Tíminn - 18.05.1965, Blaðsíða 3

Tíminn - 18.05.1965, Blaðsíða 3
 sem haldin var í Reykholti. Myndin er frá vélasýni ÞRIÐJUDAGUR 18. maí 1965. TÍMINN Fjölþætt æskulýðsstarfsemi í Niýra- og Borgarfjarðarsýslum EJ-Reykjavík, föstudag. Æskulýðs- og menningarmála- nefnd Mýra- og Borgarfjarðarsýslu hélt tækniviku í Reykholti dagana 2.—9. maí, og tókst mjög vel. Skiptist vikan niður í vélanám- skeið, vélasýningu, keppni í akstri dráttarvéla og fræðslu um öryggis mál í sambandi við landbúnaðar- vólar. Nefndin fyrirhugar ýmiss konar starfsemi í sumar, m. a. skemmtanir fyrir unglinga, sumar- námskcið og leiðbeinendanámskeið og sumarbúðir að Varmalandi £ samvinnu við fþróttaskóla Höskuld- ar og Vilhjálms. Nefndin hélt fund með blaða- ipönnum í dag og skýrði Vilhjálm- ur Einarsson, starfsmaður nefnd- arinnar, þar frá tæknivikunni, sem tókst mjög vel. Vikan hófst 2. maí með almennum fundi um ör- yggisráðstafanir við notkun land- búnaðarvéla. Voru flutt erindi og sýndar kvikmyndir um þessi mál. Vélanámskeiðið sjálft stóð í fjóra daga. Var þátttakendum, sem voru 25, skipt niður í fjóra hópa, og var hver hópur hjá ein- um af eftirtöldum kennurum: Kristján Hannesson, sem kenndi ventlastillingu, Pétur Haraldsson, sem kenndi um rafbúnað, Ragnar Halldórsson, sem kenndi um gír- kassa, kúplingu og hemla, og Halldór Kristjánsson, sem kenndi um olíuverkið. Síðan ræddu fulltriiaf, frá ,, un>- boðum hinna ýmsu véla hver um sína tegund, og máttu þátttakend- ur velja um hvaða vél þeir vildu fræðast. A vélasýningunni sýndu 10 fyrir- tæki dráttarvélar, e.i auk þessj voru sýnd á sýningunni um 201 tæki í sambandi við dráttavélarn-j ar. Einnig voru sýndar landbúnað- arbifreiðir frá 5 innflytjendum. Að lokum var svo keppni í akstri' dráttarvéla, og varð Bjarni Guð- ráðsson, »Ng$i, Reykholtsdal, sigur- vegari. *; • Síðasta dag tæknivikunnar var skýrt frá úrslitum ritgerðarsam- keppni, sem Samvinnutryggingar Framhalo a 14 siðu Vertíð lokið í Vogunum SP—Vogum, miðvikudag. Vertíð er nú lokið hér og var Ágúst Guðmundsson II að taka upp netin í dag. Hefur vertíðin hér verið sæmileg miðað við það, sem verið hefur í öðrum verstöð um við sunnanverðan Faxaflóa. Héðan hafa gengið tveir þilfars bátar með þorskanet og einnig réri héðan ein trilla í rúman mán uð með net. Gekk henni frekar illa — fékk rúm 23 tonn. Ágúst Guðmundsson hætti um mániaðamótin vegna vélabilunar. fékk hann tæp. 500 tonn. Ágúst Guðmundsson II tók upp netin í dag, og er hann þá búinn að fiska rúm 800 tonn. Eru sjómenn hér vel ánægðir með þá útkomu, ef miðað er við aðra staði. Er vertíð þá lokið hér. Verkalýðsfélag Vatnsleysustrand ar hefur sagt upp kaup- og kjara samningum við atvinnurekendur frá 5. júní, og eru samningar laus ir eftir þann tíma. Hrognkelsaveiði góð GPV—Trékyllisvík föstudag. Hrognkelsaveiði hefur venð góð hjá Gjögurbátum, þegar hægt hef ur verið að leggja netin vegna ísa. Um íbúa Djúpuvíkui er það gð segja, að þeir höfðu búið sig unáir að stunda hrognkelsaveiði, en þar hefur allt verið lokað af ís í vetur, og virðist því útlit helzt vera fyrir að þeir missi algjörlega af veiðinni í þetta sinn. RAFREIKNIR Hl ÖNNUM KAFINN Karl Kristjánsson heiðraður á siöteafmælinu AK—Rvík. — Fjöldi gesta heim sótti Karl Kristjánsson, alþingis- mann á sjötwgsafmæli hans s.l. mánudag, en þann dag dvaldist