Morgunblaðið - 03.10.1975, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.10.1975, Blaðsíða 36
u <;I,YSINíiASIMI\\ ER: 22480 JtlaraunbTníiií) FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1975 AUdl.VsiMiASÍMINN EK: 22480 JH«r0nnbI«íiií> Háhyrningarnir drápust í sjónum Þessi mynd var tekin úr lofti um miðjan dag f gær þegar skipverjar á Arna Friðrikssyni voru að búa sig undir að ná háhyrningskúnni um borð, en þarna sést hún rása í sjónum við skipshlið Árna föst í löngum nælonkaðli. Sjá grein á bís. 3. Ríkisskattstjóraembættið rann- sakar ástæður skattamótmæla í Súlu SlÐLA dags i gær varð vart við hlaup ( Súlu og var talið að það kæmi úr Grænalóni. — Við vitum ekki enn hversu mikið hlaup þetta er, sagði Sigurjón Rist, vatnamælingamaður, er Morgun- blaðið hafði samband við hann f gærkvöldi. — Ef um er að ræða mikið hlaup gæti Súlubrú verið f hættu, en enn sem komið er höf- um við ekki séð ástæðu til að fara austur á sanda. Það var Sigurður Björnsson á Kvískerjum, sem fyrstur varð var við vatnavöxtinn í ánni og var það síðdegis í gær. Um kvöldmatar- leytið hafði vatnsmagnið rénað á ný, en náið var fylgzt með breyt- ingum á rennsli árinnar í gær- kvöldi og vaktmaður var þar í alla nótt. Sigurjón Rist sagði, að Græna- lón ryddi sig á hverju ári og hefðu hlaupin í Súlu verið frá 2—5000 teningsmetra árlega. í fyrra hefðu hlaupin verið mörg en smá þannig að þau hefðu ekki haft skemmdir á mannvirkjum í för með sér. — Við getum ekkert sagt um stærð þessa hlaups að svo komnu máli, sagði Sigurjón, en sumarið I sumar var mikið vatns- sumar, þannig að ef Grænalón ryður sig skyndilega og allt vatns- magnið kemur í einu getur orðið um mjög mikið hlaup að ræða. Vegna undirskriftasafnana í Bol- ungarvík, Hveragerði og í Borgarnesi tBÚAR f Bolungarvfk, f Borgar- nesi og Hveragerði hafa að undanförnu safnað undirskrift- Engar hindranir á símtölum við Spán í gær BSRB og ASl beindu þeim til- mælum til félagsmanna sinna f gær að afgreiða ekkert er lyti að samgöngum við Spán, sfmtöl eða póst f tvo daga, en f samtali við Olaf Hannibalsson skrifstofu- stjóra ASt sagði hann, að þetta væri liður f alþjóðlegum mótmæl- um gegn Ifflátsdómunum á Spáni. Engar flugferðir áttu að vera til Spánar í gær og ekki heldur í dag, en símaþjónusta var með eðlileg- um hætti milli íslands og Spánar í gær eftir því sem sfmastúlkur á talsambandinu tjáðu okkur, en þær höfðu þá ekki fengið nein tilmæli um að sinna ekki slíkri þjónustu við Spán. um til þess að mótmæla misræmi í greiðslum skatta og útsvars og jafnframt hefur verið óskað eftir rannsóknum í þessum málum. Hafa þessi mótmæli verið send rfkisskattstjóraembættinu og fjármálaráðuneytinu. Ólafur Nilsson, skattrannsókna- stjóri, sagði f samtali við Morgun- blaðið í gær, að áformað væri að gera athugun á ástæðum f þessum þremur bæjum fyrir þessum beiðnum og taldi Ólafur, að Ifk- lega yrði einnig reynt að sam- ræma rannsóknina og leita eftir hliðstæðum á stöðunum. Sagði Ólafur að innan tfðar yrði tekin afstaða hvernig þessu yrði hagað og hvenær rannsóknin hæfist. Sagt hefur verið frá undir- skriftasöfnunum í Bolungarvík, en Sveinn Sveinsson, skattsjjóri á ísafirði, tjáði Mbl. í gær, að embætti hans hefði sent undir- skriftalistana frá Bolungarvík nú í vikubyrjun til rikisskattstjóra og fjármálaráðuneytisins, en listarnir voru með 50 nöfnum af 482 útsvarsskyldum í Bolungar- vik og þar af greiða 250 tekju- skatt. I Borgarnesi var safnað undir- skriftum tæplega 300 borgara á þremur kvöldum og voru listarnir sendir til ríkisskattstjóra fyrir einum mánuði. önnur forsvarskona undir- skriftasöfnunarinnar í Borgar- nesi, Arnþrúður