Morgunblaðið - 23.09.1975, Page 20

Morgunblaðið - 23.09.1975, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975 Handknattleiksvertíðin hafin Fram skoraði fyrsta mark Reykjavíkurmótsins, en tapaði svo fyrir KR — Friðrik Friðriksson með 24 mörk í tveimur leikjum HANDKNATTLEIKSMENN hófu sína innanhússvertíð á laugardaginn er fyrstu leikir Reykjavíkurmótsins fóru fram. Alls voru háðir sex leikir um helgina og léku öll liðin að minnsta kosti einn leik. Þau úrslit sem mesta athygli vöktu fyrsta leikdaginn var sigur KR-inga yfir Fram, en KR-ingar léku þarna sinn fyrsta leik undir stjórn Geirs Hallsteinssonar. Sá einstaklingur sem mesta athygli vakti fyrstu leikhelgina var Þróttarinn ungi, Friðrik Friðriksson. Hann skoraði hvorki meira né minna en 24 mörk í leikjunum sínum tveimur um helgina. 15 mörk gegn Fylki og 9 mörk gegn Val. Páll Björgvinsson skorar fyrir Vfkinga gegn Fylki, Einar Agústsson kemur engum vörnum við. Ekki verður sagt að mikill glæsibragur hafi verið yfir fyrstu leikjum mótsins. Leikmenn lið- anna eru rétt að komast í æfingu, margir hverjir eru enn úthalds- litlir og leikkerfin ómótuð. Því verður þó ekki neitað að skemmti- leg tilþrif sáust annað slagið bæði hjá liðum og leikmönnum, t.d. hjá Friðrik Friðríkssyni og Víkings- liðinu gegn Fylki. Óvæntur KR-sigur / Framarinn Þorvaldur Sigurðs- son skoraði fyrsta mark Reykja- víkurmótsins að þessu sinni og héldu menn að mark hans væri aðeins forsmekkurinn að því sem á eftir kæmi — öruggum sigri Framara í leiknum gegn KR. Margt fer þó öðru visi en ætlað er og þegar upp var staðið höfðu KR-ingarnir skorað 18 mörk gegn 16. 2. deildarliðið var nokkuð vel að þessum sigri sínum komið, leik- menn liðsins sem níu eru 19 'ára og yngri börðust mjög skynsam- lega og að baki sér i vörninni höfðu þeir Emil Karlsson, em að nýju er byrjaður að leika með KR og stóð hann sig mjög vel, einkum þó í seinni hálfleiknum. Beztir KR-inga í leiknum voru Þor- varður Guðmundsson og Hilmar Björnsson. Skoruðu þeir einnig flest mörk KR-inga. Pálmi Pálmason og Andrés Bridde skoruðu flest mörk Fram- aranna og voru atkvæðamestir. Sýning Friðriks í leik Þróttar og Fylkis skoraði Friðrik Friðriksson 7 fyrstu mörk Þróttar, en alls urðu mörkin hans 15 í leiknum. Það skal þó tekið fram að 8 marka sinna skoraði Friðrik úr vítaköstum. Unnu Þróttarar öruggan sigur 22:14. Þróttarar leika í vetur í fyrsta skipti í 1. deildinni í handknatt- leik og verður fróðlegt að fylgjast með frammistöðu liðsins í deild- inni. Innan sinna vébanda hafa Þróttarar tvo mjög snjalla hand- knattleiksmenn, Bjarna Jónsson og Friðrik Friðriksson, annar er gamalreyndur landsliðsjaxl, hinn leikur ábyggilega sinn fyrsta landsleik á vetrinum. Auk þess- ara manna hafa Þróttarar fram- bærilegum mannskap yfir að ráða og ætti liðið að geta spjarað sig í deildinni í vetur. Réttlátt jafntefli Ármann og iR gerðu jafntefli í leik sínum á sunnudaginn, 17:17 og voru þau úrslit eftir atvikum réttlát. Voru Ármenningar þó nær sigrinum, en fjögur vítaköst, sem Jens Einarsson varði frá þeim, kostuðu sigurinn í leiknum. ÍR-ingar voru yfir lengst af í leiknum og staðan í leikhléi var 11:8 iR-ingum í vil. Ármenn- ingum tókst að jafna 11:11, ÍR komst yfir á ný, en aftur varð jafnt á 15:15. Þá komust Ármenn- ingar fyrst yfir í leiknum, en ÍR náði að jafna 17:17 nokkru áður en flautað var af. Fjórir leikmenn skoruðu mörk Ármenninganna að þessu sinni, Björn Jóhannesson, Jens Jensson, Pétur Ingólfsson og Hörður Harðarson. Fyrir ÍR-inga