Morgunblaðið - 27.11.1975, Side 20

Morgunblaðið - 27.11.1975, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÖVEMBER 1975 Sovézkum listamanni „boðið” að fara úr landi Moskvu 26. nóv. Reuter. EINN þekktasti andófslistmálari í Leningrad, Igor Sinyavin, sagði í dag að stjórnvöld hefðu óvænt kvatt hann á sinn fund I gær og boðizt til að láta hann fá vega- bréfsáritun til ísraels, enda þótt hann væri ekki Gyðingur og hefði ekki leitað eftir leyfi til að fara til ísraels. Sinyavin sagði frétta- mönnum þetta símleiðis og sagð- ist hafa orðið þrumulostinn, en hann hefði fallizt á að fara og myndi hann hverfa úr landi eins fljótt og unnt væri. Sinyavin er 37 ára. Hann hefur átt verk á ýmsum „ósamþykkt- um“ listsýningum í Leningrad sl. ár en var meinuð þátttaka í sýn- ingu þeirri, sem opinbert leyfi var fyrir þar í borg í september sl. Hann sagði að engin vandkvæði væru á því að kona hans og tvær dætur fengju að fara. með honum og hygðist hann flytjast til Banda- rfkjanna. Unga fólkið og Norðurlönd I VOR voru stofnuð samtök ungs fólks innan Norræna félagsins. Tilgangur samtakanna er m.a. að miðla upplýsingum til félags- manna sinna og hinna ýmsu sam- taka ungs fólks á íslandi um starf og fyrirætlanir ungs fólks á Norðurlöndum, skipuleggja nám- skeið og fundarhöld í tengslum við félög ungs fólks norrænu félaganna. I dag, fimmtudag 27. nóvember, halda samtökin félagsfund í Norr- æna húsinu kl. 20.30, þar sem starf samtakanna hér og á Norðurlöndunum verður meðal annars kynnt og rætt. Sýndar verða kvikmyndir frá Norður- löndum. Nýir félagsmenn eru velkomnir. — Mótmæla Framhald af bls. 2 ljós þegar allar stjórnmálalegar ákvarðanir hafa verið teknar í þessu máli. Reykjavík, 26. nóvember, 1975. Jakob Jakobsson Eyjólfur Friðgeirsson Hjálmar Vilhjálmsson Sólmundur Einarsson Ingvar Hallgrfmsson Guðni Þorsteinsson Ölafur K. Pálsson Þórunn Þórðardóttir Gunnar Jónsson Sveinn Sveinbjörnsson Kjartan Thors Unnur Skúladóttir Jón Ölafsson Unnsteinn Stefánsson Sent: Alþingi íslendinga Sjávarútvegsráðherra Fjölmiðlum Athugasemd Jóns Jónssonar Bréf það sem hér um ræðir er svar við beiðni Sjávarútvegsráðu- neytisins um umsögn Haf- rannsóknastofnunarinnar frá fískifræðilegu sjónarmiði um það aflamagn, sem Vestur- Þjóðverjum á að vera heimilt að taka á Islandsmiðum á ári hverju næstu tvö árin, svo og önnur ákvæði í þeim samningsdrögum, sem lögð hafa verið fram á Alþingi. Eg tek strax fram í bréf- inu, að ekki sé mikið til skipt- anna, ef gerðar verða þær frið- unarráðstafanir, sem Haf- rannsóknastofnun telur nauðsyn- legar til viðhalds íslenzku fisk- stofnanna og nauðsynlegt sé að draga úr veiði útlendinga svo sem frekast er kostur. Þó eru þessi samningsdrög sérstök að því leyti, að hér er svo til eingöngu um að ræða veiði tveggja tegunda, ufsa og karfa en það eru hvorttveggja stofnar, sem ekki eru í eins mik- illi hættu og þorskstofninn. Enda er það mikilvægasta ákvæði þessa samnings, að Vestur-Þjóðverjar skuldbinda sig til þess að taka ekki meira en 5000 tonn af þorski á næsta ári. Þá er í samningnum þýðingarmikið ákvæði um, að Vestur-Þjóðverjar virði lokun uppeldis- og hrygningarstöðva, stækki möskvastærð til samræmis við tslenzkar reglur og hækki lág- marksstærð á fiski sem landa má til samræmis við fyrirhugaða íslenzka reglugerð. Allt eru þetta hrein fiskifræðileg atriði, sem ég tel miklu varða og eðlilegt að metin séu af hálfu Hafrannsókna- stofnunarinnar og af þeim sökum tel ég þetta skárri lausn en að Vestur-Þjóóverjar haldi hér áfram veiðum á sama hátt og hingað til, jafnvel með möskva- stærð