Morgunblaðið - 03.10.1975, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. OKTÖBER 1975
Ólafur Jóhannesson, viðskiptaráðherra:
Hér fer á eftir frásögn af ræðu Ólafs
Jóhannessonar viðskiptaráðherra á
fundi Framsóknafélags Reykjavíkur í
fyrrakvöld Frásögnin er nokkuð stytt
FJÁRMÁL RÍKISINS
hjarruál rikistns hafa verið erfið á
þessu ári, sagði Ólafur Jóhannesson
Á síðasta ári var verulegur halli á
rikissjóði og hann er jafnan i umtals-
verðri skuld við Seðlabankann á degi
hverjum Samkvæmt reynslu fyrri ára
og vegna sérstakra fjáröflunaraðgerða
má ætla, að fjárhagur ríkisins batni
eitthvað á síðustu mánuðum ársins en
hræddur er ég um, að umtalsverður
halli verði á ríkissjóði í ár. Þessi staða
rikissjóðs hefur átt sinn þátt í verð-
þenslunni. Ríkisfjármálin og málefni
fjárfestingarlánasjóða eru undirrót of
mikillar þenslu og eyðslu.
Um þessar mundir er unnið að fjár-
lagagerð Það er ekki auðvelt við ríkj-
andi aðstæður Á öllum sviðum eru
kostnaðarhækkanir miklar Fjárlaga
frumvarpið hefði hækkað mjög mikið,
ef þessum kostnaðarhækkunum hefði
verið fylgt í fcinu og öllu Þótt ég ætli
ekki að gefa upplýsingar um fjár
lagafrumvarpið áður en það verður
lagt fram er óhætt að segja, að
hækkun frumvarpsins verður mun
minni en dýrtiðarvextinum nemur.
Þar af leiðir raunverulegan niðurskurð
bæði á rekstrarútgjöldum og fram-
kvæmdafé Þessari aðhaldsstefnu er
alveg nauðsynlegt að fylgja fram, en
vitaskuld er það alþingi, sem hefur
úrslitavald í þessum efnum. Það er
enginn vafi á því, að margir munu
finna fyrir þeim lækkunum, sem til
greina koma Mikill hluti útgjalda ríkis-
sjóðs er á sviði menningarmála, trygg-
ingamála og heilbrigðismála Vel má
vera, að alþingismönnum lítist ekki á
þetta og þeir hafa valdið til þess að
breyta um en þeirra er líka ábyrgðin að
finna þá tekjur á móti Nú þarf að
nema staðar og rifa seglin Það hefði
þurft að gera fyrr Það hefur ekki verið
gert og virðist tæpast hafa verið fylgi
fyrir því en það er óráð að halda áfram
á þessari braut
VERÐBÓLGAN
Á þessu ári er áætiað, að meðaltals-
uerðhækkanir hér á landi muni nema
um 48%. Á sama tíma eru lönd eins
og Sviss og Austurríki á miðju árinu
með verðlagshækkanir upp á 8%. í
Svíþjóð nema þær 11%, í Noregi
12%, Finnlandi 18% og jafnvel í
Portúgal þar sem aðstæður eru mjög
erfiðar um þessar mundir þó ekki
nema um 20%. Þótt við íslendingar
séum háðari innflutningi en þessar
þjóðir, sýna þessar tölur, að þessi
þróun hjá okkur á aðems að takmörk-
uðu leyti rætur að rekja til hækkunar á
innflutningsverði Þess vegna er hér að
verulegu leyti um að ræða innlendar
orsakir Ég ætla ekki að rekja þá þræði
alla í sundur hér en staðreyndirnar
blasa við, Verðlagsþróunin á að veru-