hanin á heimili Kristjáns sonar síns og konu hans Elísabetar Blöndal. Þingflokkur Framsóknar manna heimsótti hann þar og fleiri þingbræður, og ýmsir fluttu honum ávörp og kveðjur í lausu máli og bundnu. Homum bárust og margar góðar gjafir svo sem frá bæjarstjórn Húsavíkur, Kaupfélagi Þingeyinga. Almenna bókafélaginu og vinniff, frændum og samherj- um bæði hér í Reykjavík og norð ur í kjördæmi hans. Honum bár- ust og heillaskeyti svo hundruðum skipti og voru sum þeirra snjall ar Ijóðkveðjur. Börm þeirra Karls og Pálínu, sem nyrðra búa, komu og suður í tilefni afmælisins. EJ-Reykjavík, fimmtudag Rafeindareiknir Háskóla íslands hefur verið í notkun síðan í des- ember s. 1. og hafa ýmsir aðilar notfært sér hann við lausn rann sóknarverkefna og annarra hag- nýtra verkefna. Þó hef'ur starf- semin þessa fáu mánuði mótazt mjög af aðalmarkmiði stofnunar- innar, en það er að innlei*? bé á landi notkun rafeindareikna, og hafa fimm námskeið verið hald in í því skyni að kenna mönnum notkun reiknisins, og hafa 85 manns sótt þessi námskeið. Magnús Magnússon, prófessor, forstöðumaður Reiknistofnunar Há skólans, skýrði blaðamönnum frá þessu í dag, og sagði hann, að meðal þeirra, sem notfært hefðu sér reikninn væru verkfræðingar á skrifstofu borgarverkfræðings í sambandi við úrvinnslu landmæl- inga og útreikninga vegna lóða marka, götuhæða vegna lagningu nýrra gatna og fleira. Starfsmenn raforkumálaskrifstofunnar hafa unnið úr landmælinum, segulmæl ingum og úr jarðsveiflumælingum. Eínnig hafa verið gerðir útreikn ingar í sambandi við lögn á raf- magnslínum, þar sem taka verð- ur tillit til álags á staura og línur vegna ísingar, vinda og strenging ar. Einnig er unnið þar að út- reíkningum í sambandi við statist ískar athuganir á vatnsrennsli og við athuganir á samrekstri orku- vera. Nýlega hafa verið gerðir all umfangsmiklir útreikningar fyrir vegamálastjórnína í sambandi við lagningu Reykjanesbrautar. Þessir útreikningar eru það umfangs- miklir, að þeir mundu taka verk fræðing tvo til þrjá mánuði með venjulegum aðferðum, en raf- eindareiknírinn skilar þessum út reikningum á einum til tveimur klukkutímum, þegar búið er að út'búa þá fyrir hann. Aðrar verk fræðistofnanir hafa einníg notfært sér rafeindareikninn, svo sem Rafmagnsveita Reykjavíkur og Verkfræðistofa Sigurðar Thorodd sens. Af öðrum verkefnum má nefna útreikninga í sambandi víð almanak Þjóðvinafélagsins. Áður voru þessir reikningar gerðir í höndunum, og var þá takmarkað, hvað hægt var að gera mikið af þeim. Fram til þessa hefur t. d. verið reiknuð sólarupprás og sól- setur fyrir aðeins einn stað á landinu, nefnilega Reykjavík, en nú með hjálp rafeindareiknísins hafa þessir reikningar verið gerð ir fyrir sex staði á landinu, og auk þess eru reíknuð út birting og myrkur. Er ekki vafi á, að nú j verður mögulegt að gera almanak- I ið enn fullkomnara en það hefur verið. Á vegum Eðlisfræðistofn- j unar Háskólans hafa verið gerðir útreikningar i sambandi við úr- vinnslu segulmælinga. Atvinnu- FramhaJö a 14 slðu Stúdentablaðið komið FB—Reykjavík, fimmtudag. ; Stúdentablaðið 1. tbl. 1965, er j komið út, og eru í því margar , greinar um starfsemi stúdenta inn I an Háskólans og hugðarefni þeirra. Björn Teitsson stud mag. formaður SHÍ skrifar „Fra Stúd entaráði “ Þá lagði Stúdentablaðið