Morgunblaðið - 03.12.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1975
7
Talnablekk-
ingar stjórnar-
andstæðinga
Samningsdrögin við
Vestur-Þjóðverja urðu
stjórnarandstæðingum,
einkum Lúðvík Jóseps-
syni, tilefni til fáheyrðra
talnablekkinga. Því var
blákalt haldið fram, að út-
flutningsverðmæti um-
samins aflamagns Vestur-
Þjóðverja væri á bilinu frá
16 til 20 milljarðar fs-
lenzkra króna. Og auðvit-
að var þvf haldið fram
með sömu óskammfeiln-
inni, að hér væri um
„gjöf" að ræða, sem með
öllu hefði verið hægt að
komast hjá.
Með öllu var litið fram
hjá þeirri staðreynd að
Þjóðverjar hefðu senni-
lega veitt verulega meira
fiskmagn án samninga,
sem og samanburði við
samningstilboð Lúðvfks
Jósepssonar frá fyrra ári,
þar sem gert var ráð fyrir
20.000 tonna stærri
„gjöf", án nokkurra skil-
yrða um takmörkum
þorsks í aflamagninu.
Jafnvel þótt forsendur
stjórnarandstæðinga fyrir
talnablekkingunni væru
teknar góðar og gildar,
svo fáránlegar sem þær
þó vóru, er verðmætisút-
reikningur þeirra svo fjarri
sanni að furðu gegnir.
Þingræða
Guðmundar H.
Garðarssonar
Guðmundur H. Garð-
arsson, alþingismaður,
sem gjörþekkir mark-
aðsverð sjávarafurða sem
starfsmaður Sölumið-
stöðvar hraðfrystihús-
anna, sýndi Ijóslega fram
á haldleysi þessara full-
yrðinga f þingræðu fyrir
skemmstu.
Hann benti á að 35.000
tonn af karfa, fullunnin á
hæsta verð á Sóvétmark-
að, væru að cif verðmæti
1678 m.kr. 20.000 tonn
af ufsa, fullunnin á sama
markað, að cif-verðmæti
1077 m.kr. Og 5000 tonn
af þorski, fullunnin á
hæsta verð á Bandaríkja-
markað, að cifverðmæti
583 m kr. Samtals út-
flutningsverðmæti sem
svarar 3338 milljónum
króna —- í stað 16.000 til
20.000 milljóna, eins og
stjórnarandstæðingar
héldu fram. Hér skakkar
þvf meira en Iftið milli full-
yrðinga og staðreynda
eins og f fleiri þáttum mál-
flutnings stjórnarand-
stæðinga f þessum mála-
flokki. Það segir svo sfna
sögu um sjálfan málstað
inn þegar slfkur málflutn-
ingur er á borð borinn.
Kostir
samninganna
Guðmundur H. Garðars-
son gat þess f ræðu sinni
að samningsdrögin væru
engan veginn gallalaus.
Hins vegar væru kostir
þeirra verulega þyngri á
metum en gallarnir. í þvi
sambandi lagði hann eink-
um áherzlu á eftirfarandi:
1. Við hefðum meira
vald á veiðum Þjóðverja
eftir en áður.
2. Samningurinn felur i
sér viðurkenningu Þjóð
verja á rétti okkar til
samninga um veiðar
innan 200 mílnanna.
Þessi réttur er sér-
staklega undirstrikaður
með þvi að frysti-
og verksmiðjutog-
arar þeirra vfkja út
fyrir 200 mílurnar og þeir
skuldbinda sig til að lúta
fslenzkum lögum og
reglugerðum um vernd-
unarsvæði (hrygningar-
svæði og uppeldissvæði
ungfisks) og gerð veiðar-
færa.
3. Fjöldi fsfisktogara.
sem einir fá að annast
veiðarnar, minnkar og
verulega bæði frá þvf sem
nú er og fólst í fyrra til-
boði Lúðvíks Jóseps-
sonar. Meðalaldur tog-
aranna er mjög hár, 26 og
40 byggðir fyrir 1961.
Þessi skip verða naumast
endurnýjuð. Hér er þvf um
að ræða sýnilegt skref af
Þjóðverja hálfu til að
hætta með öllu — í ná-
inni framtfð, aflasókn á
íslandsmið
4. Við getum nú
einbeitt landhelgisvörzlu
okkar gegn öðrum þjóð-
um, einkum Bretum.
5. Lfkur aukast á þvf að
opna leiðir til hagstæðra
viðskipta f Vestur-Evrópu,
ekki sfzt varðandi ufsa,
karfa og rækju.
6. Staða okkar á haf-
réttarráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna verður
sterkari eftir en áður.
7. Evrópumarkaðir
opna nýtt verksvið fyrir
togara okkar (ufsa og
karfa), sem auðvelda tak-
mörkun á sókn f þorsk-
stofninn, einkum á árs-
timanum júlf—septem-
ber. Samningurinn getur
því stuðlað að vissu
atvinnuöryggi, ef hann
endist út samnings-
tfmann, öfugt við það,
sem gagnrýnendur hans
halda fram. Það er ekki
nóg, sagði ræðumaður, að
afla fisks og fullvinna —
það þarf líka að selja hann
og á sem hagkvæmustum
viðskiptakjörum, ef vel á
að vera.
viðarþilfur paneli
parket
BYGGINGAVÚRUVERSLUN
KÓPAVOGS SF
NÝBÝLAVEGI 8 SÍMI:41000
TIMBURSALAN KÁRSNESBRAUT 2
BYKO
w
Þar sem fagmennirnir verzla,
er yóur óhætt
nú viðarklæóningu á veggi, í
og á gólf. Verðið er hagstætt.
Viðarþiljuverðið hið hagstæðasta
á markaðinum, vonum við.
loft
Stjórnunarfélag íslands
Utflutningsverzlun
Stjórnunarfélag íslands og Úflutningsmiðstöð iðnaðarins gangast fyrir
námskeiði um útflutningsverzlun, mánudaginn 8 og þriðjudaginn 9.
des n.k. kl. 1 5.00 — 1 9.00 báða daganna. Efni:
Gerð útflutningsskjala pökkun, verðlagning, gerð
kynningarrita ofl.
Leiðbeinendur eru: Ólafur Sigurmundsson og starfsfólk Útflutnings-
miðstöðvar iðnaðarins. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku i sima 24473
eða 82930.
Látiö rafmagns-
AÐVENTULJÓS
lýsa upp
hcímíliö í skammdegínu.