Morgunblaðið - 03.12.1975, Page 8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1975
8
r
Frá Verzlunarráði Islands:
Afkoma heildverzlunargrema
1974 og 1975
AFKOMA hinna svokölluðu
heildverzlunargreina hefur
verið nokkrum sveiflum háð
undanfarin ár. Þó eru þessar
sveiflur mun minni í heildaraf-
komunni en hjá einstökum
greinum. Ástæður þessara
sviptinga eru margvislegar en
mestu valda breytingar á inn-
lendu verðlagi, gengi, verðlags-
ákvæðum, tolli og sveiflur i eft-
irspurn, sérstaklega þær, sem
stafa að breyttum kaupmætti
og spákaupmennsku almenn-
ings. Einnig hafa sveiflur í
byggingarframkvæmdum á
vegum atvinnuveganna og þess
opinbera og einstaklinga valdið
umtalsverðum sveiflum í af-
komunni, þó mest hjá bygg-
ingavöruverzluninni.
Breytingar á afkomu ein-
stakra greina geta þannig verið
mjög mismunandi og haft mis-
mikil áhrif á niðurstöður heild-
arinnar, á sama hátt og afkoma
einstakra fyrirtækja er oft
verulega frábrugðin afkomu
þeirrar greinar sem það tilheyr-
ir. Af þessum sökum fæst mun
fyllri mynd af breytingum á
afkomu heildverzlunargreina,
ef litið er á einstakar greinar í
stað þess að líta eingöngu á
afkomu heildarinnar.
Byggingavöruverzlun
(614).
Afkoma byggingavöruverzl-
unar er á margvíslegan hátt
háð sveiflum í byggingariðnaði
og fjárfestingu almennt. Þetta
kemur skýrt fram á árinu 1973,
en á því ári jókst t.d. fjárfesting
í íbúðarhúsnæði um 47% á
föstu verðlagi, mikið vegna
jarðeldanna á Heimaey. Af-
koma byggingarvöruverzlana
verður því óvenjulega góð á ár-
inu. Á árinu 1974 snýst dæmið
við. Töluverð þensla var í bygg-
ingariðnaði fyrri hluta ársins,
en samdráttar tók að gæta síð-
ari hluta ársins. Á árinu varð
samdráttur í fjárfestingu i
íbúðarhúsnæði t.d. rúm 16% á
stöðugu verðlagi. Gengisbreyt-
ingin í byrjun september 1974
olli búsifjum og mörg fyrirtæki
áttu miklar birgðir um áramót.
Afkomuhlutfall ársins varð því
Iægra en undanfarin ár.
I ár má búast við, að velta
byggingavöruverzlana aukist
um 30% i krónum, sem þýðir
töluverðan magnsamdrátt í
reynd. Ástæðan er fyrst og
fremst um 15% magnsam-
dráttur í fjárfestingu atvinnu-
veganna, þrátt fyrir, að fram-
kvæmdir hefjist við Járn-
blendisverksmiðjuna í ár.
Magnsamdráttur i fjárfestingu
íbúðarhúsnæðis verður senni-
lega um 5% á árinu, en hreinar
opinberar framkvæmdir aukast
sennilega um 18%, mest i raf-
orkumálum, eða um 80%, og
um 30% í hita- og vatnsveitu-
málum. Samdráttur ætti að
verða á öðrum sviðum opin-
berra framkvæmda.
Á innflutningi fyrstu níu
mánuði ársins er þessi sam-
dráttur augljós. Innflutningur
á krossvið minnkar t.d. um
48%, ýmsar byggingarplötur
um 17%, rúðugler um 25%,
steypustyrktarjárn um 28%,
þakjárn um 41 % og miðstöðvar-
ofnar um 23%. Allt virðist því
benda til þess að rekstur bygg-
ingarvöruverzlunar standi í
járnum í ár, lækki meðalálagn-
ing í greininni eins og verðlags-
yfirvöld hafa ætlazt til.
Bifreiðaverzlun (615).
Bifreiðaverzlun fór ekki var-
hluta af þeirri eftirspurnar-
þenslu og spákaupmennsku,
sem einkenndi á margan hátt
verzlun á s.I. ári. Á s.l. ári voru
fluttar inn rúmlega 10.400
bifreiðar, sem er rúmlega 32%
magnaukning frá árinu áður.
