Morgunblaðið - 24.08.1975, Síða 36

Morgunblaðið - 24.08.1975, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. AGÚST 1975 Hvít elding ir White Llghtning, bandarfsk, 1973. Leikstjóri: Joseph Sarg- ent. Það er fremur lítið hægt að segja um mynd, sem gengur að mestu út á bifreiðaakstur — kúnst- ir, sem flestar hafa sézt áður f öðrum myndum. Hvít elding fjallar um leynivínsölu og gjör- spilltan lögreglustjóra, ungan pilt, sem hann myrti og bróður hans, sem gengur í lið með al- ríkislögreglunni til að koma lögreglustjóranum fyrir kattarnef. Það er æði lítið við myndina, sem hægt er að kalla frumlegt, en hins vegar minnir hún því oftar á ýmsar aðrar. Strax í upp- hafi minnir bátssiglingin á Deliverance (þar sem bæði Burt Reynolds og Ned Beatty, sem leikur lögreglustjórann, léku) og síðar í myndinni vitn- ar Reynolds beint í þá mynd með brandara um kynvillingana. Aðhlynningin, sem hann fær á heimili ógiftra mæðra minnir á Eastwood í The Beguiled og á Luciano í Mafíunni. Andlit James Carners í Support your Local Sher- iff og Steve McQueens í Bullit eru aldrei langt undan, hvort sem Reyn- olds er að stunda kæru- leysislegar athuganir eða einbeita sér bak við stýr- ið. Leikstjórinn Joseph Sargent er lítt þekktur hér á landi en virðist að- allega standa í því að gera allskonar eftirlík- ingar. 1 vetur var sýnd eftir hann myndin Sun- shine í Laugarásbíói, eft- irlíking Love Story, og þar á undan hafði hann fetað í fótspor 2001 með myndinni The Forbin Project. Eftir að hann gerði þessa mynd leikstýrði hann myndinni The Tak- ing of Pelham 123, sem sögð er keimlík mynd Lesters, Juggernaut. Slíkar bergmálsmyndir eru einskonar sjúkdómur innan kvikmyndaiðnað- arins, og bera nær und- antekningarlaust vott um andlega fátækt og ófrumleik höfundanna, hvað og umrædd mynd, sem nú er til sýningar, gerir einnig. SSP. Leitiná hafsbotni if The Neptune Factor — An Undersea Odyssey, kanadfsk, 1973. Leikstjóri: Daniel Petrie. Eins og seinni hluti enska nafnsins bendir tif, er þessarimyndætiað að vera einskonar neðan- sjávar-svar við mynd Kubricks, A Space Od- yssey. Því miður er þessi samanburður neðansjáv- armyndinni ákaflega óhagstæður — svo ekki sé meira sagt. Hér er hvergi að finna hinn hreina og tæra stíl Kubricks, hvorki í kvik- myndatöku né efnismeð- ferð. Að vísu er að finna í myndinni nokkrar mjög fróðlegar myndir af und- arlegum sjávardýrum, en þegar höfundar myndar- innar reyna að telja manni trú um risavaxna stærð þeirra með því að margfaida stærð þeirra með nærmýndaupptök- um, fer glansinn af sjó- ferðinni. Auk þess er það landslag og það sjávarlíf, sem okkur er sýnt og sagt að sé úti í miðju Atlants- hafi fjári líkt sunnlenzku kóralrifi. Efnið ristir ekki dýpra en svo, að ekki er þörf fyrir súrefniskúta eða kafarabúninga. 1 raun- inni er efnið svo strjált að það verður neyðarlega áberandi um miðbik myndarinnar, að höfund- arnir eru aðeins að reyna að fylla ákveðinn sýning- artíma með síendurtekn- um og langdregnum myndum af Neptúni II á siglingu innan um ótrú- lega fjölskrúðugt neðan- sjávarlíf á botni Atlants- hafsins. SSP. McQ if McQ, bandarísk, 1974. Leikstjóri: John Sturges. JOHN Sturges er nafn, sem tengist faglegum vinnu- brögðum og mjög þokka- legum myndum, líkt og The Magnificent Seven og The Great Escape. En Sturges er langt frá því að vera persónu- legur eða neinn sérstakur stílisti og gerir, líkt og segir í einni uppsláttarbókinni, „eins góðar kvikmyndir og handritin leyfa". En handrit Lawrence Roman að McQ leyfir hins vegar æði fátt. Sagan um lögreglumanninn, sem berst gegn spillingu inn- an kerfisins hljómar kunnug- lega, og það, að lögreglu- manninum sé sagt upp störf- um vegna þess að hann óhlýðnast skipunum, er löngu orðin klisja. Það, sem kemur einna helzt á óvart, er, að handritahöfundinum tekst að sníða handritið að John Wayne, gömlum kúreka, þegar efnið kallar raunveru- lega á miklu