Morgunblaðið - 18.09.1975, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1975
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
húsnæöi
Lítið iðnaðar- eða skrif-
stofuhúsnæði óskast
Óskum eftir að taka á leigu 30—60 fm iðnaðar- eða skrif-
stofuhúsnæði við Suðurlandsbraut eða í Múlahverfi.
Upplýsingar í sima 1 7244.
Húseign til sölu
Þingholtsstræti 6.
Kauptilboð óskast í húseign prentsmiðj-
unnar Gutenberg, ásamt tilheyrandi
eignalóð.
Húsið verður til sýnis þeim, er þess óska,
fimmtudaginn 18. september og föstu-
daginn 19. september kl. 2—4 e.h. og
verða tilboðseyðublöð afhent á staðnum.
Kauptilboð þurfa að berast skrifstofu vorri
fyrir kl. 1 1:00 f.h., föstudaginn 26. sept-
ember n.k.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
O
BORGAf'.IUNI 7 SíMI Í.Ó844
tilkynningar
Prestkosning
fer fram n.k. sunnudag 21. sept. I Mela-
skóla fyrir kjósendur í Nessókn og í
Mýrarhúsaskóla fyrir kjósendur i
Seltjarnarnessókn.
Kjörinn verður prestur til Nesprestakalls.
Kjörfundir hefjast kl. 10 árdegis og
standa til kl. 22 síðdegis á báðum
stöðum.
Umsækjendur um prestakallið eru:
séra Guðmundur Óskar Ólafsson og séra
Örn Friðriksson.
16. september 1975,
sóknarnefndirnar.
Styrkir til náms í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóða fram nokkra
styrki handa erlendum námsmönnum til
að stunda nám í Svíþjóð námsárið
1976 — 77. Styrkir þessir eru boðnir
fram í mörgum löndum og eru einkum
ætlaðir námsmönnum sem ekki eiga kost
á fjárhagsaðstoð frá heimalandi sínu og
ekki hyggjast setjast að í Svíþjóð að námi
loknu. Styrkfjárhæðin er 1.400 sænskar
krónur á mánuði námsárið, þ.e. 9
mánuði. Til greina kemur að styrkur verði
veittur í allt að þrjú ár.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar til
Svenska Institutet, P.O. Box 7072, S-
103 82 Stockholm 7, fyrir 1. desember
n.k. og lætur sú stofnun í té tilskilin
umsóknareyðublöð.
Menntamá/aráðuneytið,
10. september 1975.
Styrkur til
háskólanáms í Japan
Japönsk stjórnvöld bjóða fram handa íslehdingi til háskóla-
náms í Japan námsárið 1976 — 77 en til greina kemur að
styrktímabil verði framlengt til mars 1978. Ætlast er til að
styrkþegi hafi lokið háskólaprófi eða sé kominn nokkuð áleiðis
í háskólanámi. Þar sem kennsla við japanska háskóla fer fram
á japönsku er til þess ætlast að styrkþegi leggi stund á
japanska tungu um a.m.k. sex mánaða skeið. Umsækjendur
skulu ekki vera eldri en 35 ára. styrkfjárhæðin er 1 1 1.000.—
yen á mánuði og styrkþegi er undanþeginn skólagjöldum. Auk
þess fær styrkþegi 25.000.— yen við upphaf styrktimabilsins
og allt að 44.000.— yen til kaupa á námsgögnum. Þá er og
veittur ferðastyrkur.
Umsóknir um styrk þennan, ásamt
staðfestum afritum prófskírteina,
meðmælum og heilbrigðisvottorði, skulu
sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, Reykjavík, fyrir 1 1. október n.k.
— Sérstök umsóknareyðublöð fást í
ráðuneytinu.
Menntamá/aráðuneytið
10. september 1975.
fundir — mannfagnaöir
Club Mallorca
Spönsk grísaveizla
verður haldin að Hótel Sögu föstudaginn 19.
sept. og hefst með borðhaldi, kl. 19.30.
Meðal annars verður bingó.
Vinningar verða 2 utanlandsferðir.
Kvikmyndasýning um Mallorca með islenzku tali.
Meðal gestanna er varaborgarstjóri Palma á Mallorca og frú,
hann er jafnframt forseti Landsambands hóteleigenda og
forseti Ferðamálaráðs.
Hinn gesturinn er forstjóri Hótel Oasis, hann er jafnframt
aðalritari Ferðamálaráðsins og frú.
Skemmtikraftar kvöldsins
Ingveldur Hjaltesteð og Sæmi og Didda.
Borðpantanir í síma 20221 eftir kl. 15 þriðju-
dag 16. september.
Borðum haldið til kl. 19.30.
Verð á mat kr. 1200 pr. mann.
Hluthafafundur
í hlutafélaginu
Skallagrímur,
haldinn 29. desember 1973, ákvað að
hækka hlutafé félagsins um kr.
30.000.000.00 — þrjátíu milljónir —
króna.
Hlutabréfin eru að miklu leyti seld, en
stjórn félagsins vill gefa almenningi kost á
að vera með í að leggja sinn skerf að
mörkum til að byggja upp samgöngur
með hinu nýja og glæsilega skipi
félagsins AKRABORG milli Akraness og
Reykjavíkur.
Bréfin eru að nafnverði kr. 10.000.00 og
kr. 50.000.00 og eru til sölu hjá Lands-
banka íslands, Akranesi, svo og stjórnar-
formanni félagsins hr. Birni H. Björns-
syni, Stekkjarholti 3, Akraríesi.
