Morgunblaðið - 03.12.1975, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1975
15
Mæðiveiki í norsku sauðfé
Allsherjarniðurskurður íhugaður á sýktu svæðunum
ÞRANDHEIMI, 21. nóv.: —
Mæðiveiki I sauðfé hér f Noregi
hefur nú breiðzt alvarlega út.
Segja má, að veikinnar hafi orðið
vart S flestum fylkjum sunnan
Dofrafjalla.
Arið 1970 var flutt lifandi sauð-
fé hingað frá Hollandi. Um það
bil ári seinna varð veikinnar fyrst
vart. Til þess að koma í veg fyrir
útbreiðslu hennar var brugðizt
99
Þorsteinn Matthíasson
I dags-
99
JW*rxjimhIot>ií>
við með ýmsu móti. Meðal annars
hafa öll dýr verið skorin á heilum
bæjum, reynt hefur verið að ein-
angra búfé á bæjum þar sem
grunur er um veikina og svo hef-
ur verið gripið til umfangsmikilla
bólusetninga.
En allt kemur fyrir ekki, veikin
breiðist út. Landbúnaðaryfirvöld
og bændur hafa að sjálfsögðu
miklar áhyggjur. Nú er alvarlega
farið að tala um allsherjarniður-
skurð á sauðfé í sýktum fylkjum
svo sem íslendingar gripu til hér
áður.
Bændur hér í Þrændalögum
eru mjög uggandi um að veikin
kunni að berast til þeirra, og vilja
þeir tafarlausar aðgerðir. Yfir-
völdin óttast hins vegar að algjör
niðurskurður geti riðið sauðfjár-
búskap í Suður-Noregi að fullu. I
Noregi eru nú um það bil 1,5
millj. kindur og hafa landbúnað-
aryfirvöld lagt mikla áherzlu á að
sauðfjárrækt verði aukin. Nú er
auðséð að fresta verður þeim
áætlunum.
Eftirspurn er hér mikil eftir
kindakjöti og allmikið flutt inn,
þó í mestum mæli frá Nýja-
Sjálandi. íslenzkt kindakjöt mun
nú fást hér í verzlunum af og til.
Segja kaupmenn að eftirspurn
eftir íslenzka kindakjötinu sé
mikil. — S.T.Þ.
S.L. laugardag opnaði Ingvar Þorvaldsson málverkasýningu að
Hamragörðum við Hávallagötu. Sýningin er opin daglega frá kl.
4—10, en á laugardag og sunnudag frá kl. 2—10. Lýkur henni á
sunnudagskvöld. 30 mvndir, allt olfumálverk, eru á sýningunni.
íns onn
— ný bók eftir
Þorstein Matthíasson
Komin er út ný bók þar sem
Þorsteinn Matthfasson hefur
skráð frásagnir 11 kvenna. Bókin
nefnist „í dagsins önn“ með
undirtitlinum: Eiginkonur og
mæður segja frá ævi og störfum.
%
Þættirnir í bókinni eru:
Alla-Magga, Lára Magnúsdóttir,
Lára Wathne, Laufey Valgeirs-
dóttir, Bjarnarhöfn, Margrét
Sæmundsdóttir að Miðhúsum í
Garði, Mundína Þorláksdóttir og
Guðrún Sigurjónsdóttir á Ytri-Á,
Ölafsfirði, Olga Sigurðardóttir frá
Hnífsdal, Ragnheiður Brynjólfs*
dóttir frá Ytri-Ey, Sigrún Thor-
grímsson á Viktor 707 og Þuríður
Guðmundsdóttir frá Bæ.
A kápusíðu segir m.a.: „Þcssi
bók er útgefin þeim konum til
vegsemdar, sem hafa helgað líf
sitt mikilvægasta starfi hverrar
konu, því að vera móðir og kona.
Hér eru til frásagnar 11 konur,
sem samtals hafa eignast 96 börn,
konur, sem eru hamingjusamar
með sitt hlutskipti og vildu ekki
skipta kjörum við þær nútíma-
konur, sem aðrar brautir kjósa.
Þær vita að störf þeirra hafa ekki
verið lítilsmetin, því „mamma er
alltaf númer eitt“.
Bókin er 190 bls. að stærð auk
fjölda myndasíðna. Útgefandi er
Ægisútgáfan.
Bæjarfoss kom-
inn til landsins
NVTT Eimskipafélagsskip,
Bæjarfoss, kom til Reykjavíkur f
fyrsta sinn í gær, og er þá floti
Eimskipafélagsins 20 skip. Bæjar-
foss kom hingað frá Antverpen
fullfermdur vörum, ávöxtum og
stykkjavöru, alls 250 tonnum, en
skipið ber liðlega 400 tonn.
Bæjarfoss var smíðaður 1972 í
Noregi og er skipið keypt þaðan.
7 manna áhöfn er á skipinu, en
frá Reykjavík mun það halda á
ströndina með varning til lands-
manna. Skip Eimskipafélagsins
eru nú alls 34827 brúttótonn.
AUtiI.ÝSINCASÍMINN KR:
22480
SfORmBRKRÐUR
á horni Vesturlandsvegar og Höföabakka er aö rísa
og veröur til leigu næsta sumar.
Viö viljum komast í samband viö aðila, einn eða fleiri,
sem þurfa húsrými fyrir verzlun, lager, skrifstofur,
iðnað og veitingarekstur.
Til ráðstöfunar eru eftirfarandi möguleikar:
2500 m2 sem hægt er aö hluta niður aö vild og leigja
í stórum og smáum verzlunareiningum
4500 m sem eru 2 salir tengdir með 500 m2
innitorgi, sem á sama hátt er hægt að skipta|
í margar verzlanir
7000 m 3 salir tengdir með innitorgi.
1 oooo m2 þ.e. allt húsið
Lofthæð er alls staðar 4,40 m, nema á torgi, sem er 500 m?
er lofthæð 9 m. Lóð í kring er 12.500 m2ca. 500 bílastæði
sem má fjölga.
Gjörið svo vel að hafa samband við undirritaðan.
Jón Hjartarson
Laugavegi 26 — Símar 28900 —21030