Morgunblaðið - 24.08.1975, Page 1
48 SIÐUR
191. tbl. 62. árg.
SUNNUDAGUR 24. AGUST 1975
Prenlsmiðja Morgunblaðsins.
Spánarstjórn
herðir tökin
La Coruna, 23. ágúst. Reuter.
SPÆNSKA stjórnin hefur sam-
þykkt lög um barðttu gegn
hrydjuverkastarfsemi eftir vfö-
tækar árásir skæruliða á lögreglu-
menn að undanförnu. Talsmenn
stjórnarinnar sögðu að loknum
fundi sem hún hélt að sveitasetri
Francisco Franco þjóðarleiðtoga
að hryðjuverkamönnum yrði
stranglega refsað, einkum þeim
sem réðust á lögreglu.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum verða þeir sem verða lög-
reglumönnum að bana sjálfkrafa
dæmdir til dauða. Völd lög-
reglunnar verða stóraukin, en
nánar verður ekki sagt frá lögun-
um fyrr en Franco hefur undir-
ritað þau.
Hryðjuverkamenn hafa skotið
þrjá lögreglumenn til bana í
Madrid á undanförnum sex
mánuðum. Fimm menn sem eru
sagðir félagar í samtökum
maoista (FRAP) eiga dauðadóma
yfir höfði sér ef þeir verða fundn-
ir sekir um að hafa myrt einn
Kissinger
fullvissar
Sýrlendinga
Damaskus, 23. ágúst. AP.
HENRY Kissinger utanríkisráð-
herra fullvissaði Sýrlendinga i
dag um það að hagsmunir þeirra
yrðu ekki fyrir borð bornir þótt
samið yrði um brottflutning
Israelsmanna á Sinai-skaga. Frá
Damaskus fór Kissinger til
Jerúsalem til að skýra ísraelskum
ráðamönnum frá viðræðum
sínum við Anwar Sadat forseta i
Alexandriu.
Áður en dr. Kissinger fór frá
Alexandríu sagði hann að verið
gæti að hann færi aftur til Mið-
austurlanda í næsta mánuði ef
samkomulag tækist ekki um
Sinai-skaga í þessari ferð. En
hann sagði að viðræðurnar við
Sadat hefðu verið „mjög ánægju-
legar“.
Kissinger sagði að hann mundi
skýra ísraelsmönnum frá nýjum
hugmyndum sem Sadat hefði
komið ,'ram með um það sem enn
stæði > vegi fyrir samkomulagi.
lögreglumannanna í sfðasta
mánuði.
Tugir manna sem eru sagðir
félagar í FRAP og samtökum
Baska i norðurhéruðunum hafa
verið handteknir viðs vegar á
Spáni á undanförnum vikum.
Nýju lögin geta náð til þeirra þvi
búizt er við að þau verði látin
verka aftur fyrir sig.
Um 100 hryðjuverk hafa verið
framin á Spáni síðan í janúar
1974 samkvæmt yfirlýsingu sem
var gefin út eftir stjórnarfund-
inn. 31 maður hefur beðið bana,
aðallega lögreglumenn.
Nýju lögin munu gilda i tvö ár
að minnsta kosti. Lögreglunni
verður heimilt að framkvæma
húsleit án leitarheimildar og
halda meintum hryðjuverka-
mönnum i haldi án dóms og Iaga,
samkvæmt heimildunum.
Símamynd AP
DAUÐADÓMAR — Þrír helztu foringjar fyrrverandi herforingjastjórnar í Grikk-
landi hlýða á dauðadóma sina (talið frá vinstri): Georg Papadopoulos, Nikolas
Makarezos og Stylianos Patakos.
Papadopoulos og tveir
aðrir dæmdir til dauða
Aþenu, 23. ágúst. Reuter. AP
GEORG Papadopoulos fyrrverandi einræðisherra og tveir nánustu
samstarfsmenn hans, Nikolas Makarezos og Stylianos Pattakos, voru
dæmdir tii dauða f dag. Hæstiréttur fann þá seka um uppreisn og
Iandráð og þeir voru einnig sviptir herforingjagráðum.
