Morgunblaðið - 24.08.1975, Side 24

Morgunblaðið - 24.08.1975, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1975 hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. > Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 100. Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 800.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Nú hefur verið ákveð- ið að viðræður hefjist um landhelgismál við Breta hinn 11. september n.k. og jafnframt hefur rík- isstjórnin fallizt á beiðni v-þýzku ríkisstjórnarinnar um viðræður um deilumál ríkjanna. Eðlilegt er að verða vió óskum þeirra ríkja, sem leitað hafa við- ræðna um landhelgismál við okkur, en í tilefni af væntanlegum viðræðum við V-Þjóðverja er ástæða til að vekja athygli á nokkr- um atriðum er snerta afstöðu þeirra til lífshags- muna íslendinga. Eftir útfærsluna í 50 sjó- mílur á árinu 1972 hafa V-Þjóðverjar sýnt meiri hörku í samskiptum við okkur íslendinga án þess að beita vopnavaldi en nokkur önnur þjóð. Lönd- unarbann hefur verið lagt á íslenzkan fisk í V- Þýzkalandi og valdið okkur ómældu tjóni og við höfum verið beittir refsiaðgerðum af hálfu Efnahagsbanda- lagsins, þar sem V- Þjóðverjar eru valda- mestir vegna þess að við höfum ekki látið undan kröfum þeirra um veiðar togara þeirra á Islands- miðum. Þessar refsi- aðgerðir EBE og löndunar- bannið í Þýzkalandi hefur í raun lokað markaðnum í Evrópu fyrir okkur. í þeim samningaviðræðum, sem fram hafa farið, hafa full- trúar V-Þjóðverja verið erfiðir og ósveigjanlegir og þess vegna hafa samningar ekki tekizt. Þessi harða afstaða v- þýzkra stjórnvalda er okkur Islendingum með öllu óskiljanleg. Milli Is- lendinga og Þjóðverja rfkir rótgróin vinátta. Milli þessara tveggja landa hafa jafnan verið sterk tengsl. Við höfum átt mikil við- skipti við Þýzkaland, íslenzkir námsmenn hafa sótt þangað í ríkum mæli og við höfum veitt því eftirtekt, að Þjóðverjar leita mjög til Islands i orlofsferðum sínum. Þá eru íslendingar og V- Þjóðverjar bandamenn í Atlantshafsbandalaginu. Þjóðverjar beita þeim röksemdum við okkur, að atvinna fjölda manna sé í húfi, ef þeir hrökklist frá Islandsmiðum. Hið rétta er auðvitað, að fjöldi þeirra V-Þjóðverja, sem hafa at- vinnu af fiskveiðum og fiskvinnslu er hverfandi og raunar mikið um, að farandverkamenn frá öðrum þjóðum vinni að þessum verkefnum í v- þýzkum skipum og fiskiðju- verum. Alla vega ætti svo auðugt og ríkt land, sem V-þýzkaland ekki að þurfa að kveinka sér um of út af þeim smámunum, sem hér er um að ræða í þeirra efnahagskerfi. Þegar setzt verður að samningaborði með full- trúum V-Þjóðverja hljóta fulltrúar íslands í upphafi að gera eina meginkröfu og neita öllum frekari viðræð- um fyrr en við henni hefur verið orðið. Fulltrúar Is- lands hljóta að krefjast þess, að löndunarbanni á íslenzkum fiski verði aflétt þegar í stað og að það verði forsenda fyrir alvarlegum viðræðum við V-Þjóðverja um landhelgismál. Þá ættu V-Þjóðverjar að sjá sóma sinn í því, að refsi- aðgerðum EBE verði aflétt enda ljóst, að ekki er hægt að ræða í fulltri alvöru við Breta og V-Þjóðverja fyrr en tollasamningur Islands við EBE er kominn að fullu til framkvæmda. Þetta atriði þarf að liggja ljóst fyrir í samningavið- ræðunum, sem hefjast á næstunni við Breta. Nýir samningar koma að sjálf- sögðu alls ekki til greina við þá meðan EBE beitir okkur refsiaðgerðum. Þeir eru ein stærsta þjóðin í EBE og þeir geta ekki vænzt þess, að við horfum fram hjá þeirri staðreynd. Matthías Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, hefur tekið skýrt fram, að samningar við eina EBE- þjóð komi ekki til greina meðan refsiaðgerðum er beitt vegna þvermóðsku annarrar. Þau tvö atriði, sem hér hafa verið gerð að umtals- efni, eru í rauninni for- senda þess, að alvarlegar samningaviðræður geti farið fram við Breta og V- Þjóðverja um landhelgis- mál. Það verða ráðamenn þeirra að