legu leyti rætur að rekja til gengisfell-
ingar snemma á þessu ári og fyrra ári
Það er i raun ómögulegt að standa á
móti verðhækkunum á innfluttum
vörum, sem stafa af gengisbreyt-
ingum Hins vegar hafa orðið tals-
verðar hækkanir á opinberum þjón-
ustugjöldum s s hitaveitu, rafmagns-
veitu, pósti og sima o.fl o fl á vegum
rikis og sveitarfélaga Ég hefi persónu-
lega verið mjög andvígur þessum
hækkunum og reynt að standa gegn
þeim en viðurkenni þó, að þær hafa átt
i sumum tilvikum við rök að styðjast
Það er ekki skynsamlegt að reka þessi
þjónustufyrirtæki með halla. En ein-
hvers staðar verður að stinga við fótum
og það stendur ekki öðrum nær en
opinberum aðilum sem hafa einokun á
sinni þjónustu Á slikum timum sem
þessum tel ég, að ekki sé hægt að
ætlast til þess, að þessi þjónustufyrir-
tæki fái framkvæmdafé greitt i þjón-
ustugjöldum. Til þess verða menn að
afla lánsfjár eins og á stendur
Það liggur á borðinu, að þessar
hækkanir og margar fleiri s.s eins og á
útvarpi, blöðum o.fl. hafa þau áhrif að
hækka visitötuna Sumar vörur og
þjónusta vega að minu mati óeðlilega
þungt i vísitölunni og þarf að taka til
endurskoðunar. Hækkun á land-
búnaðarvörum hefur auðvitað haft sín
áhrif. Byggingakostnaður er hár og á
einnig mikinn þátt í verðbólgunni
Kauphækkanir eiga lika stóran þátt i að
skrúfa verðlagið upp. Við tökum kaup-
hækkanir í stærri stökkum en ná-
grannaþjóðir okkar Á EFTA-fundinum
sem hér var nýverið, sagði forsvars-
maður norska alþýðusambandsins, að
hann reiknaði með allsherjar sam-
komulagi i Noregi um 3% kaup-
hækkun Það eru dálítið aðrar tölur en
við tölum um. Ég vil þó taka fram, að
ég tel, að i kjarasamningunum s.l vor
hafi verið staðið hófsamlega að málum
yfirleitt. Ég tel, að forystumenn verka-
lýðssamtakanna hah þá sýnt ábyrgðar-
tilfinningu að spenna bogann ekki
hærra en raun ber vitni um.
Við höfum hér verðlagseftirlit, verð-
lagsskrifstofu og verðlagsnefnd. En
vald verðlagsnefndar nær aðeins til
40—50% af heildinni. Hin opinbera
þjónusta nær til 10—20% og land-
búnaðarvörur 30—40%, en það er 6
manna nefnd sem ákveður verðlag á
þeim Þannig er Ijóst, að verð-
myndunarkerfið byggist upp af ýmsum
þáttum Allar verðhækkanir koma þvi
ekki inn um einn og sama farveginn.
En allt er þetta verðlagskerfi orðið
gamaft og þarfnast endurskoðunar
Enda þótt ég hafi hér dregið upp
dökka mynd af verðlagsþróuninni á
þessu ári, er rétt og það vil ég undir-
strika að verðhækkunarhraðinn
hefur minnkað mjög mikið. Frá 1.
ágúst til 1. nóvember eru áætlaðar
hækkanir um 6—6Vi%. Ef hægt
væri að halda í þessu horfi, ætti að
vera hægt að stefna á það að verð-
lagsþróunin á næsta ári verði um
25% og það er engin smábreyting
frá 48%.
