Morgunblaðið - 14.12.1975, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.12.1975, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1975 1. stig: 2. stig: 3. stig: 4. stig: um 30% minna níkótín um 60% minna níkótín um 70% minna níkótín um 80% minna níkótín og tjara og tjara. og tjara. og tjara. Hvernig hætta má reykingum á 4 sinnum tveimur vikum. Á meðan þú reykir áfram í nokkurn tima eftirlætis sigarettu þína verður þú jafnframt óháðari reyk- ingum. Án neikvæðra aukaverkana og án þess að bæta við líkams- þyngd. Frá Bandaríkjunum kemur nú ný aðferð, þróuð af læknum í Kaliforníu, fyrir alla þá, sem hafa reynt árangurslaust að hætta reyk- ingum eða fyrir þá sem vildu gjarn- an hætta en óttast aukaverkanir. Þessi aðferð hefur verið nefnd: MD4 stoþ smoking method. Eðlilegt reykbindindi — á meðan þér reykið. MD4 Method er byggt uþþ á 4 mismunandi síum, og er hver þeirra notuð í 14 daga. Áhrif þeirra koma fram við stigminnkandi níkótín- og tjörumagn í reyknum. Þannig verð- ur ,,Níkótín hungur" þitt, smám saman minna — án aukaverkana —, þar til þú einfaldlega hættir að reykja. 1. stig: Innihald skaðlegra efna í sígarettunni minnkar um 30% án þess að bragðiö breytist. 2. stig: Tjara og níkótfn hefur nú minnkað um 60%. Eftir nokkra daga kemur árangurinn í Ijós, minni þreyta og minni hósti. 3. stig: Fjöldi þeirra sígaretta, sem þú hefur reykt, hefur minnkað tals- vert, án þess að þú verðir var við það. Þörf líkamans fyrir níkótíni hefur dofnað. 4. stig: Jafnvel þótt þú reykir 10 sígarettur á dag, þá er innihald skaðlegra efna samsvarandi 2 síga- rettum án MD4. Nú getur það tekist. Ef þú ert nú tilbúin að hætta reyk- ingum, þá er líkaminn einnig undir það búinn. Fæst einungis í lyfjaverzlunum. MD4 nti smoking method Þér verður hlýtt tíl hans Þurrkarinn frá ENGLISH ELECTRIC I er ómissandi i islenskri veöráttu. Tvær hitastillingar. 5 kg. afköst. Einfaldur öryggisbúnaður. Útblástursbarki einnig fáanlegur. Yfir 20 ára reynsla hérlendis. Varahluta- og viðgeröarþjónusta frá eigin verkstæöi. Laugavegi 178 Sími 38000 — Minning Sigmundur Framhald af bls. 32 hann heiðursfélaga stéttarfélags síns. Sigmundur starfaði einnig í Sjálfstæðisfélagi Siglufjarðar og Skagfirðingafélaginu í Siglufirði. Sigmundur Sigtryggsson ólst upp í fögru héraði og björtu. Sjón- deildarhringurinn var víður og fagur: Búsældarlegar byggðir, blár f jörður og breiður, Tindastól, Drangey, Þórðarhöfði. Á sumrum brann sól á gluggum um lágnætti. Það var líka heiðríkja og birta yfir fólkinu í átthögum hans á fyrstu áratugum aldarinnar. Söngur og gleði voru förunautar þess. Og alla ævi var Sigmundur sannur Skagfirðingur. Hann naut þess að syngja, var gæddur hrein- fagurri bassarödd. Þeirrar raddar naút Siglufjarðarkrikja um langt árabil. Mágur hans og vin- ur, Páll Erlendsson, leiddi þar lengi sönginn af fágaðri smekk- vísi. í þeirri kirkju mun hann kvaddur á morgun. Það var gott að vera barn I Siglufirði á þeim árum er Islands- bersar og fátækir námsmenn og tónlistarmenn áttu gengi sitt