Morgunblaðið - 23.09.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975
7
r
Björgvin og
lóðaúthlutanir
Hlutverk vandlætarans
leikur ekki jafnvel í hönd-
um allra. Þannig hefur
Björgvin Guðmundssyni,
eina borgarf ulltrúa
Alþýðuflokksins (sem
vissulega má muna sinn
fífil fegri i borgarstjórn
Reykjavíkur), orðið hált á
þvi að skipa sjálfan sig í
hlutverk vandlætarans í
þeim umræðum, sem orð-
ið hafa um lóðaúthlutun
til Ármannsfells h.f.
Björgvin Guðmundsson
gagnrýndi að lóðin, sem
Ármannsfell fékk, var
ekki auglýst til umsóknar.
Hins vegar barðist hann
sjálfur eindregið fyrir þvi,
að byggingarsamvinnu-
félagi Stjórnarráðsins yrði
úthlutuð lóð án auglýsing-
ar. Á þetta var bent
I---------------------
áreitnislaust i Reykjavik-
urbréfi Morgunblaðsins
fyrir rúmri viku. Bersýni-
legt er, að þetta hefur far-
ið mjög í taugarnar á
borgarfulltrúa Alþýðu-
flokksins, því að sl.
fimmtudag orðaði Alþýðu-
blaðið það svo, að Morg-
unblaðið hefði „veitzt að
Björgvin Guðmundssyni",
í sambandi við þetta mál,
sem er auðvitað alrangt.
En svo viðkvæmur reynd-
ist Björgvin Guðmunds-
son fyrir þvi, að á þetta
var bent, að forsiðuviðtal
birtist við hann í Alþýðu-
blaðinu af þessu tilefni.
og þar sagði hann m.a.:
„Sú lóð, sem hér um ræð-
ir, er lóð sú við Hagamel,
sem síðar var veitt Bygg-
ung, byggingarsamvinnu-
félagi ungra sjálfstæðis-
manna," sagði Björgvin.
„Ég lagði til, að lóðin yrði
veitt byggingarsamvinnu-
félagi stjórnarráðsins. Ég
fæ hins vegar ekki séð, að
hægt sé að leggja að jöfnu
þá tillögu mfna og
ráðstöfun borgarstjórnar-
meirihlutans á lóðinni til
Ármannsfells án auglýs-
ingar. Annars vegar er um
að ræða einkafyrirtæki,
— Ármannsfell —, sem
byggir og selur væntan-
lega til þess að skapa sér
ágóða. Hins vegar er
byggingasamvinnufélag
sem tekur að sér að
byggja fyrir félagsmenn
sína og selur fbúðirnar á
kostnaðarverði og án
álagningar, og án ágóða-
sjónarmiða." Nú er það
að sjálfsögðu umdeilan-
legt, hvort gera eigi
þennan greinarmun á
byggingarsamvinnufélagi
og byggingarfélagi f
einkaeign en látum það
vera. Segjum svo, að
slíkan greinarmun megi
gera og að þá hafi
Björgvin Guðmundsson
eitthvað til sfns mál, að
ekki hafi verið um sam-
bærilegt mál að ræða.
Breiðholt og
Ármannsfell
En svo vill til, að þessi
borgarfulltrúi hefur i fleiri
tilvikum hvatt til lóðaút-
hlutunar án auglýsingar. j
ræðu sem Björgvin Guð-
mundsson flutti á fundi
borgarstjórnar 15. maí sl.
hvatti hann mjög eindreg
ið til þess, að byggingar
fyrirtækinu Breiðholti h.f.
yrði úthlutuð tiltekin
byggingarlóð án auglýs-
ingar. f þessari ræðu
sagði borgarfulltrúinn:
„Þá vil ég benda á aðra
---------------------------,
lóð, sem unnt er að út- |
hluta nú þegar, án mikils l
tilkostnaðar, en það er '
lóðin Krummahólar 8 ! |
Breiðholti III. Stærsta I
byggingarfyrirtæki borg- :
arinnar, Breiðholt h.f., |
sem hefur 300 manns í I
þjónustu sinni, leitaði eft-
ir þessari lóð á siðastliðnu I
ári.
Þegar rætt var um lóð J
þessa í borgarráði var I
ekki talið unnt að úthluta I
henni nema gert væri
nokkuð kostnaðarsamt I
bráðabirgðaræsi, en nú er I
hins vegar komið f Ijós, að
unnt er að gera lóðina I
byggingarhæfa á mun ó- I
dýrari hátt. Það á þvi ekk-
ert að vera þvi til fyrir- |
stöðu að úthluta lóðinni. I
Tel ég eðlilegt, að bygg- ■
ingaraðili, er á sínum I
tfma, fékk vilyrði fyrir lóð- |
inni, fái henni þegar út- •
hlutað. Verði það gert, '
getur hann hafið fram- I
kvæmdir þegar i stað. "
Væntanlega heldur *
Björgvin Guðmundsson I
þvf ekki fram, að einhver .
eðlismunur sé á bygging- I
arfyrirtækjunum Breið- I
holti h.f. og Ármannsfelli >
h.f? I fyrra tilvikinu I
hvatti hann til lóðaúthlut- I
unar án auglýsingar, en f ■
sfðara tilvikinu gagnrýndi '
hann slfka lóðaúthlutun. |
Hvernig er hægt að taka ■
mark á málflutningi I
svona manns?
