Morgunblaðið - 23.12.1975, Side 15

Morgunblaðið - 23.12.1975, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1975 15 — Stefnt að . . . Framhald af bls. 10 efla til muna virkt fjárveiting- areftirlit fjármálaráðuneytisins og ber að skila fjármálaráðu- neytinu eigi síðar en 20. dag hvers mánaðar reikningstölu liðins mánaðar með samanburð við greiðsluáætlun. Mun nú við lok afgreiðslu fjárlaga, öllum ríkisaðilum send sérstök eyðu- blöð frá fjármálaráðuneytinu til notkunar við gerð greiðslu- áætlunar fyrir árið 1976. 4) Afrit af öllum meiri háttar verksamningum skal skila fjár- málaráðuneytinu innan 2 vikna frá undirritun. Gildir þetta hjá þeim ríkisaðilum, er ákvæði laga nr. 52/1966 ná til. Reglugerðin um reiknings- skil innheimtumanna ríkissjóðs kemur í stað reglugerðar um opinber reikningsskil frá árinu 1955. Gerðar eru nú auknar kröfur um uppgjör og styttur er frestur innheimtumanna til að skila yfirlitum um innheimtu. Ennfremur eru ákvæði um að fjármálaráðuneytið gefi fyrir- mæli um, hversu oft hinir ein- stöku innheimtumenn skuli skila innheimtufé i ríkissjóð innan mánaðarins. Ég hef ákveðið, að frá og með næstu áramótum skuli ný skip- an tekin upp við greiðslu reikn- ings og greiðslubeiðna frá ráðu- neytum hjá ríkisféhirði. Á þann veg að kröfur um greiðslu er berast til rikisfé- hirðis í viku hverri skulu greiddar í lok næstu viku. Með þessari skipan skapast mögu- leiki á samtíma bókun og end- urskoðun er telja verður mikil- vægt skref til aukins aðhalds með útgjöldum stofnana og rík- isfyrirtækja. Jafnframt verður tekin upp tölvuvinnsla á greiðslu úr ríkissjóði og um leið gerður samanburður við greiðsluáætlanir stofnana. Þá mun Innkaupastofnun ríkisins gert skylt að tilkynna fjármáiaráðuneytinu um allar meiri háttar pantanir frá stofn- unum og ríkisfyrirtækjum, þannig að ráðuneytið geti hald- ið eftir af fjárveitingu viðkom- andi aðila, fé til greiðslu á inn- kaupum hjá Innkaupastofnun ríkisins. Ég tel tvímælalaust, að með þeim aðgerðum, er ég hef nú greint frá mun nást fastari tök á fjármálastjórn ríkisins og ekki þurfi að leysa úr fjár- hagsvandamáli stofnana og rík- isfyrirtækja eftir að i ógöngur er komið. Með bættri upplýs- ingamiðlun í ríkiskerfinu má koma í veg fyrir ýmis fjárhags- vandamál í tíma hjá stofnunum og rikisfyrirtækjum. ALDARAFMÆLI FJÁRLAGAGERÐAR í LANDINU Undir lok þessara 3. umræðu um fjárlagafrumvarp árið 1976 þykir mér hlýða að minnast þess fáum orðið, að í ár eru liðin hundrað ár frá því fyrsta fjárlagafrumvarpið var afgreitt á Alþingi. Hinn 24. ágúst 1875 var fjár- lagafrumvarp fyrir fjárhagsár- in 1876 og 1877 samþykkt frá Alþingi. Konungur staðfesti fjárlögin 15. október 1875. Fjár- lögin fyrir árið 1976 marka því aldaskil i fjárlagagerðinni. Því er ekki að neita, að efni fjár- lagaumræðunnar er yfirleitt þannig, að ætla mætti, að fjár- málaráðherra væri svipað inn- anbrjósts og Páli Ólafssyni, þegar hann segir, með leyfi hæstvirts forseta: „Á þessum tfmamótum mér mál er við að standa umhverfis þvf augað sér ekkert nema yanda.