Morgunblaðið - 18.09.1975, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.09.1975, Blaðsíða 18
\ g MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1975 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið. ftir útfærslu fiskveiði- ■l laridhelgi okkar í 50 sjómílur gerðu þáverandi sljórnvöld samninga við brezku og belgísku ríkis- stjórnirnar um takmarkað- ar veiðiheimildir innan hinnar nýju fiskveiðilög- siigu. Þessir samningar voi u staðfestir af Alþingi í nóvember 1973. Með þeim greiddu atkvæði allir þing- menn Alþýðuflokksins, all- ir þingmcnn Framsóknar- flokksins, allir þingmenn Alþýðubandalagsins, báðir þingmenn Samtaka Frjáls- lyndra og vinstri manna og megin þorri þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Samningurinn fékk aðeins 6 mótatkvæði á Alþingi, 5 þingmanna Sjálfstæðis- flokksins og Bjarna Cuðna- sonar. Höfuðkostir samningsins voru, að hann batt endi á hættuleg átök á íslands- miðum, jók á raungildi út- færslunnar þann veg, að hann setti erlendri sókn á fiskimið okkar og afla- magni Breta og Belga viss takmörk og færði okkur meiri möguleika en ella til að nálgast þau markmið um fiskvernd og skynsam- lega nýtingu fiskstofn- anna, sem að var stefnt með útfærslunni. Megin- gallar samkomulagsins voru hinsvegar þeir, að ekki var nægilega tryggt og frá því gengið, að toll- múrar EBE-landa á fersk- fisk og unnar sjávarafurðir yrðu felldir niður eða færð- ir í það lágmark, sem áður gerðir samningar stóðu til, og að samátaki fiskveiði- þjóða á Norðaustur- Atlantshafi um fiskvernd var ekki nægur gaumur gefinn. Þrátt fyrir þessa annmarka taldi Morgun- blaóið samningana rétt- lætanlega við ríkjandi að- stæður. Morgunblaðið hefur und- anfarið rætt hugsanlegar forsendur samninga við aðrar fiskveiðiþjóðir um takmarkaðar veiðiheimild- ir eftir útfærslu í 200 sjó- mílur, 15. október nk. Þar hefur m.a. verið rætt um samátak umræddra fisk- veiðiþjóða í fiskverndunar- málum, tryggingu þess að sókn útlendinga og afla- magn á íslandsmiðum verði verulega skert, að samningarnir verði svæðis- bundnir og ' til mjög skamms tíma, löndunar- bann og refsitollar á fersk- fisk og unnar sjávarafurðir okkar felldir niður og hlið- sjón höfð af fiskveiðihags- munum okkar utan vænt- anlegrar fiskveiðiland- helgi, t.d. í Norðursjó. Þessar forsendur þurfa í aðalatriðum að vera til staðar, ef samningar eiga að nást. Þær þjóðir, sem hér eiga stærstan hlut að máli, Belgar, Bretar og Vestur-Þjóðverjar, sem all- ar eiga aðild að Efnahags- bandalagi Evrópu, þurfa því að ná innbyrðis sam- komulagi um niðurfellingu og lækkun núgildandi toll- múra. Núgildandi tollar á þorski, ufsa og ýsu eru 15% og á karfa 8%. Ef bókun 6 í samningum okk- ar við EBE kemur til fram- kvæmda lækka þessir tollar í 3.7% á þrem fyrst töldu fisktegundunum og í 2% á karfa. Þessi lækkun myndi að sjálfsögðu hækka í raun söluverð á ferskfiski og þar með aflahlut út- gerðar og sjómanna. Tollur á rækju í Bret- landi, sem er aðalmarkaður okkar fyrir þá vöru, er í dag 12%, hækkar í 16% um nk. áramót og f 20% um áramót 1975—76. Þessi tollur hefur valdið veru- legri sölutregðu á rækju, sem