Morgunblaðið - 14.12.1975, Page 2

Morgunblaðið - 14.12.1975, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1975 Athugasemd — vegna yfirlýsingar Samvinnubanka og ummæla Björns Jónssonar 1 SJÓNVARPSÞÆTTI sl. föstu- dagskvöld hélt Björn Jónsson, forseti ASl, því fram, að frétt Morgunblaðsins um skuldir Air Viking og Guðna Þórðarsonar við Alþýðubankann, sem birt var sl. miðvikudag, væri röng og sagði forseti ASl, að skuldin væri allmiklu lægri en Morgun- blaðið héldi fram. I Morgun- blaðinu í gær birtist yfirlýsing frá Samvinnubankanum, þar sem því er neitað, sem m.a. kemur fram í frétt Morgun- blaðsins, að skuldir Air Viking við Samvinnubankann nemi umtalsverðum fjárhæðum. Af þessu tilefni vill Morgunblaðið taka fram eftirfarandi: 1. I frétt Morgunblaðsins hinn 10. des. sl. var sérstaklega tekið fram, að tölur þær, sem nefndar væru um skuldir Air Viking og Guðna Þórðarsonar við Alþýðu- bankann, væru byggðar á uppgjöri, sem fram hefði farið síðari hluta nóvember- mánaðar. Uppgjör þetta mun að vísu hafa farið fram fyrri hluta nóvember- mánaðar en að öðru leyti stendur Morgunblaðið við frétt sfna og þær tölur sem nefndar voru. Hugsanleg skýring á skoð- anamun Morgunblaðsins og Björns Jónssonar á skuldum þessara aðila við Alþýðu- bankann kann að vera sú, að forseti ASI miði við skulda- upphæð á einhverju öðru stigi málsins en Morgun- blaðið gerir, en vitað er að skuldir fyrirtækja geta tekið verulegum breytingum á nokkurra vikna tfmabili. 1 þessu tilfellu telur Morgun- blaðið hins vegar enga aðra viðmiðun koma til greina en þær tölur, sem fyrir liggja, þegar ástæða er talin til aðgerða af hálfu bankaráðs Alþýðubankans. 2. I frétt Morgunblaðsins er sagt, að skuldir Air Viking við Samvinnubankann og Samvinnutryggingar sam- eiginlega nemi um 70—80 milljónum króna. Astæðan fyrir þvf, að skuld við þessa aðila er tilgreind sameigin- lega, er sú, að hér er um tvær greinar á sama meiði að ræða og raunar mætti einnig segja það um Olíu- félagið hf. I yfirlýsingu Samvinnu- bankans segir, að bankinn sé einungis í ábyrgðum fyrir erlendum lánum vegna þotukaupa Air Viking. Þetta var Morgunblaðinu full- kunnugt um, þegar frétt blaðsins var skrifuð, en við þær aðstæður, sem skapazt hafa, er ekki óeðlilegt að Ifta á þá ábyrgð bankans sem jafngildi skuldar Air Viking við bankann, ekki sfzt, þar sem verulegur ágreiningur rfkir meðal sérfróðra manna um, hvers virði vcðréttur sá er, sem bankinn tilgreinir að hann hafi f þotum félags- ins. Hins vegar hefur Morgunblaðið aldrei haldið því fram, að skuld þessi væri f vanskilum. Frá sýningu Gunnlaugs Scheving. Stórt olfumálverk og til hliðar minni mvndir af frumskissum og hugmvndum listamannsins. (Ljésm.ÓI. K.M.) Verk Gunnlaugs Schevings sýnd í Listasafni Islands SVNING á verkum Gunnlaugs Scheving listmálara var opnuð f Listasafni tslands f gær og mun standa fram yfir áramót. Sýning- in verður opin á venjulegum opn- unartímum Listasafnsins frá klukkan 13.30 til 16.00 á sunnu- dögum, þriðjudögum, fimmtu- dögum og laugardögum. Alls eru sýnd 56 númer á þess- ari sýningu, en þess ber að geta að saman eru sýndar frumskissur og hugmyndir listamannsins sem sýna feril myndar frá fyrstu frumdráttum og síðan stig af stigi Um þetta segir Ólafur Kvaran m.a. í sýningarskrá: „Þessi sköpunarferill mynda, hvernig hugmyndin vex fram og þróast, veitir merkilega innsýn í hin markvissu vinnubrögð og vel- grundaðan