Morgunblaðið - 03.12.1975, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1975
17
Reglur um
innflutning
fískiskipa
EINS OG Morgunblaðið skýrði
frá f gær, hefur ríkisstjórnin
ákveðið á fundi sfnum að ríkis-
ábyrgðir verði um ðákveðinn
tfma ekki veittar f sambandi við
kaup og innflutning á fiskiskip-
um. Sjávarútvegsráðuneytið
sendi f gær frá sér fréttatifkvnn-
ingu um þetta mál, og fer hún f
heild hér á eftir:
Með hliðsjón af álitsgerð Fiski-
félags Islands frá 17. febrúar s.I.
um afrakstursgetu Islandsmiða
og afkastagetu fiskiskipastólsins,
skýrslna Hafrannsóknastofnunar-
innar frá 29. ágúst og 13. október
um ástand fiskstofna og annarra
dýrategunda á Islandsmiðum og
nauðsynlegar friðunaraðgerðir
innan íslenskrar fiskveiðiland-
helgi og með tilliti til þrörngrar
fjárhagsstöðu fjárfestingarsjóða
ákvað ríkisstjórnin á fundi sínum
hinn 25. f.m. að eftirfarandi regl-
ur skuli gilda um innflutning
fiskiskipa:
1. Ríkisábyrgðir yerði ekki veitt-
ar í sambandi við kaup og inn-
flutning á fiskiskipum.
2. Fylgt verði reglum Lánanefnd-
ar um innflutning fiskiskipa,
enda verði reglum nefndarinn-
ar breytt á þann veg að ekki
verði leyfðar erlendar lántök-
ur vegna kaupa á fiskiskipum
umfram lán Fiskveiðasjóðs.
Umsóknum til Lánanefndar
skulu fylgja:
a) Umsögn viðskiptabanka um-
sækjanda um fjárhagsstöðu
hans og með hvaða hætti kaup-
in yrðu fjármögnuð.
t
b) Staðfesting stjórnar Fisk-
veiðasjóðs Islands á því að
sjóðurinn muni veita stofnlán
til skipakaupanna og með
hvaða hætti.
c) Yfirlýsingar annarra sjóða um
lánveitingar til viðkomandi
skipakaupá ef um slíkt er að
ræða.
Athygli er vakin á þvi að hér
hefur aðeins verið fjallað um inn-
flutning fiskiskipa en um smfði
fiskiskipa innanlands gegnir öðru
máli.
Sj ávarútvegsráðuneytið
2. desember 1975.
Frá kjaramálaráðstcfnu Alþýðusambands tslands f Tjarnarbúð f gær.
Kjaramála-
ályktun ASÍ
Kjaramálaráðstefna
Alþýðusambands ís-
lands, þar sem mótuð var
stefna launþegasamtak-
anna f komandi kjara-
samningum var haldin í
Tjarnarbúð í gær. Eins
og getið er á baksíðu
Morgunblaðsins í dag,
varð talsverð umræða
um ályktunina, sem hér
er birt í heild:
„I efnahagsmálum hafa árin
1974 og 1975 einkennst af óða-
verðbólgu, stórfelldri skulda-
söfnun við erlenda aðila og
þenslu ríkisútgjalda samfara
nær stöðugri rýrnun kaupmátt-
ar launa og tilraunum stjórn-
valda til að draga úr einka-
neyslu almennings. Ekki hefur
þó verið haldið svo á málum, að
efnahagsaðgerðirnar, svo sem
tvennar gengisfellingar ásamt
gengissigi, hækkaðar skatta-
álögur, lagaafnám verðlagsbóta
á laun vaxtahækkanir, sérstak-
ar og flóknar sjóðamyndanir til
að lækka umsamin kjör sjó-
manna og fleiri af líku tagi hafi
i heild megnað að draga úr
verðbplgunni eða hallarekstri
þjóðarbúsins. Frá því er kjara-
samningar voru gerðir í
febrúar 1974 (1. marz) og til 1.
nóv. s.l. hefur vísitala fram-
færslukostnaðar hækkað úr 262
stigum í 491 stig eða um 87%
(sé miðað við 1. febr. er
hækkumn 102%). Á sama tíma
hefur meðaltímakaupstaxti
verkamanna (6. taxti Dags-
brúnar e. 1 ár) aðeins hækkað
um 46% og almennur tíma-
kaupstaxti iðnaðarmanna (alm.
e. 2 ár) um 42% svo dæmi séu
nefnd. Kaupmáttarrýrnun
hefur því orðið 22—24% og
þyrftu viðkomandi laun því að
hækka um 28—32% til þess að
jafna metiri og vega upp kjara-
skerðinguna, sem orðið hefur á
þessu tímabili. Raunveruleg
tekjuskerðing verkafólks,
hefur þó orðið verulega meiri
en þessar tölur sýna, þar sem
atvinnusamdráttur hefur leitt
til fækkunar vinnustunda-
fjölda á hvern einstakling, svo
sem skýrslur Kjararannsóknar-
nefndar sanna.
