Morgunblaðið - 27.11.1975, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.11.1975, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÖVEMBER 1975 Engir dansleikir í Tónabæ á laugardögum til áramóta AKVEÐIÐ hefur veriö að dans- leikir verði ekki í Tónabæ á laugardagskvöldum fram til ára- móta. Hins vegar verða áfram dansleikir fyrir unglinga fædda 1960 og eldri á föstudagskvöldum frá 21 til 1 en lokunartíma hússins var fyrir nokkru breytt og er gestum nú ekki hleypt inn f húsið eftir klukkan 22.30 á föstu- dagskvöldum. Aðspurður sagði Omar Einars- ’ son, forstöðumaður Tónabæjar, að ástæðan fyrir þessari breyt- ingu væri minnkandi aðsókn síð- ustu vikur, einnig væru próf nú almennt að byrja í gagnfræða- skólum. „Það ætti þvf að vera nægjanlegt framboð að hafa opið einu sinni í viku, og ég hef hug á að hafa góðar hljómsveitir á föstudagskvöldum fram til ára- móta og næsta föstudag verður Paradís f húsinu," sagði Ómar að lokum. loka hurðunum Gleyma að Siglufirði 25. nóvember. NOKKUÐ algengt er að bílstjórar, sem aka um Strákagöngin skilji hurð- irnar á göngunum eft- ir opnar. Þetta er mjög slæmt vegna þess, að þá nær að skafa inn í göngin og við það myndast svell við opið. Að sögn vega- gerðarmanna hér, þá væri alveg hægt að losna við þetta svell, ef bílstjórar hefðu hugfast að loka göngunum jafnan á eftir sér, þegar þeir eiga leið um. — mj. góð matarkaup: 1 lítrí kostar kr. 185.- Það eru góð matarkaup í Emmess ís. í hverri 60g sneið eru eftirtalin næringarefni: Vítamín A i.e. 220 Vítamín D i.e. 6 Vítamín B1 ug. 27 Prótin g 2,7 Vítamín B2 ug. 120 Hitaeiningar 102 OTROENA Getum boðið nokkra bíla af gerðinni CX á mjög hagstæðu verði eða frá G/obusi kr. 2.070.000 — ef samið er strax LAGMÚLI5, SÍMI81555 Hraðar framkvæmd- ir — ekki harðar t FRÉTT Mbl. í gær um ályktun fiskiþings, sem bar fyrirsögnina „Sjávarútvegur og óðaverðbólga", urðu þau mistök að talað var um „harðar framkvæmdir" þar sem átti að standa „hraðar fram- kvæmdir". Rétt er málsgreinin öll þannig: „Hinar gífurlegu framkvæmdir Jasskvöld í Skiphóli JASSKLUBBUR Hafnarfjarðar verður með sérstakt jasskvöld í Skiphóli f kvöld frá kl. 9 til 1. Enskur jasspíanisti, Ronald Kel- brick, leikur ásamt Guðmundi Steingrímssyni, Njáli Sigurjóns- syni og Lindu Walker. Einnig verður jammsession og er vonast til að ungir jass- og rokkhljóm- listarmenn komi og jammi með. Frá Ekkna- sjóði Rvk EKKNASJÓÐUR Reykjavíkur var stofnaður 1. marz 1890 af nokkrum kunnum Reykvíkingum á þeirri tíð. Sjóðurinn bætti úr brýnni þörf og nutu margar ekkjur styrks úr honum, þegar árin liðu. En um þennan sjóð hefur farið eins og marga aðra sjóði, að hann hefur farið minnkandi í hinu mikla verðbólguflóði sfðustu ára og aðrar stofnanir hafa tekið við hlutverki hans að mestu leyti. Aðalfundur Ekknasjóðsins verður haldinn f Dómkirkjunni (uppi) föstud. 28. nóv. kl. 8.30. á vegum hins opinbera síðustu þrjú árin, sem margar hverjar eru óarðbærar, hafa verið mjög verðbólguaukandi. Einnig hafa yfirboð í kaupgjaldsmálum hjá ríkinu sjálfu, miklar og hraðar framkvæmdir á vegum þess, stuðl- að að hinu sama.“ Vill slit á stjórnmála- sambandi við Breta FUNDUR, sem haldinn var á vegum Framtíðarinnar, mál- fundafélags Menntaskólans í Reykjavík, f kjallara Casa Nova 25. nóvember s.l. sendi frá sér cftirfarandi samþvkkt: „Árás Breta á Island er brot á varnarsamþykkt Evrópu- ríkja, sem samþykkt var á ráð- stefnu allra Evrópuríkja fyrr á þessu ári. Við hvetjum íslensku ríkisstjórnina til þess að slíta þegar i stað stjórn- málasamttandi við Breta, kalla sendiherra Islands i London heim, og vísa breska sendi- herranúm úr landi. Einnig að ekki verði samið við Breta með herskip f íslenskri fiskveiðilög- sögu. Árás þessi, sem látin er afskiptalaus af bandalagsríkj- um íslands og Breta í N.A.T.O. sýnir að bandalagsríkin lýsa þegjandi samþykki yfir árás Breta. Telur fundurinn því að Ioka beri herstöð Bandaríkj- anna á Miðnesheiði um óákveðinn tíma.“ Tré- og málm- gardínustangir í mörgum stæröum PÓSTSENDUM Mölning & Járnvörur Laugavegi 23 • Símar 1-12-95 & 1-28-76 • Reykjavík <&*&*** Veitingahús, mötuneyti, sjúkrahús Eigum fyrirliggjandi eða erum að fá á næstunni í stórum umbúðum: Gu/rótarteningar Heilar gu/rætur litlar Grænar baunir Snittubaunir Aspargus Ananas Cectail ávextir Niðursoðnir tómatar. Ferskjur ífCarrihTm l Miiylioltsrceyi 82 Riykjavik Sin/i 8.10/8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.