und- ir silfurfiskinum einum. Andblær tfmanna var ferskur og lognmolla víðs fjarri. Margt var á verð og flugi, sumt á hverfanda hveli. En vissir hlutir og ákveðnir menn stóðu óhagganlegir og rótfastir í straumröst mikilla breytinga. Einn þeirra manna var Sigmund- ur Sigtryggsson sem stundum var nefndur Sigmundur í Gröf eða Sigmundur I Eincó. Á sumrin varð bærinn okkar við lygnan fjörðinn heimsborgaralegur á svipinn. Og Sigmundur stóð f versluninni við Tjarnargötuna á móti Hvíta húsinu og afgreiddi málningu (eða mál á norðlensku) með spaugsyrði á vör. Á veturna var bærinn eins og afskekkt Alpaþorp, kyrrðin og friðurinn gat minnt á jólakort. Og Sigmundur stóð í Eincó og lét mönnum f té gamanyrði ásamt nöglum og verkfærum. Og þó man ég hann ekki best í búðinni heldur heima. Þar naut hann sfn jafnvel enn betur en í önn dagsins. Þar var jafnan margt um manninn. Ég kom þar dögum oftar meira en áratug og aldrei man ég þar fámennt borðhald eða dauflegt. Auk barna og fóstur- barna flykktust þangað frændur og vinir, skólafólk í sumarvinnu eða jólaleyfi, enda ætíð að góðu að hverfa: Margrét mildin og ástúðin persónugerð og Sigmundur glað- værðin og fjörið og fyndnin. Og bæði voru þau gædd óvenjulegum sálargáfum, yljuðum þeirri mann- ást sem byggir á einlægri og fölskvalausri trú. Þess vegna var heimili þeirra hlý vin f vetrar- kulda og kyrrlátt skjól f sumar- önnum. Sigmundur Sigtryggsson var manna skemmtilegastur. Hress var hann jafnan og kátur. Hann var flestum hnyttnari. Tilsvör hans sum urðu landfleyg og hafa jafnvel komist á bækur. En skop- vísi hans var aldrei blandin ill- kvittni eða kaldhæðni. Fyndni hans var , græskulaus. Lífsfjör hans brann hlýjum loga en gneist- aði ekki köldum eldi. Þess vegna var gott að vera samvistum við hann — og gaman. Síðustu æviárin vissi Sigmund- ur fátt um hvað gerðist hér í heimi. Ævin var orðin löng, spor- in mörg, nánustu ástvinir hans sumir horfnir sjónum manna. Því varð hvíldin honum að lfkindum kær. Það vitum við vinir hans og kveðjum hann í glaðri von og trú. En engu að sfður býr söknuður í huga. Hinir gömlu, góðu dagar, sem hann átti svo ríkan þátt í að gæða lífi og lit, hafa færst enn fjær við lát hans. „Og andlitin sem þér ætíð fannst að ekkert þokaði úr skorðum — hin sömu jafn langt og lengst þú manst — ei ljóma nú við þér sem forðum." (Þ.Vald.) Þakkir fylgja honum fyrir það sem hann „var og vann“. Blessuð sé minning hins mæta drengs. Bœkur sem vekja persónuleiki skólabarnsins Páll Skúlason hugsun og veruleiki í Persónuleiki skólabarnsins I útgáfu dr. Matthiasar Jónassonar 12 sérfræðingar skrifa um þróun persónUleika barna og unglinga. Ómiss- andi öllum foreldrum, kennurum, kennaranemum og fóstrum. Hugsun og veruleiki eftir Pál Skúlason prófessor Alþýðlegt heimspekirit sem fjallar um ýmsar ráðgátur mannlifsins sem á flesta leita. Bókin er skrifuð á aðgengilegan og einfaldan hátt án þess að slakað sé á kröfum um fræðilega nákvæmni. Ólafur Haukur Árnason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.