safnazt hefur saman óseld í vinnslustöóvum. Fjölmörg fiskvinnslupláss á Vestfjörðum og við Húnaflóa byggja afkomu sína að stórum hluta á rækjuvinnslu og eiga mikið í húfi í þessu efni. Ef bók- un 6 kemur til fram- kvæmda fellur þessi tollur með öllu niður. Svipuðu máli gegnir með lagmetisiðnað okkar, sem nú er I verulegum þreng- ingum, vegna verðlags- og markaðsmála, svo við borð liggur, að rekstrarstöðvun blasi við. Innflutningstoll- ur á allt lagmeti, annað en Kavíar, er nú 20% í gömlu EBE-löndunum. í Dan- mörku og Englandi fer hann í 16% um næstu ára- mót og síðan í 20% ári síð- ar. Kæmi bókun 6 til fram- kvæmda lækkaði þessi toll- ur mjög verulega og bætti samkeppnisaðstöðu ís- lenzks lagmetisiðnaðar. íslendingar eru stærstur söluaðili grásleppuhrogna á heimsmarkaði og ættu að geta unnið þetta hráefni sjálfir í kavíar, í stað þess að flytja hrognin óunnin út, eins og nú er gert. Inn- flutningstollur á kavíar er hinsvegar 30% í gömlu EBE-löndunum, verður 24% í Danmörku og Eng- landi um nk. áramót og hækkar ári síðar í 30%. Grásleppuhrogn eru hins- vegar lítt eða ekki tolluð. Afleiðingin er sú að grá- sleppuhrognin eru flutt út óunnin og unnin erlendis. Kæmi bókun 6 til fram- kvæmda færi tollur á kaví- ar niður í 6% og skapaði lagmetisiðnaði okkar nýja framleiðslumöguleika. Refsitollar EBE-land- anna hafa þannig veru- leg áhrif á aðstöðu og kjör sjómanna og fiskiðn- aðar í landinu, sem hafa verður í huga, þegar heild- armyndin er skoðuð. Hins- vegar mega þeir ekki hafa úrslitaáhrif á afstöðu okk- ar. Meta verður stöðu okk- ar með köldu raunsæi, hyggja að öllum þáttum þessa umfangsmikla máls og láta það eitt ráða gjörð- um og afstöðu, sem þjónar hagsmunum og framtíðar heill þjóðarinnar. Tollmúrar EBE-landanna Jón Kristvin Margeirsson: Einokunargróði á 18. öld t Þjóðviljanum, sunnudag. 10. ág s.l., birtist viðtal víð Gísla Gunnarsson sagnfræðing, og er hér m.a. komið inn á afkomu tslandsverzlunarinnar á dögum Hörmangarafélagsins. Hér seg- ir in.a.:...en næstu tuttugu og fimm árin á undan, 1735— 1760, hljóta yfirleitt að hafa skilað gróða. En þetta er allt saman sagt með fyrirvara." Nú er Gísla sjálfsagt kunnugt um það, hvað Hörmangarafélagið (1743—1758) borgaði hluthöf- um sinum í arð, því að um þetta hefur birzt grein í Skírni (1969) eftir undirritaðan og hér eru taldar þær upphæðir, sem félagið greiddi í arð á tíma- bilinu 1744—58. En þar sem ég hef nú þegar lokið þeim kafla í væntanlegri bók minni, „Deilur Hörmangarafélagsins og Is- Icndinga 1752—57“, sem fjallar um hag Hörmangarafélagsins, og þar sem Gísli hefur nú vakið áhuga íslenzkra blaðalesenda á þessu atriði, þykir mér rétt að birta þrjár blaðsíður úr þessum kafla þann hluta sem geymir tölurnar um tap og gróða. (Þessi kafli verður nr. 14 í bók- inni. Heimildatilvitnunum er hér sleppt af hagkvæmnis- ástæðum, en þær verða að sjálf- sögðu með í bókinni.) „Yfirlit yfir fjárhagsafkomu félagsins frá því, er það tók við Islandsve'rzluninni og út árið 1758 er sem hér segir: Þegar meta skal þessar tölur, er nauðsynlegt að hafa í huga, að Finnmerkurverzlunin var leigulaus, en Hörmangarafélag- ið þurfti hins vegar að greiða 17106 ríkisdali í kúrantreikn- ingi í leigu árlega af tslands- verzluninni. Ríkið hirti þannig verulegan hluta af ágóðanum af tslandsverzluninn, en ágóð- inn af Finnmerkurverzluninni lenti óskertur í vasa félagsins. Hinn raunverulegi arður af Is- landsverzluninni er þess vegna miklu meiri en ofangreindar tölur sýna.