Morgunblaðið - 23.12.1975, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1975
23
Taugastríð að sögn
yfirmanns Brightons
Plymouth, 22. des. Reuter.
YFIRMAÐUR brezku freigát-
unnar Brighton, Nick Kettlewell
sjóliðsforingi, sagði við heim-
komuna frá Islandsmiðum um
helgina að ef fiskveiðideilan við
Islendinga héldi áfram öllu
lengur „mundi einhver slasast“.
Hann líkti viðureign freigát-
anna og íslenzku varðskipanna
við bilaárekstraleik í skemmti-
görðum, en kvað muninn vera
þann að hann færi fram í átta
vindstigum og einhver mundi
slasast.
Hann kallaði viðureignina við
varðskipin „taugastríð“ og sagði
að þegar varðskipin nálguðust
væri spurningin sú „hvor færi
fyrr á taugum".
Hann sagði blaðamönnum að
aldrei hefði verið tekið ofan af
fallbyssum freigátunnar þær
þrjár vikur sem hún var á Islands-
miðum.
,,En ef einhver skýtur á skip
hennar hátignar," bætti hann við,
,,og staðnæmist ekki þrátt fyrir
greinilega viðvörun, liggur í
augum uppi að skipshöfnin gerir
nauðsynlegar ráðstafanir til að
verja sig.“
Flóttamaður
tekinn fastur
Essen, 22. des. Reuter.
26 ÁRA gamall austur-þýzkur
hermaður, Wolfgang Weinhold,
var f dag úrskurðaður f gæzlu-
varðhald f Essen f Vestur-
Þýzkalandi vegna gruns um morð
Tveir 'suður-afrfskir hermenn,
Hannes Treblanche og Robert
Henry Wiehan, sem handtekn-
ir voru f bardögum f Angóla
af hersveitum MPLA-
hreyfingarinnar. Hreyfingin,
sem nýtur stuðnings Sovétrfkj-
anna, hefur haldið þvf fram að
hermenn frá Suður-Afrfku
berjist með hreyfingunum
Unita og Fnla, sem eru henni
andstæðar. Hermennirnir
tveir voru sýndir blaðamönn-
um f Lagos, höfuðborg
Nfgerfu.
á tveimur austur-þýzkum landa-
mæravörðum á föstudag.
Weinhold, sem er kvæntur og á
eitt barn f Austur-Þýzkalandi, var
handtekinn í gærkvöldi í Marl
fyrir norðan Essen þar sem hann
á ættingja. Austur-þýzka frétta-
stofan, ADN, hélt þvf fram að lýst
hefði verið eftir Winhold vegna
kynferðisafbrots og sagði að Aust-
ur-Þjóðverjar hefðu krafizt þess
að hann yrði fr&mseldur.
Atburðurinn á föstudag gerðist
skammt frá Hildburghausen, um
60 km suður af Erfurt í Austur-
Þýzkalandi. Bæverskur lögreglu-
maður kvaðst hafa heyrt skothríð
á þessu svæði. Seinna sagði vest-
ur-þýzkur ökumaður að hann
hefði tekið upp í bíl sinn mann
sem hefði sagt að hann væri ný-
flúinn frá Austur-Þýzkalandi og
skilið hann eftir skammt frá Co-
burg.
Vitað er með vissu að 96 Aust-
ur-Þjóðverjar, þar af nokkrir
landamæraverðir, hafa beðið
bana á landamærunum þegar þeir
hafa reynt að flýja yfir þau síðan
landamærunum var lokað 1961.
I síðustu viku var fréttaritari
tímaritsins Der Spiegel rekinn
frá Austur-Berlín vegna fréttar
frá honum um að austur-þýzkir
foreldrar sem hefðu reynt að
flýja land hefðu verið skyldaðir
til að afhenda börn sín „áreiðan-
legri" foreldrum sem tækju þau í
fóstur.
Þó að enn eigi að rfkja vopnahlé I Libanon, samkvæmt yfirlýsingum strfðandi aðila hefur margsinnis
komið tii skotbardaga f höfuðborginni Beirut og á öðrum stöðum undanfarna daga. Myndin sýnir
herskáa múhameðstrúarmenn skjóta úr vélbyssu úr rússajeppa, vörðum með sandpokum.
