Tíminn - 18.05.1965, Blaðsíða 16
110. tbl. — Þrið|udagur 18. maí 1965 — 49. árg.
FORSÆTISRÁÐHERRA HJÓN-
IN í HEIMSÓKN I NOREGI
NTB-Oslo, mánudag.
Bjarni Benediktsson, forsætis-
VIS flugstöðina á Akureyrl, er Blikfaxi kom þangað.
BLIKFAXA FJÖLMENNIR
AK-Reykjavík, mánudag.
Blikfaxi, hin nýja innanlands-
flugvél Flugfélags íslands fór
fyrstu ferS sína til Akureyrar á
sunnudagsmorguninn. Með vélinni
voru allmargir boSsgestir Flugfé-
lagsins, svo sem blaSamenn, Magn-
ús Jónsson, fjármálaráSherra, full-
trúar Fokker-verksmiSjanna og
fleiri. Öm O. Johnson forstjóri F.í.
og fleiri fulltrúar félagsins voru
og meS í för, þar á meSal frú Ásta
Sveinsdóttir á Akureyri, er gaf
flugvélinni nafn.
Flogið var af stað í dimmu
veðri og regni, en norðan lands
var bjart og sólskin glatt, en nap-
urt kul af hafi. Flugferðin norð-
ur tók aðeins um 50 mínútur, og
gazt mönnum vel að farkostinum,
sem flaug hátt og fór vel í lofti.
Þegar til Akureyrar kom var all-
mikill mannfjöldi við flugstöðina,
og þegar menn voru komnir út úr
flugvélinni steig Magnús Guðjóns-
Magnús Guðjónsson, bæjarstjór?
býður’ Blikfaxa velkominn til Ak-
uryerar.
son bæjarstjóri í ræðustól, ávarp-
aði gesti og heimamenn, fagnaði
komu flugvélarinnar og minntist
þess, hve mikilvægu hlutverki
flugið gegndi fyrir Akureyri og
nágrannabyggðir. Kvað hann
Flugfélagið vera sérstakt óska-
barn Akureyringa, enda hefði það
verið stofnað þar og síðan þjónað
bæjarbúum vel meira en aldar-
fjórðung. Kvaðst hann vonast til,
að hin fríða flugvél ætti eftir að
gegna því hlutverki, sem henni
væri nú fengið, vel og lengi.
Örn O. Johnson, forstjóri F. í.,
þakkaði móttökur Akureyringa og
hlý orð, kvað félagið eiga Akur-
eyri og Akureyringum sérstaka
þakkarskuld að gjalda og þakkaði
þeim traust og vináttu Hann
minntist lítillega á það, að fjár-;
sterkur aðili byði nú mjög > hluta-j
bréf félagsins og skoraði á hlut-
hafa að selja þau ekki, en þyrflri
Framhaid á í4 siðu ;
ráðherra íslands, kom síðdegis á
laugardag í apinbera heimsókn til
Osló. f gær, sunnudag, fór hann
ásamt konu sinni, frú Sigríði
Björnsdóttur, og 10 ára dóttur
þeirra, Önnu, í bílferð um Osló og
næsta nágrenni. Síðdegis sama
dag var haldið boð í íslenzka sendj
ráðinu og um kvöldið bauð norska
stjórnin gestunum til veizlu í
Akershus-höllinni.
í ræðu sirtni á sunnudagskvöld
ið í Akershus sagði Einar Gerhard
sen, forsætisráðherra, að hann
gæti ekki hugsað sér hæfilegri
stað fyrir þennan norsk-íslenzka
fund en einmitt hinn forna Akers
huskastala. Hann ræddi líka um
íslenzku handritin, þar sem mikill
hluti af hinni fornu sögu Noregs
er skráður, og minntist þess, að
bæði löndin hefðu fengið sjálf-
BEIÐ BANA
IDRÁTTAR-
VÉLASLYSI
GÓ-Sauðárkróki, mánudag.
Á föstudagskvöldið beið Jóhann
Jónsson, bóndi á Daðastöðum á
Reykjaströnd, bana í dráttarvéla-
slysi. Er það fjórði bóndinn úr
Skagafjarðarsýslu, sem bíður bana
í dráttarvélaslysi á tveim árum.
Slys þetta varð raunar í Húna-
vatnssýslu, þar eð Jóhann heitinn
hafði undanfarið verið í heimsókn
hjá Birni bróður sínum á Gili í
Svartárdal. Beitarhús frá Gili eru
uppi á Vatnsskarðinu, rétt við
þjóðveginn og á föstudaginn fóru
Friðrik Björnsson bóndi á Gili og
Jóhann heitinn til beitarhúsanna.
Fóru þeir á dráttarvél, sem Frið-
rik ók. Óku þeir þjóðveginn sem
leið liggur upp á Vatnsskarðið
hjá Bólsstaðarhlíð, og er þeir áttu
skammt eftir ófarið til beitarhús-
anna, sá Friðrik kindur, sem hann
vildi huga að. Fór hann þá af
dráttarvélinni, en Jóhann tók við
stjórn hennar og ætlaði að aka að
beitarhúsunum. Er hann ætlaði að
beygja út af þjóðveginum heim
að beitarhúsunum. missti hann
stjórn á vélinni. Fór hún út í
skurð við veginn og varð Jóhann
heitinn undir henni. Rannsókn
leiddi í ljós. að hann hefur látizt
samstundis.