sem engu þyrmir og við höfum enga leið til að hafa eftirlit með. Ég tel, að bréf mitt sé hreint faglegt mat á þeim valkostum, sem fyrir hendi eru, og mótmæli eindregið að annað liggi á bak við. — Bruninn Framhald af bls. 1 son, eigandi sportvöruverzlunar- innar Goðaborgar. Gekk Kristján að sögn sjónarvotta mjög vasklega fram við björgunarstarfið, fór strax óvarinn inn I reykhafið á rishæð hússins og mun hafa verið á leið út með einn mannanna er fórust í þann mund sem reyk- kafarar slökkviliðsins komu á vettvang og aðstoðuðu hann. Kristján var hins vegar á eftir fluttur i slysadeildina, þar sem hann kvartaði undan þyngslum fyrir brjósti. Kristján reyndist hafa verið þar veill fyrir ogltom í ljós að hann hafði ekki þolað áreynslu björgunarstarfsins, því að í gærkvöldi var hann kominn á gjörgæzludeild Borgarspítalans. Morgunblaðinu tókst hins vegar ekki að afla sér frekari upplýs- inga um líðan Kristjáns í gær- kvöldi. Þá slasaðist einnig ung lögreglukona, Arnþrúður Karls- dóttir, sem var við gæzlu og umferðarstjórn framan við Óðins- götu 4. Hafði kaðall verið strengd- ur framan við húsið til að halda forvitnum vegfarendum í hæfi- legri fjarlægð, en þá tókst ekki betur til en svo að sjúkrabifreið sem kom aðvífandi ók á kaðalinn. Arnþrúður stóð við kaðalinn og þegar sjúkrabifreiðin ók á kaðal- inn slitnaðí hann en vafðist utan um handlegg Arnþrúður með þeim afleiðingum að hún hand- leggsbrotnaði. Var gert að meiðsl- um hennar í slysadeildinni i gær- kvöldi. Að því er varðstjóri hjá slökkvi- liðinu tjáði Morgunblaðinu stóðu eldtungurnar upp um þakglugga hússins Öðinsgötumegin, þegar allt slökkviliðið borgarinnar kom þar á vettvang um kl. 18.50 í gær- kvöldi. Var þá þegar sýnt að eldurinn mundi allur vera i ris- hæðinni og mikill reykur, þannig að reykkafarar voru þá' strax sendir inn í húsið. Náðu þeir þremur mannanna út, sem allir reyndust vera látnir eða létust skömmu síðar. Einnig voru menn sendir upp á þak hússins í körfu kranabíls slökkviliðsins og björguðu þeir Jónmundi út eins og áður getur. Að sögn slökkviliðsmanna reyndist tiltölulega fljótlegt að slökkva eldinn og hindra að hann bærist frekar út um húsið, en það er alls 3 hæðir ásamt kjallara og risi. Að öðru leyti átti eftir að kanna skemmdir á húsinu af völd- um vatns og reyks. Eldsupptök eru ókunn, en eins og áður segir bendir ýmislegt til þess að kvikn- að hafi i út frá sígarettu í her- bergi eins leigjandanna. Mennirn- ir þrír virðast hafa verið sofandi eða atburðinn borið snöggt að, því að í engu herbergi þeirra þriggja sem fórust höfðu þakgluggar verið opnaðir, likt og Jónmundur gerði. Að því er Helgi Daníelsson rannsóknarlögreglumaður tjáði Morgunblaðinu i gærkvöldi mun hin eiginlega rannsókn á elds- voðanum hefjast nú árdegis. — Vill vopnahlé Framhald af bls. 1 deilur tveggja vinaþjóða væru komnar á svo alvarlegt stig. Níels P. Sigurðsson sendiherra sagði Mbl. að í þriðja hverju sím- tali við sendiráðið kæmi fram andstaða við íslendinga. Hann sagði að meiri skilningur hefði ríkt á málstað islendinga í síðasta þorskastríði og áberandi væri að menntaðra fólk væri meira á móti Islendingum nú, en hins vegar virtist þorri almennings vera með 200 mílunum þar sem hann vildi 200 mílna brezka fiskveiðilög- sögu. Hann sagði að atburðurinn á Neskaupstað hefði mælzt illa og sendiráðið hefði fengið upphring- ingar í því sambandi. Því hefði verið haldið fram í sumum fréttum að slegið hefði verið í hendi læknisins með ár og hefði það ekki sízt mælzt illa fyrir. — Portúgal Framhald af bls. 1 beina sendingum sér