Mesti samdrátturinn
afstaðinn segir EBE
Brússel, 22. desember, Reuter.
VERSTU erfiðleikarnir af völd-
um samdráttarins f heiminum
eru afstaðnir og gera má ráð fyrir
að þjóðaframleiðsla í aðildarlönd-
um Efnahagsbandalagsins aukist
um sem svarar þrjá af hundraði á
næsta ári að þvf er framkvæmda-
nefnd bandalagsins sagði f árlegu
efnahagsyfirliti sfnu f dag.
Á þessu ári er talið að þjóða-
framleiðsla hafi minnkað i þess-
um löndum um 2.5 af hundraði.
Meiri bjartsýni gætir í skýrslu
bandalagsins en f nýlegu yfirliti
Efnahags- og framfarastofnunar-
innar (OECD).
Þrátt fyrir aukinn hagvöxt ger-
ir EBE ráð fyrir heldur versnandi
greiðslujöfnuði bandalagsríkj-
anna. Þótt mestu erfiðleikarnir
séu að baki telur bandalagið
nauðsynlegt að haldið verði áfram
stuðningi við atvinnuvegi og að
fylgt verði óbreyttri stefnu í
gjaldeyrismálum.
Framkvæmdanefnd EBE segir
að þjóðartekjur háþróaðra ríkja
utan bandalagsins minnki um 1,5
af hundraði á þessu ári en telur
að þær geti aukist um fimm af
hundraði á næsta ári. Hins vegar
telur nefndin að i Evrópulöndum
utan bandalagsins verði aukning-
in líklega ekki meiri en 1,5 af
hundraði.
Átvinnuleysi mun enn aukast á
næstu mánuðum að mati nefndar-
innar. I vor muni draga smátt og
smátt úr atvinnuleysi f nokkrum
löndum, segir nefndin, en bendir
á að atvinnuástand sé breytilegt
eftir löndum.
Nefndin telur að bati í verðlags-
málum f ýmsum löndum gæti orði
óverulegur. I skýrslu nefndarinn-
ar segir að sá efnahagsbati sem sé
hafinn í EBE-löndum muni lík-
lega aukast á næstu mánuðum en
hann verði takmarkaður og hlut-
fallslega stór hluti framleiðslu-
getunnar verði ónýttur á næsta
ári vegna viðvarandi verðbólgu.
Nefndin segir að útgjöld til
neyzlu hafi aukizt í Frakklandi og
Vestur-Þýzkalandi en hvort áhrif-
in verði jákvæð fari eftir því hvað
verðbólgan verði mikil. Nefndin
telur að bandalagslöndunum
muni reynast það æ erfiðara að
draga úr verðbólguþrýstingi.
„Erfið ákvörðun en
rétt, ”sagði Kreisku
Vín, 22. desember
Reuter.
„ÞETTA var erfið ákvörðun,"
sagði Bruno Kreisky kanslari
þegar hann tilkynnti að lokn-
um fundi með stjórn sinni að
ákveðið hefði verið að leyfa
hryðjuverkamönnunum sem
réðust inn i aðalstöðvar OPEC f
Vin að fara úr landi með gfsla
sfna. „En mér fannst þetta rétt
ákvörðun,“ sagði Kreisky sem
var fölur og þreytulegur.
Ráðherrar OPEC-landanna,
þar á meðal Ahmed Zaki Yam-
ani, olfuráðherra Saudi-Arabíu,
og Jamshind Amouzegar, inn-
anrfkisráðherra trans, sátu á
fundi þar sem þeir ræddu lækk-
un á olíuverði þegar hryðju-
verkamennirnir ruddust inn f
ráðstefnusalinn með vélbyssu-
skothríð sem varð tveimur
öryggisvörðum að bana.
Einn hryðjuverkamannanna
var skotinn í kviðinn og var
fluttur f sjúkrahús en hryðju-
verkamennirnir kröfðust þess
að hann færi með þeim frá
Austurríki. Hryðjuverkamenn-
irnir skiptu þeim 60 til 70 full-
trúum sem þeir tóku í gíslingu í
tvo hópa þannig að fulltrúun-
um frá Saudi-Arabíu, Iran, Ku-
wait og Arabíska furstasam-
bandinu var haldið aðskildum
frá hinum fulltrúunum.
