Morgunblaðið - 23.12.1975, Side 13

Morgunblaðið - 23.12.1975, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1975 13 NESCO NESCO HF Lefiandi lyrirtæki á sviöi sjónvarps-útvarps- og htjómtækja. Verzlun Laugavegi 10 Reykjavik. Simar: 19150-19192-27788 LANDHELGISPENINGURINN — 200 MfLUR1975 Londhelgispeningur hann- aður af Jens Guðjónssgni FORRÁÐAMENN fyrirtækisins fs-Spor hf afhentu s.l. fimmtudag forstjóra Landhelgisgæzlunnar eintak nr. 1 af Landhelgispeningnum 1975, sem fyrirtækið gefur út og framleiðir i tilefni af útfærzlu fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur. Landhelgispeningurinn er með merki Landhelgisgæzlunnar á framhlið en á bakhlið er táknræn mynd af íslenzkum sjómanni Upplag minnispeningsins er mjög takmarkað, og verða ekki slegnir meira en 300 gullpeningar, 750 silfur- peningar og 1000 bronspeningar. Stór hluti upplagsins er þegar seldur Á meðfylgjandi mynd sjást þau Dóra Jónsdóttir, gullsmiður stjórnarfor- maður Is-SPOR hf og Jens Guðjóns- son, gullsmiður — hönnuður Land- helgispeningsins, afhenda hann Pétri Sigurðssyni, forstjóra Landhelgis- gæzlunnar Ljóðsskreytinga- samkeppni norska Bókaklúbbsins: 20 íslenzkir listamenn sendu myndir 20 ISLENZKIR listamenn tóku þátt í ljóðaskreytingasamkeppni sem Den norske Bokklubben efndi til í haust í tilefni útgáfu á ljóðabók með Ijóðum 25 skálda, en ljóðin i bókinni eru valin frá tímabilinu eftir síðari heims- styrjöldina. Ljóðabókin kemur út í vor. Hver listamaður gat sent 3 teikningar og var samkeppnin háð um skreytingu á ljóði Hannesar Péturssonar, Upphaf. Að lokjnni skoðun myndanna verður haft samband við þá lista- menn, sem beðnir verða að mynd- skreyta ákveðin ljóð, en reiknað er með a.m.k. 16 myndskreyting- um. Aætiað er að' lokið verði við skoðun myndanna í febrúar. M.a. sendu tveir tslendingar i Sviþjóð myndir í samkeppnina. Árni Björnsson tónskáld sjötugur Kveðja frá Tónskáldafélagi lslands. Arni Björnsson fæddist 23. des- ember árið 1905 að Lóni í Keldu- hverfi, sonur hjónanna Sigriðar B. Ásmundsdóttur og Björns Guðmundssonar. Tónlistargáfa Árna kom snemma í ljós, enda er hún algeng i ætt hans. Hann aflaði sér nokkurrar tónlistar- menntunar á heimaslóðum sínum og starfaði þar sem kórstjóri og organleikari. En árið 1928 fór hann til Reykjavíkur til frekara tónlistarnáms i organleik hjá Páli Isólfssyni, og þegar Tónlistar- skólinn í Reykjavík var stofnaður árið 1930 innritaðist Árni i hann. Þar lagði hann einkum stund á píanóleik og. tónsmíðar auk flautuleiks. Þeir kennarar sem hann sótti mest til auk Páls, voru dr. Franz Mixa og dr. Victor Urbanicic. Hann lauk prófi í píanóleik árið 1935 og ári síðar lauk hann við tónsmiðafögin kontrapúnkt og fúgugerð. á sinfóníutónleikum, Frelsisljóð, sem er kantata samin i tilefni af stofnun lýðveldisins, Tilbrigði við frumsamið rímnalag fyrir lúðra- sveit, einnig Tilbrigði um frum- samið rímnalag fyrir sinfóníu- hljómsveit Píanósónötu, Rómönsur fyrir flautu og pían'' og seinast en ekki síst tónlistina við Nýársnóttina sem flutt var við opnun Þjóðleikhússins. Auk þess liggur eftir Arna fjöldi einsöngs- og kórlaga. Stíll Árna er sóttur til íslenskra þjóðlaga. Úr þeim vinnur hann á óþvingaðan og persónulegan hátt. Hann gerir meira en að útsetja þjóðlögin — hann endursemur þau oft eða semur sjálfur í anda þeirra. Verk Árna bera það með sér að honum lætur mjög létt að semja. Segja