Morgunblaðið - 24.08.1975, Page 10

Morgunblaðið - 24.08.1975, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1975 Varðveizla gamalla húsa er nú mjög á dagskrá, hér sem annars staðar. Evrópuráðið hefur skorið upp herör og helg- að árið 1975 því viðfangsefni undir kjörorðunum Framtíð fyrir fortíð okkar! Á þessu ári mun væntanlega rísa upp f Ár- bæ aldargamalt verzlunarhús austan af Vopnafirði. Hið fyrra tveggja siíkra húsa, sem þar verða varðveitt í framtíðinni og bera vitni fyrri tíma. Þessi tvö Vopnafjarðarhús eru komin hingað til Reykjavíkur á vegum Þjóðminjavarðar, Þórs Magnús- sonar, sem kveður þau dæmi- gerð fyrir verzlunarhúsin á síð- ustu öld, sem nú eru ekki mörg eftir. Nú liggja viðirnir úr þess- um tveimur húsum á túninu í Árbæ, hver hlutur merktur til að hægt sé að setja þau upp alveg eins og þau voru. Mbl. ieitaði eftir upplýsing- um um þessi hús hjá Þór Magn- ússyni. Ekki er nákvæmlega vitað um aldur húsanna, en talið er að stærra húsið virðist hafa gengið tjrr’-' r ýmsum nöfn- um, svo sem kornhús og beykishús, en það minna ým- ist ullarhús eða kjöthús, sem bendir til notkunar þeirra á ýmsum tímum. Verzlunarfyr- irtækið Örum & Wulff, sem lengi verzlaði á Vopna- firði, átti þessi hús seint á síðustu öld og voru þau hluti af verzlunarhúsum þeirra, sem voru mörg. Með þessum tveim- ur húsum eru þau öll horfin frá Vopnafirði utan eitt,- Þess má geta, að i stærra húsinu bjó Kristján fjallaskáld síðustu árin í litlu kvistherbergi og þar dó hann. Þór kvaðst lengi hafa vitað um þessi hús, sem eru býsna merkileg. Hörður Ágústsson kom þarna sem ann- ars staðar er hann var að Iíta á gamlar merkar byggingar víðs- vegar um landið. Fyrir nokkr- um árum fékk Þór svo skilaboð frá Kaupfélagsstjóranum á Vopnafirði um að þessi hús þyrftu að vfkja. Og nokkru síðar var það ítrekað að húsin þyrfti að fjarlægja, þar sem kaupfélagsbyggingar væru að risa þarna og nýtt frystihús al- veg komið að þeim. Þór fór austur 1973. Sá hann þá að mik- ið hervirki hafði verið unnið siðan Hörður Ágústsson leit á húsin, þar sem búið var að rífa milliloftið úr stærra húsinu. Hafði þetta gamla hús verið tekið undir sementsgeymslu og loftið rifið úr þvi til að bílar ættu greiðan aðgang inn. — Þegar ég fór að ræða við heimamenn, kom i Ijós að eng- inn áhugi var á að gera neitt við þessi gömlu hús, sagði Þór. Aðeins var drepið á möguleik- ana á að flytja þau til á staðn- um, en það fékk ekki undirtekt- ir. Þröngt er orðið á Vopnafirði og búið að byggja mikið á gamla bæjarstæðinu, svo að húsin gátu ekki verið þar áfram. Til þess hefði þurft að skipuleggja byggingar kaupfél- agsins öðru vísi fyrir mörgum árum. Því var ekki um annað að ræða en að rifa þau og flytja, eða ryðja þeim í sjóinn. Áður en nokkur ákvörðun var tekin, kom Hjörleifur Guttormsson þangað fyrir Safnastofnun Austurlands og kannaði málið. En það bar allt að sama brunni. Ekki var hægt að varðveita húsin fyrir austan. Ég spurði þvi Halldór Halldórsson kaup- 0 Þannig leit byggðin út á Vopnafirði meðan verzlunarhúsin stóðu þar niðri við sjóinn. En nú er orðið að þeim þrengt og flest horfin, utan stóra húsið á miðri myndinni. Kornhúsið og ullarhúsið, sem nú eru flutt f Árbæ, sjást til vinstri á myndinni. Gömlu verzlunarhúsin fá samastað í Arbæ • Ullarhúsið frá Vopnafirði mun væntanlega rísa upp f Árbæ i sumar. 1 í ^% í | H*// wjm jj‘! 