Dómunum verður ekki áfrýjað en sakborningar hafa fimm daga
frest til að leggja fram beiðni um að ný réttarhöld fari fram.
Dauðadómum í Grikkiandi er framfylgt með þvf að leiða menn fyrir
aftökusveit.
Seinna gaf grfska stjórnin f skyn að dómarnir yrðu mildaðir. Málið
verður rætt á stjórnarfundi á mánudaginn.
Nokkrir sakborningar sem
fengu fangelsisdóma brostu þegar
dómarnir voru Iesnir upp en bylt-
ingarforingjarnir Papadopoulos,
Pattakos og Makarezos, sem sátu
hlið við hlið í fremstu röð, voru
hreyfingarlausir og sýndu engin
svipbrigði. Áóur hafði Pattakos
sagt í yfirlýsingu: „Ef aftaka min
eða fangelsun er i þágu föður-
landsins er ég ánægður i þeirri
trú að ekkert er þvi æðra.“
Tveir af 20 fyrrverandi herfor-
ingjum sem voru ákærðir voru
skýknaðir. Þeir voru Alexander
Hadjipetros hershöfðingi sem
varð yfirmaður leyniþjónust-
unnar eftir byltinguna 1967 og
var síðar aðstoðarutanríkisráð-
herra, og Konstantin Karidas fv.
Sihanouk
á heimleið
Peking, 23. ágúst. Reuter.
NORODOM Sihanouk fursti,
þjóðhöfðingi Kambódíu, kom til
Peking I dag á leið sinni heim til
Kambódfu eftir fimm ára útlegð.
Hann kom með sérstakri lest frá
Framhald á bls. 47.
ofursti sem gegndi ýmsum ráð-
herraembættum.
Átta menn aðrir voru dæmdir í
lífstiðarfangelsi fyrir sömu sakir,
og hinir þrir dauðadæmdu.
Georg Zoitakis fyrrverandi ríkis-
stjóri, Grigorios Spandiakis fyrr-
verandi forseti herráðsins,
Dimitrios Ioannides fyrrverandi
yfirmaður herlögreglunnar,
Mikael Roufogalis fyrrverandi
yfirmaður leyniþjónustunnar,
Ioannis Ladas, fyrrverandi yfir-
maður herlögreglunnar i Aþenu,
Antonios Lekkas, Konstanín
Papadopoulos, bróðir hins fyrr-
verandi forseta, og Mikael
Balapoulos.
Eftirtaldir menn voru dæmdir í
fimm til 20 ára fangelsi: Odysseus
Anghelis fv. yfirmaður heraflans,
20 ár, Nikolas Dortis fv. hershöfð-
ingi, 20 ár, Nikolas Gandonas fv.
hershöfðingi, 15 ár, Stefános
Karaberis fv. hershöfðingi, 15 ár,
Georg Konstantopoulos fv.
ofursti, 12 ár, Evanghelos Tsakas
fv. undirofursti, 8 ár, og Dimitrios
„Ég bý í fangelsi án veggia”
— hafa hollenzkir blaðamenn eftir Alexander Dubcek
Haag, Hollandi, 23. ágúst.
Reuter.
„ÉG bý I fangelsi án veggja,“
sagði Alexander Dubcek fyrr-
um Ieiðtogi Kommúnistaflokks
Tékkóslóvakiu við tvo hol-
lenzka blaðamenn fyrir
nokkru. Blaðamennirnir segj-
ast hafa náð tali af Dubcek
fyrir utan skrifstofu hans
skammt frá Bratislava. Þeir
segja að lögreglan hafi hand-
tekið þá stuttu eftir að þeir
ræddu við Dubcek og þeir síðan
verið yfirheyrðir í 30 klukku-
stundir áður en þeir voru rekn-
ir úr landi.