má að „hagmælska" á tónlistarsviðinu sé honum í blóð borin. Það er kannski ástæðan fyrir þvf að Árni samdi töluvert af tækifæristónlist og léttari tón- list. Þó er ekki mikill munur á þeim verkum og þeirra sem metnaðarfyllri mega teljast. örugg handverkskunnátta Árna brúar þar bilið. Arni hefur jafnan verið góður liðsmaður í hópi tónskálda og staðið við hlið félaga sinna I réttindabaráttu þeirra. Fyrr á þessu ári var hann kjörinn heiðursfélagi i Tónskáldafélagi Islands. Að lokum vil ég óska Árna og fjölskyldu hans til hamingju með afmælið. Arni verður að heiman í dag. Atli Heimir Sveinsson. Á námsárunum og svo þeim er í hönd fóru samdi Árni fjölda tónsmiða stórra og smárra. Tónlistarstörf hans voru ákaflega margþætt og fjölbreytileg. Hann starfaði sem píanisti, flautu- leikari, hljómsveitarstjóri, út- setjari o.fl. A þessum árum þurftu tónlistarmenn að vinna langan vinnudag til þess að geta framfleytt sér og sfnum. Tónsmíðar Árna urðu þvi til að loknum vinnudegi í fáum og stopulum tómstundum. Og það er undravert hversu miklu hann kom f verk. En hugur Arna stóð til frekara náms. Arið 1944 hélt hann til Manchester og lauk burtfarar- prófi frá Konunglega tónlistar- háskólanum þar tveim árum síðar. Því næst hélt hann heim aftur og tók til starfa af fullum krafti á ný. Hann var m.a. kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík um árabil, og flautuleikari í Sin- fóniuhljómsveitinni. En árið 1952 varð hann fyrir miklu slysi, sem lamaði starfskrafta hans til mikilla muna. En Árni starfar enn að tónsmíðum eftir því sem heilsan leyfir, að vfsu í miklu smærri stíl en áður og hann starfar sem organleikari við guðþjónustur í sjúkrahúsum borgarinnar. Verk Arna eru víða þekkt og hefur hann oft unnið til verðlauna í samkeppnum. Af stærri verkum Árna má nefna hljómsveitarsvítuna Upp til fjalla sem nýlega var flutt hér HEFIIR BEfllfl EFTIR Undanfarnar vikur hafa keppinautar okkar lagt sig sérstaklega fram um að bjóða mönnum upp á hag- stæð hljómtækjakaup, og hafa ýms dágóð tilboð komið fram. — Þetta gerum við nú reyndar alltaf, hvenær sem er og hvernig svo sem á stendur, og er sú samstæða, sem hér er sýnd, glöggt dæmi um það. — Hér er um að ræða vandaðan, 20 sinus/RMS watta, sambyggðan for- og kraftmagnara teg. A-245 frá SUPERSCOPE verksmiðjunum bandarísku á- samt tveimur SUPERSCOPE S 26A hátölurum og fullkomnum sjálfvirkum plötuspilara frá BSR i Eng- landi, teg. BDS-80 með ADC K-7E segulþreif. — Samstæða þessi kostar kr. 79.600,- og teljum við, að hagstæðari hljómtækjakaup gerist ekki um þessar mundir. — Við erum ekki að varpa neinni rýrð á keppinauta okkar með þessu, siður en svo, þeir eru margir hverjir hinir gegnustu menn, en hins vegar viljum við vekja athygli á þvi, að við beitum nú annari innkaupaaðferð en flestir þeirra. Okkar aðferð byggist á þvi, að kaupa frá mörgum verk- smiðjum (við erum nú með einkaumboð fyrir tíu valda hljómtækjaframleiðendur i sex þjóðlöndum), ekki einni eða tveimur, og velja saman tæki í sam- stæður. Ennfremur kaupum við það eitt frá hverjum og einum framleiðanda, sem hann framleiðir sjálfur (ekki það, sem framleitt er fyrir hann af öðrum, þó undir hans eigin vörumerki sé) og útilokum þannig, eftir því, sem slikt er hægt, milliliða álagningu. — Það er þessi mismunur í innkaupaaðferðum, sem gerir hinn stóra gæfumun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.