Morgunblaðið - 23.09.1975, Page 18

Morgunblaðið - 23.09.1975, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975 UMHOI Almenn stjórnmálaályktun Leggja ber Framkvæmdastofnun ríkisins niður. 23. þing S.U.S. leggur megin- áherzlu á þá þjóðarhagsmuni íslendinga að ná fullum yfir- ráðum yfir 200 mílna fiskveiði- lögsögu. Þingið treystir rikis- stjórninni til að standa þannig að útfærslu fiskveiðilögsög- unnar, að markmið þjóðarinnar um full yfirráð verði að veru- leika. Landhelgismálið er eitt meginviðfangsefni 23. þings S.U.S. og vísast til sérstakrar ályktunar um það efni. Samsteypustjórn Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknarflokks- ins hefur nú setið að völdum í rúmt ár. Það er ástæða til að líta um öxl og athuga, hvernig ríkisstjórninni hefur tekizt að ná þeim markmiðum, sem hún setti sér í upphafi. í efnahagsmálum var eitt meginmarkmiðið að draga úr verðbólgunni og færa verð- bólgustigið á einu ári niður í 15—20%. Þetta hefur mistekizt algerlega. Eftir eitt ár blasir sú niðurstaða við, að einungis hefur tekizt að stöðva nokkurn veginn hröðun verðbólgunnar, sem er ennþá 50—60% á ári. Annað markmið var að ná jafnvægi í viðskiptum við út- lönd. Þessu markmiði hefur ekki fyllilega verið náð, en þó hefur tekizt að draga nokkuð úr viðskiptahallanum, án þess að gripið hafi verið til skerðingar á verzlunarfrelsi. Enn var það markmið sett á oddinn að draga saman ríkis- búskapinn og ná þar jafnvægi milli tekna og útgjalda. Ekki sér votta fyrir samdrættinum. Tekjur hins opinbera nema nú jafnvel hærra hlutfalli af þjóðartekjum, heldur en á síð- asta ári vinstri stjórnarinnar. A hinn bóginn hefur ríkisstjórnin fylgt því meginmarkmiði sínu að afla tekna fyrir auknum út- gjöldum. Hefur þannig verið horfið frá þeirri ábyrgðarlausu leið vinstri stjórnarinnar að mæta aukningu útgjalda með aukinni seðlaútgáfu og þenslu. Það markmið var sett að halda fullri atvinnu. Þetta hefur tekizt og það sem meira er, þá hefur tekizt að tryggja vinnufrið í landinu. Hér er um umtalsverðan árangur að ræða, því að þetta gerist á sama tíma og kjör þjóðarinnar hafa farið versnandi. Þá setti ríkisstjórnin sér það takmark að hraða nýtingu inn- lendra orkugjafa til orkufram- leiðslu, vegna hins ótrygga ástands á orkumarkaði heims- ins. Að þessu hefur verið unnið svo sæmilegt má teljast. Leggja verður megináherzlu á áð skipuleggja framkvæmdir í orkumálum með þeim hætti, að orkuframleiðslan haldist í hendur við fyrirsjáanleg orku- kaup. Loks má nefna það markmið ríkisstjórnarinnar að afnema löngu úrelt verðlagskerfi, ekki aðeins í þeim tilgangi að stuðla að heilbrigðri starfsemi at- vinnulffsins, heldur einnig til að tryggja hag neytenda með virku verðlagseftirliti og -upp- lýsingamiðlun. Hér hefur ekki örlað á úrbótum. Af ofangreindri upptalningu er ljóst, að því fer fjarri að rfkisstjórninni hafi tekizt sem skyldi að nálgast þau markmið sem hún setti sér í upphafi. Hafa verður þó í huga, að einungis eitt ár er að baki og að á þessu ári hafa ytri aðstæður verið þjóðinni óhagstæðar. Engu að síður hljóta ungir sjálfstæðismenn að benda á, að alltof lítill árangur hefur náðst í uppbyggingarstarfinu eftir vinstri stjórnina. Það er bjarg- föst skoðun