Verkalýðssamtökin hafa í
tvennum kjarasamningum á
þessu ári reynt eftir föngum að
berjast við afleiðingar óðaverð-
bólgunnar en ekki fengið rönd
við reist nema að hluta til, en
kaupmáttur tfmakaups er nú
minni en hann var við gerð
bráðabirgðasamninganna í
marzmánuði s.I. en aðeins örlít-
ið hærri en hann var við gerð
samninganna 13. júní.
Kjaramálaráðstefna ASl litur
svo á, að reynslan af þróun
kjara- og efnahagsmála sfðustu
misserin sanni annars vegar að
kjaraskerðingin sem orðin er,
eigi ekki nema að hluta rætur
að rekja til lakari ytri skilyrða
þjóðarbúsins, þótt lækkun hafi
orðið á verðlagi útflutnings-
afurða og þjóðartekjur
minnkað af þeim sökum jafn-
framt því sem verðlag inn-
flutnings hefur hækkað. Bend-
ir ráðstefnan í því sambandi á
að síðustu 12 mánuðina hefur
verðlag innflutnings aðeins
hækkað um 8%, en almennt
verðlag hefur á sama tima
hækkað um a.m.k. 44%, og enn-
fremur að þjóðartekjurnar
stóðu í stað 1974 en minnka
trúlega um 8—9% á árinu 1975.
Af þessu tvennu verður að
draga þær ályktanir að óðaverð-
bólgan og kjaraskerðing verka-
fólks eigi sér takmarkaða stoð í
þessum meðverkandi orsökum,
heldur sé að miklu um að ræða
hvort tveggja óstjórn f efna-
hagsmálum og beinar tilraunir
Ljósmynd ÓI.K.M.
til þess að nota lakari viðskipta-
kjör en áður ríktu sem tylli-
ástæðu til launalækkana og þar
með teknatilfærslu frá verka-
fólki til atvinnurekenda og
fjármálamanna, sem maka krók
sinn af verðbólgugróðanum á
kostnað launastéttanna. I öðru
lagi að kjaraskerðingin er mikl-
um mun meiri en nemur sam-
drætti þjóðartekna, sem þó er
stærri en þurft hefði að vera, ef
rétt hefði verið á málum haldið.
Enn virðist reynslan sanna að
hefðbundin barátta fyrir kaup-
hækkunum til að jafna metin
gegn óðaverðbólgu, hvað þá til
að bæta lífskjörin, sé ekki ein-
hlít aðferð, hversu nauðsynleg
sem hún þó er. Jafnhliða kaup-
gjaldsbaráttunni verði því að
ráðast með öllu afli gegn orsök-
um verðbólgunnar og hemla
hana a.m.k. að því marki að hún
verði hér ekki meiri en gerist í
viðskiptalöndum okkar. En til
þess að þetta megi verða ög að
þannig verði lagður grundvöll-
ur að varanlegum árangri
kjarabóta og kjaraverndar er
óhjákvæmilegt að tekin verði
upp gerbreytt og heillavæn-
legri stefna í efnahagsmálum,
en nú hefur verið fylgt um
skeið. Grundvallaratriði slíkrar
nýrrar stefnumótunar í efna-
hagsmálum þurfa að mati
kjaramálaráðstefnunnar að
verða:
1. Tryggð sé full atvinna.
2. Launakjör almennings
verði bætt og sá kaupmátt-
ur, sem stefnt er að tryggð-
ur með raunhæfu fyrir-
Framhald á bls. 31
Sögufélagið gef-
ur út 2 bœkur
Ljósmynd ÓI.K.M.
Tveir stjórnarmenn í Sögufélaginu ásamt Jóni Steffensen prófessor (í
miðið), Björn Þorsteinsson til vinstri og Þórður Björnsson. Myndin er
tekin í hinni nýju afgreiðslu Sögufélagsins í Hildebrandshúsi.
SÖGUFÉLAGIÐ hefur sent frá
sér tvær bækur, Menning og
meinsemdir, eftir Jón Steffensen
prófessor, sem er rannsókna- og
heimildarit um íslenzka sögu og
fræði og Afmælisrit Björns Sig-
fússonar, fvrrum háskólabóka-
varðar, sem varð sjötugur hinn
17. janúar sfðastliðinn og er rit-
inu ætlað að vera vottur virðingar
og þakklætis fyrir störf þau ð
sviði vísinda, bókavörzlu og
kennslu, sem Björn hefur innt af
hendi undanfarna áratugi.