Eins og fyrr segir er Jóhann
Pramnaio 9 i4 síðu
stæði á þessari öld eftir langa og
harða baráttu.
Bjarni BenediktssOTi hélt einn
ig ræðu og minntist á uppruna ís
lendinga og bræðraböndin milli
þjóðanna. Þá kom hann inn á sam
vinnu íslands og Noregs innan
hinna ýmsu samtaka, eins og
Norðurlandaráðs, Sameinuðu Þjóð
anna, NATO og Fríverzlunar
bandalagsins, sem ísland yfir-
vegar um þessar mundir að ger-
ast aðili að.
í dag heimsóttu forsætisráð-
herrahjónin Stórþingið og Þjóð-
leikhúsið, þar sem konungur
Noregs var viðstaddur.
Héldu lögreglu-
manninnjer^
barnaníðing
KJ-Reykjavík, mánudag.
f dag lá við að.kæmi til
handalögmáls á milli nokk
urra vegfarenda og Krist-
jáns Sigurðssonar rannsókn
arlögreglumanns, er hann
ætlaði að hafa hendur í
hári drengja, sem að undan-
förnu hafa lagt leið sína í
bíla og stolið úr þeim.
Atburðurinn átti sér stað
á bílastæðinu fyrir framan
Arnarhvol og var Kristján
að koma þaðan út, er mað-
ur, sem kannaðist við hann
kallaði til hans, og bað hann
að athuga drengi, sem voru
að bjóða lítið útvarpsvið-
tæki til sölu. Grunaði þá
báða strax, að hér væri ekki
allt með felldu, sem og kom
á daginn, því útvarpstækinu
höfðu drengimir stolið úr
bíl. Ætluðu mennirnir að
Framhald á bls. 14
Ráðstefna SUF um
efnahagsmál,
landbúnaðarmál
og byggðabróun
á Húsavík
ENGIR VÖRUFLUTNINGA
LEIÐIS SfDUSTU TVO MÁNUDI
HH-Raufarh6fn, mánudag.
ísinn, sem legið hefur hér upp
við land í vetur, hefur valdið
Raufarhafnarbúum miklu tjóni
og vandræðum. Nær tveir mán-
uðir eru nú liðnir, síðan skip kom
hingað síðast með vörur, og olíu-
Iaúst er að kalla. Verði ekki kom
in olía fyrir 20. maí, verður öll
olía þrotin bæði til upphitunar
húsa og einnig til þess að knýja
díselrafstöðina, mun þá fólk verða
rafmagnslaust, þar scm ekki er um
annað rafmagn að ræða.
Aðeíns þrjú skip nafa komizt.
hingað síðan 20. marz í vetur Það
voru tvö lýsisflutningaskip, sem
komu hingað um mánaðamótin
apríl-maí, og svo Bakkafoss, sem
kom hingað 4. maí, og (okaðist
þá inni og komst ekki út aftur
fyrr en á sunnudaginn, og haf'ði
þá legið hér inni í 12 daga. Ekk-
ert þessara skipa kom með vörur,
að undanteknu því, að Bakkafoss
kom með þurrknra og annað þess
konar, sem þurfti til þess að
hægt væri að haida áfram við
stækkun síldarbræðslunnar, en
þær framkvæmdir hafa tafizt mjög
vegna íssins, og hinna stopulu
siglinga hingað.
Stöðug austanátt hefur verið hér
undanfarnar vikur þangað til í
gærmorgun. að snerist í norðan
og norðvestanátt og heldur fór
að rofa til, en ísinn hefur legið
þéttur allt frá Ásmundarstaðaeyju,
austast af Sléttuhorninu og í
krikann við Rattanes. og allt inn
í hafnai'mynnið hér, svo orðið hef
ur að strengja vír fyrir höfnina
til þess að varna þvi að tjón yrði
á bátum og skipum. Þrátt fyrir
breytta átt er mikið íshrafl hér
úti fyrir og sigling langt frá
að vera greiðfær.
Vegir eru orðnir mjög lélegir.
en hefur ekki þótt fært að loka
þeim alveg, þar sem ekki hefur
verið um aðra leið að ræða fyrir
vöruflutninga Reynt hefur verið
að lagfæra þá smávegis. en það
lítinn árangur borið vegna þess
hve blautir þeir eru orðnir.
Framhalö ð L4. slðu
Hiörtur
Samband ungra
Framsóknar-
manna heldur
ráðstefnu fyrir
Norðurlands-
kjördæmi eystra
á Húsavík dag-
ana 26. og 27.
maí og hefst hún
kl. 8.30 e. h.
Halldór
Krlstián
Framsögum. verða Hjörtur E. Þór
arinss. bóndi Tjörn, er ræðir um
efnahagsmál, Hallnór Pálsson. bún
aðarmálastjóri sem ræðir um
landbúnaðarmál og Kristján Ing-
ólfsson, skólastjóri, Eskifirði, sem
ræðir um byggðaþróunina
Allir Framsóknarmenn velkomn
ír. — Stjórn SUF.