Morgunblaðið - 23.12.1975, Síða 37

Morgunblaðið - 23.12.1975, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1975 37 VELVAKAINIDI Velvakandi svarar í síma 10-100 kl 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu- dags # Hafnarbúðir óheppilegur staður fyrir aldraða Ólafur Þórðarson skrifar: „Það hörmulega hefur gerzt, að nota á Hafnarbúðir sem biðstöð þeirra, sem bundnir eru við sjúkrarúmið vegna langvarandi veikinda. Þetta er ekki í anda mannúðar. Ekki er hægt að álíta, að þeir, sem að þessum ráðstöfun- um standa, hafi nokkurn tima komið að Hafnarbúðum þegar at- hafnalifið við höfnina og Tryggvagötuna er í fullum gangi. Hvaða fólk er það svo, sem á að senda inn I þessa hringiðu um- ferðar og eitraðs umhverfis? Það er m.a. fólkið, sem gerði uppfyll- inguna, sem Hafnarbúðir standa á, — útslitnir sjómenn og sjómannskonur, allt frá skútu- og árabátatímanum. Einnig bændur og bændakonur, sem unnu með orfi og hrífu og tóku bæjarbörnin yfir sumarið og skiluðu þeim síð- an aftur glaðari og hraustari að hausti. Reykvikingar þeir, sem nú telj- ast til hinna eldri, muna vel þetta Hafnarbúðahverfi. Þá náði sjór- inn (við flóð) upp að húsunum, sem standa landmegin við Tryggvagötuna, á móti Hafnar- búðum. Þá var þarna engin upp- fylling, heldur fallegir klettar, slipaðir af brimi og bárum. Aðrir vaxnir þangi. Þarna var lika sandur og pollar með skeljum og kuðungt(m eftir hvert útfall. Þarna var þá hægt að draga and- ann „í botn“ svo að brjöstkassinn lyftist ósjálfrátt, en lungun fylltust af hreinu og súrefnisriku lofti. Þarna er nú einhver hávaða- mesti og mengaðasti staður borg- arinnar. Staðurinn er mengaður ryki, kolsýringi, sóti og hávaða frá bílum, skipum, mótorbátum, krönum og lyfturum. Þessu er meira og minna stjórnað af mönn- um, sem verða að nota eyrna- hlifar til að verjast heyrnarleysi. Skellinöðrum er ekið jafnvel hljóðdunkslausum, framhjá öll- um hliðum hússins. Þarna hafa erlendir ferðamenn úr stórum skipum gengið á land og tugir langferðabila biða þarna langtím- um saman með vélarnar í gangi. O Athafnasvæði og umferðargata Ekki má gleyma Akraborginni, sem fer á hverjum degi og fermir og affermir að meðaltali 120 vöru- og fólksbíla, sem aka beint inn i skipið svo að segja við hlið hússins, spúandi baneitruðum kolsýringi með blýi og sótmettuðu lofti. Þetta þrýstist inn um hurðir og glugga hússins (hverfiglugga, sem ekki eru hæfir fyrir sjúk- linga). Mikill hávaði er svo frá gömlu verbúðunum, sem eru við húsið. Slippurinn er þarna skammt frá með margs konar hávaðasamar vélar, sem notaðar eru við skipa- viðgerðir, m.a. loftpressur, rafmagnshnoðhamra, védrifnar ryðsköfur o.s.frv. Svo er hin daglega umferð um Tryggvagötuna með þúsundir bif- reiða. Þessi gata er einn af tengi- liðum landsbyggðarinnar við höfuðborgina. Umferð um borg- ina út á Seltjarnarnes allt út að Gróttuvita fer nær öll framhjá aðaldyrum Hafnarbúða og veldur bæði mengun og hávaða. Rikisskip hefur þarna vöru- skemmur, með að- og fráakstri við húsið, svo og fermingu og af- fermingu skipa. í óveðrum er þarna veðraviti (í NA-, og SA-roki). Þá stendur særokið yfir húsið. Að flytja langlegusjúklinga i Hafnarbúðir mundi auðvilað flýta fyrir þvi að sjúkrarúm losnuðu, þannig að hægt væri að taka við nýjum og nýjum. Þannig mætti fljótlega gera þá alla að