Morgunblaðið - 14.12.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1975
bjuhmmnn'mgpr
I Jneyjar Jt'Juvmfdottur
fni Ijtxatnýri
Úrvals
hangikjöt
JOTBUÐIN
Laugavegi 78
Hlýog
falleg bók
Þorfpir Þorneirsson
Það ereitthvaðsem
enginn veit
Það er eitthvað sem cMyinii «cu
eftir Þorgeir Þorgeirsson
Bernskuminningar Líneyjar Jó-
hannesdóttur frá Laxamýri eru
fágætlega kvikar og lifandi
myndir frá horfinni veröld. Hnit-
miðaSar frásagnir og skörp at-
hyglisgáfa bregða birtu yfir ó-
venjulegt mannlíf á höfuðbólinu
Laxamýri í Þingeyjarsýslu og
ættmenn Jóhanns Sigurjónsson-
ar skálds. Þetta er hlý og falleg
bók sem ber vitni um næma
skynjun og djúpar tilfinningar.
Þorgeir Þorgeirsson hefur farið
meistarahöndum um efnivið
sinn. Hann hefur þjappað miklu
efni saman ( knappan og kjarn-
yrtan texta. Honum hefur tekist
að halda í frásögninni yfirbragði
eðlilegs talmáls en gætt hana
um leið þeim eigindum góðs rit-
máls sem gera hana markvissa
og eftirminnilega. Þorgeir held-
ur fuflum trúnaði við málfar Lín-
eyjar, sem er sérkennilegt og
blæbrigðaríkt og nær oft skáld-
legri upphafningu.
Þetta er bók sem er allt í senn:
þjóSlifslýsing, safn skemmtilegra
frásagna, einstakar persónulýs-
ingar og meitlaS bókmenntaverk.
Nýjar víddir í
mannlegri skynjun
„NÝJAR víddir á mannlegri
skynjun" heitir ný bók sem
Bókaútgáfan Þjóðsaga hefur
sent á markaðinn. Hún er eftir
Shafica Karagulla, sem er sér-
fræðingur í tauga- og geðsjúk-
dómum.
Karagulla kynnir í bókinni
árangur af átta ára rannsókn-
um sínum á sviði æðri skynj-
unar (Higher Sense Percepti-
on), en hún hefur komizt að
því, að hæfileikar til æðri
skynjunar eru miklu út-
breiddari en almennt hefur
verið álitið. Uppgötvanir höf-
undar á þessu sviði sýna, að
þúsundir manna nota þegar
þessa hæfileika á öllum sviðum
mannlegs lífs.
Á bókarkápu segir, að Kara-
gulla leggi fram sannanir,
reistar á tilraunuih, sem hljóti
að vekja athygli og áhuga. Þar
kemur og fram, að hér og þar í
bókinni muni lesandinn kynn-
ast einhverju af eigin reynslu
sinni.
Meðal þess sem Shafica Kara-
gulla hefur kannað og gert til-
raunir með eru fjölmörg af-
brigði æðri skynjunar, þ. á m.
skyggnigáfu, hugsanaflutning,
hlutskyggni og forspá.
Shafica Karagulla fæddist í
Tyrklandi og hefur hún um
langt skeið starfað sem tauga-
og geðlæknir i fjórum löndum.
Læknisfræðinám stundaði hún
f Edinborg, starfaði um skeið í
Bretlandi, Kanada og loks í
Bandarikjunum.
Hún er nú forseti og rann-
sóknastjóri Stofnunar til rann-
sókna á æðri skynjun (Higher
Sense Perception Research
Foundation) í Kaiiforníu.
■y■'■'■'■■Ý
■
Kjólar
í stórkostlegu úrvali
komnir og vœntanlegir fyrir jól.
TÍZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a
Simi frá skiptiborði 28155