fulltrúa á 23. þingi S.U.S., að uppbyggingarstarfið geti því aðeins borið tilætlaðan árangur að takast megi að hag- nýta kosti einkareksturs og frjáls hagkerfis og þá atorku, sem þannig yrði leyst úr læð- ingi. Það hlýtur að vera óhjá- kvæmilegt hlutverk ríkis- stjórnarinnar, sem Sjálfstæðis- flokkurinn veitir forystu, að draga úr samþjöppun valds hjá ríkinu og stuðla að dreifingu þjóðfélagsvaldsins. Ekki tilvilj- unarkenndri valddreifingu, sem byggist á þvf, að sérhver hagsmunahópur taki sér það vald, sem aðstæður leyfa honum, haldur skipulegri vald- dreifingu sem hefur lýðræðis- hugsjónina að leiðarljósi. Á því grundvallarsjónarmiði þarf að byggja að sérhver félagseining hafi sem mest völd um innri málefni sín, og þannig verði spornað við þeirri þróun, að ríkisvaldið teygi arma sfna inn á æ fleiri svið mannlegs lífs. Ungir sjálfstæðismenn minna á fyrri ályktanir sínar um þessi efni. Hér skal aðeins ítrekuð nauðsyn þess, að sveitarfélögum og landshluta- samtökum þeirra séu færð ýmis skýrt aðgreind verkefni, sem nú eru i verkahring ríkisins, jafnframt þvi sem þessum aðilum verði fengnir tekju- stofnar til að standa undir aukningu verkefna. 23. þing S.U.S. krefst þess, að nú þegar verði horfið frá því pólitfska eftirlitsmannakerfi, sem vinstri stjórnin setti yfir Framkvæmdastofnun ríkisins. Ungir sjálfstæðismenn lýsa sig f grundvallaratriðum mótfallna þvi, að starfsemi eins og sú, sem nú er rekin á vegum þessarar stofnunar, sé undir flokkspólitfskri framkvæmda- stjórn þeirra stjórnmálaflokka, sem sitja f ríkisstjórn hverju sinni. Ber að leggja stofnun þessa niður og skipta starfsemi hennar á aðrar stofnanir. 1 þessu sambandi er vert að minnast þeirra yfirlýsinga, sem frá Sjálfstæðisflokknum komu, þegar stofnun þessari var komið á fót og ítrekaðar voru á landsfundi Sjálfstæðisflokksins s.l. vor. I þessu máli sem öðrum verða orð og athafnir að fara saman. Ungir sjálfstæðismenn telja brýnt, að hið fyrsta, verði gerð- ar lagfæringar á úreltu verð- myndunar- og niðurgreiðslu- kerfi landbúnaðarins. Núver- andi kerfi er í ætt með hinni yfirþyrmandi ríkisforsjá og hefur í för með sér stórkostlega brenglun á verðmætaskyni al- mennings. Almenningur hefur engan möguleika á að gera sér grein fyrir raunverulegum kostnaði við framleiðsluna, þó að hann þurfi að sjálfsögðu að greiða framleiðsluverðið að lokum. Ýmislegt bendir til þess, að of lítið hafi verið sinnt hagnýtum rannsóknum í landbúnaði, þess- um þýðingarmikla atvinnuvegi Islendinga. Sem dæmi má nefna að svo virðist sem of miklu fjármagni sé varið í fjár- festingar í vélum til heyverk- unar, sem ekki eru notaðar nema e.t.v. fáa daga á ári hverju. Hyggilegra kynni að vera að verja hluta þessa fjár- magns til rannsókna á nýjum heyverkunaraðferðum, sem henta íslenzku veðurfari. Bein- ir þingið því til bændasamtak- anna og ríkisvaldsins að hefja nú þegar rækilega könnun á þessum málum. Stefna ungra sjálfstæðis- manna grundvallast nú sem fyrr á því, að þjóðfélagið skuli vera frjálst, opið og valddreift og byggja á þeim lýðræðislegu hefðum, sem Islendingar hafa, eins og önnur vestræn ríki til- einkað sér. Grundvöllurinn er lýðræðið, sem felst m.a. í því að borgararnir hafi almennan og jafnan rétt