“ Vandamál liðandi stundar eru jafnan áleitin við fjárlaga- afgreiðsluna. A hinn bóginn er þessi vandi einmitt sá, sem fylgdi vegsemd fjárforræðis fyrir landið. Fyrstu fjárlögin, sem samþykkt voru, voru til tveggja ára og námu 452 þús- und krónum, og höfðu hækkað í meðförum þingsins um 9,2%, eða úr frumvarpstölunni 414 þúsund krónur. Þessi fjárhæð hefur naumast verið hærri hundraðshluti af þjóðarfram- leiðslu en 3 +, þótt heimildir í þessu efni séu næsta ótraustar sem nærri má geta. Þegar þess- ar tölur eru bornar saman við tölurnar fyrir næsta ár, sem ég nefndi áðan, kemur glöggt í ljós, hve mikið vatn hefur til sjávar runnið á þessari öld um farvegi ríkisfjármálanna. En þótt margt sé breytt, er annað samt við sig. Með leyfi hæst- virts forseta, ætla ég að ljúka máli mínu með því að vitna til nokkurra orða úr grein prófess- ors Ólafs Björnssonar um tekjuöflun hins opinbera i riti sem Alþingissögunefnd gaf út árið 1953 um Alþingi og fjár- hagsmálin. „Um það bil er Alþingi fékk löggjafarvald í fjármálum með stjórnarskránni frá 1874 var skattalöggjöf landsins mjög úr- elt orðin. Frá því er Alþingi var endurreist árið 1845 höfðu á hverju þingi borizt fleiri eða færri bænarskrár úr einstökum héruðum, þar sem farið var fram á lagfæringar á skattalög- gjöfinni, bæði almennt og í ein- stökum atriðum, en flestum slikum bænarskrám var vísað frá með þeim forsendum, að undirbúningur gagngerðra breytinga á skattalöggjöfinni stæði fyrir dyrum, og væri rétt að allar meiri háttar breytingar á henni,yrðu Iátnar biða, þar til er hin fyrirhugaða allsherjar endurskoðun hefði farið fram. Af endurskoðun þessari varð þó ekki fyrr en árið 1875, að skipuð var þriggja manna nefnd með konungsúrskurði 29. okt 1875 til þess að semja ný skattalög fyrir Island." Það er ekki laust við að sumt af þessu láti kunnuglega í eyr- um. En það kann að vera mönn- um nokkur hughreysting, að skattanefndin frá 1875 skilaði merku áliti 1877, sem varð und- irstaða mikillar og þarfrar breytingar á skattalögum lands- ins. Hafa ekkert á móti ís- lenzkum fréttamönnum um borð í freigátum ÞAÐ KOM fram f sjónvarps- þættinum Kastljós f gærkvöldi, að brezka flotamálaráðuneytið hefði ekkert á móti þvf, að fslenzkir fréttamenn fengju að dvelja um borð f brezkum her- skipum á tslandsmiðum. Fyrirspurn var send til ráðu- neytisins fyrir nokkru og kom svar fljótlega gegnum brezka sendiráðið f Reykjavfk. Var sagt, að dvöl fslenzkra frétta- manna um borð f freigátum væri ekki bundin neinum skil- yrðum. Mesta vandamálið væri að koma þeim um borð, helzti möguleikinn væri að fara um borð f freigátu sem væri að fara á Islandsmið frá Skotlandi. Beauty set, nuddtæki — rakvél óskatæki konunnar. Þeytari á standi Handhárþurrkur — fljótvirkar Straujárn — 3 gerðir Heilsulampar: háfjallasólir og gigtar lampar, 5 gerðir. Brauðristar, sjðlfvirk litstilling á brauðinu — nýjung. Ryksugur, ótrúlegur sogkraftur. 3 gerðir Rakvélar — 6 gerðir rafhlöður eða rafmagns þægilegur rakstur. Sjálfvirkar kaffikönnur m/nylon- eða bréffilter. 3 gerðir y/Æ/^.— m Sinclair- O Cambodge — - [LlL L:j LLí 1» j IL fc_ 14 [ s. ! 6 Tx . IL LL io Wm Sinclair reiknivélar, fyrir alla. 6 gerðir. jólagjöfin heimilistæki sf Sætúni 8 -15655 Hafnarstræti 3 - 20455 PHI Ll PS kann tökin á tækninni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.