Morgunblaðið - 03.10.1975, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 03.10.1975, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1975 33 VEL-VAKAIMOI "Velvakandi svarar I sfma 10-100 kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu- dags % „Uppdópaðir“ ökumenn Kona nokkur hafði samband við okkur og bað um birtingu á eftir- farandi: „Tilefni þess að ég sezt við skriftir er ekki beinlínis ánægju- legt. Þannig er mál með vexti, að fyrir skömmu heyrði ég konu, mér nákunnuga, segja frá því í boði, að hún hefði nýlega ekið þrisvar i kringum Dómkirkjuna vegna þess að hún hefðu hrein- lega verið búin að gleyma þvi hvert förinni var heitið. Hún kvaðst hafa verið undir áhrifum deyfilyfja, en þegar upplýsingar voru ljður i langri og nákvæmri sjúkrasögu hennar. Hún hefur lengi verið haldin þungbærum og kvalafullum sjúkdómi, og tekur að jafnaði sterk lyf til að lina þjáningarnar. Ég leiddi ekki hugann alvarlega að þessu fyrr en nokkrum dögum síðar, en þá hitti ég aðra konu, mér sömuleiðis kunnuga i húsi. Sú mæta kona hefur um árabil verið þunglynd og taugaveikluð á köflum, og nú er einmitt einn slikur kafli i lifi hennar í uppsigl- ingu, —■ því miður. Er ekki að orðlengja það, að konan var undir áhrifum róandi lyfja þegar ég hitti hana, og það svo að i henni drafaði. Þó var ekkert rugl á henni eða neitt slíkt, og áttum við samræður um daginn og veginn góða stund. Loks sagðist hún verða að fara, og viti menn: Bíll- inn stóð fyrir utan hún steig upp i hann, settist undir stýri og hvarf þar með sjónum mínum. Nú vita bæði guð og menn, að notkun róandi lyfja og deyfilyfja er mjög almenn, og þvi má fast- lega gera ráð fyrir, að þessi tvö dæmi, sem ég rakst á með fárra daga millibili séu síður en svo sjaldgæf. Hins vegar hef ég aldrei heyrt þess getið að menn eða kon- ur hafi valdið slysum, sem hægt hafi verið að rekja til lyfjaneyzlu. Þó grunar mig, að ekki sé síður ástæða til að gefa þessu gaum en því þegar ekið er undir áhrifum áfengis. Það hlýtur þó að segja sig sjálft, að áhrif róandi lyfja og deyfilyfja hljóta að verða þau að úr við- bragðsflýti dragi, auk þess sem fólk verður iðulega utan við sig, annars hugar og á ýmsan hátt annarlegt þegar það neytir þeirra- Nú er ég alls ekki að amast við lyfjanotkun þegar þörf er fyrir hana, en að minum dómi ætti það engan að henda að stofna lifi ann- arra og sjálfra sin i hættu með því að aka undir áhrifum þeirra, frek- ar en áfengis." gera sér fyrir umhverfi sínu. — Aðeins eina mynd bað ég hana um ... hvíslaði hann. og hann virtist vera að skreppa saman fyrir augunum á þeim. — Það var ætlan hennar að standa við samninginn, þangað til hún uppgötvaði að hún var barnshafandi, sagði Watts stilli- íega. — Þetta var allt saman þessum hrokagikk, prófessornum, að kenna, hvæsti Kroneberg. — Hann hafði hana alveg f greip sinni. Watts sneri aftur að sæti sínu og settist niður. — Ég fór að finna hann fyrst og reyndi að koma vitinu fyrir hann. „Það verður hún sjálf að ákveða," sagði hann hvað eftir annað. „Mary verður að ráða þvf sjá)f.