Morgunblaðið - 24.08.1975, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.08.1975, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. AGÚST 1975 Það sem sérfrœðingar segja að fólk þurfi að vita um holdlega ást þegar það er gfir fimmtugt Átta af hverjum tfu, sem sjötugir eru orðnir, eru enn fullfærir, hvað ástarleiki snertir. Slfkar tölur nefndu aldurs* eða ellifræðingar á alþjóðaráðstefnu f Israel nýlega. Þeir fullyrtu, að hjá fólki, sem væri nokkurn veginn heilbrigt, væri ekki um nein aldurstakmörk að ræða á sviði ástarinnar. Milljónir manna, milljónir hjóna draga sig f hlé á sfðari helmingi ævinnar og neita sér um þá Iffsnautn, sem aðeins náið samlff tveggja getur veitt, — og þurfa þó ekki að neita sér um neitt f þeim efnum. Fólk þarf aðeins að vita svolftið meira um niðurstöður nútfma elli- og kynlffsrannsókna. Dæmigert fyrir áhyggjur margra á þessu æviskeiði er til- felli hjónanna A, og þessvegna mun frá þyí sagt hér. Þau hafa verið gift í 39 ár, hann er 66 ára, en hún 62. Þau eiga þrjú uppkomin börn, sem öll eru gift. Þegar eiginmaðurinn varð sextugur, dró hann sig I hlé úr mjög góðri stöðu hjá iðnfyrirtæki. Fjárhagslega gat hann verið áhyggjulaus, það sem eftir var ævinnar. Alvarlega veikt hafði hvorugt þeirra nokkurn tíma orðið um dagana. Þau fóru bæði I langt ferðalag til útlanda til að njóta hins nýfengna frelsis. Þau sáu margt, næstum þvf of margt. Þau gengu þreytt til hvílu á hverju kvöldi, — en neituðu sér þó ekki um nautn holdlegrar ástar, sem þau reyndar ávallt höfðu haft unun af. Og þó — þeim tókst það þó ekki alltaf eins vel og verið hafði öll þessi ár. Og skömmu fyrir lok ferðarinnar var eiginmáðurinn að þessu leyti, ef svo má segja, alveg búinn að vera. Og þegar þau voru komin heim, virtist sem hjónalíf þeirra, — og er þá átt við hina holdlegu ást, — væri á enda runnið, enda þótt þeim þætti jafn- vænt hvoru um annað og áður. Þau fóru saman til læknis, og hann skýrði þeim frá þvi, að engum manni hlífði aldurinn við slíkum getumissi. „Þetta er það gjald, sem við verðum að greiða fyrir ellina,“ sagði læknirinn. Þau létu sér þetta spakmæli lynda f fjögur ár. Þá leituðu þau aftur á vit ýmissa lækna og fengu alls staðar sömu kveðjurnar. Þetta er hversdagsleg saga, sem óendanlega margir reyna. En henni iauk ekki þannig, hvað þessi hjón snertir, heldur hlaut hún annan endi, sem er jafn- óvenjulegur og hann er uppörv- andi. Þau gáfust ekki upp. Þau vildu fá að vita fullkomna vissu sína, og þegar þau voru að leita að punktinum yfir i-inu, höfnuðu þau hjá kynlífsfræðingnum William H. Masters og aðstoðar- konu hans, Virginíu Johnson (en þau hafa nú gifzt). Þau Masters og Johnson (en dæmi þetta er tekið úr skjölum þeirra) hófu nú meðhöndlun sína, sem fyrst og fremst var fólgin í fræðslu fyrir þau hjónin. Út- koman varð svo þessi: „Áður en vika var liðin frá því er með- höndlunin hófst, var kynlífsgeta þeirra beggja komin f eðlilegt horf aftur.“ Þrátt fyrir hlé á kyn- Iífi í fimm ár og þrátt fyrir aldur sjúklinganna. Umbreytingarár karlmannsins? Svo sem eðlilegt var, snerist þetta fyrst og fremst um mann- inn. Hann hafði þegar sætt sig við hið óhjákvæmilega: að eins konar umbreytingarár kæmu einnig yfir karlmennina, hin svokölluðu tfða- hvörf karlmennskunnar. Hor- mónastarfsemin sljóvgaðist, og sérstaklega yrði lítið um hormón þann, er testosteron nefnist. Það leiddi svo til þess, að smám saman drægi úr hæfni manna og að lokum að fullnustu til þess, að þeim risi hold. Þessi