skoruðu þeir Guðjón Marteinsson og Brynjólfur Marteinsson, 5 mörk hvor, og voru þeir markhæstir í liði sinu. Auðveldur Víkingssigur Víkingar áttu ekki í miklum erfiðleikum með lið Fylkis og sigruðu Víkingarnir 28:11. Léku Vikingarnir. oft á tiðum mjög skemmtilega, en mótstaðan var ekki mikil og því lítið hægt að meta raunverulega getu islands- meistaranna út frá þessum leik. Allir útileikmenn Víkings skor- uðu að þessu sinni. Viggó var þeirra markhæstur með 7 mörk, en Magnús, Erlendur, Ólafur og Skarphéðinn gerðu 3 mörk hver. Fyrir Fylki skoraði Einar Ágústs- son 4 mörk og var markhæstur liðsmanna Fylkis. Sex marka Valssigur Þrótturum gekk ekki eins vel gegn Val á sunnudagskvöldið og gegn Þrótti deginum áður. Valur vann 26:20 og hafði forystu allan leikinn. I hálfleik var staðan 14:9. Ólafur H. Jónsson leikur eins og kunnugt er ekki lengur með Val, þar sem hann er fluttur til Þýzka- lands og hefur Stefán Gunnars- son fengið hlutverk hans sem stjórnandi Valssóknarinnar. Þá lék Ólafur Benediktsson ekki með Val að þessu sinni, en hann mun hafa verið linur við æfingar að undanförnu. Gunnsteinn Skúlason var mark- hæstur Valsmanna að þessu sinni, með sex mörk. Guðjón og Jón Karlsson gerðu 5 mörk hvor, Jón Pétur 4 mörk, aðrir minna. Friðrik Friðriksson skoraði 9 af mörkum Þróttara, Bjarni Jónsson 7 mörk með þrumuskotum og 4 leikmenn gerðu 1 mark hver. Kunnuglegar tölur Hermann Gunnarsson og félag- ar hans úr Leikni höfðu ekki erindi sem erfiði i leik sínum við Fram. 1. deildarliðið sigraði með 22ja marka mun 35:13 og eru þessar tölur kunnuglegar fyrir Leiknismennina því þeir unnu flesta leiki sína i 3ju deildinni í fyrra með álíka markamun. Pálmi og Hannés Leifsson voru drýgstir Framara við að skora, en mörkin 35 dreifðust á leikmenn liðsins. Hafliði skoraði 5 mörk fyrir Leikni og Hermann 3. Staðan í Reykjavíkurmótinu: A-riðiIl KR 1 1 0 0 18:16 2 Fram 2 1 0 1 51:31 2 Ármann 1 0 1 0 17:17 1 ÍR 1 0 1 0 17:17 1 Leiknir 1 0 0 1 13:35 0 B-riðiII Víkingur 1 1 0 0 28:11 2 Valur 1 1 0 0 26:20 2 Þróttur 2 1 0 1 42:40 2 Fylkir 2 0 0 2 25:50 0 Svíar sigruðu Chilebúana 4—1 SVÍAR sigruðu Chile-búa f und- anúrslitakeppni Davis- bikarkeppninnar í tennis, er leikið var f bænum Baastad í Svfþjóð um helgina. Hlutu Svfar 4 vinninga gegn 1 vinningi Chile og mæta því annað hvort Astralfu eða Tekkóslóvakfu f undanúr- slitum. Keppnin í Svíþjóð var söguleg að þvi leyti að hópur ungmenna notaði komu íþróttamannanna frá Chile til þess að mótmæla herfor- ingjastjórninni þar. Hafði íþrótta- mönnum frá Chile verið hótað liflátí, kæmu þeir til Svíþjóðar, en þeir létu það ekkert á sig fá. Fjölmennt lögreglulið var á keppnisstaðnum, og mótmælend- unum var haldið frá honum. Þeir héldu hins vegar útifundi í ná- grenninu og heyrðist háreisti og óp frá honum alla leið á íþrótta- leikvanginn. Badminton 1 Firðinum VETRARSTARF Badminton- félags Hafnarfjarðar er nú hafið. Fara æfingar fram í íþróttahús- inu við Strandgötu kl. 21.00 á fimmtudögum og kl. 18.00 á föstu- dögum. Víkingar með blak fyrir „old boys” Vfkingar hafa nú ákveðið að gefa eldri mönnum kost á að æfa blak hjá félaginu f vetur og verð- ur fyrsta æfingin fyrir „old boys“ á vegum Víkings í Vörðuskólan- um (Gagnfræðaskóla Austurbæj- ar) á þriðjudaginn klukkan 18.30. Blak er fþrótt sem stöðugt á aukn- um vinsældum að fagna og f vetur verða þrjú íþróttaféiög með blak á stefnuskrá sinni. Eru það Vfkinga, Þróttur og Iþróttafélag Stúdenta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.