ÞRÓUN
UTANRÍKISVIÐSKIPTA
Ólafur Jóhannesson sagði, að
ástandið í utanríkisviðskiptum og
gjaldeyrismálum væri erfiðara og horf-
ur óhagstæðari en gert hefði verið ráð
fyrir í áætlunum fyrr á árinu Meginor-
sökin fyrir því væri minni útflutningur
en ráðgert hefði verið Lækkun útflutn-
ingsbirgða er verulega minni en áður
var talið að yrði Tekjur af útflutningi
verða um 4 400 milljónum lægri en
áður ha'fði verið áætlað og munu þá
nema um 49 milljörðum Þetta er 6%
magnlækkun frá fyrri áætlunum og
4% meiri verðlækkun útflutningsverð-
mæta en áætlað hafði verið Auðsætt
er að slíkt hefur sín áhrif. Ég undir-
strika, að þetta eru enn spár og allar
spár geta breytzt Það er alveg aug-
Ijóst, að veiki hlekkurinn i utanríkisvið-
skiptum okkar á þessu ári er minnk-
andi eftirspurn erlendis eftir útflutn-
ingsafurðum okkar Þessi minnkandi
eftirspurn hefur þrýst verðinu það
míkið niður, að útflutningsverðið hefur
lækkað um 1 3% á fyrri hluta þessa árs
frá því sem var 1974. Menn gera sér
vonir um, að það muni draga úr
þessum lækkunum seinni hluta ársins
þannig, að lækkunin yfir árið verði um
1 1% fyrír árið i heild. Það er reiknað
með, að viðskiptakjörin rýrni um
17—18% frá árinu 1974 en þá rýrn-
uðu þau um 1 1 %
Almennur innflutningur hefur dreg-
izt saman um 9% á fyrstu 7 mánuðum
ársins en að magni til um 17%. Þessi
þróun kemur heim við spár Þjóðhags-
stofnunar á sínum tima
Þá hefur greiðslujöfnuðaráætlun
fyrir árið i heild verið endurskoðuð
Gert er ráð fyrir, að viðskiptahallinn,
þe hallinn á vöruskíptajöfnuði og
þjónustujöfnuði samanlagður, verði
um 17,6 milljarðar á árinu en var á
árinu 1974 23,3 milljarðar Ástandið
hefur þvi nokkuð skánað frá siðasta ári
að þessu leyti Þá er um að ræða
fjármagnsjöfnuð en þar er átt við lán
sem tekin eru erlendis Á þessu ári
koma inn meiri erlend lán en i fyrra eða
um 19 milljarðar Af þeim fara í af-
borganir fyrri lána um 6,2 milljarðar.
Nettó innkomin lán hafa i för með sér,
þegar þau eru dregin frá viðskiptahalla
að upphæð 1 7,6 milljarðar, að áætl-
aður halli á greiðslujöfnuði á þessu ári
er um 2.500 milljarðar. Þessi mis-
munur er jafnaður með lántökum. Það
getur verið réttlætanlegt að taka lán og
flest ganga þau til nauðsynlegra fram-
kvæmda, til skipakaupa og flugvéla-
kaupa En samt sem áður hljóta þvi að
vera takmörk sett, hversu iangt er
hægt að ganga á þessari braut. En til
hughreystingar skal þess getið, að
þetta er 5,9 milljörðum hagstæðari
útkoma en á árinu 1974. En útkoman
er samt óhagstæðari en gert var ráð
fyrir í áætlunum fyrr á þessu ári Þess
vegna hefur heldur hallað á ógæfu-
hliðina I þessum efnum. Þéssi halli á
viðskiptajöfnuði þýðir, að þjóðin eyðir
um 10% meira en hún aflar, en á árinu
19 74 eyddi hún 12% meira en hún
aflaði
Afborganir af erlendum lánum
aukast að mun á næstu árum.
Greiðslubyrðin breytist úr 1 1,4%
1974 I nær 15% á þessu ári. Þvi er
spáð, að þessi greiðslubyrði geti verið
komin upp ! 20% 1979 en þá fer 5
hver gjaldeyriskróna í greiðslú afborg-
ana og vaxta Ef greiðslubyrðin er
reiknuð út sem hlutfall af þjóðarfram-
leiðslu, nam hún 24,3% 1974 en er
áætluð I ár 26,3%.
Áætlað er, að gjaldeyrisstaðan muni
rýrna um 2.500 milljónir króna i ár.