Þrátt fyrir þessa miklu aukn-
ingu, sem kom að mestu fram á
fyrri hluta ársins, varð afkoma
bifreiðaverzlunar ekki eins góð
á árinu og búast hefði mátt við.
Ástæðan er gengisfellingin í
september, sem olli umtals-
verðum gengistöpum hjá mörg-
um fyrirtækjum.
1 ár er mjög erfitt að spá um
afkomu bifreiðaverzlunar, þar
sem margt er óvíst um, hvaða
áhrif 25% samdráttur í veltu í
krónutölu og um 70% samdrátt-
ur að magni til hefur til breyt-
inga á tilkostnaði. Spá um
afkomu bifreiðaverzlunar er
því háð meiri óvissu en er um
Framhald á bls. 21
19.11.1975. verzlunarrAð ÍSLANDS
REKSTRARREIKNINGUR HEILDVERZLUNARGREINA, atv.gr. 614 -616.
(í milljónum króna)
1971 1972 1973 1974 spá 19?5
1. 2.
TEKJUR:
Vörusala 12.460,7 14.581,4 20.928,9 31.019,5 39.979,0 39.979,0
Aörar tekjur 512,7 687 ,7 1.095,3 1.658,5 2.180,5 2.180,5
Tekjur samtals: 12.973,4 15.269,1 22.024,2 32.678,0 42.159,5 42.159,5
GJÖLD:
Vörunotkun 10.681,4 12.382,3 17.469,1 26.167,2 33.671,0 34.401,9
Launakostnaöur - 909,4 1.214,0 1.832,6 2.770,3 3.697,2 3.697,2
Annar kostnaöur 973,8 1.228,7 1.828,0 2.851 ,3 3.697 ,7 3.697 ,7
Tekju- og eignaskattur 122,7 Hagnaöur, tap 286,1 192,9 251,2 234,9 659,6 475,5 413 ,7 493,0 600,6 493,0 - 130,3
Gjöld samtals: 12.973,4 15.269,1 22.024,2 32.678,0 42.159,5 42.159,5
MEÐALALAGNING 16,66% 17 ,76% 1,72% 19,81%. 18,54% 18 ,73% 16,21%
HAGNAÐUR / VÖRUSALA x 100 2,30% 3,15% 1,33% 1,50% - 0,33%
HAGRÆN REKSTRARAFKOMA:
HagnaÖur samkvæmt rekstrarreikningi 286,1 ± leiör. vegna veröbreytinga vörubirgöa + 58,5 — aröur af eigin fé — 232,6 251,2 80,9 - 255,9 659,6 - 305,4 - 337,8 413 ,7 - 583,6 - 567,8
Hagrænn hagnaöur, tap: 112,0 85,6 16,4 - 737,7
(1) í þessum dálki er notuö sama meÖalálagning og 1974. (2) Her er meöalálagningu breytt í samræmi viö ákvarÖanir verÖlagsyfirvalda.
Meðfylgjandi tölur um
meðalafkomu heildverzlunar-
greina samkvæmt rekstrar-
reikningum fyrirtækja ná til
þriggja heildverzlunargreina,
byggingavöruverzlunar (614),
bifreiðaverzlunar (615) og al-
mennrar heildverzlunar (616).
Tölur áranna 1971—1973 eru
niðurstöður úrtaksathugunar
Þjóðhagsstofnunar með þeirri
breytingu, að laun eigenda f
einstaklingsfyrirtækjum hafa
verið aðskilin frá hagnaði og
þeim reiknuð meðallaun í við-
komandi verzlunargreinum
miðað við vinnuframlag þeirra.
Áætlun ársins 1974 er reist á
úrtaksathugun Verzlunarráðs
Islands á afkomu eínstakra
verzlunargreina. Afkoman l ár
er hins vegar framreiknuð
fyrir einstakar greinar á grund-
velli niðurstaðna ársins 1974,
miðað við beztu hugmyndir um
breytingu tekna og tilkostnaðar
á árinu f ár. 1 töflunni er
annars vegar miðað við
óbreytta meðalálagningu frá
árinu áður (dálkur 1) og hins
vegar að breytingar verðlags-
yfirvalda á álagningunni komi
að meðaltali að fullu fram í
afkomunni (dálkur2).