hliðhollra stöðva í Oporto yfir höfuðborgar- svæðið. Ríkisútvarpið útvarpaði til- kynningu frá Fransisco de Costa Gomes forseta, þar sem hann fyrirskipaði fólki að halda sig inn- andyra eftir miðnætti og sagði að takmarkanir hefðu verið settar á málfrelsi og rétt til að halda fundi og mótmælagöngur. Hann skipaði einnig bönkum um allt land að loka þar til annað væri ákveðið. — Herskip Framhald af bls. 1 gagnvart bandalaginu ef við segðum: „Við höfum orðið að viðurkenna fyrir íslendingum að málstaður þeirra er rétt- mætur. Við biðjum ykkur að skilja að Bretland vill fara eins að gagnvart EBE og Island gagnvart Bretlandi." — Þetta er það sem sjávarút- vegur okkar biður okkur að gera. Þannig standa málin nú og ástandið gæti ekki verið verra: Við Bretar bökum okkur megna andúð á íslandi og samningsafstaða okkar er þver- öfug við þá afstöðu sem við tökum þegar við snúum okkur til Efnahagsbandalagsins til að tryggja framtíð fiskveiða okkar á heimamiðum og djúpmiðum. — Þegar við snúum okkur til EBE segjum við: „Hjálpið okkur að beita þrýstingi gegn íslendingum, en við viljum sitja einir að okkar eigin miðum eins og Islendingar vilja.“ Við segjum við EBE: „Við viljum ekki að þið veiðið á okkar miðum, við þurfum þessi mið handa fiskiskipaflota okkar.“ Við munum „lýsa yfir íslandi" gegn Evrópu, en við höfum beðið Evrópu að beita Islendinga þrýstingi. I verra óefni gætu málin ekki komizt. — Ég held að margir skilji þessi rök og þegar allt kemur til alls er ekkert gagn í þessum dráttarbátum sem munu kosta okkur 250.000 pund. En is- lendingar verða að viðurkenna að við þurfum smáaðlögunar- tíma, við skulum segja sex mán- uði. — Mér finnst að mörgu leyti líkt á komið með Bretum og islendingum: verðbólgan er meiri á Islandi en í Bretlandi, greiðsluhalli ykkar er eins slæmur, gripið hefur verið til innflutningstakmarkana í báð- um löndunum og það eina sem þið eruð að gera er að koma á smáútflutningstakmörkunum! En munurinn er sá að 80% út- flutnings okkar er ekki fiskaf- urðir. Atvinnuleysi er hins vegar aðeins lA% á Islandi en í Hull er það 10% og það er mikið. — Islendingar verða að viðurkenna að þeir okkar sem vilja hjálpa til þess að réttmæti málstaðar þeirra verði viður- kenndur verða að fá hjálp því þegar fram í sækir skiptir ykkur mestu máli hvað verður um hafsvæðin innan 200 míln- anna svo ykkur megi takast að vernda fiskstofna ykkar og tryggja útflutning ykkar sem er aðallega fiskafurðir. — Bannað flug Framhald af bls. 2 þess, að ef eftirlitsskip eða fiski- skip frá þeim þjóðum sem ekki virða fiskveiðilögsögu íslands leita hafnar, verði þeim ekki látnar i té neinar vistir, viðgerðar- þjónusta né rekstrarvörur, en fyrirgreiðsla aðeins veitt vegna sjúkra manna eða slasaðra. Þó að tilmæli ráðuneytisins hafi aðeins verið send þeim höfnum, sem erlend skip leita mest til, væntir ráðuneytið þess að aðrar hafnarstjórnir fari einnig eftir þeim. — Freigátan ruglaðist Framhald af bls. 32 við flotann. Það er nokkurn veginn í miðjum hópnum, en dráttarbátarnir halda sig i jarðri veiðisvæðisins hver á sinu horni. Þeir eru fjórir. Togararnir eru í þéttum og góðum hóp, svo þéttum að það ætti að hindra veiðar að ráði,“ sagði Gunnar. Er Morgun- blaðið sagði að svo virtist sem freigátan fæli sig í þokunni, bætti hann við: „Já það býr margt í þokunni, herskip, varð- skip og sitthvað fleira.