Morgunblaðið - 13.08.1975, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.08.1975, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. AGUST 1975 17 Ford ekki til Indlands + Tfmaritið Newsweek skýrir frá þvf að Ford Bandarfkjafor- seti sé hættur við að hafa við- komu f Indlandi á leið sinni frá Kfna sfðar á árinu eins og ráð- gert hafði verið. Blaðið segir, að hætt hafi verið við heim- sóknina vegna tiltekta Indiru Gandhi. Nú séu starfsmenn Hvfta hússins að hugleiða við- komu á Filippseyjum, Indó- nesfu, Singapore, Astralfu eða á Nýja-Sjálandi á leiðinni frá Kfna. Dóttir Nat King Cole fær byr undir báða vœngi + Framtfðin virðist brosa við Natalie Cole. Innan skamms sendir EMI-Capitol fyrstu LP- plötu hennar á markaðinn. Ef ykkur finnst þið eitthvað kannast við nafn stúlkunnar, þá er það engin furða; Natalie er dóttir Nat King Cole. Natalie er 25 ára gömul, ólst upp f Kalifornfu. Hún var aðeins 11 ára gömul þegar hún kom fyrst fram opinberlega í Los Angeles með föður sfnum og Barböru McNair og þar söng hún „It’s A Bore“ (mér leiðist). En henni hefur aldrei leiðst tónlist, þó að það væri læknisfræði sem hún hóf að læra, þegar hún innrit- aðist f háskólann f Massa- chusetts. Fljótlega sá hún þó að námið átti ekki við hana og sneri sér að söngnum. Natalie kom fyrst fram opinberlega árið 1971. — En sem sagt núna virðist framtfðin brosa við henni með útkomu LP- plötunnar. + Þrátt fyrir ðlguna f Portúgal hafa lagt bátum sfnum með- um 20 mflur suður af Lissabon þessa dagana, virðast sjómenn- fram strandveginum f ferða- og eru þar að mála þá og ditta irnir taka þvf harla rólega. Þeir mannabænum Sesimbra sem er að þeim f rólegheitunum. + Elisabet Taylor gerir allt fyrir nýjasta vininn sinn, Henry Wynberg. Nýlega borg- aði hún yfir 10 millj. fsl. kr. En það voru gamlar skuldir sem Wynberg skuldaði gömlum við- skiptafélögum. + Rock Hudson stundar nú sól- böð og leikfimi af fullum krafti. Hann er að undirbúa sig undir fyrsta hlutverkið þar sem hann kemur fram alsnakinn. Hann hefur samþykkt að fara úr buxunum f myndinni „Embryo“. + Tatum O’Neal, Óskarsverð- launahafinn, á nú að fara heim til mömmu sinnar, leikkon- unnar Joanna Moore. Joönnu finnst, að fyrrverandi eigin- maður sinn Ryan O’Neal hafi slæm áhrif á telpuna. „Hún er farin að tala mjög slæmt mál, já jafnvel verra en hafnar- verkamennirnir”. Leiðsögumönnum verði tryggð starfsréttindi BLAÐINU hefur borizt eftirfar- andi frá stjórn Félags leiðsögu- manna: FÉLAG LEIÐSÖGUMANNA var stofnað árið 1972 og hefur það markmið að vinna að hagsmuna- málum fslenzkra leiðsögumanna og stuðla að bættrí leiðsögu er- lendra og innlendra ferðamanna. Inngöngu f félagið fá þeir, sem lokið hafa prófi frá leiðsögu- mannanámskeiði, sem félagið við- urkennir, en á vethrna stendur félagið sjálft fyrir framhalds- námskeiðum fyrir félagsmenn sfna. Samkvæmt kjarasajnningi, sem félagið hefur gert við ferða- skrifstofur, hafa þær skuld- bundið sig til að ráða eingöngu félagsmenn úr FÉLAGI LEIÐ- SÖGUMANNA til leiðsögustarfa. Þar sem nokkuð hefur borið á að utanfélagsmenn hafi verið ráðnir til leiðsögustarfa, telur stjórn FÉLAGS LEIÐSÖGU- MANNA nauðsynlegt að vekja at- hygli allra þeirra, sem f leiðsögu- störf ráða, að í gildi eru sérstakir kjarasamningar á milii ferða- skrifstofa og Félags leiðsögu- manna, sem bindandi eru fyrir alla þá, sem ráða leiðsögumenn. Félag leiðsögumanna hefur margsinnis varað við þeirri óæski- legu þróun að þeim erlendu ferða- hópum fer sffjölgandi, sem ferðast um Iandið án Ieiðsagnar eða afskipta fslenzkra aðilja. Nú er ljóst, að í sumar hafa þessir hópar verið fleiri en nokkru sinni fyrr, og margir hópar, sem áður hafa látið íslenzkar ferðaskrif- stofur skipuleggja ferðir sinar um landið, fara nú á eigin vegum og án samráðs eða leiðsagnar ís- lenzkra aðilja. Leiðsögumenn þessara hópa eru útlendingar, sem flestir hverjir hafa hér ekki atvinnuleyfi, en óhjákvæmilega taka atvinnu frá islenzkum ieið- sögumönnum. Upplýsingar þær, sem þessir erlendu leiðsögumenn gefa farþegum sfnum um land og þjóð munu æði oft vera rangar Erlendum ferða- mönnum fjölgar, íslenzkum fækkar ALLS KOMU 21199 ferðamenn til landsins f júlfmánuði sl. og er það tæplega 2000 færri en f sama mánuði f fyrra. Af þessum fjölda voru 6030 tslendingar, en útlend- ingar voru 15.169. t júlfmánuði 