undirbúning, sem ligg- ur að baki hinum stóru voldugu olíumálverkum Gunnlaugs Schev- ings. Samt sem áður væri það mikill misskilningur að líta ein- göngu á margar af þessum mynd- um, hvort sem þær eru gerðar með blýanti, vatnslit eða öðru efni, eingöngu sem aðdraganda eða undirbúning og skoða þær aðeins í ljósi hinnar fullgerðu olíumyndar. Þvert á móti eru hér oft fullkomlega sjálfstæð og full- gild listaverk, sem hafa sitt eigið sérstaka gildi, mótað af þeim eig- inleikum efnisins, sem það er gert úr. Hér rfkir m.a. léttleiki og hinn ferski andblær vatnslitarins, sem höfundi er einkar lagið að gæða verk sín, jafnframt því sem þau búa yfir innileika og nálægð gagn- vart myndefninu, sem hann legg- ur ekki áherzlu á að sama skapi í hinum stóru olíumyndum sinum." skipanna 10650 lestum og urðu menn fyrir miklum vonbrigðum með veiðarnar. Tveir norskir bát- ar, sem einnig voru á veiðum á þessum slóðum, fengu yfir 13 þús. lestir á sama tíma, en þeir voru miklu betur búnir veiðarfærum. Sigurðui- RE var aflahæstur íslenzku skipanna með 2800 lestir, Ásberg RE fékk 2350 lestir, Óskar Halldórsson RE 1600 Iestir, Guðmundur RE 1600 lestir, Börkur NK 1400 lestir og Reykja- borg RE 900 lestir. Áður en skipin héldu af stað heim komu þau við í Las Palmas á Kanaríeyjum og munu einhverjir skipverjar fljúga heim með fs- lenzku flugfélögunum, t.d. e,- vitað um menn sem áttu að koma með þotu Air Viking f dag. BÓKAKYNNING verður I Norræna húsinu 1 dag og verða þar kynntar nýjar finnskar og sænskar bækur og eru það sendikennarar viðkomandi landa, sem annast kynninguna. ( til- efni af þessari kynningu kemur hingað til landsins sænski rithöf- undurinn Per Gunnar Evander og les hann úr verkum slnum. Per Gunnar Evander er fæddur árið 1 933 og tók fil. mag. próf frá Uppsöl- um og hóf síðan að starfa við kennslu. Siðar vann hann sem leiklistarráðu- nautur við sænska útvarpið og er nú starfsmaður sænska sjónvarpsins. Evander hefur skrifað margar bækur, bæði skáldsögur og leikrit en stlll hans þykir sérstæður og áhrifamikill Finnski sendikennarinn, Etelka Tamminen, mun einkum fjalla um „Dyre Prins" eftir Christer Kihlaan og bókina Per Gunnar Evander „Kotimaa" eða „Hemlandet" eins og bókin heitir I sænsku þýðingunni, eftir Alpo Ruuth, en þessar bækur hafa verið lagðar fram af Finnlands hálfu I keppni um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, sem afhent verða I febrúar 1 976. Skammdegið ng upplifun Undanfarin ár hefur Óslóarborg sent Revkvík- ingum að gjöf stórt jóla- tré. Þetta ár er að þessu leyti engin undantekning og hefur Óslóartréð þegar verið sett upp við Austurvöll en á þvf verður kveíkt f dag. Af því tilefni er borgarstjóri Óslóar, Brynjolf Bull, kominn hingað ásamt konu sinni og mun hann afhenda tréð. Morgunblaðið ræddi stuttlega við Bull f gær og sagði hann að það yrði eitt af sfnum síðustu em- bættisverkum sem borgarstjóri f Osló að af- henda jólatré, sem borg- in gefur íbúum Reykja- vfkur og Rotterdam. „Oslóarborg hefur um árabil gefið þessum tveimur borgum auk Lundúna jólatré. Við byrjuðum að senda Lundúnabúum tré fljótt — segir borgarstjóri Oslóar, sem í dag afhendir Oslóartréð eftir strfð, en f kringum 1950 fórum við einnig að senda tré til Rotterdam og Revkjavíkur," sagði Bull. Brynjolf Bull hefur margoft komið hingað til tslands en þetta er f annað sinn sem hann kemur hingað að vetrar- lagi. „Við hjónin komum hingað fvrst að vetrarlagi 