“ Gunnar lýsti klippingunni í fyrrakvöld á þann veg, að frei- gátan Leopard hefði verið að koma að sunnan, en Ægir að vestan. Fjórir dráttarbátar eða verndarskip vorú -á svæðinu. „Við keyrðum á fullri ferð og á móti okkur kom Star Aquari- us, en við snerum hann auð- veldlega af okkur. Þá bjóst Lloydsman til varnar og var nokkuð erfiðari viðfangs. Þar um borð er greinilega góður sjómaður. Herskipið var ná- lægt og við beygðum fyrir Sirí- us og svo fórum við að klippa. Við gerðum þrjár tilraunir til að klippa og það tókst I þeirri þriðju. Ég held að herskipið hafi eitthvað ruglazt á okkur og dráttarbátunum," sagði Gunnar Ólafsson, en atburður þessi gerðist klukkan 19,42 í fyrrakvöld í náttmyrkri. 1 gæzluflugi í gær varð eigi vart við togarann, sem klippt var aftan úr, William Wilberforce GY 140, svo að hugsanlega hefur hann farið heim eftir veiðarfæramissinn, nema hann hafi haft aukatroll og hafi verið meðal þeirra 15 skipa, sem leyndust i þokunni norður af Langanesi. Helgi Hallvarðsson, skip- herra á Þór, var er blaðamaður Morgunblaðsins flaug yfir skipið í gær á leið að togurum, sem voru einir að veiðum við Hvalbak. Þeir togarar, sem voru nyrzt og næst varðskipinu í um 12 sjómílna fjarlægð, voru i óða önn að taka inn trollin. Helgi sagði i viðtali við Morgunblaðið: „Það er allt ró- legt — við reynum eftir fremsta megni að halda tog- urunum frá veiðum. Þeir hífa venjulega, er við nálgumst." Helgi Hallvarðsson sagði að á svæðinu fyrir austan væru tvö njósnaskip, sem skýrðu landhelgisbrjótunum jafn- skjótt frá staðsetningu varð- skipanna og til þeirra sæist. Við sendum Helga baráttu- kveðjur og hann tók undir þær hress að vanda. — Gerðardómur Framhald af bls. 3 hefði frá og með vorfardögum n.k. eða 14. maí leigt húsnæði í Síðumúla 14 þar sem nú eru rit- stjórnarskrifstofur Vísis og hefði Járnsíða hf., eigandi húsnæðisins, staðfest þá gjörð. Sagði Jónas að hugmyndin væri sú að þarna yrðu ritstjórnarskrifstofur Dagblaðs- ins. — Við viljum Framhald af bls. 13 fiskiskipum veiðitakmarkanir innan 50 mílna markanna. Goronwy Roberts kvaðst ekki geta svarað þessari spurningu að svo stöddu, en sagði að hægt væri að hefja viðræður um verndun fiskstofna þegar í stað. Þá tók til máls lafði Tweeds- muir og sagði það skoðun sína, að ef islendingar segðu til um hversu mikið Bretar þyrftu að minnka þorskveiðarnar, þá væri hægt að semja. Goronwy Roberts sagði þá, að óyggjandi niðurstaða um afla- magn i samræmi við hagsmuni Islendinga lægi ekki fyrir. Öðrum spurningum svaraði Roberts lávarður á þá leið, að Bretar hefðu látið í ljós það álit sitt, að hafréttarráðstefnan ætti að koma sér saman um 200 mílna regluna og Bretar von- uðust til að hafa á hendi veiga- mikið hlutverk á þeirri ráð- stefnu. Þá sagðist hann vona, að Islendingar mundu ekki gera breytingar á núverandi veiðitilhögun fyrr en hafréttar- ráðstefnan hefði komizt að niðurstöðu. — Hámenning Framhald af bls. 14’ tengist heimsmenningunni, svo sem kostur er. Eftirmáli Báglega get ég skilist við þessa grein um hina stórmerku sýningu án þess að benda á atriði, sem kemur sýningunni sjálfri ekkert við heldur framkvæmd hennar og er þess eðlis að mikla athygli hef- ur vakið. Hér er um að ræða sýn- ingu á mörgu hinu besta og full- komnasta I leturgerð og ritmáli t gegnum aldirnar, sem er auglýst með skiltum, festum á grindverk fyrir framan Kjarvalsstaði og við Miklubraut. — skiltum þar sem öll þekking á letri og ritmáli er fótum troðin. Ómurlegra gat það ekki verið og er mikit spurning hver hafi gefið grænt Ijós fyrir sltkan ósóma . . . Á þetta máski að vera táknrænt fyrir þá menningu er flytja kann inn I húsið þegar sýningunni lýk- ur? . . . m Alltaf er hann beztur Blái borðinn f f • smjörliki hf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.