Gjaldeyrisviðskípti viðskiptabankanna
sjálfra falla ekki beint saman við þetta
Fleira kemur inn I þá mynd Þær tölur
eru mjög breytilegar. I apríl, mai og
júní var niðurstaðan jákvæð Þá kom
meiri gjaldeyrir inn i gjaldeyrisbankana
tvo en þeir seldu. Þetta snerist við í júll
en i ágúst varð staðan aftur jákvæð en i
september allmikið fyrir neðan strikið
Þetta leit skuggalega út um tima og
lítið kom inn af gjaldeyri lengi vel, en
fróðir menn segja mér, að september-
mánuður sé jafnan erfiður að þessu
leyti Þess vegna er gleðilegt, að geta
sagt, að við mánaðarlokin var staðan
sæmileg, þar sem síðasta dag
mánaðarins kom inn gjaldeyrir að
upphæð 565,9 milljónir króna i Lands-
bankann og Útvegsbankann en út fóru
aðeins 287 milljónir. Þetta er auðvitað
mikill barningur en ekki er samt
ástæða til að örvænta
KJARAMÁL
f kjaramálum ríkir mikil óvissa um
þessar mundir. Opinberir starfsmenn
hafa sett fram sínar kröfur. Þeir eru i
þremur hópum, B.S.R.B., BHM og
læknarnir. Kröfur þessara aðila eru
mjög mismunandi en samkvæmt þeim
er um verulegar hækkanir að tefla
Þessi mál eru nú komin á það stig að
þau eru að fara til sáttasemjara Auk
kaupkrafna setja opinberir starfsmenn
ofarlega á blað kröfuna um verkfalls-
rétt. Þessi mál eru nú i deiglunni en ég
verð að segja það, að I mörgum til-
vikum eru þessar kröfur óhóflegar og
ósanngjarnar En ekki má loka augun-
um fyrir þvi, að ýmsir hópar opinberra
starfsmanna þurfa að fá leiðréttingar
Alþýðusamband íslands hefur ekki
enn lagt fram sinar kröfur, þær munu
nú I undirbúningi og verða væntanlega
lagðar fram 1 næsta mánuði. En fyrir-
sjáanlegt er. að geysileg óvissa mun
rikja um áramót hvernig mál muni
skipast. Rikisstjórnin hefur það hlut-
verk i sambandi við samninga Alþýðu-
sambandsins og Vinnuveitenda-
sambandsins að standa fyrir upplýs-
ingasöfnun Það skiptir miklu, að þess-
ir aðilar geti vertð sammála um, að
þær upplýsingar séu réttar. Ég held, að
það sé Ijóst að hækkanir verði ein
hverjar. En það skiptir máli, að þær
verði raunsæjar og hóflegar og
miðaðar við greiðslugetu, En eins og
haldið var á málum af Alþýðu-
sambandinu s.l vor tel ég, að þetta
geti allt farið skaplega, ef verkalýðs-
samtökin sýna sömu ábyrgðartilfinn-
ingu og þá.
AFKOMA ATVINNUVEGANNA
Á hinn bóginn verður að líta á það,
að afkoma atvinnuveganna er ákaflega
þröng. Því er spáð, að framleiðslu-
magn í landbúnaði muni minnka um
3% en þá er þess að geta, að horfið er
frá geysiháum toppi á síðasta ári Talið
er, að magnaukning i sjávarútvegi
verði um 2%. Iðnaðarframleiðslan
verður um 3% minni en I fyrra. Þar
munar mest um álið, en líklega verður
framleiðslan um 1% minni í almenn-
um iðnaði. Talið er að byggingarstarf-
semin muni dragast saman um 1% I
almennum byggingum verður sam-
dráttur, en aukning í opinberum fram-
kvæmdum. Það er erfitt að spá um
afkomu atvinnuveganna og líta verður
á, að allar tölur eru meðaltalstölur en
talið er, að afkoma landbúnaðarins geti
orðið sæmilega góð á þessu ári. Um
sjávarútveginn er það hins vegar að
segja, að útkoman er ákaflega misjöfn
Frystiiðnaður og fiskvinnsla standa
mjög erfiðlega Þar verður halli, þótt
stórfé hafi komið úr verðjöfnunarsjóði
og hann muni ganga til þurrðar á
árinu. En í saltfiski og herzlu verður
afkoman góð Þar verður um allveru-
legan hagnað að ræða. Erfitt er að
segja til um mjölvinnsluna Fiskimjölið
er í mjög lágu verði, en það kann að
fara svo, að um einhverja hækkun
verði að ræða, en við rikjandi aðstæður
er loðnuvinnsla erfið og ekki hægt að
sjá fyrir neinn bata i þessum efnum.
