Morgunblaðið - 03.10.1975, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. OKTÖBER 1975
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
kaup — sala
100 ára gamalt
faktorsskatthol
íslenzk smíð úr mahogny í óðafinnanlegu ,
standi til sölu. 14 —18 skúffur og renni-
lok. Uppl síma 26086 eftir kl. 4 í dag.
Lóð
280 fm byggingarlóð í gamla bænum til
sölu með samþykktum teikningum.
Tilboð sendist augl.d. Mbl. merkt: Lóð —
1 388 fyrir 1 0. þ.m.
Kaffibrennsluvél
til sölu. Lysthafendur sendi nöfn sín til
afgr. Morgunblaðsins fyrir 10. okt. merkt
„Kaffi — 2348".
Nýkomið
Acryl rúllukragapeysur 5 litir. Verð 1270.
i Ullarpeysur, rúnnað hálsmál 6 litir. Verð
2070.
Regnúlpur stórar karlmannastærðir Verð
2139
Andrés Skólavörðustíg 22
Kjöt og matvöruverslun
(Kjörbúð) til sölu
í Austurbænum.
Mánaðarvelta er ca. 2,5—3 m Um er að
ræða rótgróna verslun með föst viðskipti.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
Látið lögmann annast fasteignaviðskipti yðar.
Ólafur Ragnarsson, hrl.,
Lögfræðiskrifstofa Ragnars Ólafssonar,
Laugavegi 18,
sími 22293.
Loftpressa — loftpressa
Til sölu er lítið notuð 178 lítrar/ mín, 1 40
p.s.i. max. Til sýnis Skeifunni 1 9.
bátar — skip
29 tonna skip til sölu
skipið er í góðu standi og t.b. á veiðar.
Handfærarúllur, kraftblökk og rækju-
búnaður fylgja. Verð kr. 10 millj. með
útb. kr. 3 millj. Uppl. í síma 21296 á
skrifstofutíma og 94-21 22.
*Stít THE OBSEKVER iStít THE OBSERVER iSttí THE OBSERVER iStíí THE OBSERVER *Stíí THE OBSERVER dtít. THE OBS
Eftir
Roy
Brunton
Könnun, sem Sameinuðu
þjóðirnar hafa látið gera á
„hvftri þrælasölu" í heiminum,
hefur Ieitt í ljós, að einkum er
um að ræða fjórar „verzlunar-
leiðir“ sem mangararnir nota
til að senda ungar stúlkur á
markað.
Nýlega var haldin f Genf 26.
ráðstefna Mannréttindanefnd-
ar Sameinuðu þjóðanna um
ráðstafanir gegn mismunum og
verndun minnihlutahópa.
í skýrslu frá alþjóðalögregl-
unni Interpol kom fram, að
konur frá 17 löndum eru fluttar
milli landa undir því yfirskini,
að þær gegni ákveðnum tiltekn-
um störfum. Sumar þeirra eru
vændiskonur að atvinnu, en
aðrar hafa f barnaskap og fé-
græógi látið leiðast eða kúgast
til þátttöku í vændislifnaði.
Á hinn bóginn munu flestar
kvennanna á „hvfta þræla-
sölumarkaðnum" starfa af
frjálsum og fúsum vilja. Nú á
tfmum eru mjög fá dæmi um
stúlkur, sem rænt hefur verið
með valdi og fluttar á milli
landa. En f skýrslu, sem unnin
er af Mannréttindanefnd
UNESCO kemur fram, að dul-
búin þrælasala, þ.e. að konur
séu ráðnar í einu landi sem
dansmeyjar, fjölleikastúlkur,
barþjónar o.fl. og síðan fluttar
milli landa og hrint út í vændis-
lifnað, fari fram alls staðar í
heiminum.
1 skýrslunni segir, að þessar
konur séu sér meira og minna
meðvitandi um, hvað fyrir
vinnuveitendunum vaki, þegar
ráðning fer fram. „Á hinn bóg-
inn er álitlegur fjöldi kvenna,
sem lætur ginnast af glæstum
tilboðum mangaranna, og aðrar
sem láta leiðast út f vændi,
vegna þess að þær telja sér
ófært um að sjá sér farborða á
annan hátt,“ segir í skýrslunni.