H.F. SKALLAGRÍMUR
Geir Þorsteinsson kjörinn
form. Bílgreinasambandsins
Límmiðum dreift með áletruninni „BíU er nauðsyn”
Fráfarandi formaður Bflgreinasambandsins afhendir fyrstu heiðurs-
félögum sambandsins heiðursskjöl, þeim Óla Isakssyni (f miðjunni)
og Kristni Guðnasyni (t.h.).
AÐALFUNDUR Bflgreina-
sambandsins 1975 var haldinn að
Hótel Loftleiðum, laugardaginn
13. september sl. Þátttakendur
voru um 120.
Aðalfundurinn hófst ki. 15.00,
en kl. 9 um morguninn voru
haldnir sérgreinafundir, annars
vegar fundir bílinnflytjenda og
varahlutasala og hins vegar
fundur verkstæðiseigenda. Á
fundi verkstæðiseigenda var
einkum rætt um verðlagsmál
verkstæða og ástandið í síma-
málum landsmanna. Bíla- og vara-
hlutasalar ræddu um möguleika á
að halda bílasýningu vorið 1976,
og einnig var rætt um horfurnar í
bílainnflutningi. Erindi voru
flutt.
A fundinum voru kynntir lím-
miðar, sem Bílgreinasambandið
hefur látið gera með áletruninni
„Bfll er nauðsyn“, og er ætlun
Bílgreinasambandsins að bíla-
verkstæði og bílainnflytjendur
dreifi þessum miðum til bifreiða-
eigenda á næstu tveimur vikum.
Kl. 15 hófst aðalfundurinn,
Fundarstjóri var kjörinn Þórir
Jónsson og fundarritari Júlfus S.
ólafsson. Formaður sambandsins,
Gunnar Ásgeirsson, flutti ítarlega
skýrslu um starfsemina á sl.
starfsári, pinnig rakti hann í höf-
uðdráttum starfsemi samtakanna
undanfarin 5 ár, en Bílgreinasam-
bandið verður 5 ára á þessu ári.
Fram kom í ræðu hans, að hann
mundi ekki gefa kost á sér til
endurkjörs sem formaður Bíl-
greinasambandsins. Júlíus S.
Ólafsson framkvæmdastjóri flutti
yfirlit um framtíðarverkefni sam-
bandsins og einnig lagði hann
fram reikninga þess og fjárhags-
áætlun fyrir næsta starfsár.
Á fundinum voru Gunnari Ás-
geirssyni færðar þakkir fyrir
framúrskarandi störf hans sem
formanns undanfarin 5 ár. Á
fundinum, var tilkynnt kjör
tveggja fyrstu heiðursfélaga Bíl-
greinasambandsins, þeirra Óla
ísakssonar og Kristins Guðna-
sonar.
Þá fór fram stjórnarkjör og var
kjörinn formaður Geir Þorsteins-
sonj aðrir f stjórn; Ingimundur
Sigfússon, Þórir Jónsson,
Matthías Guðmundsson, Ketill
Jónasson, Sigurður Jóhannesson,
Birgir Guðnason og til vara
Guðmundur Gíslason og Gísli Sig-
urjónsson.
Fundurinn samþykkti ályktanir
um stöðu bifreiðaeignar á Islandi,
um símamál og um verðlagsmál.
Merkjasdla
Menningar-
og minningar-
sjóðs kvenna
MERKJASÖLUDAGUR Kven-
réttindafélagsins til ágóða fyrir
Menningar- og minningarsjóð
kvenna verður á laugardaginn, en
það hefur verið venja frá upphafi
sjóðsins að afla honum tekna með
merkjasölu þriðja laugardag í
september ár hvert. Verða
merkin nú afhent f flestum
barnaskólum borgarinnar og á
Hallveigarstöðum eftir kl. 10 á
laugardagsmorgun og eru börn
beðin um að bregðast vel við og
selja merki.
Menningar- og minningar-
sjóður kvenna veitir konum
styrki til framhaldsnáms f
háskóla, listaskólum og ýmsum
fræðum og var fyrsti styrkurinn
velttur 1946.
— Bókanaleikur
Framhald af bls. 5
stjórnar frá 1972, ekki síð.ur en
aðrir borgarfulltrúar. Frestun á
afgreiðslu tillögu Sigurjóns
Péturssonar á síðasta borgarráðs-
fundi var eingöngu til að rifja
upp staðreyndir í málinu milli
funda, og verður að teljast eðlileg
og ábyrg málsmeðferð.
Kristján Benediktsson óskaði
bókað:
Mér finnst framangreindur
bókanaleikur borgarráðsmann-
anna Sigurjóns Péturssonar og
Alberts Guðmundssonar ekki
samboðin virðulegri stofnun eins
og borgarráði ber að vera.
— Heitavatns-
verð
Framhald af bls. 5
alls, Garðahrepps og Hafnar-
fjarðar verður árlegur sparnað-
ur, miðað við óbreytt verð, 4000
m.kr. Þessi sameiginlegi sparn-
aður yrði eftir sem áður ekki
undir 3.500 m.kr. á ári, þó að
orðið yrði við umbeðinni gjald-
skrárhækkun. Avinningur íbú-
anna og gjaldeyrissparnaður
þjóðarbúsins vegna Hitaveitu
Reykjavfkur er því verulegur.
Hinsvegar þjónar það vafasöm-
um tilgangi að halda heita-
vatnsverði langtímum það lágu,
að stofnunin geti ekki mætt
rekstrarkostnaði með eðlileg-
um hætti eða þörfum viðskipta-
vina sinna, sagði hitaveitu-
stjóri að lokum.
.Verjum
RggróðurJ
verndum
land