Tíminn - 18.05.1965, Page 1
HANDBOK
VERZLUNARMAUNA
ÁSKRIFTARSÍMI
16688 16688 16688
HANDBOK
VERZLUNARMANNA
ÁSKRIFTARSÍMI
16688 16688 16688
110. tbl. — Þriðjudagur 18. maí 1965 — 49. árg.
MERKINGAR A
HVÖLUM AÐ
HEFJAST HÉR
Þyrlan lenti á Óðni
Síðas,tliðinn laugardag lenti
íslenzka þyrlan í fyrsta skipti á
varðskipinu Óðni. Þetta gerðist
út af Vestfjörðum og tókust
lendingarnar vel, en þær urðu
alls átta áður en frá var horfið.
r\rt lrimiirtt r\v Vv o r\w
og Landhelgisgæzlunnar og
hafa nú opnazt nýir möguleikar
við björgunarstarf, þegar Óð-
inn, vegna lendingarpallsins,
og þyrlan geta unnið saman við
aðstæður, sem voru næsta von-
lausar áður. Eftir þessa vel-
heppnuðu lendingaræfingar á
laugardaginn komu Óðinn og
þyrlan inn til Isafjarðar. Flug-
maður í þessu æfingaflugi
vestra var Björn Jónsson. Mynd
in hér að neðan var tekin
vestra, þegar þyrlan var að
lenda í einni atrennunni. Til
hliðar sér í merkjamann, sem
veifar þyrlunni niður. (Ljósm.
Jón Eyjólfsson).
JHM-Reykjavík mánudag.
f gær, sunnudag, fór einn ;;f
hvalbátunum frá Hval h. f. í leið
angur til að merkja hvali. Ferðin
er farin á vegum Fiskideiidar At-
vinnudeildar Háskólans, og Hval-
h. f., en Jón Jónsson fiskifræðing
ur, er leiðangursstjórinn í ferðinni
Þetta er fyrsta ferðin sem farin
er af íslendingum til hvalmerk-
inga. Það er Hvalur 7, sem notað
Prinsinn
hættir
Sðils-Khöfn, mánudag.
Ekstrabladet í Kaupmannahöfn
segir frá því í dag, að Sameinaða
gnfuskipafélagið muni neyðast til
þess á hausti komanda að skipta
um skip í siglingamar milli Dan-
merkur og íslands, en ekki sé full-
ráðið enn þá, hvaða skip komi í
staðinn fyrir Kronprins Olaf, sem
tók við af Drottningunni í vor.
Blaðið segir, að hið hraðskreiða
og fallega skip sé ekki heppilegt
til siglinga á Norður-Atlantshafinu
að haust- eða vetrarlagi, eins og
sýnt hafi sig í fyrstu ferð þess til
íslands nú í vor. Að sjálfsögðu
er engin hætta því samfara að hafa
Krónprinsinn í þessum siglingum
allt árið um kring, en hins vegar
kom í ljós, að skipið veltur mikið,
eða allt að 20 gráðum, og það
segir sig sjálft, að það er óþægi-
legt, bæði fyrir farþega og áhöfn-
ina.
Ekki hefur enn verið tekin
ákvörðun um það, hvaða skip tekur
við af Kronprins Olaf, en líkur
eru á því, að það verði annað
hvort Kronprins Frederik eða
Kronprinsesse Ingrid, segir blað-
ið.
ux er í þessari ferð, og mun hann
koma aftur n.k. föstudag.
Tíminn skýrði frá því í des-
embermánuði s. 1. að hafizt yrði
handa nú í vor að merkja hvali
hér við landið. íslendingar vita
harla lítið um hegðun þeirra
hvalategunda sem eru hér í kring
um landið. Þessar merkingar eiga
því að geta gefið meiri upplýsíng
ar um lifnaðarhætti hvalsins.
Að því er blaðið bezt veit,
er ætlunin að merkja aðallega
langreyðina. Merkingarnar eru
gerðar með þeim hætti að merkj
um er skotið með byssum inn í
spiklagið á hvalnum, þar sem þau
síðan sitja föst.
Eins og fyrr segir, hafa ís-
lendingar aldrei fengizt við slík
ar merkingar fyrr, en Englending
ar og Norðmenn hafa gert mikið
af þessu í Suðurhöfum. Á seinni
árum eru það aðajlega Japanir
sem fást við hvalamerkingar.
Hvalur 7 fer á hvaiámiðin hér
út af Faxaflóanum og fer fyrst
suðureftir, og síðan norður, eða
það sem hvalveiðimenn kalla
„hringinn".