“ Blaðalesendum til skilnings- auka á þessum tölum má nefna, að hlutafél Hörmangarafélags- ins var upprunalega sextíu þús- Þessar tölur sýna afkomu fé- lagsins f heild. Þess vegna eru þ;:ð ek.ki nema tölur fjögurra fyrstu áranna, 1744—47, sem sýna hina raunverulegu af- komu Islandsverzlunar félags- ins. I árslok 1745 var félaginu veittur einkaréttur á Finn- merkurverzluninni og frá og með árinu (fjárhagsárinu) 1748 sýna tölurnar heildaraf- komu Islandsverzlunarinnar og Finnmerkurverzlunarinnar samanlagt. Sé afkoman sundur- Iiðuð og Islandsverzlunin tekin fyrir sig og Finnmerkurverzl- unin fyrir sig, verður niðurstað- an sem hér segir 1748—58: ár íslandsverzlunin Finnmerkurverzlunin Gróði lap gróði 1748 5446 rd 83 sk 5058 rd 0 sk 1749 229 rd 65 sk 7065 rd 59 sk 1750 1886 rd 13 sk 3548 rd 75 sk 1751 11132 rd 82 sk 3270 rd 24 sk 1752 18941 rd 23.sk 10387 rd 41 sk 1753 10350 rd 40 sk 5472 rd 65 sk 1754 2651rd 32 sk 4330 rd 42 sk 1755 9055 rd 71 sk 9910 rd 30 sk 1756 14695 rd 1 sk 15462 rd 83 sk 1757 13446 rd 27 sk 20750 rd 17sk 1758 32545 rd 56 sk 12430 rd 80 sk ár Gróði tap 1744 (1) 14388rd. 86sk. 1745 27748 rd. 38 sk. 1746 28429 rd. 27 sk. 1747 11100 rd 70 sk. 1748 388 rd 83 sk. 1749 7295 rd 28sk 1750 5434 rd S8 sk 1751 14403 rd 10 sk 1752 2932ft‘rd 64 sk 1753 15823 rd 9 sk. 1754 16'79rd 10 sk 1755 854 rd 55 sk 1756 767 rd 82 sk 1757 7303 rd 86 sk 1758 20114 rd 72 sk. und ríkisdalir, en var aukið, fyrst upp f 72000 ríkisdali og síðan meira, unz það náði tvö hundruð þúsund ríkisdölum. Verðgildi ríkisdalsins má marka nokkuð af því, að kýrin er talin jafngilda 4—5 ríkisdöl- um. Akureyrarkaupmaður læt- ur þess getið i bréfi árið 1745, að ýmsir, sem áður hafi ekki tekið út vörur fyrir meira en 4—5 ríkisdali, taki nú út fyrir 10—12 ríkisdali. Svo er að sjá, að hann hafi hér í huga meðal- bónda, og er hér um að ræða þá upphæð, sem bóndinn hefur til umráða til vörukaupa f verzlun- inni á hverju ári, eins konar árskaupgeta. Blaðamaðurinn spyr Gísla um það i nefndu viðtali, hvort hann hafi komizt að einhverju áður ókunnu varðandi einokunar- verzlunina, og Gisli svarar því, að það hljóti að hafa verið geysilegar sveiflur í þessari verzlun. Sum árin hafi tap ver- ið óhjákvæmilegt, en önnur ár hafi geysilegur gróði verið óhjákvæmilegur. T.d. megi nefna, að tímabilið 1760—1775 hafi varla getað verið annað en taptímabil, en næstu tuttugu og fimm árin á undan hljóti að hafa verið gróðatfmabil (sbr. tilvitnun í upphafi þessarar greinar). Ef bók Jóns Aðils um einokunarverzlunina (Einok- unarverzlun Dana á Islandi 1602—1787) er lesin með at- hygli, sést þó að hér er ekki um nýjar skoðanir að ræða hjá Gísla, því að honum ber saman við Jón Aðils. Kaupmannahöfn 3. sept 1975. Jón Kristvin Margeirsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.