stuttlegu- sjúklingum. % Finnið heil- næmari og friðsælli stað Nú þegar unga fólkið er að taka við landinu og þvi, sem það gamla skilur eftir, lætur það sér detta í hug að senda lasburða feður sina og mæður niður í óþverrann á hafnarbakkanum. Þetta er ekki hægt. Fyrir hönd allra þeirra, sem kunna að eiga það á hættu að verða sendir á hafnarbakkann og fyrir hönd aðstandenda þeirra, skora ég á heilbrigðiseftirlitið, presta borgarinnar og borgar- stjórn að vinna að því að fundinn verði annar, friðsælli og heilnæmari staður lil að biða skilnaðar Við jarðardvöl þessa með von um aðra og bjartari framundan. Reykjalundi i desember, Olafur Þórðarson." % Að vinna ósigur Maður kom að máli við Vel- vakanda til að vekja athygli á orðalagi, sem kom fyrir i frétl af kosningasigri Malcolms Frasers i Ásíraliu á dögunum. Minnzt var á Whitlam, tetrið, og sagt að hann hefðu unnið mikinn ósigur. Þótti manninum fréttamaður heillum horfinn er hann tók svo til orða. Hann hafði að vísu rétt fyrir sér, og þurfti ekki spekihg til, en lík- lega hafa allir góðviljaðir lesend- ur séð, að þarna var um að ræða það, sem kallað er „Iapsus“, en ekki annað verra. En vonandi hefur enginn beðið alvarlegan ósigur af þessu. Annars er Velvakandi heldur ánægður með að menn virðast velta nokkuð fyrir sér málnotkun i blöðum og útvarpi um þessar mundir, og er óskandi að áfram- hald verði á þvi. En sem sagt: meinlokur eru mannlegar. Og blaðamenn, handritalesarar og prófarka- lesafar eru ekki siður mannlegir en aðrir(!) þannig f maf að maður þyrfti að kaupa regnhettur og svo valdi hún sér eina. Það veit ég alveg upp á hár, þvf að ég varð að taka fyrir hana sérstaklega vegna þess að hún hafði að öðru leyti lokið sfnum innkaupum þá. Hún sté niður af háa stólnum og benti Burden á grind þar sem litskrúðugar regnhettur héngu. — Þær eru að vfsu ekki alveg vatnsþéttar, sagði hún f trúnaðar- tón. — Að minnsta kosti ekki þegar hellirignir, en þær eru ágætar. Hún valdi sér eina Ijós- rauða og ég man ég sagði það passaði ágætlega fyrir hana. — Þakka vður kærlega fyrir, sagði Burden — þér hafið verið mér til ómetanlegrar hjálpar. Hann spurðist einnig fyrir í búðunum sem voru milli kjörbúð- arinnar og Tabard Road, en eng- inn minntist þess að hafa séð frú Parsons daginn áður. Nágrann- arnir á Tabard Road vfrtust þrumulostnir og komu ekki að miklu liói. Frú Johnson sem bjó f næsta húsi við Parsonshjónin hafði séð hana fara út klukkan rúmlega tfu og koma aftur þegar klukkuna vantaði um það bil stundarfjórðung f ellefu. Þegar klukkan var tólf — hélt hún — hafði hún staðið í eldhúsinu og HÖGNI HREKKVÍSI Biauðbær VeitingahiLs simar 25090 20490 Högni fór í Fiskhöllina í morgun og krækti sér í lúðu, sem við ætlum að matreiða fyrir þig í dag Hvers vegna ekki vandað úr? Stórkostlegt úrval af: Herra-úrum Dömu-úrum Skóla-úrum Hjúkrunar- og vasa-úrum Einnig stofu- eldhús og vekjaraklukkur Verð — gæði og útlit fyrir alla Ur og skartgripir Æ' Jón og Oskar Laugavegi 70 sendum í póstkröfu sími 2491 0 1 ODÍð til kl. 11 JÓLAGJÖF HEIMILISINS GLÆSILEIKI - VANDVIRKNI HAGSTÆTT VERÐ LOFT- VEGG- OG BORÐLAMPAR FRÁ S.V.A.Í. SENDUM Í PÓSTKRÖRI UM LAND AILT LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL LJÓS & ORKA Suðurlandsbraut 1Z simi 84488

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.