Svör, sem borizt hafa frá 70
aðildarlöndum S.Þ. leiða í ljós
að þrælasalan fer einkum fram
f ákveðnum heimshlutum og
eftir sérstökum leiðum. Konur
frá Suður-Ameríku, einkum
Argentínu eru fluttar til
Puerto Rico til Miðjarðarhafs-
landa Evrópu og Mið-
Austurlanda. Einnig er sér-
stakur „svæðismarkaður“ f
Evrópu, og er þar einkum um
að ræða franskar konur, sem
starfa f Eros-miðstöðvum f
Luxemburg og Vestur-
Þýzkalandi. I skýrslunni segir,
að tengsl virðist vera f milli
þessa svæðismarkaðar og
annarra landa, einkum Mið-
Austurlanda.
Samtök mangara senda ber-
sýnilega konur frá Evrópu til
Afríkulanda, (skýrslan tiltekur
sérstaklega Fílabeinsströndina
og Senegal) sem hafa náð því
stigi í þróuninni, að þau leyfa
alþjóðlega vændisstarfsemi.
Einnig er sérstakur Austur-
Asíu markaður, sem hefur á
boðstólum kvenfólk einkanlega
árið 1974 rændu tveir Norður-
Afríkumenn ungri stúlku frá
Noregi í lest milli Brtissel og
Amsterdam. Var það ætlun
þeirra að gera hana út sem
vændiskonu, en henni tókst að
sleppa frá þeim.
Kanadamenn sögðu hins
vegar að aðeins væri vitað um
nokkrar skyndikonur,
kanadiskar og bandarfskar,
sem störfuðu beggja vegna
landamæranna. Danir nefndu
dæmi um stúlku, sem svarað
hafði auglýsingu um að sýna
hunda á sýningu. Viðtökurnar
sem hún fékk voru þær, að
þrjár konur neyddu ofan í hana
eiturlyfjum og fluttu hana
síðan til Þýzkalands. Hún
komst þó undan.
Vestur-Þjóðverjar sögðu, að á
undanförnum árum, hefði bert
orðið, að Þjóðverjar hefðu lokk-
að til landsins ungar stúlkur
samtök önnuðust oft útgerð
vændiskvenna. Hefðu kon-
urnar yfirleitt fengið vega-
bréfsáritun sem ferðamenn og
kæmu oftast í fylgd með
„umboðsmönnum". Dveldust
þær í iandinu um mánaðar-
skeið, én kæmu yfirleitt aftur
að hálfu ári liðnu. Ef vændis-
kona hefði langa viðdvöl f land-
inu, væri algengt, að mangar-
inn yrði sér úti um eitthvert
starf, svo sem þjónsstarf eða
gerðist leigubílstjóri.
Bretar sögðu, að sárafáar
konur, sem stundað hefðu
vændi í heimalöndum sfnum,
hefðu komizt til Bretlands, yfir-
leitt með því að ganga í mála-
myndahjónabönd. Hins vegar
væri vitað um 18 dæmi „dulbú-
innar þrælasölu", þ.e. að brezk-
ar konur hefðu verið fluttar á
milli landa til að stunda
vændislifnað. Hefðu þær eink-
um farið til Lfbanon, Vestur-
Þýzkalands, Italíu og Nígeríu
undir því yfirskini að starfa
sem framreiðslustúlkur. mót-
tökustúlkur á hótelum eða
gjaldkerar f spilavíti.
I aðildarlöndum Sameinuðu
þjóðanna er öll starfsemi á
þessum vettvangi stranglega
bönnuð með ýmiss konar sam-
þykktum. Á ráðstefnu Mann-
réttindanefndarinnar lögðu
afhjúpa hvíta þrœlosölu
frá Thailandi, en einnig frá
Filippseyjum, og eru þær send-
ar til ýmissa landa. I svörum
frá Libanon og Kuwait kemur
fram, að þar er ákveðinn
vændiskvennamarkaður, og
starfa þar einkum arabískar
konur.
