Morgunblaðið - 18.09.1975, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1975
Júlfus Sisurbjörnsson Ieiðbeindi smfðakennurum. Hér sýnir hann Hjálmari Þorsteins-
syni, Akranesi, og Vígþðri H. Jörundssyni, Hólmavík, smfðisgrip, sem Gróa Jakobsdótt-
ir frá Eyrarbakka gerði á námskeiðinu.
Hluti verkefna, sem smfðakennarar unnu að á námskeiðinu. Þeir ræddu og unnu
fjölbreytileg smíðaverkefni fyrir alla aldursflokka grunnskólans, og gerðu kennslu-
áætlanir.
Ragnheiður Hafsteinsdóttir frá Selfossi (til hægri) leiðbeindi
starfshópi, sem vann að gerð verkefna í prjóni og hekli fyrir ýmsa
aldursflokka.
120 kennarar á mynd- og handmenntanámskeifti
1 tilraunakennslunni á Hólma-
vfk fengu nemendur það
verkefni að teikna persónu,
sem þeir þekktu vel, f starfi.
Þessi mynd er eftir 8 ára dreng
á Hólmavík, og er af bróður
hans, sem er lögregluþjónn.
Þótt sól skfni f heiði þykir
lögregluþjóninum vissara að
hafa kylfuna með sér.
NÝLEGA var haldið námskeið fyrir mynd- og hand-
menntakennara í Kennaraháskóla íslands. Námskeið-
ið stóð í 9 daga og sóttu það um 120 kennarar víðsvegar
að af landinu, en stjórn námskeiðsins hafði Þórir
Sigurðsson, nýr námsstjóri í hand- og myndmenntum,
með höndum.
Kennsla á námskeiðinu var bæði bókleg og verkleg.
Daglega voru fluttir fyrirlestrar um uppeldis- og
kennslufræðileg efni, tilsögn var veitt í gerð verkefna
og settar saman kennsluáætlanir fyrir mismunandi
aldursflokka.
Meðal fyrirlesara á námskeiðinu var dr. Þuríður J.
Kristjánsdóttir, sem flutti erindi, sem hún nefndi
,,Áhugahvöt“. Stefán Ólafur Jónsson námsstjóri ræddi
um verk- og tæknimenntun á íslandi, Guðmundur
Sveinsson rektor um Fjölbrautaskóla, Bjarni Ólafsson
um húsnæði og tækjabúnað vegna mynd- og hand-
menntakennslu og Þórir Sigurðsson námsstjóri ræddi
um nýja námsskrá og stöðu mynd- og handmennta-
greina í skólakerfinu.
Námsefni og kennsluaðferðir í þessum greinum hafa
tekið verulegum breytingum á undanförnum árum og
hefur verið lögð aukin áherzla á að virkja hugmynda-
flug nemendanna og láta þá hafa frumkvæði í náminu.
Á síðastliðnum vetri fór fram tilraunakennsla í mynd-
og handmenntum í fjórum barnaskólum, þ.e. á Hólma-
vík, Akranesi, Seltjarnarnesi og í Langholtsskóla. í lok
námskeiðsins var haldin sýning á munum nemenda í
jessum skólum.
|Þessi lágmynd varð til í sam-l
vinnu nemenda I Langholts-
skóla. IWyndin heitir „Dýra-
garðurinn" og er gerð úr rauð-
leir, skreytt með hvltum og
svörtum leirlit.
Elín G. Ólafsdóttir annaðist tilraunakennslu I mynd- og handmenht
f 1. og 2. bekk Langholtsskóla. Á myndinni eru nokkur verk
nemenda hennar.