Morgunblaðið - 23.09.1975, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.09.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975 13 Frœðslu- og varnar- starf er það sem gildir OLOF Burman er sænskur bindindisfrömuður, sem dval- izt hefur hér á landi undan- farna daga. Hann flutti fræðslufyrirlestur á bindindis- námskeiði, sem haldið var hér I Reykjavík f síðustu viku. Þátt- takendur í námskeiðinu voru frá öllum Norðurlöndunum. Olof Burman hefur um langt skeið starfað að áfengisvarna- málum f heimalandi sfnu. Hann hefur verið formaður nefndar, sem sænska þingið skipaði fyrir nfu árum til að gera drög að nýrri áfengis- varnalöggjöf, en nefndin Iauk störfum fyrir stuttu. Mbl. hitti Olof Burman að máli og spurði hverjar tillögur nefndarinnar væru í aðalatrið- um: — Við leggjum m.a. til, að áfengisauglýsingar verði bann- aðar og áfengissala fari ekki fram á þeim stöðum, sem eink- um eru sóttir af ungu fólki. Þá leggjum við til, að fjárframlög rikisins vegna upplýsingastarf- semi verði sexfölduð frá þvi sem nú er. Þá er talað um að haga áfengissölu þannig að eftirleiðis verði erfiðara að ná í vínföng, en sala milliölsins svo- kallaða er að margra dómi ein aðalástæðan fyrir þvi hversu áfengisvandamálið í Svíþjóð er orðið erfitt viðureignar. í þessu sambandi má geta þess, að nú mun um hálf milljón manna í Sviþjóð vera illa farin af völd- um áfengisneyzlu. I nýlegri könnun kom fram, að í landinu eru um 300 þúsund fullorðnir karlar áfengissjúklingar, en eiturlyfjaneytendur eru alls um 15 þúsund. Misnotkunar áfengis verður sífellt meira vart hjá börnum og unglingum, og aldursflokk- arnir eru alltaf að verða yngri. Skýringin er vafalaust sú, að það er enginn vandi að ná i þetta. Ölið er til sölu i venju- legum matvöruverzlunum, og enda þótt heita eigi að bannað sé að selja það einstaklingum, sem hafa ekki náð 18 ára aldri, þá er útilokað að fylgjast með því eins og ráð er fyrir gert. Nú er svo komið, að það er ekki óalgengt að 9—10 ára gömul börn sjáist ölvuð á almanna- færi, en það var með öllu óþekkt fyrir fáum árum. Áður en farið var að selja milliölið í venjulegum verzlunum þá var selt sterkt öl í áfengiseinkasöl- unni, sem hefur yfir 300 útsölu- staði í landinu. Meðan dreifing- unni var haldið innan þeirra marka var allt annað við þetta að eiga. — Hvenær verða tillögur nefndarinnar afgreiddar í þing- inu? — Þær hafa nú þegar verið lagðar fyrir, en ég geri ekki ráð fyrir þvi að til afgreiðslu komi fyrr en á vori komanda. Það er út af fyrir sig mjög jákvætt, að bæði ríkisstjórnin og þingið gera sér grein fyrir þeim gífur- lega vanda, sem hér er við að etja, þannig að gera má ráð fyrir þvi, að tillögur nefnd- arinnar verði samþykktar, a.m.k. að verulegu leyti. Þótt Norðurlandaþjóðirnar hafi þungar áhyggjur af áfengisvandamálunum, þá er áreiðanlegt að þau hafa sloppið betur en ýmis önnur þróuð iðnaðarlönd. Til dæmis valda áfengissjúkdómar mun alvar- Iegra heilsutjóni í Frakklandi en krabbamein og hjartasjúk- dómar samanlagt. — Hvaða áhrif hefur aukin neyzla léttra vina haft í Sví- þjóð? — Þegar sýnt varð, að víninn- flutningur myndi aukast mjög vegna breyttra viðskiptahátta við vínframleiðslulöndin gerðu margir sér vonir um, að neyzla sterkra drykkja myndi minnka, en raunin varð allt önnur. Ef eitthvað er, þá hefur neyzla sterku drykkjanna aukizt. Önnur hlið málsins er svo slysa- tíðni. Þeim slysum sem hægt er að rekja til áfengisneyzlu fjölgar jafnt og þétt. Ég hef nú gtarfað að áfengis- varnamálum í þrjátíu ár, þar af lengi á hælum og sjúkrahúsum fyrir áfengissjúka. Reynsla mín er sú, að opinberu fé til þessara mála sé langtum betur varið til áfengisvarna og upplýsinga- starfs, heldur en til dæmis að- hlynningar þeirra sem þegar hafa orðið áfenginu að bráð. Vissulega er mjög mikilvægt að veita þeim nauðsynlega hjálp — t.d. með þvi að hafa áfengis- lausa staði og jafnvel svæði, því að áfengissjúklingar eiga sér ekki viðreisnar von nema slíkir staðir séu fyrir hendi, en fræðslu- og varnarstarf er það sem gildir, sagði Olof Burman að lokum. — segir Olof Burman um áfengismál Hafnarstræti 1 1. Símar: 20424 — 14120 Heima. 85798 — 30008 Til sölu við Sólheima Einstaklingsibúð í kjallara. Verð 3.2 millj. Útb. 2 millj. Við Víðimel Góð 2ja herb. kjallaraíbúð. Verð 4.2 millj. Útb. 2,8—3 millj. Við Hrísateig Góð 2ja herb. kjallaraíbúð. Verð 3,5 millj. Útb. 2,5 millj. Við Kópavogsbraut 3ja herb. 90 fm séribúð á 1. hæð. Viðbyggingar og bilskúrs- réttur. Við Urðarstig 3ja herb. 80 fm efri hæð. Sér- inngangur. Við Lindargötu 3ja herb. séribúð i járnvörðu timburhúsi. Við Eyjabakka ca 104 fm 4ra herb. endaibúð á 3ju hæð. Þvottaherb. og búr inn af eldh. Geymsla og föndur- herb., i kjallara. Sameign frág. og teppal. Við Löngufti 1 06 fm efrihæð i þribýlishúsi. Við Þverbrekku 115 fm ibúð á 7. hæð. Þvotta- herb. á hæðinni. Við Haðarstíg Raðhús ca 100 fm á tveimur hæðum. Verð 7 millj. Útb. 5 millj. Fasteignaeigendur Höfum kaupanda að stóru einbylishúsi á Stór- Reykjavíkursvæði. Mikil út- borgun. Albertsmatarkex,1 pk. Leyfilegt verð kr. 94 Tilboðsverð kr. Samklosettpappir 25 stk. Leyfilegt verð kr. 1500 ^ m 1228 filboðsverð kr. Viðskiptakortaveró fyrir alla! pJUD SKEIFUNN115 Lifur Leyfilegt verð kr. 545 Tilboðsverð kr. Sanitas / n\ appelsínu-j v, safi, W\ 2 lítrar j Leyf ilegt verð kr. 676 Tilboðs iOC verð kr.f|e>0 Loöfóðraður herramittisjakki Bangsi, ^ kr. 798 2.780

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.