Árásinni var greinilega fyrst
og fremst beint gegn þessum
fulltrúum.' Að kröfu hryðju-
verkamannanna var yfirlýsing
frá þeim lesin i austurríska út-
varpinu á tveggja stunda fresti
og þar var farið hörðum orðum
um Israel, og Anwar Sadat, for-
seti Egypta, sakaður um svik
við málstað Palestínumanna.
Samningaviðræður stjórn-
valda við hryðjuverkamennina
töfðust vegna þess að stjórnin
hélt þvi fram að særði hryðju-
verkamaðurinn væri of þjakað-
ur til þess að hægt væri að
flytja hann frá sjúkrahúsinu.
Að lokum sagði Kreisky að
fundizt hefði lausn á þvi hvern-
ig flytja ætti manninn frá
sjúkrahúsinu og að honum yrði
leyft að fara með. Kreisky sagði
að þrir menn hefðu fallið í árás-
inni en lögreglan heldur fast
við það að aðeins tveir hafi fali-
ið.
Kreisky vísaði á bug þeirri
gagnrýni að öryggisráðstöfun-
um Austurríkismanna hefði
verið ábótavant og sagði að lög-
regluvernd væri alltaf veitt
þegar þess væri farið á leit, en
OPEC hefði ekki farið fram á
slíka vernd og aðalstöðvar sam-
takanna væru yfirráðasvæði
þeirra.
Kanslarinn sagði að gíslarnir
hefðu sjálfir samþykkt að fara
með hryðjuverkamönnunum og
kvaðst við þvi búinn að sæta
gagnrýni fyrir ákvörðunina, en
hann bætti við: „Enginn getur
verið rausnarlegur með lif ann-
arra." I september 1S73 féllst
Kreisky á að loka búðum Gyð-
inga sem höfðu flúið frá Sovét-
ríkjunum til að bjarga lífi fjög-
urra gísla sem voru á valdi
tveggja Araba á Vínarflugvelli
og sú ákvörðun var gagnrýnd.
Dr. Kreisky sagði að hryðju-
Kreisky
verkamennirnir hefðu hótað að
myrða frönsku gíslana og sfðan
þá frá Saudi-Arabiu. Hann
sagði að íranski sendifulltrúinn
Riyadh AI-Azzawi hefði fimm
sinnum talað við hryðjuverka-
mennina og kvaðst telja að ekki
hefði verið unnt að halda við-
ræðunum áfram öllu lengur.
Sendiherra Libýu í Búdapest,
sem hryðjuverkamennirnir
völdu sem milligöngumann, tók
þátt í lokastigi viðræðnanna.
Að sögn Kreiskys íhugaði
stjórnin ekki þann möguleika
að draga viðræðurnar á langinn
til að þreyta hryðjuverka-
menninga eins og hollenzka
stjórnin á dögunum er nenni
tókst að fá S-Mólukkumenn
til að sleppa gfslum sfnum.
„Menn höfðu þegar verið
drepnir," sagði Kreisky og kvað
fordæmi Hollendinga ekki gott
þar sem gislar hefðu verið
drepnir. „Hvað annað gátum
við gert. Attum við að taka
OPEC-bygginguna með áhlaupi
án þess að hugleiða hve margir
yrðu myrtir?"
ERLENT
Áfrýjar
Dusseldorf, 22. des. Reuter.
NJÓSNARINN Gúnter Guillaume
og Cristel kona hans hafa áfrýjað
13 og átta ára fangelsisdómi sem
þau hafa fengið fyrir landráð.
Þau voru dæmd í síðustu viku.
Boeing-þota
brotlenti
Míanó, 22. desember, Reuter.
BOEING-þota bandarfska flug-
félagsins Trans World Airlines
brotlenti og brotnaði í tvennt f
lendingu i Malpensa-flugvelli hjá
Milanó, í dag. 33 slösuðust,
enginn alvarlega.
113 farþegar voru með þotunni
sem var að koma frá New York,
aðallega Italir á leið heim i jóla-
leyfi. Báðir vængirnir fóru af
flugvélinni. Skyggni var slæmt og
blindflugstæki notuð við lending-
una.