátta framan af sumri dró mjög úr vexti alls útiræktaðs grænmetis, þannig að það kom þremur vikum seinna á markaðinn en f venju- legu árferði. Garðyrkjubændur, sem Mbl. hafði tal af, sögðu að uppskerubresturinn væri milli 30 tíl 50% eftir tegundum. Verstar eru horfurnar með uppskeru á blómkáli en auk þess horfir illa með uppskeru á rófum og hvft- káli. Einar Hallgrimsson, garðyrkju- bóndi, Garði, Hrunamannahreppi, sagði, að uppskeruhorfur hjá bændum fyrir austan væru mjög slaklegar og til jafnaðar mætti búast við um 30 til 40% uppskeru- bresti í útiræktuðu grænmeti. Þessi uppskerubrestur kemur mjög illa við þá, sem eru með útiræktað grænmeti, en Einar sagði, að yfirleitt heyrðist ekki mikið frá garðyrkjubændum þó að illa áraði. Grænmeti er ekki niðurgreitt og garðyrkjubændur eiga því allt sitt undir veðráttu. Einar taldi sennilegt að eftir viku eða svo mætti búast við að nægjanlegt grænmeti yrði komið á markaðinn. Sem stendur nægir það, sem tekið er upp, hvergi til að anna eftirspurn. Einar sagði, að menn yrðu að hafa i huga, að þær rófur, sem nú væru á markaðnum, væru allar forrækt- aðar við hita, en mikið af rófum, sem sáð var, skemmdist f frostum I vor, þannig að mjög erfitt er að segja um uppskeru á rófum í haust, þó að flest bendi til að hún verði harla litil. Ásgeir Bjarnason, garðyrkju- bóndi, Reykjum, Mosfellssveit, sagði, að spretta hefði verið ótrú- íega góð miðað við veður og sér- staklega hefðu dagarnir fyrir helgina verið góður uppsprettu- dagar. Upþskera fer þó mikið eft- ir því, hvort tekur að hlýna og stóra spurningin er hvernig haustið verður, sagði Ásgeir að lokum. Þorvaldur Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Sölufélags garð- yrkjumanna, sagði að af samtöl- um sínum við garðyrkjubændur teldi hann sennilegt að uppskeru- bresturinn yrði mestur I blóm- káli, jafnvel um 50%. Uppskeru- brestur á hvítkáli væri sennilega milli 30% til 40% og búast mætti við um 30% minni uppskeru á forræktuðum rófum. Hann sagði, að verð á þessumtegundum græn- metis væri hátt um þessar mund- ir. Blómkál er nú selt eftir vigt og er þetta fyrsta sumarið, sem sá háttur er hafður á. Hvert kíló af blómkáli er nú á kr. 500 út úr verzlunum og kílóið af hvítkáli og rófum er viðast selt á kr: 130 út úr búð. Hvað snertir grænmeti, sem ræktað er í gróðurhúsum, kom það nokkuð seinna á markaðinn I sumar en gera má ráð fyrir að það endist nokkuð lengur fram á haustið. Þorvaldur kvaðst telja, að gúrkur ættu að verða á markaðnum fram I október og tómatar fram I nóvember. Framhald á bls. 23 Minnispeningar Jóns Sigurðssonar falsaðir Fölsku peningarnir slegnir í Líbanon UM NOKKURT skeið hefur leikið grunur á þvf að f umferð væru fölsuð eintök af minnispeningi Jóns Sigurðssonar forseta, sem gefinn var út árið 1961. Sam- kvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk I gær hjá Seðlabanka Islands, hefur þessi grunur nú verið staðfestur. Þrfr minnispeningar, sem talið var að væru falsaðir voru sendir til myntsláttunnar Royal Mint f London, en þar voru peningarnir framleiddir. Staðfesti Royal Mint að um væri að ræða falsaða peninga og væru þeir að öllum líkindum framleiddir í Beirút f Lfbanon, en þar fær slfk falsslátta að viðgangast f skjóli stjórnvaida. 1 hinu þekkta mynttimariti World Coin News frá 27. maí s.l. er auglýsing frá íslenzkum mynt- sala, Vilhjálmi Vilhjálmssyni, þar sem hann býður til sölu minnis- pening Jóns Sigurðssonar á 500 dollara. 1 auglýsingunni er sér- staklega tekið fram, að ekki sé um fölsuð eintök að ræða og fylgi þeim ábyrgðarskírteini til að sanna að svo sé. Mbl. ræddi við Vilhjálm í gær og spurði hann hvað meint væri með þessu orða- lagi. Sagði Vilhjálmur, að grunur hefði leikið á því að falsaðir peningar væru i umferð og taldi hann sig hafa séð a.m.k. einn slíkan. Af þessarri ástæðu hefði hann tekið svona til orða í aug- lýsingunni. I framhaldi af samtalinu við Vilhjálm snéri Mbl sér til Stefáns Þórarinssonar aðalféhirðis Seðla- bankans. Hann staðfesti, að falsk- ir peningar væru f umferð en bankinn vissi þó aðeins um þrjá slíka. Hefðu þeir verið sendir bankanum erlendis frá og hann sent þá áfram til Royal Mint. Sagði Stefán að gullinnihald væri svipað en falspeningarnir smá- 'vegis frábrugðnir þeim ekta í út- liti og hefðu sérfræðingar Royal Mint getað staðfest fölsunina á þvf. íslenzkir myntsalar vissu um fölsunina og væru vel á verði, en mikið af peningunum fer um þeirra hendur. Stefán kvað það töluvert al- gengt, að falsanir væru gerðar af eftirsóttum og dýrum peningum eins og minnispeningnum um Jón Sigurðsson. Tíðkaðist þetta aðal- lega i Beirút í Líbanon og hafa stjórnvöld þar ekkert viljað skipta sér af þessarri starfsemi. Minnispeningur Jóns Sigurðs- sonar forseta var gefinn út af Framhald á bls. 23 Gengið frá kaupum nýrr- ar Landhelgisvélar í dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.