1971 og það var alveg ný upplifun fyrir okkur. Myrkrið og skammdegið var okkur alveg nýtt og okkur fannst það gefa al- veg sérstaka þægilega jólastemmingu. Annars er ég búinn að vera hér ofí á undanförn- um árum, en alltaf að sumarlagi. Ég var hér á ráðstefnu höfuðhorga Norðurlanda fyrir tæp- um þremur árum þegar eldar voru uppi f Vest- mannaeyjum. Sfðan komum við á þjóð- hátfðina f fyrra og það var sérstaklega skemmti- leg og ánægjuleg ferð, ekki sfzt vegna þess hvað veðrið var gott. Og sfðan var ég héf ásamt sendi- nefnd frá Ósló í ágúst sfðast liðnum." Bull hefur verið borgarstjóri f Ósló, eða forseti borgarstjórnar, sem gegnir Ifku hlut- verki og borgarstjóri f Reykjavfk, sfðan 1951 eða í 24 ár. „Að vísu ekki sam- fleytt,“ segir Bull, „þvf ^ð tvisvar hefur íhalds- maður setið sem borgar- stjóri f 2 ár og 4 ár.“ Bull' er f Verkamannaflokkn- um. „Það hefur mikið gerzt og margt breytzt á þessum 25 árum. Sérstak- lega eru það skoðanir fólks og sjónarmið, sem breytast mjög ört. Til dæmis hömuðust við fyrir 25 árum við að rffa niður gamlar byggingar til að geta reist nýjar, en f dag vill fólk halda í sem mest af gömlum húsum. Svipaðar breytingar hafa átt sér stað á sjónar- miðum fólks gagnvart tækniþróun og í arki- tektúr. Sem stjórnmála- maður verður maður að passa sig á þvf að hefja sig ekki upp yfir sjónar- mið fólksins heldur verður maður að hlusta eftir og fylgjast með nýjum straumum. En þetta verður sffellt erfið- ara eftir þvf sem maður eldist, þvf maður getur alltaf átt von á hörðum orðaskiptum og mót- Brynjolf Bull. mælum, en f lifandi sam- félagi þarf maður sffellt að vera viðbúinn slfku.“ Þau hjónin verða hér aðeins f tvo daga og fara á mánudagsmorgun til Rotterdam f Hollandi, þar sem annað norskt jólatré bíður eftir að á þvá verði kveikt. RÓLEGT var á miðunum fyrir austan f gær og bar ekkert til tfðinda er Mbl. hafði samband við Landhelgisgæzluna um miðjan dag f gær. Týr og Þór voru þá við Heim frá Máritaníu fyrir jól ISLENZKU skipin fimm, sem verið hafa á veiðum undan strönd Máritaníu í haust, eru nú öll lögð af stað heim til Islands og ætla að vera komin til heimahafna 22. og 23. desember n.k. Alls nam afli gæzlustörf á miðunum og togur- unum, sem voru flestir að veiðum um 40 mflur austur af Glettinga- ncsi, hafði fækkað og voru þeir f gær rúmlega 30. Yfirmaður flota- deildarinnar brezku, sem hefur það verkefni að vernda landhelg- isbrjótana, kapteinn John Tait, neitaði þvf f gær að freigáturnar sigldu á miðin með mannaðar fallbyssur. Eins og skýrt var frá í Morgun- blaðinu í gær, sendi Guðmundur Kjærnested, skipherra á Tý, skeyti til aðalstöðva Landhelgis- gæzlunnar um það, að freigáturn- ar væru með mannaðar fallbyss- ur. Fréttamaður Reutersfrétta- stofunnar, Brian Williams, sem er um borð f freigátunni Bright- on, hafði í gær eftir Tait, að hér væri ekki rétt með farið og tals- maður flotamálaráðuneytisins i Framhald á bls. 38 Bókakynning 1 Nor- ræna húsinu í dag Bretunum fækkar Rúmlega 30 brezkir togarar á miðunum í gær Sinfóníuhljómsveitin í Reykjavík, sem var stofnuð í haust, hefur æft af íuiium krafti undir stjórn Garðars Cortes og milli jóla og nýjárs verða fyrstu tónleikarn- ir með fjölbreyttri efnisskrá og einsöngvarar munu þá syngja með hljómsveit- inni. Um 40 hljóðfæraleikarar leika í Sinfóníuhljómsveitinni í Reykjavik. Ljósmynd. Mbl. Sv.Þorm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.