“ Hræsnin uppmáluð f öllum hans orðum. „Það skiptir engu máli hvað Mary ákveður, ég verð þvf samþ.vkkur." Lygi og aftur lygi frá upphafi til enda! Sannleik- urinn var sá að hann var afbrýði- samur út í frægð hennar og hræddur um að sneri hún aftur þangað sem hún vissulega átti heima myndi hún gcrast honum fráhverf ... og mætti segja mér 0 Happdrætti Magnús Þórðarson, Hraun- hvammi 4, Hafnarfirði skrifar: „Velvakandi. Einn er ég þeirra, sem kaupa happdrættismiða ýmissa félaga- samtaka, bæði til að styrkja þau og eins vegna þess að það gæti hent sig, að ég yrði sá, sem hnoss- ið hreppti. Nú er það svo, að fresta verður drætti í ýmsum þessara happdrætta, stundum um langan tíma, sjálfsagt vegna sölu- tregðu. Þá kemur fyrir, að ekki er hægt að birta vinningsnúmer vegna þess að innköllun á óseld- um miðum er ólokið. Dráttur þessi er oft svo langur, að margur mun vera búinn að losa sig við miðana i sorpilátið þegar vinn- ingsnúmerið er loks birt. En hvar eru vinningsnúmerin birt? Einhvers staðar á siðum ein- hvers dagblaðs. Rúsinan í pylsuendanum ætti að vera sú, að ráðuneyti það, sem happdrættisleyfin veitir, skyldi hlutaðeigendur til þess að birta vinningsnúmer í öllum helztu dagblöðum, á ákveðnum stað, svo og tilkynningar um drátt eða frestun á drætti. Sem sagt — reglu verði komið á þessi mál. Magnús Þórðarson.“ 0 Hvar er Daníel Sumarliðason? Okkur hefur borizt bréf frá Henry West, sem búsettur er að College Street 44, Cleethorpe, South Humberside i Bretlandi. Hann kveðst hafa kynnzt mörgum islenzkum sjómönnum á þriðja og fjórða áratugnum, en hann bjó þá í Grimsby, í húsi númer 2 við Knight Street. Hann var einn skipbrotsmanna á S.T. Sicyon árið 1933 og kom þá til Reykjavíkur. Einn þeirra, sem hann kynntist meðan á dvöl hans hér stóð. var maður að nafni Daníel Sumarliða- son. Henry West telur að hann hafi farið að stunda leigubilaakst- ur í upphafi stríðsins. Þar sem Henry var i hernum til striðsloka hafði hann ekki samband við vin sinn hér, en nú langar hann mjög til að grennslast fyrir um hann, og segir, að sé hann á lífi þá mun hann vera 65—70 ára. Henry bið- ur Daníel um að skrifa sér, ef hann fær skilaboðin. Henry segir ennfremur, að hann styðji íslendinga heilshugar i baráttu þeirra fyrir fiskveiðilög- sögunni. M.a. segist hann gera það af hugsjónaástæðum, — hann hafi mikinn áhuga á friðun fiski- miða og fiskirækt. 0 Tónlist unga fólksins „Tvær hundleióar" skrifa: „Kæri Velvakandi. Við erum báðar í Tónlistar- skólanum og erum auk þess félag- ar í einum ágætis kór. Það sem fer allmjög I taugarnar á okkur er afstaða rikisútvarpsins til unga fólksins. Halda þeir, sem þar stjórna virkilega, að ungt fólk hafi ekki áhuga á annarri tónlist en popptónlist? Ekki er það a.m.k. að sjá á dagskrá útvarpsins. Báðar sækjum við að staðaldri sinfóniutónleika. Þar er yfirleitt allir tónlistarfrömuðir i bænum samankomnir, og ef þeir gera sér lítið fyrir og virða fyrir sér áhorfendur, þá geta þeir séð, að áreiðanlega helmingur tónleika- gestanna er ungt fólk. Okkur finnst, að útvarpið ætti að hafa þætti með sígildri tónlist fyrir ungt fólk, ekki siður en alla þessa ömurlegu poppþætti. Poppið er ágætt til ballbrúks og í hæfilegum skömmtúm í útvarpi, en að láta þetta dynja yfir út- varpshlustendur mörgum sinnum á dag og láta sífellt svo sem unga fólkið geti ekki hlustað á annað en popp, er alltof mikið af þvi góða og hefur áreiðanlega sín áhrif á tónlistarsmekk ungra og gamalla." HOGNI HREKKVISI Blaðberar — Hafnarfjörður Blaöbera vantar í nokkur hverfi • Hafnarfirði. Uppl. T síma 50374. Kennsla hefst 10. október. Síðustu innritunardagar kl. 1—5 daglega. Sími: 32153 BALLETSKOLI SIGRIÐAR ÁRMHNN ISKÚLAGÖTU 32 - 34| Viö afgreiðum litmyndir yöar á3dögum Umboösmenn um land allt — ávallt feti framar. Hans Petersenf Bankastræti — Glæsibæ S 20313 S 82590 B3P S\G6A V/öGA £ liLVtTWW VloWlWú Ó\FIfifSf <bOáúl, Í6 07? 'ftlLLÚ OQ WrAÁL- töW UÚNáPSXÚZ 06 M£RZpbföÚQ YlEP <$pL~ UH 4 Y!ÓT\ 'öOVRl ^

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.