Blaðamennirnir tveir, frétta-
maður og ljósmyndari, segja að
þeir hafi fundið heimili
Dubceks og hafi þrír vopnaðir
hermenn staðið á verði utan við
það. Þeir hafi þá ákveðið að
bíða fyrir utan hús Skóg-
ræktarráðuneytisins, þar sem
Dubcek starfi. Þegar Dubcek
bar þar að spurði fréttamaður-
inn hann hvort hann væri enn
þá ofsóttur. „Ég er ekki frjáls
maður þið vitið það. Ég bý í
fangelsi sem hefur enga veggi,“
er haft eftir Dubcek.
Fréttamaðurinn, de Bok að
nafni, segir að Dubcek hafi síð-
an beðið þá að fara burt, þar eð
lögreglan fylgdist með þeim.
Siðan hafi Dubcek sagt eftirfar-
andi í mótsögn við það sem
hann áður sagði: „Ég get farið
hvert sem ég vil... mig skortir
ekkert, þið sjáið að ég er lif-
andi.“
Dubcek var spurður hvort
það væri rétt að hann starfaði
sem bílastæðavörður. Ilann
svaraði: „Þetta er mesta fjar-
stæða sem ég hef nokkurn
tímann heyrt. Ég er venjulegur
embættismaður."
Haft var eftir Dubcek þegar
hann var spurður hvort hann
mundi eiga nokkur stjórnmála-
afskipti I framtíðinni, að það
mundi hann aldrei framar
gera.
Blaðamennirnir tveir segja
að Dubcek hafi siðan gengið
hratt í burtu og sagt: „Þið verð-
ið að fara, ég hef tekið mikla
áhættu... ég hef aldrei séð
ykkur."
Hollendingarnir tveir, sem
komu til Tékkóslóvakíu á ferða-
mannavegabréfi, segjast hafa
tekið eftir því, að öryggislög-
reglan veitti þeim eftirför eftir
samtalið við Dubcek og því hafi
þeir rifið filmur sinar og skrif-
legar athugasemdir og hent
þeim. Þeir voru siðan teknir til
yfirheyrslu i fangelsi skammt
frá Bratislava, áður en þeim
var sleppt við landamæri
Austurríkis.
Stamatelopoulos fv. ofursti, fimm
ár.
Papadopoulos var forsætisráð-
herra þar til hann gerðist forseti í
júlí 1973. Eftir það dró hann úr
áhrifum fyrrverandi samstarfs-
manna og bakaði sér óvild þeirra.
Hann aflétti herlögum og náðaði
nokkra pólitíska fanga en greip
til harkalegra ráðstafana þegar
stúdentar gerðu uppreisn í Aþenu
í nóvember 1973. Eftir innrás
Tyrkja á Kýpur var hann settur í
stofufangelsi og þá var uppi orð-
rómur um að hann ætlaði að
stofna stjórnmálaflokk sem
mundi bjóða fram í kosningum
sem fóru fram í nóvember 1974.
Pattakos var innanrfkisráð-
herra eftir byltinguna og í þvi
embætti svipti hann störfum alla
Framhald á bls. 47.
Æfingar í
Portúgal
Coimbra, 23. ágúst. Reuter.
HERLIÐ í Mið-Portúgal hefur
verið að æfingum sfðan á mið-
nætti að sögn herstjórnarinnar f
Coimbra. Æfingunum verður
haldið áfram i nokkra daga og
tilgangurinn er sagður sá að gera
hermenn hæfari til að gegna þvf
hlutverki að verja lýðræði í
Portúgal.
Hófsamir herforingjar halda
jafnframt áfram tilraunum sínum
til að mynda nýja ríkisstjórn og
aðstaða Vasco Goncalves forsætis-
ráðherra heldur áfram að
veikjast. Liklegasti eftirmaður
hans, Carlos Fabiao hershöfðingi,
yfirmaður hersins, gerði í dag til-
raun til að ná völdunum með yfir-
lýsingu sem hann birti.
Hann minntist að vísu ekki á
Goncalves eða kommúnista en í
yfirlýsingunni fólst hörð gagn-
rýni á forsætisráðherrann og
flokkinn. Þar hvatti hann til þess
að gagnkvæmum ásökunum yrði
hætt og menn viðurkenndu fyrri
mistök.