Bækur þessar voru kynntar á
blaðamannafundi, sem stjórn
Sögufélagsins hélt i gær. Fundinn
sátu Björn Þorsteinsson, forseti
félagsins, Þórður Björnsson sak-
sóknari, sem sæti á í stjórn félags-
ins og Einar Laxness mennta-
skólakennari ogstjórnarmaður i
Sögufélaginu. Einnig sat fundinn
Jón Steffensen prófessor og
Sverrir Tómasson sem séð hefur
um afmælisrit Björns Sigfús-
sonar.
Á fundinum kom fram, að bók
Jóns Steffensens hefur að geyma
22 rannsóknarritgerðir um af-
komu ísiendinga fyrir 1800,
mannfjölda hér á landi á ýmsum
tímum, uppruna Islendinga eða
mannfræði auk ýmissa þátta um
íslenzka menningarsögu. Rit-
gerðirnar hafa birzt áður en hafa
verið fólgnar í sérfræðitímarit-
um, sem eru í fárra höndum.
Bólusótt og Pest á Islandi hafa
ekki birzt áður og Fólksfjöldi á
íslandi í aldanna rás hefur áður
komið út á dönsku.
I fréttatilkynningu frá Sögu-
félaginu, sem dreift var á fundin-
um í gær segir m.a.: ,,Hér er um
brautryðjandarannsóknir að ræða
á sviði mannfræði, sjúkdómssögu,
menningarsögu og lækriinga á Is-
landi. Höfundur er læknir og
raunvísindamaður, sem leitar
hins einstaka og áþreifanlega, en
er gæddur sagnfræðilegri víðsýni
og hefur tileinkað sér trausta
textarýni. Bókin einkennist af
nákvæmum einstökum rannsókn-
um og víðtækri yfirsýn yfir rann-
sóknarefnið. Hún er merkt fram-
lag til islenzkrar og norrænnar
menningarsögu."
I þriðja þætti bókarinnar, sem
nefnist Úr islenzkri menningar-
sögu má t.d. geta þess, að höf-
undur kemur þar með hugmynd
og leiðir ýmsum líkum að því að
Eddukvæði hafi varðveitzt af því
að þau hafi verið notuð til
lækninga, og Islendingar hafi að
fornu ritað bókmenntir með
rúnum.
I tilefni afmælis dr. Phil Björns
Sigfússonar, sem varð sjötugur
hinn 17. janúar 1974 ákváðu
nokkrir vinir hans að gefa út af-
mælisrit honum til heiðurs. Ritið,
sem er rúmar 300 blaðsíður,
skrifa 17 vísindamerin og fjalla
greinarnar um íslenzk fræði og
bókasafnsfræði. I bókinni eiga
eftirtaldir menn greinar: Arni
Bjöðvarsson, Björn Teitsson,
Björn Þorsteinsson, Dante
Alighieri og Böðvar Guðmunds-
son, Finnbogi Guðmundsson,
Gunnar Karlsson, Heimir Páls-
son, Helgi Skúli Kjartansson
Hermann Pálsson, Ingi Sigurðs-
son, Kristján Eldjárn Ölafur
Halldórsson, Ölafur F. Hjartar,
Súsanna Bury, Svavar Sigmunds-
son. Sverrir Tómasson og Þór-
hallur Vilmundarson.
Ritstjörn bókarinnar önnuðust
þeir Björn Þorsteinsson, Björn
Teitsson og Sverrir Tómasson.
Sögufélagið hefur opnað af-
greiðslu i svokölluðu Hildbrands-
húsi, Garðastræti 13, sem er efst á
mótum Fischersunds og Garða-
strætis. Afgreiðslan verður opin
virka daga klukkan 11 til 12 fyrir
hádegi og síðan frá klukkan 14 til
18. Á laugardögum verður opið á
tímabilinu frá klukkan 11 til 12.
jr
Atján söngvar
— eftir Kristin Reyr
KOMIN er út bókin ,,Atján söngv-
ar“ eftir Kristin Reyr, til prentuh-
ar bjó Carl Billich. Bókin er svo
úr garði gerð að nótnaútsetning
allra laganna er birt ásamt ljóðum
og síðan ljóðið á ný fyrir aftan
hverja nótnaútsetningu.
Kristinn Reyr hefur áður gefið
út fimm bækur, Varðsöng 1962,
Frjálsa ísland 1964, Sefljóð 1964,
Sjö einsöngslög 1967, og Nítján
sönglög 1972.
Bókin er í stóru broti, höfundur
gerði kápu og sá um umbrot en
Letur s.f. prentaði.