Jóhannsdóttir, sagði í samtali við Mbl.: „Okkur datt þetta f hug tveimur konum hérna af því að okkur finnst geysilegt misræmi f greiðslu út- Það er þó rík ástæða fyrir fólk á aldrinum í kring um 30 ár og þar yfir að huga að endurbólusetn- ingu því þarna er m.a. fólk, sem hlaut fyrstu bólusetningu á þess- um fyrstu árum er efnin voru ekki nógu góð. Þarna tel ég aó séu hópar fólks sem yrðu illa settir ef eitthvað alvarlegt kæmi upp í þessum efn- um og það erú ýmsar leiðir opnar eins og ferðum íslendinga er nú háttað. Til dæmis fer mikill fjöldi fólks til Spánar og jafnvel yfir til Afríku, en á Spáni er mikið um músataugaveiki og aðrar bakterí- ur sem valda slæmum magakveis- um og niðurgangspestum. Reynd- ar berast í hverri viku bakteríur til rannsóknar sem í fiestum til- vikum má rekja til fólks sem er nýkomið frá Spáni eða Kanaríeyj um. Berst reyndar anzi mikið af bakterfum sem eru svo gott sem landlægar hér og valda hastarleg- um niðurgangi. Þessar „suðrænu" bakteriur berast með saur og vatni eða matvælum þar sem fyllsta hreinlætis er ekki gætt og í sjó berast þessar bakteríur einnig með saurnum. Þessar bakteríur hafa sömu smitleið og mænuveiki og því ber að gæta allrar varúðar í þessum efnum, en það hjálpar vissulega að i heild erum við til- tölulega vel varin.“ 62 ára kona lézt í bílslysi SEXTlú og tveggja ára kona lézt af völdum áverka, er hún hlaut í gærmorgun, er bifreið ók á hana á Kringlumýrarbraut á móts við Nesti. Konan var að fara vestur yfir Kringlumýrarbrautina, en bifreiðin, sem ók á hana var á leið norður brautina á vinstri akrein. Konan var þegar flutt f slysadeild Borgarspftalans, þar sem hún lézt um klukkustundu sfðar. Slysið varð klukkan 08.10 í gær- morgun. Konan, sem bjó í Kópa- vogi var á leið til vinnu sinnar í Reykjavík. Hún lenti fyrir hægra framhorni bifreiðarinnar, sem var af gerðinni Cortina og barst með henni nokkurn spöl, unz hún féll hægra megin aftur af henni og í götuna. Ekki er unnt að birta nafn hinnar látnu að sinni, vegna ætt- ingja sem ekki hafði náðst til í gærkveldi. svara og skatta og svo hefur verið lengi. Við létum iista ganga í þrjú kvöld og alls rituðu 276 manns nöfn sín á listana, en hér eru um 600 útsvarsgreiðendur. Þetta sendum við síðan til Rannsókna- deildar ríkisskattstjóra fyrir mán- uði siðan, en þess má geta að eftir að við sendum listana að lokinni þriggja kvölda söfnun, höfðu margir samband við okkur og vildu rita nöfn sfn á þá.“ Meðfylgjandi er hausinn á undirskriftalistunum: Framhald á bls. 20 Búið að salta í 8500 tunnur í GÆR var búið að salta alls um 8500 tunnur af sfld á landinu, en þar af voru 4500 tunnur hjá nóta- bátum og um 4000 tunnur hjá reknetabátum. Aðeins einn bátur fékk sfld í fyrrinótt. Var það Jón Garðar með 350—400 tunnur í Reynisdýpinu. Ónæmi gegn lömunarveiki: Fjöldi fólks þarf endurbólusetningu Mikið af magakveisubakteríum berst frá Suðurlöndum „ÞAÐ ER greinilegt, að ónæmisástand lslendinga gegn mænuveiki hefur farið batnandi með árun- um,“ sagði Margrét Guðnadóttir prófessor f samtali við Morgunblaðið f gær, en hún hefur frá 1957 fylgzt náið með ástandinu f þessum málum. „Fyrstu árin,“ hélt hún áfram, „eða fram til 1960, voru bóluefnin mjög lélcg. Kom það í ljós við mælingar, sem við gerðum á Keldum. Aður en bólusetning gegn mænuveiki hófst um 1957 mæld- um við mótefni f fólki, sem ekki hafði verið bólu- sett og sfðan aftur eftir að það hafði verið bólusett tvisvar. Þessar mælingar leiddu f Ijós, að fyrstu árin var bóluefnið ekki gott, en eftir 1960 hefur það farið mjög batnandi og um leið hefur ónæmisá- standið f heild farið batnandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.