Ástandið i útgerðinni er mjög mis-
jafnt Stóru togararnir eru reknir með
miklum halla, en honum er mætt með
greiðslum úr rikissjóði á þessu ári.
Minni togararnir komast yfirleitt sæmi-
lega af, þó er það misjafnt Bátaflotinn
á við mikla erfiðleika að etja og í heild
verður ekki annað sagt, en útvegurinn
standi mjög tæpt, Ef ekki er hægt að
gera sér vonir um breytingu til
batnaðar I verðlagi eða afla er auðsætt,
að sjávarútvegurinn verður ekki vel
undir það búinn að mæta miklum
hækkunum á útgjöldum. Ég býst við,
að iðnaðurinn i heild sinni muni standa
svipað eða jafnvel skár en I fyrra Hann
bjargast þess vegna, nema kannski
viðgerðariðnaðurinn. Sumar greinar
útflutningsiðnaðar hafa sýnt góða
afkomu Ég hygg, að verzlunin verði
með svipaða afkomu og undanfarin ár
og betri afkomu en I fyrra
AFKOMA LAUNÞEGA
Kauptaxtar allra launþega munu I
peningum hækka um 27% frá árinu
1974 en meðaltalskauphækkanir eru
um 48% eins og áður var getið Þetta
sýnir, að um verulega kaupmáttarrýrn-
un er að ræða á þessu tímabili. Nemur
hún sjálfsagt 13—14% eða jafnvel
meiru Þess vegna er ánægjulegt að
geta sagt hér, að reiknað er með þvi
að verðlagið muni standa á rauða
strikinu 1. nóvember, eða 477 stig-
um, Það sýnir, að raunsætt viðhorf
hefur verið lagt til grundvallar I samn-
ingunum s I. vor
HVAO ERTILRÁÐA?
Úrræði við þessum vanda liggja ekki
á lausu Ég tel, að það þurfi að skoða
vandlega niðurfærsluleiðina svo-
nefndu. Það er ekkert hægt að
fullyrða um hana fyrr en að undan-
genginni nákvæmri skoðun. Hún
er erfið í framkvæmd en ég
held, að það geti verið nauðsynlegt
að feta sig niður þennan stiga
en ekki i stórum stökkum heldur
taka litla áfanga I senn Við verðum að
sýna áframhaldandi aðhaldssemi I
verðlagsákvörðunum t.d i verðlagi
opinberrar þjónustu, I fjármáium hins
opinbera og framkvæmdum og lána-
málum Við verðum að stefna að þvi að
hætta að lifa um efni fram Við getum
ekki haldið þvi áfram um ótak-
markaðan tíma.
Er hægt að bæta gjaldeyrisstöðuna
með innflutningstakmörkunum? Ég
held að það verði ekki gert Það er
óheilbrigð stefna að byggja á slíku.
Við höfum fengið að kynnast þvi að
undanförnu, hvernig er að
mæta slikum hömlum í þeim löndum
sem við þurfum að selja okkar vörur
til, bæði á Spáni og Portúgal þar
sem innborgunargjöld hafa verið
lögð á og aðrar óbeinar innflutnings-
takmarkanir. Við getum ekki
komizt upp með það einir að grípa til
slikra ráðstafana. Frelsi I viðskiptum er
mikils virði fyrir þjóð eins og
okkur, sem á svo mikið komið undir
utanríkisviðskiptum. Við verðum
hins vegar að gæta hófsemi í þessum
efnum Það höfum við gert og það
verður gert en til annarra og róttækari
ráðstafana verður ekki gripið nema
eitthvað nýtt komi til. Við verðum að
búa iðnaðinn þannig úr garði. að hann
geti mætt erlendri samkeppni Auð-
vitað er sjálfsagt, að (slendingar kaupi
islenzkar vörur, ef á milli er að velja.