skoðun, sem fær ekki staðizt frá vísindalegu sjónarmiði, er orðin svo rótgróin meðal fjölda manna, að það er vart hægt að fá þá til að horfast af nægilegri ein- beitni f augu við raunveru- leikann. Til þess að geta lifað kynlifi þarf karlmaðurinn að vfsu ákveðið magn af testosteron, en f heilbrigðum lfkama er fyrir hendi langtum meira af því en nauðsyn- legt er til þessa. Og það jafnvel þótt aldurinn sé hár, fram til 75 ára aldurs og einnig lengur. I vísindatfmaritum fyrri tíma er oft fjallað um athuganir, sem gerðar hafi verið og gætu bent til þess, að um umbreytingartíma karlmanna væri að ræða. En þegar árið 1948 skrifaði hinn amerfski kynlífskönnuður, Alfred C. Kinsey, og byggði þá á mjög ítarlegum skýrslum, sem teknar höfðu verið af miklum fjölda manna, „að ekki væri sannreynt, að um neitt umbreytingartímabil karlmanna væri að ræða, hvorki almennt eða hjá einstaklingum". Og árið 1974 kallaði þýzka sér- fræðiritið „Kynlyf“ þetta svo- nefnda umbreytingartímabil karl--- manna „tilbúning". Masters og Johnson segja þetta „eina hina mestu villu menningar vorrar". En þrátt fyrir þetta veit hver maður, að kyngetan minnkar eftir þvf sem aldurinn færist yfir menn. En á þessa staðreynd Hjón í fullu f jöri. um leið að draga tfmann á lang- inn, eftir þvf sem hann og lags- konu hans Iystir. En menn hafa einnig ýmsar frá- leitar skoðanir varðandi kynferð- islega tilfinningu hinnar rosknu konu. Gagnstætt manninum lifir hún að vfsu sitt umbreytingar- tímabil vegna breytinga á hor- mónastarfseminni. En það er aftur á móti alveg út í hött og kemur þvi máli ekki við að ætla konum það, að þær missi áhugann á kynlífi með þessum tfðahvörf- um. Það eru einnig Masters og John- son, sem hafa gefið því gaum, að margar konur á sextugsaldri sýna meira kynferðislegt fjör en áður og njóta „hveitibrauðsviknanna" í annað sinn. Þessi upplifun leiðir oft til þess, að hin holdlega ást auðgar lffið fram á elliár. Og þess vegna segja þau: „Það þarf aðeins tvær forsendur til þess, að sjötug eða áttræð kona geti reglubundið lifað kynlífi: Hún verður að vera nægilega heilsugóð og hafa rekkjunaut, sem hún hefur áhuga á og hann á henni.“ Til eru konur, sem á umbreyt- ingarárunum og þar á'eftir eru áhugaminni um kynlff. En það er aðallega vegna skorts á hor- mónum, — og úr honum er svo auðvelt að bæta, engrar hnign- unar kynlífsins þarf að gæta. Konur þurfa þó að gera sér Ijóst, — alveg eins og karlmennirnir, — að með aldrinum tekur kynörvun lengri tíma. Hinn svonefnda for- leik þyrfti þvf gjarnan að lengja, með allri þeirri nautn, sem f honum felst. Þegar rosknar konur ná ekki fullnægingu, er orsökin oftast sú, að maðurinn hefur ekki sýnt nægilega þolinmæði við for- spilið. En ástaratlot má læra, og ménn eru heldur aldrei of gamlir til að fara í þann skóla. Oft er einni spurningu varpað Hve lengi er ánœgja afás tarleikjum: verður að líta f víðtæku samhengi. Gera má ráð fyrir því, að hinn líkamlegi hæfileiki til ásta nái hámarki um 25 ára aldur, og síðan fari hann hægt dvínandi. En sextugur maður tekur því með rósemi, þótt hann geti ekki hlaup- ið eins hratt og hann gat, þegar hann var 25 ára, — því að enn getur hann hlaupið. Hann gerir sér enga rellu út af því, þótt hann þjóti ekki eins hratt upp stiga eins og fyrir 35 árum, — hann getur enn gengið upp stiga. Hið sama gildir um alla lfkamshæfni og þar með einnig, hvað kynlíf snertir. Og svo gerist það einhvern tíma, eins og kom fyrir hjá hjón- unum A, eins og áður er sagt: Einhvern