____________________________I
spurt &
Hringið í síma 10100
milli kl. 16 og 17 frá
mánudegi til föstudags
og spyrjið um
Lesendaþjónustu
Morgunblaðsins.
V______________________>
Arsmiðar A
HANDBOLTALEIKI
Pétur Sigurðsson, Háaleitis-
braut 153, Reykjavfk spyr:
„Hefur forsvarsmönnum HSt
og handknattleiksfélaganna
ekki komið til hugar að selja
ársmiða á leiki í fyrstu deild og
landsleiki og forðast þannig
mannþröng við miðasölur rétt
fyrir leiki?
Sigurður Jónsson, formaður
Hanrtknattleikssambands fs-
lands svarar:
„Við hefðum gjarnan viljað
selja ársmiða en við verðum að
greiða fullt gjald til húsanna
(25%) og getum þar af leiðandi
ekki gefið neinn afslátt."
LAUN UNGLINGA
UNDIR 16 ARA
ALDRI
Eðvarð Ingólfsson, Hellisbraut
16, Hellissandi spyr:
„Hver er ástæðan fyrir því,
að unglingar undir 16 ára aldri,
sem vinna sömu störf í fisk-
vinnu og fullorðnir fá ekki
sömu laun og þeir?“
Þórir Danfelsson framkvæmda-
stjóri Verkamannasambands
Islands Svarar:
„Mjög lengi — í áratugi —
hafa þau ákvæði verið í
samningum verkalýðsfélaga og
atvinnurekenda, að unglingar
yngri en 16 ára hafi lægra kaup
en fuilorðnir, þ.e. aðilar hafa
orðið sammála um að fyrst við
16 ára aldur teljist ungmenni
hafa náð þeirri starfsgetu og
starfshæfileikum, að réttlæti
sömu laun og fullorðinna.
í nágrannalöndum okkar, þar
sem ég þekki til, er þetta
aldursmark hærra.
Um það má að sjálfsögðu
deila endalaust hvar rétt sé að
setja mörk. Ég held þó að tæp-
lega sé hægt að halda því fram
með fullkominni sanngirni að
unglingar undir 16 ára aldri
geti almennt talist jafngildir á
vinnumarkaði og fullorðið fólk,
til þess skortir þá bæði likam-
legan og andlegan þroska og
reynslu, þó að sjalfsögðu megi
alltaf finna einstaklinga sem
þessi kenning á ekki við. En
aðalsvarið við spurningunni er:
Þetta er samningur milli sam-
taka atvinnurekenda og verka-
lýðsfélaga."
VEXTIR AF
SPARIMERKJUM
Jón Karlsson, Hraunbæ 176,
Reykjavik spyr:
„Ef sparimerki eru tekin út
fyrir áramót, eru þá reiknaðir
vextir fyrir árið 1975 og hvað
eru þessir vextir miklir?“
Haukur Vigfússon, forstöðu-
maður Veðdeildar Landsbanka
tslands svarar:
„Af sparimerkjum er reikn-
aðir 4% dagvextir með sama
hætti og um væri að ræða
venjulegt sparifé. Ef spari-
merkin hafa verið í vörslu veð-
deildarinnar í 350 daga þá fær
eigandi þeirra greidda vexti
fyrir þessa 350 daga, taki hann
merkin út.“
HVENÆR VERÐUR
NÆSTA
BÍLASÝNING?
Ágúst M. Jónsson, Einimel 12,
Reykjavfk spyr:
„Hvenær verður næsta bíla-
sýning haldin hér í Reykjavík?
Júlfus S. Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Bílgreinasam-
bandsins svarar:
„Unnið er að því aö næsta
bílasýning í Reykjavik verði
vorið 1976 en um þessar mund-
ir er verið að leita eftir
húsnæði fyrir sýninguna.“
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIRÐI. —
SÍMI 51919.
ELDTRAUSTIR
SKJALASKÁPAR
3ja og 4ra skúffu.
SÆNSK
GÆÐAVARA
NU ER m
UTSÖLU
MARKAÐURINNf?
Í NÝJU HÚSNÆÐI
AÐ
LAUGAVEGI 66
i sama húslvlð
lillðlna á verzlun
okkar
Otrúlegt ’
vöruúrval
á frábærlega góðu
verði!!!!
o>
Q Terelyne & ullarbuxur í miklu úrvali a
j Föt með vesti Pils og kjólar
| j Bolir Stakir kvenjakkar
Q UFO flauelisbuxur.
Nú er hægt að
gera reyfarakaup
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
UL'ii) KARNABÆR
Útsölumarkaðurinn,
Laugavegi 66, sími 28155
/l's