Morgunblaðið - 18.09.1975, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.09.1975, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1975 Aleinir heima metra?“ spurði Óli. „Þú hefur auðvitað gleymt að mæla.“ Já, Henry hafði gleymt að mæla. Hann var líka. sammála Óla í því að Miraklet hafði fengið nóg ferskt loft í dag, og það var þeim mikill léttir er þeir höfðu lokað kálfinn inni i fjósinu aftur, jafnfjörugan og þegar honum var hleypt út. Þeir voru svo innilega glaðir og þakk- látir, þeir vissu kannski ekki alveg hverj- um — einna helzt Guði og englunum sem höfðu haldið verndarhendi yfir þeim og kálfinum. Þeir voru sammála um að vera reglulega góðir í þakkarskyni, fá sér haka og skóflu og jafna vonda stökkpall- inn við jörðu. Það var hættulegt að stökkva í þessari færð. Þeir gátu búið til öruggari pall næst þegar snjóaði. Og eftir þessa fórn ætluðu þeir bara að renna sér á sleða í brekkunni sem eftir var dagsins. En hvað er annars’gaman að renna sér á sleða til lengdar? Það er enginn vandi að sitja á sleða og renna sér niður ósköp venjulega brekku, engin spenna, ekkert! Þeir áttu reyndar tvo sleða, en það bætti ekkert úr. Það byrjaði líka smám saman að rökkva, og þeir fundu það á sér að bráðlega væri matartími, og Óli bauðst til /-"COSPER-------------------\ V -/ að fara inn og búa til mat, síðan mundi hann kalla á þá þegar maturinn væri tilbúinn. „Hvers konar mat?“ spurði frændinn athugasamur, hann vildi tryggja sér að það væri alla vega ekki grautur. „Hvað langar þig í?“ spurði Óli gestris- inn. „Steikt svínakjöt og brúnaðar kartöfl- ur, en það getur þú varla búið til?“ Óli svaraði: „Þú getur fengið soðið svínakjöt og kartöflustöppu og svo kaffi.“ „Já — já,“ sagði Henry eftirlátur. Nú þurfti bara að láta tímann líða þar til Óli kallaði. Þeir litu ráðvilltir hver á annan því enginn þorði að koma með tillögu eins og á stóð. „Það er tóm tunna í útihúsinu,“ sagði frændinn loks og horfði vandræðalega á hina tvo. „Og hvað með hana?“ spurðu Einar og Jakob og það lifanaði yfir þeim á auga- bragði. „Mér datt bara í hug að við gætum tekið hana hingað út og athugað hvort hún gæti ekki rúllað niður brekkuna," svaraði frændinn. Einar hoppaði af ákafa. „Svona gætum við þrír kannski verið inni í tunnunni!“ hrópaði hann. Gleymdur var allur góður ásetningur, almættið, englarnir og kálfurinn. Tunnan var sótt og þeir stóðu í úti- húsinu og rökræddu. „En það er bara að ef tunnan er opin í annan endan þá getum við runnið út úr henni,“ sagði Einar hugsandi. Jakob leit niður. „Barna að ég gæti fengið pláss fyrir fæturna," sagði hann. „Þú getur nú látið fara lítið fyrir þér,“ ; sagði Einar og datt allt í einu í hug tappatogarinn góði, sem hann fékk í af- mælisgjöf frá Jakobi. „Það er nóg pláss fyrir þig Jakob,“ sagði hann hlýlega, „þó svo að ég verði að bíða.“ Þeir komu sér saman um að fá sér tvær fjalir, sem þeir gætu sett í kross fyrir opið á tunnunni að innanverðu. Þeir urðu að nota hamar til að lemja fjalirnar svo þær væru örugglega fastar. Nú veltu þeir tunnunni upp alla brekkuna. Það kom í ljós að tunnan rúmaði ekki fleiri en tvo, þrátt fyrir að þeir hnipruðu sig vel saman. Frændinn benti á að hann væri gest- komandi hérna. svo hann mundi víkja r--------------------------\ Nei, varðstjóri, það var ekki venjulegt bankarán. Nei, maðurinn minn er ekki *♦«- »->»' V______________________________^ Kvikmyndahandrif aö moröi Eftir Lillian ODonnell Þýðandi Jóhanna Kristjónsdóttir. 