yngri mann og viðbragðssneggri. í heildina er myndin hvorki betri né verri en almennt gerist um þessa tegund glæpamynda og er það miður, því að á tímabili virðist McQ ætla að lenda í andstöðu við allt kerf- ið, þar sem spillingin nær til æðstu manna. En spillingin er aðeins látin ná til eins lítilfjörlegs embættismanns og eru þau endalok ákaflega ódýr, eins og því miður endir flestra mynda af þessu tagi vil verða. SSP. Síðunni þykir rétt að benda lesendum sínum á það, að sýn- ingum fer nú að fækka á Fat City í Stjörnubíói. Verður myndin sýnd aðeins núna um helgina en á þriðjudag munu hefjast sýningar á Nikulás og Alex- andra, sem fjallar um síðustu 14 ár keisaraveldis í Rúss- landi. Leikstjóri er Franklin J. Schaffn- er (Patton) og er þetta þriggja tíma stórmynd. Fat City var áður sýnd siðast- liðið haust og þá við fremur dræma að- i’ sókn, en til marks um ágæti þessarar myndar, sem hlaut fjórar stjörnur hér á siðunni á sínum tíma, er það, að nú hefur hún verið endursýnd í jafn- langan tíma við betri aðsókn. Á enskri tungu nefn- ast myndir eins og þessi „sleeper“ (svefnmynd), eða mynd, sem þarf nokkuð langan tíma til að taka við sér, hvað aðsókn snertir. Eru lesendur síð- unnar eindregið hvattir til að sjá þessa mynd John Hustons, sem lýsir lífinu ekki síður en mynd Andersons, O Lucky Man! kvik mijnl /íöon Ern eftir aldrL. eða tuttugu og níumínútur fgrir lítið Höfundur og leikstjóri Magnús Jónsson kvik- myndargerðarmaður. Það hefði verið hægt að byrja greinarstúfinn sem svo: Magnús Jónsson er vinstri maður, út- skrifaður úr skóla i Moskvu. Með því frábæra víðsýni hefði grund- völlurinn verið lagður að gagnrýninni, og ámóta einstrengingsleg þykir mér myndin ERN EFTIR ALDRI. En það er vafa- söm leið til að kryfja viðfangsefnið, að segja bara þetta' er gott og þetta er vont. Það er ærið langt þar á milli, því að ýmsar hliðar má sjá á hverjum hlut ef menn vilja. Það er ódýr aðferð, og höfðar vænti ég ekki nema til blindra línu- manna, að raða upp þeim hlutum sem manni geðj- ast ekki að og segja svo: er þetta ekki allt alveg grábölvað; myndast að- eins við að sjá verri hlið- ina og gera hana sem tor- tryggilegasta. Við megum heldur ekki neita þeirri staðreynd að eitt sterkasta sameiningarafl íslensku þjóðarinnar er frelsið, sú hamingja að fá að gera flesta hluti í friði og óttaleysi. Og myndin á einmitt að fjalla um þá þætti, sem sameina okkur íslend- inga. Hér er krefjandi og athyglisverður efniviður fyrir hendi, en leikstjóri tekur þann kostinn að fara frjálslega með það þema og bregður þá oft fyrir sig slitnum og þreytulegum vinstri áróðri gegn herstöðinni og NATO, efnishyggju og sjálfbjargarviðleitni og þar fram eftir götunum. Þetta er jú.oft spaugilega fram.borið, og það er vel, en sjálfsagt hefur M.J. ætlað sér að kalla fram önnur og meiri áhrif hjá fólki en ódýrt fliss. Það kemur líka fyrir að hann h\ttir dálaglega í mark, því að það er fjölmargt sem mætti fara betur í okkar þjóðfélagi, og það er einmitt f hlutlausum köflum myndarinDar sem höfundi tekst bezt upp. Nú upp á síðkastið hefur verið átakanlegur vandræðabragur yfir ádeilusmíðum reiðra, ungra vinstri manna, sem Magnúsi tekst þó alloft að breiða yfir með ágætum húmor. Það er kannski ekki nema von, því að heimatilbúnir draugar hafa til að bera ákaflega lítinn sannfær- ingarkraft og engan veg- inn til þess fallnir að skjóta mönnum skelk í bringu. ERN EFTIR ALDRI hreif mig ekki sem lista- verk, og beitt er of slitn- um og ódýrum aðferðum til þess að hægt sé að taka hana alvarlega. En M. J. kann að hitta í mark, og því má reikna með að hann geti gert mun betur og skapað heilsteyptara verk og sannférðugra. M. J. hefur tekið Laugarásbíó á leigu á mánudaginn n.k., og hyggst þá sýna myndina í sjö skipti þann daginn. — Og sjálfsagt oftar, ef eitt- hvað kemur í kassann. Sæbjörn Valdimarsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.