Og ég tel, að það megi ná verulegum
árangri i þeim efnum með sálfræðileg-
um áróðri. Þar þurfa fjölmiðlarnir að
koma til en engar nýjar hömlur verða
settar á
Það verður heldur ekki gripið til
gengisfellingar Það er búið að þraut
reyna þá leið Við höfum oft fram-
kvæmt gengisbreytin’gar og það er
ómótmælanlegt, að þær hafa átt rikan
þátt I að spenna verðlagið upp Þær
hafa aldrei borið árangur nema i stutt-
an tíma nema aðrar aðstæður hafi
breytzt jafnhliða. Og það er heldur ekki
ástæða til gengisbreytingar vegna
þess, að gengið hefur verið stöðugt
En hvernig á þá að bjarga atvinnu-
vegunum? Erlendar skuldir eru orðnar
svo háar, að það er enginn búhnykkur i
því að fella gengið Erlendur kostnaður
framleiðslutækjanna er líka orðinn svo
mikill, að það dugar ekki að grípa til
gengisfellinga En hvaða stjórn getur
frekar ráðið við þennan efnahags-
vanda, en samstjórn tveggja stærstu
þingflokkanna með yfirgnæfandi meiri-
hluta þjóðarinnar á bak við sig?
LANDHELGISMÁL
Enginn-árangur hefur orðið af við-
ræðum við Breta og Belga en það er
allt annað að tala við Belga en Breta og
allt önnur tilboð sem Belgar hafa
komið fram með en Bretar, sem töldu
íig geta haldið áfram I sama dúr og
áður Þeir hafa fengið sinn aðlögunar-
tima og þeir geta ekki fengið neitt sem
nálgast það sem þeir hafa haft Ég tel
engar líkur á, að samningar geti tekizt
við Breta fyrir 1 3. nóvember um veiðar
innan 50 mllna eða 200 mllna og það
virðist langt frá þvi, að Bretar vilji
samkomulag Ég tel, að við eigum að
reyna með öllum tiltækum ráðum að
friða 50 milurnar fullkomlega, en að
við eigum að fylgja sömu stefnu gagn-
vart svæðinu milli 50 og 200 mílna og
við fylgdum áður gagnvart 50
milunum og vera opnir fyrir samn-
ingum um umþóttunartíma á hinu nýja
svæði. Um Þjóðverja þarf ekki að
ræða Óhugsandi er að semja við þá,
meðan þeir halda uppteknum hætti. En
i þeim efnum biðum við skýrslu frá
utanrikisráðherra, þegar hann kemur
heim.
Þótt ég telji, að ekki komt til samn-
inga fyrir 1 3. nóvember tel ég rétt, að
viðfæður fari fram. Það er ekki stætt á
þvi fyrir okkur að neita ,þeim og við
verðum að halda á okkar málum af
festu og gætni og vera opnir fyrir
skynsamlegum rökum Útfærslan 1
200 milur kemur til framkvæmda hinn
15 október n.k. Það verður erfitt að
verja þetta svæði, en við verðum að
kosta þv! til sem það kostar. Við
verðum að vona, að Bretar geri ekki
tilraun til þess að fara inn fyrir 50
milurnar á ný en verðum að vera við
þvi búnir að til átaka geti komið
LANDHELGISGÆZLAN
Landhelgisgæzlan er þess vanbúin
að taka á sig þetta verkefni en hún
hefur þó betri skipakost en áður Menn
hafa verið að lýsa furðu sinni yfir því,
að landhelgisgæzlan skuli fá sambæri-
lega flugvel við þá sem hún hefur haft
Menn hafa gert svo litið úr sér að
Framhaltl á bls. 20
að nema staðar
og rifa seglin"