Morgunblaðið - 23.09.1975, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975
15
Húsvíkingar skora á
bæjarstjóm að hafa for
göngu um togarakaup
Húsavík 18. september
ALMENNUR borgarafundur boð-
aður af bæjarstjórn Húsavíkur í
gær samþykkti eftirgreinda
ályktun:
Almennur fundur um atvinnu-
mál á Húsavík haldinn í félags-
heimili Húsavíkur 17. september
1975 telur áríðandi að styrkja
undirstöðuatvinnuveg bæjarbúa
— fiskveiðarnar.
Fundurinn telur óhjákvæmi-
legt að auka hráefni fyrir fiskiðn-
Ofurhugar
úr Unaðsdal
til Dynjanda
aðinn f bænum og álftur að kaup
og útgerð á togskipi sé vænlegasta
og öruggasta leiðin til að ná þvf
marki.
Fundurinn skorar því á bæjar-
stjórn Húsavíkur að hafa án frek-
ari tafar forgöngu um kaup á
togskipi til bæjarins í samvinnu
við fyrirtæki oe einstaklinga í
bænum.
Ennfremur • • samþykkti
fundurinn eftirfarandi ályktun.
1. Almennur borgarafundur hald-
inn á Húsavfk 17. sept. 1975 lýsir
fyllsta stuðningi sfnum við þá
ákvörðun að færa fiskveiðitak-
mörkin út í 200 milur.
2. Fundurinn lýsir sig andvígan
öllum samningum við erlenda
aðila um veiðiheimildir innan 50
mflna markanna.
3. Fundurinn hvetur til þess að
hinar ströngustu reglur verði
settar um nýtingu landhelginnar
og bendir sérstaklega á hið alvar-
lega ástand er nú ríkir á miðun-
um fyrir Norðurlandi þar sem
flest byggðarlögin byggja atvinnu
sína á sjósókn á staðbundnum
bátum og fiskiðnaði.
4. Fundurinn telur að rányrkja
undanfarandi ára stefni nú lífsaf-
komu íbúa þessa landshluta í
voða ef ekki verður gripið til rót-
tækra aðgerða.
Fréttaritari.
4.000 ára
skipsflak
Aþenu, 20. september. Reuter
GRlSKIR kafarar hafa fundið
skipsflak sem er talið elzta skips-
flak sem vitað er um f heiminum.
Fiakið er af skipi frá bronzöld
sem var smfðað fyrir að minnsta
kosti 4.000 árum að sögn sérfræð-
inga.
jazzBaLLeGtstóLi bópu
Vetrar-
námskeið
líkQm/íCttkl
Vetrarnámskeiðið í
líkamsrækt og megrun
fyrir dömur á öllum
aldri, hefst mánudaginn
6. okt. Innritun stendur
yfir.
— ATH
Sér megrunarkúrar 4. sinnum i viku, 3 vikur í senn fyrir dömur
sem vilja vinna mikið eru kl. 8.15 fyrir hádegi og 7.45 e.h.
ATH.
Innritun i lokuðu timana hófst 1. sept. Fáein pláss eftir.
Innritun og upplýsingar i sima 83730, alla daga frá 8—12 f.h.
og 1 —11 e.h.
Jazzbaiiettetöii búpu
Bæjum 4. sept. 1975
JAFNVEL hér á norðurslóðum
og norðan við alla mannabyggð,
skríða vélknúin farartæki um dali
og fjöll, og eftir að fjórir ferða-
garpar á 12 hestum höfðu ferðast
hér um norðurstrandir, lagði níu
manna hópur í ferð hér frá
Bæjum kl. 12 á hádegi hinn 23. ág.
á stað á fjórum bílum riorður yfir
Dalsheiði til Jökulfjarða. Er
óhætt að segja, að ævintýraþráin
hafi brunnið í brjóstum þeirra
ferðalanga, þvi svo er leið þessi
ógreiðfær slíkum farartækjum,
að ekki sýnist fýsilegt þeim er
best þekkja: Leiðin frá Unaðsdal
yfir Dalsheiði og norður að
Dynjanda í Jökulfjörðum mun
vera um 14 km, en að Dynjanda
komu þeir félagar kl. 6 að kveldi
þess 25. ágúst, svo ekki virðast
þeir víða hafa farið yfir lögmætan
ökuhraða enda mun viða þungt
fyrir fæti og ekki á neinu malbiki
að keyra.
Ekki hentu þá ferðalangana
nein teljandi óhöpp í ferðinni,
utan hvað brotnaði eitt
.. . .fjaðrablað í einum bíla þeirra,
en það fengu þeir aftur í flugvél
sem henti því útbyrðis svo þeir
mættu sjá og finna.
Frá Dynjanda og útí Grunnavík
fóru þeir síðan í góðu yfirlæti
eftir ýturuddri vegarslóð, er ný-
gerð var áður en Jökulfjörður
fór allur í eyði, og í Grunnavík
er ferjubryggja, sem þó nokkuð
er farin að láta á sjá, en þangað
sótti Djúpbáturinn farkostinn og
ferðafólkið og flutti til Isafjarðar.
Aldrei hefir þessi leið verið
áður farin á bflum, enda miklir
ofurhugar, sem I slfku standa, þó
að Unaðsdalsmegin heiðar sé nú
nýrudd jeppaslóð uppá svokölluð
Fell, en það er nokkuð uppfyrir
brúnir þeim megin heiðar, en á
norðurbrún Dalsheiðar er skarð I
fjallgarðinn upp af Dynjandisdal,
sem Dynjandisskarð heitir, og
munu þeir félagar ekki hafa
munað það örnefni gjörla, er
þetta skarð bæði stórgrýtt og
snarbratt, og nefndu þeir það sín
á milli „Afglapagil". Skarðið mun
þó eftir sem áður halda sínu forna
heiti, enda þótt fullillt hafi það
verið talið hestum til yfirferðar,
hvað þá heldur bflum. Það mun
svo geymast í minningu áranna,
að einmitt á kvennaárinu 1975
runnu um þetta einstæða fjalla-
skarð einir fjórir fjallabílar
höfuðborgarbúa, 2 af Blasergerð,
1 G: M.C., og 1. Chevrolett og með
í ferð þessari voru einnig tvær
konur: Ásdís Þorsteinsd., og
Anna Steina Þorsteindsd.
, Málningin
frá Slippfélaginu
A járn og viöi utan húss og
innan:
Hempels
HEMPELS skipamálning.
Eyöingaröfl sjávar og seltu
ná lengra en til skipa á
hafi úti. Þau ná langt inn
á land.
HtMW|,yijRETEX
þilfarsm^U; ^stmálnk
CUPRINOL^
A steinveggi utan húss og
innan:
Vitretex
ál VITRETEX plastmálning
"I myndar óvenju sterka húó.
I Hún hefur því framúr-
I skarandi veörunarþol.
| Vitretex á veggina
A tréverk í garði og húsi:
Cuprinol
CUPRINOL viðarvöm þrengir sér inn í
viðinn og ver hann rotnun og fúa.
Cuprinol á viðinn
S/ippfélagið íReykjavíkhf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi
Símar 33433og33414
Aðrir í förinni voru: Gunnar
Garðarsson, Ragnar Eðvaldsson,
Stefán Björnsson, Garðar Sigurðs-
son, Sveinn Jakobsson, Hrafn
Sveinbjörnsson og Sigfús
Kristjánsson.
Jens f Kaldalóni.
jazzBaLLeCGsKóu bópu