Stofnun Ama Magnússonar
gefur út litprentuð kort
STOFNUN Arna Magnússonar
hefur hafið útgáfu á litprent-
uðum kortum með lýsingum úr
fslenzkum miðaldahandritum.
Nú hefur stofnunin sent frá sér
nfu kort með lýsingum úr fjór-
um fslenzkum handritum.
Á fimm kortum eru lýsingar
úr sögu heilags Nikuláss, en
þær eru öðrum þræði valdar
vegna þess, að jólahátfð fer f
hönd, að þvf er segir f frétt frá
stofnuninni. Heilagur Nikulás,
erkibiskup frá Myra f I.ikfa f
Litlu-Asfu, var einn vinsælasti
dýrðlingur kaþólskrar kirkju á
miðöldum. Var hann einkum
ármaður sæfarenda og barna.
Dýrkun hans var mjög út-
breidd á íslandi, og eru um það
bil 34 kirkjur helgaðar honum.
Þá er mynd af Jóhannesi guð-
spjallamanni á tveimur kort-
anna, og er hún tekin úr
Skarðsbók postulasagna. A
einu korti er lýsing úr Skarðs-
bók Jónsbókar og ein lýsing er
úr Flateyjarbók. Kortin munu
fást á almennum markaði.
Lyfsalaskipti
á Akranesi
LYFSALINN á Akranesi, Fríða
Proppé, hefur sagt lyfsöluleyfi
sínu á Akranesi lausu frá og með
1. janúar 1976. Fríða Proppé
hefur verið lyfsali á Akranesi frá
stofnun Akraness apóteks árið
1935 eða í rúmlega 40 ár.
Lyfsöluleyfið á Akranesi hefur
síðan verið auglýst laust til um-
sóknar og hefur forseti Islands
hinn 14. nóvember 1975, að til-
lögu heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, veitt það Stefáni
Sigurkarlssyni lyfsala f Stykkis-
hólmi frá og með 1. janúar 1976
að telja.
Graham Hill
fórst í
flugslysi
Lundúnum — 1. des. — AP
GRAHAM Hill, fyrrverandi
heimsmeistari í kappakstri, fórst f
flugslysi skammt frá Lundúnum
s.l. laugardagskvöld. Hann flaug
sjálfur smáflugvél, sem hrapaði
niður á golfvöll, en farþegi hans
var félagi hans, Tony Brise, sem
einnig var þekktur kappaksturs-
maður.
Graham Hill var 46 ára að aldri
er hann lézt. Honum tókst að
verja heimsmeistaratitilinn
tvisvar sinnum, en einnig sigraði
hann margoft f kappakstri á ýms-
um öðrum vettvangi.
Eldri maður
óskar eftir lítilli íbúð eða herbergi með aðgangi
að baði og eldhúsi.
Upplýsingar í síma 18970 og 27570.
Sala —
2ja herb. íbúð í háhýsi í Breiðholti III. Góð
íbúð, fullgerð sameign, m.a. frystiklefi o.fl. Stór
innbyggður bílskúr getur fylgt með. Til greina
kemur að skipta á íbúð þessari og 4ra herb.
íbúð t.d. í Breiðholti eða Árbæ.
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17 (Silli&Váldi)
simi 26600
A
Á
A
A
a
a
a
A
Á
A
Á
Á
A
S'
A
A
A
A
Á
A
A
A
A
£
Góð bújörð i
V-Húnavatnssýslu
Til sölu er ca 400 ha jörð á góðum stað í
Húnavatnssýlu. Á jörðinni er ca 140 fm ágætt
íbúðarhús, 40 kúafjós, 350 kindahús, 2 hlöður
samtals 2000 hesta. Ræktuð tún er ca 50 ha.
Landið er að mestu girt. Möguleiki á silungs-
rækt.
Uppl. aðeins gefnar á skrifstofunni.
Sölumenn
Kristján Knútsson
Lúðvik Halldórsson
Eigna
Jmarkí
caðurinn
Austurstrati 6. Simi 26933.
5»5»5»5»5»5»5» »5»5»5»5»5»5»5»5»5»5»5»5»5»5»5»5»5»5»5»