gera sér ljóst. Jafnframt mætti það gjarnan verða v-þýzkum áhrifamönnum nokkurt umhugsunarefni, að hér á íslandi eru menn farnir að líta svo á, að þótt Bretinn sé illur viðskiptis f land- helgismálum, þá séu Þjóð- verjar orðnir hálfu verri. Sú staðreynd verður aldrei nægilega vel undir- strikuð í viðræðum við út- lendinga, að útfærsla land- helginnar er tslendingum lifsnauðsyn, hún er spurn- ing um líf eða dauða þessarar fámennu þjóðar, hún er sjálfstæðismál þjóðarinnar í dag og um sjálfstæði sitt semur engin þjóð eins og um verzlun væri að ræða. Þetta virðist útlendingum ganga erfið- lega að skilja. Þess vegna skilja þeir ekki einbeitni og stefnufestu Islendinga í landhelgismálum. Forsenda samninga urbréf Laugardagur 23. ágúst m Mikilmenni Sjónvarpið sýndi ekki alls fyrir löngu merka kvikmynd um rúss- neska stórskáldið, hugsuðinn og snillinginn Leo Tolstoj. Það var eftirminnilegt að sjá Tolstoj eins og hann var á efri árum: þerinan mikla og sérstæða persónuleika, sem á seinni árum lifði sjálfur samkvæmt þeim siðferðiskenn- ingum sem hann boðaði í verkum sínum. Mikið lagði hann í söl- urnar fyrir þann boðskap. Rætur hans sóttu næringu f siðaboðskap Krists, eins og kunnugt er. Tolstoj var kristinn höfundur og hafði róttækar skoðanir á ýmsum málum. Tolstoj var mikilmenni. Malcolm Muggerage, einn þekkt- asti rithöfundur og blaðamaður Breta nú um stundir, sagði um hann í sjónvarpsmyndinni, að hann væri eins og sjálft sköpunar- verkið. Gekk jafnvel svo langt að nefna Krist í sömu andrá og hann talaði um trúspeki Tolstojs. Margt hefur breytzt f föður- landi Leo Tolstojs. Þó var eins og margar lýsingar á Iffi hans ættu ekki síður við nú á dögum en meðan hann lifði. Afstaða stjórn- valda til rithöfundarins minnir á þá kúgun, ofbeldi og mannúðar- leysi, sem enn ríkir þar í landi. Frelsið er fótum troðið. Þó verður að segjast eins og er, að fólk hefur það nú flest betra hvað snertir fæði og klæði en á dögum Tol- stojs. Leiguliðarnir eru að vísu enn kerfisþrælar og andlegt frelsi þeirra eða annarra er ekki meira f þessu föðurlandi mikillar menn- ingar en á dögum snillingsins. Ófrelsið jafnvel meira, ef eitthvað er. Leo Tolstoj gat aldrei fellt sig við kenningar Karls Marx, leit á hann sem boðbera efnishyggju sem hann fyrirleit og stakk gjör- samlega í stúf við mannúðarkenn- ingar, kærleiksboðskap og sið- gæðisvitund Tolstojs. Kristnin varð kjarni lífs hans og kenninga. Virðingin fyrir manninum, frelsi hans og andlegrí reisn. SniU- ingurinn taldi jafnvel að andi mannsins væri guðlegs eðlis og í eðli hvers einstaklings byggi fyrirheit um einhverskonar eilífð. Nú á dögum má helzt ekki minnast opinberlega á orð eins og einstaklingur og mannúð í Sovét- ríkjunum, enda þótt Brezhnev hafi leyft sér þann munað að taka þau sér í munn við hátíðlegt tæki- færi á Helsingforsfundinum. í leit að full- komnun Leo Tolstoj helgaði lif sitt leit að fullkomnun. Sjálfur fór hann í gegnum hreinsunareld, skírðist I þeim eldi meir og betur en flestir menn aðrir. Verk hans bera þess ekki sízt merki og munu ávallt eiga erindi við hugsandi fólk, hvar sem er í heiminum. Jafnvel er leyft að lesa þau f Ungverja- landi(l) Lenin hafði misjafnar mætur á Tolstoj, kunni að meta sumt í verkum hans, annað ekki. Hann talaði um þverstæðurnar i lífi hans og verkum, kallaði hann annars vegar „fjall“, en hinsvegar „vælukjóa“. En hvernig átti hann að skilja þennan hugsuð, sem gekk út á akrana að plægja þá fyrir rússneska leiguliða og verkafólk? En Lenin markaði aftur á móti þá stefnu, ásamt samstarfsmönn- um sínum og arftökum, að milljónir rússneskra bænda flosn- uðu upp af jörðum sínum, eða voru hraktar miskunnarlaust inn í þrælabúðir og dauða. Eða kirkjan. Jafnvel rússneska orþódox-kirkjan þoldi ekki sið- ferðisboðskap Leos Tolstojs, né þá kenningu hans, að farsælast væri að menn fetuðu þá einu leið sem að hans dómi var