spurningar fyrir nokkra háskóla-| menn um eflingu Háskólabóka- safnsins, og birtast svörin í blaði inu. Svarendur eru Björn Sigfús' son háskólabókavörður, dr. Hreinn Benediktsson og dr Trausti Einarsson Prófessor Jóhann Hannesson skrifar um stúdenta- presta. viðtal er í blaðinu við ■löku) Jakobsson rithöfund sem nefnist „í sálufélagi við seli í Hvammsfirði“ Sver'rir Hólmars- son stud mag. skrifar um T. S. Eliot og að 'okum er viðta) við Kristínu Magnúsdóttur fram kvæmdastjóra Bóksölu stúdenta. Á VÍÐAVANGI Þrjár fyrirsagnir Það sem landsmenn tóku sér staklega eftir í ræðum ráðherr anna í eldhúsumræðunum frá Alþingi í vikunni sem leið var afsökunartónninn, þessi beygjulegi afsökunartónn, rétt Iætingairviðleitnin. En þar fór að sjálfsögðu eins og í kvæði Stcphans G. að „í hverri af- sökun ásökun var“. Við möi?n um blöstu mistökin, hrakfarir stjórnarstefnunnar í enn skýr ari mynd. Þegar ráðherrarnir birta ræður sínar á eftir í Morg unblaðinu er ekki ehiu sinni hægt að semja á þær fyrirsagn ir án þess að brosleg öfugmæli þeirra blasi við öllum. Það er eins og ráðherrarnir lifi enn í gömlum en gengnum fyrir- heitum sínuin. Afsakanir er auðvitað ekki hægt að setja í fyrirsögn, og því er þar gripið til gamalla steiguryrða, en nú hljóma þau sem skringileg öfugmæli í hrópandj mótsögn við það, sem orðið er. í Mbl. s.I. sunnudag eru t.ð. birtar þrjár ræður ráðherra, og fyrirsagnir þeirra allra bregða upp þessari kómísku öfugmæla mynd. Fyrirsögnin á ræðu Bjarna forsætisráðherra er þessi: „JAFNVÆGI í EFNA- HAGSMÁLUM VERÐI EKKl SETT ÚR SKORÐUM '. Hér hrópar forsætisráðherrann upp um það, að ekki megi setja úr skorðum það. sem löngu er farið allt úr reipum og fokið út í veður og vind dýrtíðar og verðbólgu. Hann er eins og mað ur, sem hrópar út í storminn: við megum ekki missa þetta logn. Önnur ræðan i Mogga á sunnudag er eftir Gunnar Thor og líklega lokaræða hans í íhaldspólitíkinni. Þar er fyrir- sögnin: SÆKJUM MEÐ EIN- BEITTUM HUG TIL BETRA OG RÉTTLÁTARA ÞJÓÐFÉ- LAGS. Þessi fagurmæli undir Iokin hljóma skrítilega þegar menn minnast þess, að há- stemmdasta loforð íhaldsstjórn arinnar var einmitt að koma á réttlæti í skattamálum og lækka skatta mjög, en skatta- málin taldj stjónnin eitt mesta óréttlæti þjóðfélagsins er hún- kom til valda. Þessj ráðherra var sérstaklega til þess kjörinn að koma á skattaréttlætinu. Allir vita, hvernig það tókst. Þjóðin hlaut hærri skatta og meira óréttlæti en nokkru sinni fyrr — og meira að segja Gunnar varð að súpa drjúgum á því seyði eins og nú má sjá. Fyrirsögnin er því eins og níð- angurslegt háðsmerki. Allur ferill þessarai ríkisstjórnar hef ur verið samfelld sókn tii órétt lætis í þjóðfélaginu. Þriðja ræðan er eftir Jóhann Hafstein dómsmálaráðherra. Fyrirsögnin ei svona „VILJ- UM EKKI HELTAST AETUR ÚR ÞRÓUN NÁGRANNAÞJÓÐ ANNA“. Væru þessi orð tek in bókstaflega, eru þau þungur áfellisdómur vfir ríkisstjóm- inni, því að „viðreisnin" svo- nefnda og ráðstafanir hennar voru einmitt i þvi fólgnar að kippa íslandi aftur á bak i>r þeirri þróun, sem hélt launum og lífskjörum jafnhliða því sem er i nágrannalöndunum. í tíð þessarar stjórnar drógumst við einmitt iangt aftur úr. Það er heronar mesta afrek. íhaldssiðgæði Morgunblaðið segir svo í leið Framhald á 12 síón

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.