1| KUIÍiFlim 0 Þarna er stærra húsið frá Vopnafirði, svokallað kornhús eða beykishús, þar sem örum & Wulff geymdu varning sinn. félagsstjóra hvernig honum lit- ist á að Þjóðminjasafnið fengi húsin keypt og flytti þau brott. Ég hafði þá Árbæjarsafn í huga, og stjórnin þar sam- þykkti umsvifalaust að veita þeim rúm. Ég gerði kauptilboð í húsin fyrir Þjóðminjasafnið og fékk þau. Borgaði 100 þúsund krónur fyrir hvort hús. Stærra húsið var svo tekið niður í fyrra og flutt suður, og það minna í sumar. Áður hafði Bjarni Ólafs- son smiður í Árbæjarsafni mælt húsin upp og merkt hluta þeirra. Og hingað eru þau kom- in. Húsin eru sennilega úr furu og gríðarlega vel viðuð, einkum minna húsið, sem hefur 12 tommu bita. Grindin er klædd utan. Á öðru húsinu er lárétt bðrð, en á hinu lóðrétt. Grindin var merkt frá gömlum tíma, en nú voru þök og klæðning merkt, áður en húsin voru rifin, svo hægt væri að reisa þau eins aftur. 1 hvoru húsi eru tvö loft, neðra loft og efra loft, bæði manngeng. Þarna hefur verið geymd ull, korn o.fl. 1 stærra húsinu hefur verið verzlun en þær innréttingar var búið að rífa fyrir löngu. — Þessi hús eru dæmigerð fyrir verzlunarhúsin á öldinni sem leið, segir Þór. Fyrir mér vakti fyrst og fremst að bjarga þessum húsum og þar sem okkur vantar alltaf geymslu, datt mér i hug að þarna gætum við geymt ýmsa stærri hluti. Ég hafði hugsað mér að annað húsið yrði aðallega notað fyrir geymslu og sem verkstæði, en í hinu mætti sýna ýmsa stærri muni, sem við höfum ekki rúm fyrir nú. Einu sinni voru uppi hugmyndir um landsbyggða- safn i Árbæ. Flutningur Silfra- staðakirkju þangað ýtti undir þá hugmynd. Flutningur þess- ara húsa þangað er hugsaður sem framhald á þvi safni, ef af verður. Ég geri mér grein fyrir þvi að hugmynd Reykvíkinga er fyrst og fremst að varðveita gömul merk hús úr borginni. En ef í Árbæjarsafni yrði komið upp sýnishornum af merkum byggingum utan af landi, torfhúsum sem örðum, held ég að margir mundu þar geta skoðað þessar byggingar, sem ekki sæju þær að öðrum kosti. Mjög lítið er varðveitt af hús- um af þessari gerð, að því er Þór tjáir okkur. I Ólafsvik er eitt slíkt hús, sem er friðað. Og fyrir austan er Gamlabúð á Eskifirði og Langabúð á Djúpa- vogi. Isafjarðarhúsin eru eldri, eða frá 18. öld. Búið var að afmarka Vopna- fjarðarhúsunum stað I Arbæ efst í hæðinni. En við nánari athugun fannst okkur þau þar nokkuð áberandi og áveðra, sagði Þór. Svo þau voru flutt neðar í túnið og verða reist neðan núverandi byggðar I safninu. Þar er verið að byrja að taka grunn fyrir minna húsið. Þetta hefur þann kost að húsin fá eðlilegan byggingar- stað, sagði Þór. Þau hafa alltaf staðið neðst við sjóinn og byggðin fyrir ofan þau. Á sama hátt verður byggðin í Árbæ ofar í brekkunni. Þar verða húsin sett niður með sömu af- stöðu og með sömu fjarlægð sem fyrr. Ætlunin er að koma ullarhúsinu upp í sumar, og kornhúsinu svo síðar, eftir þvi sem aðstæður leyfa. Það er stærra og viðir þarfnast við- gerðar. Ekki kvaðst Þór geta sagt hve dýrt yrði að flytja Vopnafjarð- arhúsin, en það kostaði mikið fé að rífa gömul hús, flytja þau og reisa á nýjum stað. Æskileg- ast sé að byggðarlögin varðveiti slík hús og hlynni að þeim heima. Ríkið hefur árlega veitt talsverðan stuðning, þar sem gerðar hafa verið upp gamlar byggingar, t.d. var veittur styrkur til viðgerða á Gamla- húsinu, sem er svipaðs eðlis sem þessi. Æskilegt hefði verið að þessi hús hefðu líka verið varðveitt á Vopnafirði og notuð svipað og áður fyrir verzlun, en þess var ekki kostur. En þetta eru ákaflega falleg hús, sem eru til sóma hvar sem er og eiga eftir að gleðja augu margra I Árbæjarsáfni og fræða um fyrri tíma. I Innan úr öðru verzlunarhúsinu. I Gömlu húsin voru vei viouo. 0 Þór Magnússon skoðar innviði annars hússins, áður en það er tekið niður til flutnings.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.