Morgunblaðið - 14.12.1975, Side 16

Morgunblaðið - 14.12.1975, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDÁGUR 14. DESEMBER 1975 Hafnarfjörður Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar hefur tekið til starfa. Uppl. í símum 51746 — 51386 — og 52268. VÖRÐUR F.U.S. AKUREYRI S.U.S. Félagsfundur Varðar F.U.S. Akureyri Vörður F.U.S. Akureyri hefur ákveðíð að efna til almenns félagsfundar sunnudaginn 14. desenv ber í Sjálfstæðishúsinu (uppi) og hefst fundurinn kl. 16.00. Á fundinn mæta Baldur Guðlaugsson, sjtórnarmaður S.Ú.S., Jón Steinar Gunnlaugs- son stjórnarmaður S.U:S. og Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, varafor- maður S.U.S. og munu þeir fjalla um helztu viðfangsefni og baráttumál S.U.S. Félagar eru hvattir til að mæta vel og stundvis- lega. Stjórnin. Sjálfstæðisfélag Garða- og Bessastaðahrepps heldur aðalfund sinn mánudaginn 15 desember 1975 kl 20 30 I Garðarholti 1 Venjuleg aðalfundarstörf 2 Garðar Sigurgeirsson sveitarstjóri ræðir sveitastjórnarmál og svarar fyrirspurnum. Stjórnin. Afmœliskveðja: Heíga Jónsdóttir Helga Jónsdóttir fyrrum hús- freyja hér á Blönduósi er áttræð á morgun. Þó að hún hafi um sinn átt sitt rausnarheimili syðra og ræktað þar nýjan garð er okkur tamt að eigna henni stað hér. Fædd er hún á Gunnfríðarstöðum og voru foreldrar hennar Jón Hróbjartsson og Anna Einars- dóttir. — Afi hennar, Bólu-Einar, var nótt I Ambáttarhól hjá Guðnýju Snorradóttur frá Húsa- felli og varð sér úti um ýmsan fróðleik gagnlegan, því að hún kunni galdur. Þótt hann brenndi alla sína galdrastafi, hafa hygg- indi hans og hagmælska gengið að erfðum og Helga fengið ómældan skerf. Um ætt hennar og merkan ævi- feril vísa ég annars til afmælis- greinar í Mbl. fyrir tfu árum, eftir Pál Kolka. Þar bæti ég ekki um, en spjalla heldur frjálslega um fá atriði af mörgum, sem f hugann koma. Hér hef ég fyrst spurnir af henni sem nemanda í Kvenna- skólanum á Blönduósi, fyrir u.þ.b. 60 árum. Áður hafði hún unnið við hjúkrun hjá lækninum á Sauðárkróki. Er leið á vetur brást honum aðstoð, leitaði til hennar og þóttist ekki geta beðið eftir að skólavist lyki. Helga Jónsdóttir bar upp erindi hans við skóla- stjóra og kennara, sem skildu nauðsyn læknisins og unga stúlk- an hélt gangandi norður yfir Kol- ugafjall með pjönkur sínar. Hún hafði engin umsvif, þá né síðar, þegar mikið lá við. Var hún við hjúkrunarnám hjá lækninum í tvö ár. Vfða hef ég séð á Blönduósi mynd á þili af þeim hjónum með börnin sín tólf, sem upp komust. Bóndi hennar, Steingrimur Davfðsson, skólastjóri, vegaverk- stjóri og löngum forystumaður í hreppsmálum, fór ekki dult með að hún ræki oft uppeldið og heimilisstjórnina fyrir beggja hönd. Eftir nær tvo áratugi er mér f fersku minni að koma ókunnug á heimili þeirra. Steingrímur sótti mig, spýtti mórauðu og snarsneri jeppanum við hótelið á þann veg að síðan er ég áttavillt hér. Við stofudyrnar mætti ég Helgu í fyrsta sinn og Steingrímur sagði, eins og raunar lá beint við: „Þetta er konan mfn, Helga Jónsdóttir." Af öllum orðum hans f ræðu og riti í 19 ár eru mér þessi minnis- stæðust, fyrir það einlæga stolt, sem bjó f tóninum. Mér varð litið aftur til þeirrar konu sem átti að verðskulda þennan tón. Og það hefur aldrei valdið neinum von- brigðum síðan. Ekki kann ég skil á öllum þeim 10 eða 12 Helgum, sem lög gera ráð fyrir að beri hennar nafn, samkvæmt fslenzkum nafnvenj- um, enda flestar utan við marka- skrár Húnavatnssýslu, sem stund- um er blaðað í, þegar Helgu og Steingrfm ber hér að garði. En ég trúi að gifta fylgi nafni. Aldrei hef ég heldur haft tölu á þeim, sem bera nafn Steingríms, en hollt mun þeim að velja kvonfang sitt á sama hátt og afi þeirra, og sé raunar ekki betur en sumir þeirra komi einmitt auga á stúlkur af hennar tagi, þó að engin nauðsyn knýi menn eða konur af þeirra kynslóð til að leggja án fylgdar á Kolugafjall á vetrardegi. Þess skal minnst að Helga tók þátt í ýmsu utan síns stóra heimilis. Hún lifir nú ein þeirra kvenna, sem stofnuðu Kven- félagið Vöku fyrir nær 48 árum. Hún var lengi meðal hinna ötul- ustu félagskvenna við hin merku störf félagsins að líknar- og menn- ingarmálum. Hún hefur fyrir löngu verið kjörin heiðursfélagi þess. Við hjónin sendum Helgu kærar kveðjur að norðan, beztu óskir og þökk fyrir liðin ár. 6. desember ’75. Þorbjörg Bergþórsdóttir. Lóubúð — Nýtt Jakkapeysur, ullarpeysur, velourbolir og peys- ur. Skíðafatnaður alls konar. Dömukápur. Terylenebuxur barna. Lóubúð, Bankastræti 14, II. hæð, sími 13670. TÓMAS GUÐMUNDSSON • • STJORNUR VORSINS 1 tilefni af 75 ára afmœli Tómasar Guðmundssonar skálds 6. jan. /976 gefur Almenna bókafélagið úl STJÖRNUR VORSINS í viðhafnarút- gáfu með myndskreytingum Steinunnar Marteinsdótlur. Formála ritar Kristján Karlsson. Bókin er gefin út í mjög takmörkuðu upplagi eða 1495 tölusettum eintökum, öll með eiginhandaráritun skáldsins. Bókin er til sölu í bokaverzlunum og hjá Almenna bókafélaginu á einu og sama verði allsstaðar og kostar kr. 7.800.- með söluskalti. Pantanir verða afgreiddar eftir þeirri röð sem þær berast til okkar. Þessi bok er prentuö og bundin í 1495 tölusettum eintökum og er þetta eintak nr. \AA)rsOr>\AA'5 ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ Austurstræti 18, R sími 19707-16997

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.