Morgunblaðið - 23.12.1975, Qupperneq 1
40 SIÐUR OG LESBOK
294. tbl. 62. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Dómsmálaráðherra Spánar:
Boðar hægar
breytingar
Madrid, 22. des. — Reuter.
DÓMSMÁLARÁÐHERRA Spán-
ar, Antonio Guarrigues, sagði f
dag að umbætur á stjórnarfari
Spánar eftir dauða Francos yrðu
að vera hægar. Sagði hann á fundi
með nýju starfsfólki ráðuneytis
sfns að breytingin frá persónu-
legri stjórn hans hlyti að vera
erfið, og sagði að frumskilvrði
fyrir þvf að hún heppnaðist væri
að hægt yrði að sætta og sameina
þjóðina.
Guarrigues er einn hinna frjáls-
lyndu ráðherra, sem nýlega tóku
sæti í ríkisstjórninni, en gagnrýni
á Juan Carlos konung, frá öflum,
sem hraða vilja þróun stjórnar-
fars i lýðræðisátt hefur vaxið
mjög að undanförnu. Til dæmis
sagði Felipe Gonzalez, sem er
formaður hins bannfærða flokks
Sósíalískra verkamanna, á blaða-
mannafundi í dag, að fram til
þessa hefði stjórnin ekki komið
öðru f framkvæmd en að lýsa yfir
vilja sfnum til að auka lýðræði.
Benti hann á að stjórnin hefði
ekki se.tt fram skýra stefnu né
tímaáætlun, en það væri það sem
fólk biði eftir. Gonzales er ný-
kominn úr Evrópuferð, þar sem
hann ræddi meðal annars við
Willy Brandt, fyrrverandi kansl-
ara Vestur-Þýzkalands, og sænsku
stjórnina.
Eyðileggingarseggir brutu í dag
rúður og blómsturpotta í skrif-
stofum frjálslynda vikuritsins
Guardians og er álitið að hægri-
sinnar hafi verið þar á ferð.
Þá hefur hópur stjórnmála-
manna, þar á meðal kristilegir
demókratar og sósíalistar, sent
innanríkisráðuneytinu bréf þar
sem þeir fordæma morð hægri
öfgamanna á vinstrisinnuðum
andófsmanni í síðustu viku. Var
hann skotinn, þegar fram fór
ganga til stuðnings kröfum um
algera náðun pólitískra fanga.
Um 500 borgarstarfsmenn tóku
sér stöðu fyrir framan ráðhúsið í
Madrid, til að mótmæla launa-
Framhald á bls. 27
OE-LDB
Símamynd AP
Særður hermdarverkamaður borinn um borð f DC-9 flugvél Austrian Airlines, áður en hún lagði af
stað til Algeirsborgar með 6 hermdarverkamenn og 41 gfsl innanborðs.
Olíuráðherrar enn í gíslingu:
Skila skæruliðar gíslunum
einum af öðrum til síns heima
Isabella Peron
Buenos Aires, 22. desember
— AP. NTB.
YFIRSTJÓRN flughers
Argentínu tilkynnti á
mánudag að hægrisinnaðir
uppreisnarmenn úr flug-
hernum hefðu gefið upp
byltingartilraun sína gegn
Isabellu Peron, forseta
landsins, en þeir hófu hana
fyrir 4 dögum.
Engin formleg yfirlýsing hefur
komið frá leiðtogum uppreisn-
arinnar, en óbreyttir stuðnings-
menn hennar sögðu fréttamönn-
um að samkomulag hefði verið
gert við yfirvöld. Vegatálmanir
hafa verið fluttar frá vegum, þar
á meðal til flugvallar höfuðborg-
arinnar.
I fáorðri tilkynningu flug-
hersins sagði að uppreisnarmenn-
irnir yrðu gerðir ábyrgir gagnvart
yfirmönnum sínum þar.
I kvöld var svo skýrt frá þvf að
leiðtogi uppreisnarmannanna,
Vfn, Algerisborg, 22. desember
— Reuter
FLUGVÉL austurrfska flugfé-
lagsins Austrian Airlines, með
sex skæruliða og gfsla þeirra inn-
anborðs, þar á meðal ráðherra
nokkurra aðildarrfkja OPEC sam-
taka olfuframleiðslurfkja, lenti f
Tripoli f kvöld, eftir flug frá Al-
geirsborg, að sögn starfsmanns
flHgfélagsins.
Orlando Jesu Capellini, hefði
verið tekinn í vörslu herlögreglu f
Buenos Aires og að búist væri við
því að hann yrði settur i her-
fangelsi. Sá sem skýrði frá þessu
er Orlando Agosti, foringi f flug-
hernum, sem tók stjórn hans í
sínar hendur skömmu eftir að
uppreisnin hófst með því að láta
handtaka fyrrverandi yfirmann
sinn Hector Fautario.