Bandaríkin voru f hópi þeirra
þjóða, sem gáfu Mannréttinda-
nefndinni nákvæmar upplýs-
ingar um ástand mála. Þar kom
fram, að á tfmabilinu júlf
1974—júlf 1975 höfðu verið tek-
in til rannsóknar 74 mál, sem
vörðuðu við Iög gegn þræla-
haldi. I mör^um tilvikum var
um að ræða illa meðferð á
vinnukonum, sem húsbændur
höfðu í eins konar þrældómi.
Ennfremur voru dæmi um, að
vistráðendur í landbúnaði
tækju nauðugar förukonur og
fátæklinga og vistuðu þær á
bæjum, þar sem þær sættu
þrælameðferð.
Frá Argentínu bárust þær
upplýsingar, að konur utan af
landi væru einkum fluttar til
Puerto Rico og Spánar, en
sumar færu einnig til Italíu,
Tyrklands og Mið-Austurlanda,
og létust þær oft vera ferða-
menn. Væru konur úr öllum
stéttum fórnardýr þrælasöl-
unnar, en þó einkum stúlkur f
tfzkuiðnaði, dansmeyjar og fjöl-
Ieikastúlkur. Dæmi var nefnt
um mann, sem fór með dans-
flokk til Mið-Austurlanda, en er
þangað kom, tók hann vega-
bréfin af stúlkunum og neyddi
þær sfðan til vændislifnaðar.
Frá Belgíu komu þær upplýs-
ingar, að konur frá Frakklandi,
Hollandi, Vestur-Þýzkalandi,
Argentínu og Uruguay stund-
uðu vændislifnað með leynd í
Brússel. Arið 1973 voru þrjár
ungar stúlkur frá Thailandi
fluttar til Belgfu, þar sem þeím
var ætlað að stunda vændi, og
frá Hong Kong og Eþíópíu til að
gegna ýmsum störfum, og
Finnar eru um þessar mundir
að rannsaka mál, þess efnis, að
maður hafði borgað þremur
ungum stúlkum peninga fyrir
að fara til Italíu og bjóða
karlmönnum á veitingahúsum
blíðu sína.
Frakkar skýrðu frá 75
tilvikum um mansal á ámnum
1965—1973 þar sem hlut áttu
að máli 350 stúlkur. Var þar um
að ræóa þekktar franskar
vændiskonur, sem sendar
höfðu verið til nágrannalanda
og Afrfku. Eitt tilvik snerti 20
stúlkur, sem fengnar höfðu
verið til að stunda vændi í París
og DUsseldorf og Essen f Vest-
ur-Þýzkafandi. Á síðustu árum
hefur komizt upp um marga þá
aðila, sem hafa slíka starfsemi
með höndum.
Frá Luxemburg bárust þær
upplýsingar, að skipulögð
sérfræðingar áherzlu á, að sam-
tökin þyrftu að ráðast gegn
þessari ósvinnu á jafnáhrifa-
ríkan hátt og unnið hefði verið
árum saman gegn eiturlyfja-
sölu.
Samkvæmt upplýsingum
Interpol er það hins vegar ýms-
um vandkvæðum bundið að
kveða „hvfta þrælasölu" niður.
Einkum er sá hængur á, að
fórnardýrin neita venjulega
allri samvinnu við lögregluna í
viðleitni hennar við að safna
sönnurgögnum til að dæma fólk
það, sem stjórnar samtökunum.
Ástæðúrnar eru oftast þær,
að konurnar vilja halda vændis-
lifnaði áfram, vegna þess hvað
hann gefur í aðra hönd, að þær
stunda ólöglega atvinnugrein
og f þriðja lagi lifa þær í stöðug-
um ótta við mangarana.
Ennfremur eru sumar stúlk-
urnar neyddar til eiturlyfja-
neyzlu.