49 Ef þér hefðuð sveigt yðar bfl burt frá hennar hefðuð þér farið út f hyldýpið fyrir neðan. I stað þess stiguð þér á hemlana, enda þótt þér hafið sjálfsagt gert yður grein fyrir þvf að árekstur var óumflýjanlegur. Þegar allt var um garð gengið og þér heyrðuð ekkert hljóð annað en rigninguna úti reynduð þér að gera yður grein fyrfr hvernig ástandið var. Þér höfðuð sloppið ómeiddur og þar sem hinn bfllínn hafði ekki kastazt út af veginum heldur, bjugguzt þér við að hafa sioppið. Það var ekki fyrr en yður varð litið á systur yðar, sem lá fram á mælaborðið og reynduð að tala við hana og ýta við henni að yðar varð loksins Ijóst að voðalegur atburður hafði gerzt. AÐ HÚN VAR DÁIN... og það var YÐAR sök! Þessi setning hefur hljómað eins og drunur í eyrum yðar, var það ekki? Þér hafið með erfiðismunum hrist af yður taugaáfallið og þér hafið sjálfsagt tekið púlsinn, hlustað hjartað og meira að segja hafið þér kannski borið spegil upp að vitum hennar til að aðgæta hvort hún drægiandann. Timmy beygði höfuðið f angist. — Þér hljótið þá að skilja að ég er tilneyddur að taka yður höndum, sagði David alvarlegur f hraeði. — Nei! æpti hann tryllingslega — Þér Iofuðuð! Þér lofuðuð — ef ég segði allt af létta. — Eg sagðist ekki geta gefið nein loforð, leiðrétti David hann. — Ef ég iendí f fangelsi verður ekki hjá þvf komizt að foreldrar mfnir fái að vita hvers vegna? Hvers vegna ætti að baka þeim þá sorg? Þau hafa ekki gert neitt af sér. Það eina sem ég bið um er.... — Haldið þér ekki að það sé betra að þau fái að vita þetta f stáð þess að ala með sér óljósar grunsemdir, Timmy? — Nei, Nei! Og David var ekki betur á verði fyrir piitinum en svo að hann stóð varnarlaus og átti sér einskis iils von þegar bylmingshögg var rek- ið f kjáika hans og hann fann myrkrið umlykja sig á nýjan leik. Hann hafði blóðbragð f munn- inum þegar hann rankaði við sér. Hann hafði dynjandi höfuðverk og það var hula fyrir öðru auganu svo að hann sá ógjöria. Ljúfur ilmur leitaði upp f nasir hans ... ilmvatnslykt. Hann rétti höndina fram og kom við eitthvað undurmjúkt .. . andlit með lokk- um við eyrun og strfðnisglampa í augum. Svo var hinu augnlokinu hans lyft blfðiega en ákveðið og mjó Ijóskeila lenti á auganu. — Hættið þessu, mótmælti hann og reyndi að rffa sig lausan. — Hvað eruð þér að gera hér? Diane Quain hélt athugun sinni áfram eins og ekkert væri. — Hann er að sprikia eitthvað, svo að það er eitthvert Iff eftir f honum, sagði hún við einhvern sem stóð fjarri. Nokkru sfðar greindi David að þar var kominn Capretto yfirlögregluþjónn. — Hvers vegna eruð þið hér? Hann reyndi að setjast upp en sársaukinn f höfðinu var svo nfst- andi að hann iét fallast út af aftur. — Andskotinn hirði þennan strák! Flýtið ykkur! Þið verðið að iáta iýsa eftir honum eins og skot, anriars.... Þau hjálpuðu honum f samein- ingu að rfsa á fætur og hann neig niður f hægindastól. — Taktu þvf rólega, svaraði Capretto — við erum búnir að ná honum! Hann kom þjótandi út f sömu andrá og við dr. Quain' renndum upp að húsinu og ég greip hann svona til vonar og vara. Og þegar við fundum þig svona útleikinn var ég ekki lengi að smeila handjárnunum á hann og nú situr hann f bflnum hérna fyrir utan. — Ljómandi gott! En hvernig stendur á þvf að þið eruð hingað komin? Þau litu sem snöggvast hvort á annað. — Það var dr. Quain sem hafði samband við mig, skilurðu, sagði Capretto. — Já, þvf að ég vil ekki láta gleyma þvf ef mér er boðið út að borða, sagði hún. — Þér verðið að afsaka, það var alls ekki meiningin ... ég gerði það sem sagt ekki vilj- andi... stamaði David. — Ég gerði mér nú satt að segja fljótiega grein fyrir þvf, sagði hún blfðlega og tók að vefja sárabindi um höfuð hans. — Og þar af leiðandi áiyktaði ég sem svo að eitthvað hefði komið upp á. Ég hringdí til stöðvarinnar og fékk samband við yfirlögregluþjóninn. Hann sagði mér að þér hefðuð ætlað að fara á tvo staði til að yfirheyra fóik f dag og eftir að hafa haft samhand við Pick þóttumst við vita að þér hefðuð farið hingað. Við flýttum okkur eins og við gátum. — Er það hann sem er

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.