Agosti sagði að svo gæti farið að
allir yfirmenn, sem þátt tóku i
uppreisnartilrauninni, sem kost-
aði engin mannslíf, yrðu leiddir
fyrir herrétt.
Hann skýrði einnig frá því að
innanlandsflug hæfist innan
skamms frá flugvellinum i
Buenos Aires, en það var annað
tveggja vfgja uppreisnarmann-
anna.
Þó að það sé almennt álit yfir-
manna argentínsku herjanna að
frú Peron eigi að hætta sem for-
seti, naut uppreisnartilraunin
ekki stuðnings flestra þeirra, þar
sem þeir munu ekki álita byltingu
Flugvélin fór frá Algeirsborg
sfðdegis á mánudag með gfslana
og skæruliðana, sem styðja mál-
stað Palestfnu-Araba. Er álitið að
ferðinni sé heitið til allt að sjö
arabiskra höfuðborga. Meðal gfsl-
anna, sem teknir voru þegar
skæruliðarnir réðust inn f aðal-
stöðvar OPEC f Vfn, eru olfumála-
ráðherrar sjö Mið-Austurlanda.
Eftir að flugvélin, sem er af
heppilegustu aðferðina til að
losna við hana.
gerðinni DC-9, fór frá Algeirs-
borg, skýrðu áreiðanlegar heim-
ildir frá þvf áliti sínu að skæru-
liðarnir ætluðu að fljúga til
hinna ýmsu landa til að sleppa
gfslunum, einum af öðrum. Ef
það reynist rétt kemur flugvélin
við í Lfbýu, Irak, Iran, Saudi-
Arabfu, Kuwait, Quatar og Ara-
bfsku furstadæmunum við Persa-
flóa.
Utanríkisráðherra Alsír Abdel
Bouteflikaf sem hitti leiðtoga
skæruliðana, neitaði að segja
fréttamönnum hver væri áfanga-
staður flugvélarinnar. En hann
sagði að í þeim löndum, sem flug-
vélin færi til, væri búist við
skæruliðunum og gislum þeirra.
Talið er að gíslarnir séu 16 eða
17 og meðal þeirra eru olíumála-
ráðherra Saudi-Arabiu Ahmed
Zaki Yamani fursti innanrfkisráð-
herra Irans, Jasmihd Amouzegar
og orkumálaráðherra Alsír,
Belaid Abdessalen. Þeim síðast-
nefnda var sleppt þegar flugvélin
kom til Algeirsborgar frá Vín, en
hann fór svo aftur um borð áður
en hún fór í loftið á ný.
Ekkert er ennþá vitað um
hverjir skæruliðarnir eru. Þegar
Bouteflika, var spurður um
mennina fimm og eina konu, sem
með þeim var, svaraði hann: „Ég
er engin blaðurskjóða"
Blaðamenn á Bar el Beida flug-
vellinum i Algeirsborg komust
nálægt leiðtoga hópsins, þar sem
hann skundaði fram og aftur á
milli flugstöðvarbyggingarinnar
Framhald á bls. 22
Vopnasmygl-
arar tekn-
ir 1 USA
New York, 22. des. — AP.
FIMM Bandaríkjamenn af irsku
bergi brotnir voru handteknir í
dag grunaðir um að hafa smyglað
skotfærum til Irska lýðveldishers-
ins, ÍRA, á Norður-írlandi. Kvið-
dómur í Fíladelfíu fyrirskipaði að
þeir skyldu settir í varðhald fyrir
að hafa smyglað 378 rifflum og
140.000 skotum til IRA frá því í
ágúst 1970. Þeim er einnig gefið
að sök að hafa reynt að kaupa
sprengjuvörpur, vélbyssur og eld-
flaugar. Mennirnir eru allir
fæddir á Irlandi og búa á Ffla-
delfiu-svæðinu. Hluti vopnanna,
sem þeir smygluðu út var gerður
upptækur á Irlandi. I síðustu viku
sagði Harold Wilson, forsætisráð-
herra Bretlands, að hann áliti að
85% vopna, sem kæmust til
Norður-Irlands kæmu frá Banda-
ríkjunum.
Símamynd AP
Olfumálaráðherra Venesúela, dr. Valentin Hernadez, fer frá flug-
vellinum f Algeirsborg, en hann var meðal gfslanna, sem hermdar-
verkamennirnir, er réðust á aðalstöðvar OPEC, slepptu við komuna
til Alsfr.
Byltingartilrauninni
í Argentínu lokið