1974 komu 23157 ferðamenn til landsins, tslendingar voru þá 7368, en útlendingar 15788. Frá áramótum til loka júlf- mánaðar sl. komu alls 64.402 ferðamenn til landsins, þar af voru Islendingar 22.888, en útlendingar 43.514. Á sama tíma- bili 1974 komu alls 67.567 ferða- menn til landsins, þá voru Islend- ingar alls 25125, en útlendingar 42442. Þannig hefur erlendum ferðamönnum sem komið hafa til Islands fjölgað um rösklega 1000 miðað við sama tfma í fyrra. Frammistaða Islendinganna t MEISTARAFLOKKI tefldu 12 Islendingar, og var frammistaða þeirra sem hér segir: Helgi Ölafsson hlaut 7Vá vinning, Haraldur Haraldsson 6Vi, Jónas P. Erlingsson 6V£, Ömar Jónsson 6, Guðni Sigurbjarnason 6, ögmundur Kristinsson 5 V$, Gunnar Finnlaugsson 5V4, Ásgeir Þór Arnason 5V4, Torfi Stefánsson 5, Adolf Emilsson 4V4, Áskell Ö. Kárason 4 og Öli Valdimarsson 3. Tefldar voru 11 umferðir. I opna flokknum tefldu 4 Islendingar og stóðu þeir Þorsteinn Guðlaugsson og Jón S. Halldórsson sig bezt með 5 vinninga af 9 mögulegum. eða villandi og virðing þeirra fyrir gróðri og náttúrufyrir- bærum ekki ávallt sem skyldi. Ýmislegt bendir nú til þess að erlendir ferðahópar muni í fram- tfðinni ekki einungis reyna að sniðganga þjónustu íslenzkra leið- sögumanna heldur einnig fyrir- greiðslu fslenzkra ferðaskrifstofa og bíleigénda, gisti- og veitinga- húsa með þvf að koma með eigin farkost, tjöld og matföng til langs tfma. Dæmi eru um að erlendir hópar hafi ætlað sér að koma með eigin svefnvagna og eru þá fáir þjónustuaðiljar eftir, sem hópar* þessir kynnu að þurfa að skipta við hér á Iandi. A ráðstefnu FÉLAGS LEIÐ- SÖGUMANNA, sem haldin var síðastliðið vor og fjallaði m.a. um hlutverk leiðsögumanna, kom fram sú ályktun að brýn nauðsyn sé á að starfsréttindi íslenzkra leiðsögumanna verði þegar viður- kennd í lögum. Stjórn FÉLAGS LEIÐSÖGUMANNA vill því vin- samlegast beina þeim tilmælum til ferðamálayfirvalda að endur- skoðun þeirri, sem nú fer fram á lögum um ferðamál á Islandi verði hraðað og að islenzkum leið- sögumönnum verði þar tryggð starfsréttindi. Að lokum vill stjórn félags leiðsögumanna taka fram, að hún telur það eiga að vera metnaðarmál Islendinga að landkynning og móttaka erlendra ferðamanna á Islandi verði ekki í höndum útlendinga heldur Is- lendinga sjálfra. Stjórn FELAGS LEIÐSÖGU- MANNA skipa eftirtaldir aðiljar, sem góðfúslega veita nánari upp- lýsingar um félagið: Birna G. Bjarnleifsdóttir, Brúnastekk 6, R. formaður, Katrfn Árnadóttir, Hörgshlíð 10, R. varaformaður, Árni Böðvarsson, Kóngsbakka 7, R. ritari, Júlfa Sveinbjarnardóttir, Kleifarvegi 11, R. gjaldkeri og Kristín Njarðvík, Kóngsbakka 6, R. spjaldskrárritari. Kjörorð félags leiðsögumanna er: LANDINU VIRÐING. LlF- INU HLÝJA. Virðingarfyllst, Birna G. Bjarnleifsdóttir — Borgsýslur Framhald af bls. 10 „Ekkert hérað haganlegri höfuð- stað sér kaus og hlaut.” Færsla hringvegar af snæsvæði norður i Miðvíkurskarð (320 m hátt) gegnum Vaðlaheiði samfara leiðslu á þingeysku hitavatni eftir endilangri Svalbarðsströnd til Akureyrar mun á næsta áratug efla aðild nyrðri hlutans af kjör- dæminu, e.t.v. mest iðjuvæddu blettanna þar (Húsavfk, flug- völlur, Reykjahlíð, þó helmingi fjær en Dalvfk liggi) og Sval- barðseyrar. Slíkt er þó hugboð mitt eitt og engin landafræði enn. Um líkt leyti mun komast full reynd á það, hver áhrif vöruflutn- ingamiðstöð Eimskips á Oddeyrar- tanga fyrir landshlutann fari þá að hafa á afurðaflutning úr honum viðs vegar. Óhentugt þætti að láta dreifingarbíla aðfluttu vörunnar aka tóma bakaleiðina til Akureyrar, og verður leitað að ýmsu til að flytja, því er fram- leiða má í dreifbýli. Samverkun þáttanna 1 og 2, þ.e. orkunýtingar og samgangná, ber f svipinn stöðnunarmerki hjá okkur, segja Akureyringar, fram til Kröfluorkunnar 1978, en verð- ur afburðagóð eftir það. Kunn- áttuþátturinn og lag á að njóta lífs síns skal aldrei bregðast þar um slóðir, segir margur. Fram- boðið á dugandi vinnuafli og að- lögunargeta að nýju verklagi munu sakir fólkstölu og annars góðs vera stórfelldari höfuðstóll en Island hefur safnað sér í nokkra aðra borgsýslu utan Reykjavíkur. Nauðsynleg slagæðavíkkum í gamalstirðum þjóðlfkama vorun er undir fáu meira komin næsta mannsaldur en borgsýslum þess- um öllum, hann er vitjunartími þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.