til að velja stjórn- endur þjóðfélagsins í kosn- ingum. Þannig völdum stjórn- endum er sfðan ætlað að setja í lögum almennar reglur um heimila og óheimila framgöngu í þjóðfélaginu. Lýðræðiskerfið gerir kröfu til mikils félagslegs þroska og ábyrgðartilfinningar hjá borgurunum. Þeir verða undir öllum venjulegum kringumstæðum að kunna að sætta sig við niðurstöður, sem fengnar eru á grundvelli stjórn- skipunarinnar, hversu ósam- mála sem þeir kunna að vera þessum niðurstöðum efnislega. Á síðustu tímum hefur hér á landi sem í ýmsum nágranna- löndunum orðið vart óheilla- þróunar, sem vegur að grund- velli hins lýðræðislega þjóð- skipulags. Einstakir smærri hópar skirrast ekki við að nýta aðstöðu sína til hins ítrasta til að knýja á um hagsmuni sína og vanvirða þá af fullkomnu ábyrgðarleysi stjórnskipulegar reglur í þjóðfélaginu. Þá eru stundarhagsmunir hugsunar- laust teknir fram yfir þau verð- mæti, sem felast í grundvalla- skipan þjóðfélagsins. Allsnægtaþjóðfélagið hefur útrýmt ýmsum þeim vanda- málum, sem fyrri tfma menn áttu við að etja. En önnur ný koma í staðinn. Einstaklingar og samtök hætta að gera kröfur til sjálfra sín, og að sama skapi aukast kröfurnar á hendur öðrum, einkum samfélaginu. Abyrgðartilfinningin og félagsþroskinn þverr, og með því móti er vegið að grundvelli lýðræðisskipulagsins. Ungir sjálfstæðismenn heita á lands- menn alla að staldra nú við í kröfugerðarhugsunarhættinum og athuga, hvort þeir sjálfir uppfylli þær kröfur, sem þjóð- félagið hlýtur að gera til þeirra. Og ungir sjálfstæðismenn heita einnig á ráðherra Sjálfstæðis- flokksins í rfkisstjórn að fram- fylgja því margyfirlýsta stefnu- miði sjálfstæðismanna að draga saman hið föðurlega rfkisvald, svo að hér fái að ríkja þjóð- skipulag, sem auki ábyrgðartil- finningu borgaranna og fái þá til að gera kröfur til sjálfra sín. Tii þess að ná fram þeim markmiðum sem í sjálfstæðis- stefnunni felast, ber fyrst og fremst að hlúa að og efla fslenzka menningu. Hér er veigamikill þáttur þjóðlffsins sem ræður úrslitum um, hvort sá menningararfur sem við byggjum á fái staðist í framtíð- inni. Ef hugsjónir okkar í menningarmálum glatast í vel- ferðarkapphlaupinu er rótum islenzks þjóðfélags stefnt í voða. Leitast skal við á hverjum tíma að tjáningarfrelsi og frum- kvæði einstaklingsins sé ekki fótum troðið. 23. þing S.U.S. ályktar, að við nálgumst þessi markmið með því að efla frjálsa bókaútgáfu, frjálsa fjölmiðla og frjálsa list- sköpun í landinu, en allt þetta stuðlar að frjálsri hugsun. 23. þing S.U.S. leggur að lok- um áherzlu á það hlutverk ríkisins, að gera hverjum einstaklingi kleift að nýta sem bezt sína eigin hæfileika/Hver einstaklingur er sínum sér- stöku hæfileikum búinn og menntunarmöguleikar og þjóð- félagsaðstæður að öðru leyti verða að miðast við að þessir hæfileikar nýtist sem bezt. Þetta er ekki einungis heppi- legast fyrir þjóðfélagsheildina heldur er hagur hvers einstakl- ings, andlegur og veraldlegur, bezt tryggður með þessu móti. I þessum anda hafa ungir sjálfstæðismenn starfað á umliðnum árum og munu halda því áfram. Alltof Iftill árangur hefur náðst f uppbyggingarstarfinu eftir vinstri stjórnina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.