Morgunblaðið - 03.12.1975, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1975
5
„Hótel Máva-
klettur”
— ástarsaga eftir
Denise Robins
KOMIN er út f íslenzkri þýðingu
ný ástarsaga eftir Denise Robins,
„Hótel Mávaklettur“.
Sagan gerist í litlu sjávarþorpi.
tbúarnir eru fastheldnir á fornar
venjur og það vekur almenna
andúð, þegar ungur aðkomu-
maður, Martin Wyde, kaupir gam-
alt óðalsetur, Mávaklett, og breyt-
ir því í ferðamannahótel. Hörð
andstaða mætir þessu aðskota-
dýri. Ein sú harðasta gegn þessu
tiltæki er Tracy Trehearn, mjög
dáð og eftirsött ung stúlka í þorp-
inu. Hún verður samt að lúta því
hlutskipti að verða einkaritari hjá
Martin — og sagan heldur
áfram. . .
Bókin er 232 bls. að stærð. Þýð-
inguna gerði Sigurlína Davíðs-
dóttir, en útgefandi er Ægisút-
gáfan. Þetta er 10. skáldsaga
Denise Robins, sem kemur út á
íslenzku.
„Tortímið
París”
— eftir Hazel í
íslenzkri þýðingu
BÓK Sven Hazel „Tortfmið Parfs“
er komin út f fslenzkri þýðingu
Baldurs Hólmgeirssonar og
Bárðar ^Jakobssonar. Sagan grein-
ir frá þvf er Parfs var frelsuð úr
klóm nasista f lok sfðari heims-
styrjaldarinnar, en Hitler hafði
gefið skipun um að borginni
skvldi tortfmt.
Bókin er tileinkuð lögreglunni f
París, „sem hóf uppreisnina árið
1944 og varð fyrst til þess að
draga frelsisfánann að hún yfir
París“.
Á kápusíöu segir, að bækur
Hazels hafi verið gefnar út í yfir
50 löndum „og margir telja hann
mesta stríðssagnahöfund fyrr og
síðar“. Sex af bókum Hazels hafa
verið gefnar út á íslenzku, „og
hafa þær allar selzt upp á svip-
stundu". Þá segir að þessi bók sé
talin meðal beztu bóka höfundar.
Bókin er 218 bls. að stærð. Ot-
gefandi er Ægisútgáfan.
Nazístí á flótta
INý b<)k eftir Francis Qifford
HÖRPUOTGÁFAN á Akranesi
hefur sent frá sér nýja bók eftir
metsöluhöfundinn Francis Clif-
ford. Aður eru útkomnar á ís-
lenzku sjö bækur eftir sama höf-
und.
Liitz Kröhl SS-foringi var yfir-
maður hinna illræmdu fangabúða
í Auschwitz árin 1943—1944. Þar
lét hann deyða um eina milljón
fanga. Honum tókst að sleppa
undan dómi í Núrnberg-
réttarhöldunum og flýja til Suð-
ur-Ameríku. Brezkur blaðamaður
komst á óvæntan hátt á slóð SS-
foringjans og nú upphófst æðis-
genginn eltingaleikur á hæla
fjöldamorðingjans.
Francis Clifford hlaut 1. verð-
laun „Crime Writers Association“
1969 og hefur síðan hlotið fjölda
af verðlaunum og viðurkenn-
ingum fyrir bækur sínar.
Skúli Jensson þýddi bókina.
Prentun og bókband er unnið í
Prentverki Akraness hf. Kápu-
teikningu gerði Hilmar Helgason.
Kjúkllngar í staðinn fyrir rjúpur
Þaö er algjör óÞarfi aö missa af jólakræsingunum í ár, ef hugaö
er aö innkaupum nógu tímanlega. Úrvaliö af hátíöamat hefur
sjaldan veriö meira í Kaupgaröi. Verzliö því strax, svo aö
fjölskyldan þurfi ekki aö veröa fyrir vonbrigöum meö jólamatinn.
Þjóðráð
Tíminn líöur. Áöur en varir eru jólin gengin í garö.
í Kaupgaröi er best aö verzla fyrri hluta vikunnar.
Þá er meira næöi til þess aö vanda valiö.
Það ern aðeins 16 Kaupgarðsdagar til jóla
Til bess aö viöskiptavinir okkar megi njóta jólahátíöarinnar sem
best hefur Kaupgaröur á boöstólum mikiö og fjölbreytt úrval af
heimilisvörum — / matinn, í baksturinn, til hreingerninga,
til hátíöabrigöa. Komiö tímanlega á meöan úrvaliö er sem mest.
Sparnaðnr í innkanpnm
Kaupgaröur hefur frá upphafi einsett sér aö bjóöa viöskiptavinum
sínum vörur á betra veröi en almennt gerist. Meö hagstæöum inn-
kaupum hefur Kaupgaröur þvi getaö boöiö úrvals vörur á lágu veröi.
BYRJIÐ
| JÓLAUNDIRBÚNINGINN
í KAUPGARÐI
KaiiDciaíóiif
mM
Smiöjuvegi 9 Kópavogi