tíma mistekst allt. Á því augnabliki fer fyrir nær hverjum manni, eins og henti eiginmann- inn A. Hann verður skelfingu lostinn, skyndilega verður honum ljóst, að hann er orðinn gamall og honum verður hugsað um hið (ímyndaða) umbreytingartíma- bil. Nú upphefst örlagarík hring- rás: Ur því að honum mistókst í þetta eina skipti, er hann milli vonar og ótta í næsta skipti. Hann snýr sér varla að lagskonu sinni, heldur beinir allri athyglinni að sjálfum sér: Verður eitthvað úr þessu núna, — eða ekki? Slík afstaða hefur áhrif á allt tauga- kerfið. Vegna ósjálfráðrar starf- semi í heilaberkinum fer svo, að holdið rís ekki, þ.e. óttinn við mistök leiðir til mistakanna. Kynlífskönnuðurinn Dr. Her- mann — J. Vogt í Munchen lýsir þessum vftahring svo: „Þessi spenna milli vonar og ótta getur leitt til taugaveiklunar. Það skapast hringrás: mistök — ótti — vonbrigði. Menn skammast sfn fyrir ófarirnar. Næsta stig er ótt- inn við skömmina. Og þar sem enginn vill þó þurfa að fyrirverða sig, er hætt við, að menn geri ekki nýja tilraun til samfara." Og þannig fer svo oft um roskna menn, að þeir draga sig í hlé í auðsveipni gagnvart forlögunum. Af því að þeir vita ekki, að mistök í ástalffi einu sinni eða jafnvel oft, — eftir líkamlega eða andlega áreynslu, á óheppilegum dögum eða af óþekktum ástæðum, — eru fullkomlega eðlileg. Hin eðlilega þróun aldursins hefur f för með sér breytingar á kynlífinu. En kynferðislegar truflanir þurfa ekki að eiga sér stað hjá mönnum, sem eru nokkurn veginn heil- brigðir, langt fram eftir aldri. Og alls ekki, ef menn hafa ekki verið neitt frábitnir kynlffi fyrir fimmtugt. Jafnt og reglubundið kynlíf á yngri árum er, — ásamt aðlaðandi lagskonu, — bezta for- sendan fyrir kynlffi allt til elli. Að sjálfsögðu ætti „fullorðinn“ maður og rekkjunautur hans að gera sér ljóst, að eðlilegar breyt- ingar eigi sér stað á kynlífinu. Þannig lengist til dæmis oft tíminn, þangað til holdið rís. En sá, sem lítur ekki á hina sameig- inlegu kynferðislegu upplifun sem einhverja athöfn, sem beri að ljúka af á sem skemmstum tíma, ætti að skoða þessa staðreynd sem kost en ekki löst. (Ósjaldan kvarta lagskonur ungra manna yfir því, að „þetta" sé svo fljótt búið). Hve oft er nógu oft? Þess vegna fullyrða þau Masters og Johnson: „Roskinn maður getur verið frábær kynlifs- nautur. Og með rosknum manni eigum við við þá, sem eru á aldrinum 50—70 ára. Hinn roskni maður er I samanburði við yngri mann miklu færari um að ráða hápunkti samfaranna og þar með fram, alveg sérstaklega fávís- legri: Hve oft? Þegar hin svokallaða kynbylgja fór af stað, skoluðust ekki aðeins burt margir teprulegir fordómar. Margs konar kynferðislegt raup og gort var einnig borið fram sem blákaldur sannleikur. Það sem gefur að lesa i því efni I klám- ritum, að minnsta kosti hvað snertir „Hve oft?“, er hreinn skáldskapur, og það sem glaum- gosar eða ráðvandir borgarar guma af I veitingahúsum við fastaborð sfn, er alltof oft ekkert annað en ýkjur. Kynlíf er engin keppnisíþrótt. Svarið við spurn- ingunni „Hve oft?“ getur aðeins verið á þessa leið: Eins oft og það veitir báðum rekkjunautum ánægju. Þegar unga fólkið efnir til síns kynlffs eins og hátíðar með lúðra- blæstri og bumbuslætti, ættu þeir, sem eldri eru, að hafa það f huga, að eitt lítið næturljóð á ekki að leika svo hátt, en það getur ef til vill hljómað miklu betur. (Ur „Welt am Sonntag*' Höf: Giinter Speicher. — svá — þýddi.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.