Ein af þeim mörgu ráðgátum
varðandi hvalinn hér við land,
er að hér veiðast aðeins karldýr
Framhala a t4. slðu.
Flugmálastjóra var falið
að ákvarða vaktatímann
JHM-IGÞ-Reykjavík, mánudag.
Deilan um vaktatímann milli
flugmanna á RR400 og Loftleiða
leystist nú um helgina eftir löng
og ströng fundahöld með því að
Loftleiðir drógu til baka uppsögn,
er félagið hafði sent Inga Kolbeins-
syni, aðstoðarflugmanni. Jafnframt
BJÓÐA UPP Á „FRÍAR"
BÆKUR GEGN ÁSKRIFT
JHM-Reykjavík, mánudag.
Hér í borg eru nú staddir
tveir bandarískir bókasölu-
menn, sem eru að bjóða mönn
um upp á „fríar“ alfræðiorða
bækur ef viðskiptavinurinn
gengst inn á að kaupa árlegar
endurnýjanir í nokkur ár fyr-
ir 30 dollara á ári. f fyrra voru
hér sex útlendingar sem voru
i leyfisleysi að selja lands-
mönnum áskriftir að erlendum
tímaritum. Af þeim ástæðum
athugaði Tíminn hvort Banda
ríkjamennirnir hefðu söluleyfi
hér.
Þessir bókasölumenn bjóða
fólki 14 binda alfræði-
orðabók, sem heitir New Stand
ard Encyclopedia. Þeir segja
viðskiptavinunum að þeir séu
sérstaklega „útvaldir" og eigi
að fá öll 14 bindin frí, ef þeir
skrifi undir samning um að
kaupa árlegar endumýjanir,
eins og fyrr getur.
Blaðíð sneri sér fyrst til
Gríms Gíslasonar hjá Innkaupa
sambandi bóksala, og spurði
hann hvort Bandaríkjamenn
irnir hefðu söluleyfi. Hann
sagðist ekki vita til þess að
Framhald S 14. síðu
var spursmálið um vaktatíma flug-
manna meðan á gerðardómi stend
ur Iagt fyrir Agnar Kofoed-Han-
sen, flugmálastjóra, til ákvörðun-
ar. Má það telja farsæla lausn á
miklu vandamáli, sem meðal ann-
ars kostaði það, að allir flugmenn
hjá Loftleiðum lögðu niður vinnu
um helgina.
Tíminn hefur frétt, að uppsögn
Inga Kolbeinssonar, aðstoðarflug-
manns, hafi vægast sagt vakið
mikla reiði í röðum flugmanna,
og sízt orðið til að lægja öldurnar,
vegna þess að það var alls ekki í
hans valdi sem aðstoðarflugmanns
að ákvarða, hvort skyldi fljúga
eða ekki í umrædd þrjú skipti,
sem sýnt þótti, að vaktin myndi
standa lengur en tólf tíma. Það var
flugstjóra hverju sinni að ákvarða
þetta og ákvörðunin því óviðkom-
andi Inga Kolbeinssyni.
En úr þessu öllu rættist nú um
helgina með því að uppsögnin var
tekin aftur og vaktamálið síðan
lagt í dóm flugmálastjóra. Varð
þetta að undangengnum miklum
fundahöldum, nú síðast milli Loft
leiðamanna og samninganefndar
flugmanna, og stóð sá fundur fram
undir morgun í dag, mánudag.
Loftleiðir urðu fyrir minnihátt-
ar óþægindum út af vinnustöðvun
flugmanna. Komu þau aðallega
fram í seinkun flugferða, og að
minnsta kosti ein flugvél stöðvað-
ist erlendis. Varð félagið þar af
leiðandi að leigja eina flugvél.
Áður en fyrrgreind uppsögn
kom til skjalanna, höfðu fulltrú-
ar félagsins og flugmanna komið
saman til nokkurra funda, þar
sem rætt var um flugstundatölu á
RR400.
Loftleiðir og FÍA sendu sameig-
inlega út fréttatilkynningu um
deiluna og lausn hennar og fer
hún hér á eftir:
„Eins og kunnugt er af frétt-
um hefur staðið yfir deila milli
Loftleiða og Félags íslenzkra at-
vinnuflugmanna vegna uppsagnar
Inga Kolbeinssonar, aðstoðarflug-
manns.
Ósamkomulagið varð upphaflega
vegna þeirrar ákvörðunar Félags
Framhald á 14. síðu.