fær, þ.e. að fara eftir kenningum Krists, í verki, en ekki einungis i orði. Jafnvel það tókst skáldinu, þegar árin færðust yfir hann. Hann galt jafnvel ekki keisaranum það, sem keisarans er, heldur lýsti hann blákalt yfir því, að hann yrði ævinlega í andstöðu við ríkið, í hvaða mynd sem það birtist. Að þessari niðurstöðu komst hann, þegar hann horfði á fórnardýr leggjast undir fallöxina í Parjs. En fallöxi ríkisins var erfðahlut- ur orþódox-kirkjunnar rússnesku. Leo Tolstoj uppfyllti jafnvel í elli sinni orð Krists, þegar hann sagði við unga manninn: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ Hinn ungi maður segir við hann: „Alls þessa hefi eg gætt. Hvers er mér enn vant?“ Jesús sagði við hann: „Ef þú vilt vera algjör, þá far, sel eigur þinar og gef fátækum, og munt þú eiga fjársjóð á himni.“ Slíkur boðskapur var spilltri orþódoxkirkjunni að sjálfsögðu ofviða. Hún skildi nánast ekki skáld, sem tókst í lífi sínu að framfylgja þessari kenningu Krists. 1 kringum aldamótin gerði hún sér Iftið fyrir og bannfærði Leo Tolstoj, kallaði hann jafnvel falsspámann, og þá ekki sízt vegna sainúðar hars með soltnum Leo Tolstoj og undirokuðum Ieiguliðum(!) Hann svaraði þvf til, að hann gæti ekki, eftir Ianga og stranga bar- áttu, snúið aftur til fyrri viðhorfa frekar en fleygur fuglinn inn í eggið, sem hann kom úr. Hið opinbera munnsegulband Þegar styrjöldin brauzt út milli Rússa og Japana, var Leo Tolstoj spurður um það, með hvorum hann héldi. Skáldið svaraði, að hann stæði með verkafólkinu í báðum löndum. Þrátt fyrir slíkt svar, er kommúnistum um megn að sjá hann í réttu ljósi. Og þeir fyrirlitu þaó markmið hans að stefna að fullkomnun mannsand- ans, fullkomnun einstaklingsins. Hvernig ættu marxistar að skilja siðferðisbaráttu, sem beinir at- hyglinni inn á við — að innri auðlegð og þroska einstaklings- ins, en ekki út — til mergðar- innar? Leo Tolstoj var langt á undan sínum tíma f afstöðu til skóla- mála. Kenningar hans í mennt- unar- og fræðslumálum höfðu að takmarki þroska einstaklingsins, en ekki mótun hans að vilja ríkis og opinbers valds. Það kemur því engum á óvart, þegar talsmaður Sovétstjórnarinnar á búgarði skáldsins, sem nú er minjasafn, feit kerling og flokkslega innrætt, fullyrðir blákalt í sjónvarpsmynd- inni, að kenningar Leos Tolstojs í kennslumálum séu löngu úreltar — og hafi raunar alltaf verið. Það vekur ekki heldur neina sérstaka athygli lengur, en mætti þó vera kirkjunnar mönnum fslenzkum nokkurt ihugunar- og áhyggju- efni, þegar þessi sama þröngsýna kommúnistakerling segir, að boð- skapur skáldsins eigi ekki erindi við okkar tíma, því að „á tímum tækni og visinda", sé heimskulegt að trúa á Guó, eins og hið opin- bera munnsegulband hennar komst að orði. Veikleiki Tolstojs, sagði hún, var sá að hann trúði á guð (!) Hvað skyldi hún vita um guð, frekar en aðrir, nema þá falsguðina f fyrirheitum marx- ismans? En góðum marxista ætti þó að vera það metnaðarmál að afgreiða ekki það sem hann veit ekkert um. Slík heimska er a.m.k. ódíalektísk. Hvernig ættu þessar gerviper- sónur sem hafa tekið sér gervi- guði og fyrirlíta forsjón Leos Tol- stojs, að geta skilið líf hans og störf, boðskap hans og kenningar, svo ekki sé talað um frelsisást hans og fordæmi? Skáldsins sem lagði í verkum sínum höfuð- áherzlu á eina persónu: sannleik- ann. Tveir keisarar Allt lejðir þetta hugann að öðru skáldi rússnesku, öðru mikil- menni, Alexander Solzhenitsyn. Sagt var að tveir keisarar réðu rfkjum f Rússlandi, meðan áhrif Leos Tolstojs voru hvað mest, skáldið og Nikulás keisari II. Nú má segja hið sama, að keisarar Sovétríkjanna séu tveir, sá ver- aldlegi Brezhnev og hinn andlegi leiðtogi, Solzhenitsyn. Athyglis- vert er, hver afstaða orþódox- kirkjunnar hefur verið til hirs sfðastnefnda. Það leiðir einnig hugann að Tolstoj. Allir, sem

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.