Morgunblaðið - 18.09.1975, Síða 12

Morgunblaðið - 18.09.1975, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1975 „Við höfum gott hráefni og gott fólk” Heimsókn í hraófrystihús Kaldbaks hf. á Crenivík Grenivík við austanverðan Eyjafjörð veit við Hrisey og Ólafsfjarðarmúla, þar sem hún opnast móti norðri á mörkum Látrastrandar og Höfðahverfis. Þar hefir útgerð og sjósókn verið stunduð lengi við erfiðar aðstæður, og sjómennska og fiskvinnsla er fólkinu I blóð borin. En fyrir tæpum áratug var lokið við gerð hafnargarðs, sem hefir gerbreytt allri aðstöðu til sjósóknar á Grenivik til hins betra. Skömmu siðar var komið á fót fiskvinnslustöð og hraðfrystihúsi i eigu hlugafélagsins Kald- baks. Þar er Knútur Karlsson forstjóri og Krsitleifur Meldal verkstjóri, og þangað erunri við nú komin F heimsókn til að kynnast, starfseminni litillega. Mikið orð hefir farið af góðum rekstri og góðri afkomu þessa fyrir- tækis, og við spyrjum þvi Knút, hverjar hann telji helztu ástæðurnar til hins hagfellda rekstrar. — Ekki veit ég nú, hvort þessi dómur á við nokkur rök að styðjast eða hvort starfsemin gengur nokkru betur hjá okkur en viða annars staðar við svipaðar aðstæður. Að minnsta kosti kunnum við engin töfrabrögð eða galdraaðferðir hér. Hitt er rétt, að fjárhagsleg afkoma hefir alltaf verið góð nema I fyrra, þegar við urðum að stöðva vinnsluna i tvo mánuði vegna mikilla endurbóta á húsum og tækjum. Nú erum við aftur að rétta úr þeim kút og komast yfir erfiðleikana. — I Kaldbak h/f eru tæplega 90 hluthafar, svo til eingöngu fólk hér úr nágrenninu. sem batzt samtökum um að koma upp góðu at- vinnufyrirtæki i þorpinu fremur en að hagnast á þvi beinlinis presónulega. Vinnsla hófst hér á janúarmánuði árið 1968. Við Kristleifur Meldal höfum unnið hér saman frá upphafi, og þar áður við litið fiskverkunarhús, sem ég rak á Akureyri. Þar lærðum við mikið á ýmsum mistökum, og ég hefði ekki viljað byrja að reka þetta hús hér nema eftir að hafa fengið þá reynslu. — Hér starfa á sumrin kringum 50 manns, en ekki nema 25 — 30 að vetrinum. Fram- leiðslan hefir verið þetta kringum 20 þús. kassar af freðfiski á ári nema í fyrra, þá fóru héðanl 5.500 kassar af freðfiski og 363 lestir af saltfiski. — Við höfum að mestu leyti fengið til vinnslu góðan bátafisk, aðallega þorsk, sem er góður til vinnslu. Hann hefir mest aflazt á þrjá heimabáta, Sævar, Frosta og Sjöfn, um 20 — 30 lestir að stærð, og svo á minni báta. Heimabátarnir hafa aflað mest á vorin og haustin, en annars hefir úthaldið verið nokk- uð samfellt hjá þeim, þó að slæm tið að vetrinum geti valdið nokkrum frátöfum. Til uppfyllingar höfum við svo haft togarafisk og fisk af togbátum yfir sumarið, t.a.m. hefir Hákon ÞH 250 tryggt það, að nóg hefir verið að gera hér i sumar. — Við höfum alitaf reynt að fá sem bezta nýtingu hráefnisins og sem verðmætasta framleiðslu i pakkningar, sem eru i háu verði. svo sem neytendapakkningar. Þær gefa meira en t.d. blokk. sem er i rauninni aðeins hráefni i aðra vöru. Ég tel, að okkur hafi tekizt að ná nokkuð háu meðal-afurðaverði. Hér hefir ver- ið tiltölulega minni næturvinna en viða ann- ars staðar, hér eru engar aflahrotur eða ver- tiðarhrotur, heldur nokkuð jöfn vinna og jöfn framleiðsla allt árið. Hagræðingin er liklega býsna góð, og tæknimenn Söluitiiðstöðvar- innar hafa veitt okkur góðan stuðning. Ann- ars byggist reksturinn og afkoman hér eink- öm og aðallega á góðu hráefni og góðu starfsfólki, sem margt er búið að vinna hér hjá okkur frá upphafi. — Hafnargarðurinn er alger forsenda þess- arar starfsemi. Hann hefir reynzt vel fyrir núverandi bátaflota, en öll afskipun afurða hefir orðið að fara fram á Akureyri. Sá kostn- aðarliður hefir orðið mjög hár, já alltof hár, verður líklega ekki undir 1 milljón króna á þessu ári. Þar við bætist óvissan og öryggis- leysið I snjóþyngslum á veturna og aurbleyt- um á vorin, sem gera alla landflutninga ótrygga. Oft er mikil spurning, hvort okkur tekst að koma fiskinum frá okkur, þegar þess þarf, ef færðin er erfið eða vafasöm. — Það verður þvi að teljast til gleðilegra tiðinda, að Ljósafoss lagðist hér að bryggju um daginn og lestaði freðfisk. Það gekk ágætlega, og sparnaðurinn við þessa einu útskipun reyndist vera rúmlega 100 þús. krónur fyrir utan öryggið, sem er að þessu. Nú er von til, að Eimskip haldi áfram að senda hingað litil frystiskip. sem geta lagzt hér að bryggju og tekið afurðir okkar. — Eins og ég nefndi áðan, lögðum við i mikinn kostnað I fyrra við viðhald og endur- byggingu, enda höfum við nú að kalla nýtt og gott hús og vel búið. En vaxtakostnaður er mikill og hefir verið þungur fjárhagslegur baggi. Fiskmatið hefir gert ýmsar kröfur um endurbætur i frystihúsum, eins og eðlilegt er, en gallinn er sá, að erfitt hefir reynzt og verið beinlinis undir högg að sækja að fá lán úr Fiskveiðasjóði vegna þessara sömu fram- kvæmda, af þv^að hann er sýnilega ekki fær um að veita þau lán, sem við þykjumst eiga rétt á. — Nú i þessari viku erum við að byrja á nýrri vinnslugrein hér, rækjuvinnslu, og nýr bátur héðan frá Grenivik, Ægir Jóhannsson. um 30 lestir, ætlar að veiða rækjuna norður við Grímsey Við bindum góðar vonir við þennan nýja þátt framleiðslunnar. — Við gerum miklar umgengnis- og hrein- lætiskröfur til starfsfólksins, eins og skylt er, og reynum á allan hátt að tryggja gæði fisksins, sem hingað kemur og héðan fer. Allt starfsfólkið verður alltaf að hafa i huga, að það er ekki að meðhöndla venjulega iðnaðar- vöru, heldur viðkvæm matvæli, sem eiga að verða holl og heilnæm fæða. Sv.P. Jón Guðlaugsson frá Þönglabakka hefir unnið við frystihúsið frá upphafi. spjalla við Knútur Karlsson forstjóri (t.v.) og Kristleifur Meldal verkstjóri (t.h.) Guðmund Ásmundsson eftirlitsmann frá S.H. Vinnugleði. Hraðfrystihús Kaldbaks h/f. Tveir bátanna, sem afla hráefnis, Sævar og Frosti, við Bjarni Gunnarsson, 13 ára, hamast við bakkaþvottinn. bryggju.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.