Morgunblaðið - 23.09.1975, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 23.09.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975 3 Tekinn með 900 grömm af hassi TOLLGÆZLAN á Keflavíkurflug- velli fann á sunnudaginn tæp 900 grömm af hassi f fórum Iiðlega tvftugs pilts, sem var að koma með flugvél frá útlöndum. Fíkniefnadómstóllinn hefur rannsókn þessa smyglmáls með höndum, og fékk Mbl, þær upp- lýsingar hjá starfsmönnum hans í gær, að rannsóknin væri rétt að hefjast, og því væri ekki hægt að skýra nánar frá málinu á þessu stigi. Pilturinn, sem tekinn var með hassið, hefur verið úrskurð- aður í gæzluvarðhald. Söluverð- mæti þessa magns sem um ræðir er eitthvað á aðra milljón króna. Það sem af er árinu hefur Fíkniefnadómstóllinn skráð smygl á um 6,7 kg af fikniefnum og er um að ræða umtalsverða aukningu frá þvi í fyrra. BIFREIÐ — Þannig leit bifreiðin út eftir slysið. Greinilega sjást för eftir rafmagnsstaurana á vélarloki og toppi. Bifreiðin er af gerðinni Volvo P 544, árgerð 1964. Hún var skrásett i Keflavik. Góð aðsókn SAMKVÆMT upplýsingum Alfreðs Guðmundssonar forstöðu- manns Kjarvalsstaða sáu 3000 manns málverkasýningu Péturs Friðriks um helgina, en Pétur Friðrik opnaði sýninguna á laugardag. Umferðarslysið í Grímsnesi: 2 piltar létust og 2 slösuðust lífshættulega LtÐAN piltanna tveggja, sem nú liggja á gjörgæzludeild Borgar- sjúkrahússins eftir umferðarslys- ið f Grfmsnesi, var óbreytt, þegar Morgunblaðið hafði sfðast fregnir f gærkvöldi. Annar piltanna, 21 árs gamall frá Laugarvatni var með meðvitund en hinn, sem er 20 ára og frá Keflavfk, og öku- maður bifreiðarinnar var meðvit- undarlaus. Báðir eru piltarnir mikið slasaðir og sá sfðarnefndi talinn f lffshættu. Tveir félagar þeirra biðu bana f þessu hörmu- lega slysi, Eirfkur Ásgrfmsson frá Rein, Laugarvatni, fæddur 3. maf 1952 og þvf 23 ára gamall og Sveinn Sigurður Gunnarsson, Brekkubraut 5, Keflavfk, fæddur 17. ágúst 1955 og því 20 ára gamall. Slysið varð skömmu fyrir miðnætti sl. laugardagskvöld. Piltarnir voru fjórir saman á Volvobíl á leið frá Laugarvatni til Selfoss. Skammt sunnan við bæinn Svinavatn er aflíðandi vinstri beygja og hægra megin við veginn standa tveir rafmagns- staurar hlið við hlið, 3—4 metra frá veginum. Þar sem lögreglan hefur ekki getað rætt ennþá við piltinn, sem kominn er til meðvit- undar eftir slysið, og engir sjónar- vottar voru að því, liggur ekki ljóst fyrir hvað gerzt hefur, en svo virðist sem sá piltanna, sem ók, hafi einhverra hluta vegna misst stjórn á bifreiðinni í beygjunni og hún hafi skollið með miklu afli á rafmagnstaurana, enda bendir flest til þess að bifreiðin hafi verið á mikilli ferð. Vélarlok bifreiðarinnar skall á öðrum staurnum og toppur hennar á hin- um staurnum þar sem hann er yfir aftursætinu en piltarnir tveir sem létust sátu einmitt í aftur- sætinu. Bifreið kom að slysstaðnum skömmu eftir að slysið gerðist og var boðum komið til lögreglunnar á Selfossi. Fór hún strax á staðinn með Iækni og aðstoðarmenn. Þegar þangað kom voru piltarnir Framhald á bls. 39 var seinn til í vor og taldi Sveinn ekki likur á að fallþungl dilka yrði eins góður á þessu hausti og I fyrra. Aðspurður um ásetning fjár I haust, sagði hann að hey- skapur hefði i sumar gengið mjög seint vegna óþurrka en I fjallvik- unni kom þurrkafli, sem bjargaði miklu. „Allt bendir til að ásetn- ingur ætti að geta orðið allt að því með sama móti og í fyrra,“ sagði Sveinn að lokum. Eiríkur Ásgrímsson. Sveinn Sigurður Gunnarsson. Sveinn Skúlason f Bræðratungu. Grindavík; Grýttu kött og brenndu til dauða Grindavík 22. sept. ALVARLEGT ódæðis- verk var framið á heimilisketti í Grindavík um helgina. S.l. laugar- dag var lögreglunni í Grindavík tilkynnt um fjóra drengi 13 ára gamla, sem höfðu tekið heimiliskött og farið með hann í skipsflak í Grinda- víkurfjöru þar sem þeir hengdu dýrið og börðu til dauðs með grjóti. Að lok- um kveiktu þeir í kettin- um. Þegar lögreglan kom á staðinn var búið að leysa köttinn niður og lá hann í skipsflakinu. Þarna voru einnig fuglar sem auðséð var að höfðu einnig verið hengdir og sviðnir. í Grindavík hafa að undanförnu nokkuð aukizt óknyttir barna og unglinga. Full ástæða er til að foreldrar fylgist vel með hegðun og atferli barna. Þessi atburður, sem hér er lýst, er svo miskunnarlaus að furðu gegnir og sýnir aó rík ástæða er til að brýna alvöru þessara mála fyrir börnum og unglingum, en þetta á sér stað daginn fyrir hinn sérstaka dag dýraverndunar. Þótt ótrúlegt megi virðast tók eigandi kattarins þátt i að kála kettinum á þennan hátt. — Guðfinnur. Var mjög ánægður með viðræðurnar OPINBERRI heimsókn Geirs Hallgrímssonar forsætisráðherra og konu hans frú Ernu Finnsdótt- ur til Noregs lauk síðdegis á laug- ardag. Þá héldu þau hjón til Kaupmannahafnar og munu dveljaytra nokkra daga. Fyrir brottförina kvaðst forsæt- isráðherra vera mjög hrifinn af heimsókninni og þeim hjartan- legu móttökum, sem þau hefðu fengið. Hann kvaðst sérstaklega ánægður með viðræðurnar við norska ráðamenn og hve áhuga- verð málefni hefðu verið þar á dagskrá. Lét forsætisráðherra I ljós sér- staka hrifningu yfir því, hvernig Norðmenn stæðu að oliuvinnslu sinni. „Þar eru þeir stórsnjallir." Ræða Geirs Hallgrímssonar í veizlu þeirri, sem norsku forsæt- isráðherrahjónin héldu þeim is- lenzku í Akershus s.l. fimmtudag, er birt á bls. 16 í blaðinu í dag. Fjölgar í Breið- holti meðan fækk- ar annars staðar IBÚAFJÖLDI við hinar ýmsu göt- ur Reykjavfkur er ákaflega misjafn. Hraunbær er mann- flesta gatan með 3.023 fbúa, næst kemur Kleppsvegur með 2.009 fbúa, Háaleitisbraut með 1.745 og þá Vesturberg með 1.465. En þessar tölur eru f nýútkominni Árbók Reykjavíkur. Það er þó athyglisvert að við 3 mannflestar göturnar er fbúum farið að fækka aftur, eins og jafnan er í eldri hverfum, við Kleppsveg um 50 manns frá þvi árið áður og i Ilraunbæ um 88, og Háaleitis- braut um 90 og hafði þá þegar fækkað árin á undan. En Vestur- berg f hinu nýja Breiðholti er að sækja sig og hefur þar f jölgað um 326 milli áranna 1973 og 74 og enn meira árin á undan. Ef litið er á ýmsar götur í gamla bænum, sést að þar fækkar stöðugt fólki, býr t.d. ekki nema einn við Skólabrú, 3 við Kirkju- torg og Thorvaldsensstræti, 8 við Austurstræti o.s.frv. í Vesturbæj- arhverfinu, norðan við Lækjar- götu og Hringbraut, er nú 6.221 íbúi, en voru 1960 9.107 og 1945 13.479. Og milli áranna 1973 og 1974 hafði fækkað þar um 224. En sé allur Vesturbærinn tekinn, vestan flugvallar og Lækjargötu, hefur fækkað um 415 frá 1973 til 1974 og alls staðar verið árleg fækkun sl. 15 ár. I Austurbænum gamla, milli Lækjargötu og Snorrabrautar, hefur fækkað um 1300 manns á þessu sama ári. I Holtahverfi og Múlahverfi hefur fækkað um 256 og eru þó mann- margar götur þar, eins og Álfta- mýri með 1124 ibúa og Háaleitis- brautin með 1.745 ibúa. I hverf- inu sunnan Miklubrautar, þ.e. Hlíðahverfi, Smáibúðahverfi og Fossvogi, hefur fækkað um 114, en þar skiptast hverfin þannig, að aðeins fjölgar í Fossvogshverfi og í Smáíbúðahverfinu fjölgar, en vinnur þó ekki upp á móti fáekkuninni á öllu svæðinu. Ef litið er á svokallað hverfi III norð- an Suðurlandsbrautar vinnur Laugarásinn upp fækkunina i hverfunum i kring, en þar fjölgar um 762 meðan fækkar um 693 í Túnunum, Sundunum, Vogunum og Heimunum, þar sem eru fjöl- mennar götur eins og Klepps- vegur, Álfheimar með 1080 manns og Langholtsvegur með 1.177 manns. Jafnvel i Árbæjar- hverfi er farið að fækka, en frá 1973 til 1974 hefur fækkað um 125 manns á svæðinu norðan og austan Elliðaánna, og raunar Framhald á bls. 39

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.