Morgunblaðið - 23.12.1975, Síða 38

Morgunblaðið - 23.12.1975, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1975 ífí + 8|K*±*#*í!í * 35 sólarlandaferðir Vinningar í happdrætti Blaksambands íslands eru 35 sólarlandaferðir. Þú getur unnið 5 ferðir á aðeins einn miða, vegna þess að dregið verður 4 sinnum, 5. janúar, 15. janúar, 15. febrúar og 15. marz n.k. Miðana þarf ekki að endurnýja. * $$ * >(< # JÚGÓSLAVNESKA lands- liðið sigraði það íslenzka aftur á laugardaginn og að þessu sinni með 5 marka mun, 25:20. Leikur þessi var þó talsvert ólíkur þeim fyrri, sem fram fór á fimmtudaginn, og nú átti fslenzka liðið mun meiri möguleika á sigri. Þannig var staðan t.d. jöfn 20:20 þegar aðeins 7 mínútur voru til loka leiksins, en þá hljóp allt í haklás hjá íslenzka landsliðinu og því tókst ekki að skora eitt einasta mark það sem eftir lifði leiktímans, en máttu 5 sinnum hirða knöttinn úr eigin neti. Eins og í fyrri leiknum fóru mörg dauðafæri íslenzka liösins forgörðum, en það sem þó var verra voru mistökin f sóknar- leiknum sem gáfu hinum eld- snöggu Júgóslövum möguleika á hraðaupphlaupum, sem yfirleitt gáfu liðinu mark. Sóknarleikur liðsins var þó að mörgu leyti góður, en varnarleikurinn hins vegar mjög gloppóttur. Þá var markvarzlan ekki upp á marga fiska lengst af og þar í liggur fyrst og fremst munurinn á þessum liðum, þó svo að júgó- slavnesku ólympfumeistararnir séu einnig mun betur samæfðir og hafi meiri snerpu. Islenzka liðið lék flata vörn framan af leiknum og gekk það mjög vel, staðan var t.d. jöfn eftir 10 mínútur, 4:4. Upp úr því fór varnarleikurinn að riðlast og júgóslavarnir sigldu fram úr. Þeir náðu 4 marka forystu á aðeins 5 mínútna kafla og hélzt sá munur að mestu út allan fyrri hálf- leikinn, en í leikhléi var staðan 16:11. Með réttu hefði staðan þá þó átt að vera 15:12, því norsku dómararnir létu sem þeir sæju ekki er gróflega var brotið á Stefáni Gunnarssyni, sem hefði átt að gefa vftakast. Ekkert var dæmt, Júgóslavarnir brunuðu upp og skoruðu nokkrum sekúndum áður en blásið var ti! leikhlés. Fyrstu 10 mínútur seinni hálf- leiksins dró hvorki sundur né saman með liðunum, en þá kom að því að íslenzka liðið náði sínum bezta leikkafla í landsleikjunum tveimur, skoraði 4 mörk í röð og misnotaði auk þess vítakast, en staðan var allt í einu orðin jöfn, 19:19, og leikurinn galopinn. Aftur varð jafnt 20:20 og voru þá aðeins 7 mínútur eftir af leiknum. Þær mínútur voru hins vegar martröð líkastar fyrir íslenzku leikmennina, sem ætluðu sér of mikið, ekki var beðið eftir að leik- kerfi liðsins gengju upp, heldur tóku einstakir leikmenn áhætt- una og skutu úr erfiðum mark- færum. Þeir höfðu ekki heppnina með sér, Júgóslavarnir sneru vörn í sókn og skoruðu úr öllum sfðustu sóknarlotum sínum. Voru sum mörk þeirra að vísu ódýr, en mörk voru það og færðu ólympfu- meisturunum annan sigurinn í þessum tveimur leikjum þjóð- anna. Beztu menn íslenzka liðsins að þessu sinni voru þeir Ölafur H. Jónsson, Stefán Gunnarsson, Sigurbergur Sigsteinsson og Björgvin Björgvinsson. Þetta eru þó ekki markhæstu leikmenn liðsins, heldur þeir sem mest og bezt börðust í leiknum, bæði í vörn og sókn. Jón Karlsson og Ölafur Einarsson voru mark- hæstir í íslenzka liðinu, báðir með Rogers og Carter fremstir í flokki er „íslenzka” úrvals- liðið vann Bandaríkjamennina Jón Karlsson skoraði 5 mörk f landsleiknum á laugardaginn og á mvnd Friðþjófs hér að ofan sést hann skora eitt þeirra. MEÐ mikilli baráttu og oft á tfðum mjög góðum leik tókst úrvalsliði KKl að bera sigurorð af bandarfska körfuknattleiks- liðinu frá Rose Hulman há- skólanum f Laugardalshöllinni. (Jrslitin urðu 95:86 sigur „ís- Ienzka“ liðsins, en með þvf léku Bandarfkjamennirnir Jimmv Rogers og Curtiss Carter og var það f fyrsta skipti, sem þeir léku saman. Attu þeir báðir mjög góðan leik, einkum þó Rogers, sem varð að yfirgefa völlinn í sfðari hálfleiknum, vegna höggs sem hann fékk á annað augað. Var það þó ekki eftir slagsmá! eins og á dög- unum er Bandarfkjamönn- unum lenti saman f leik Ar- manhs og KR, heldur fékk hann olnbogaskot frá einum andstæðinganna og lá óvfgur I gólfinu eftir áreksturinn. Fyrst í stað höfðu leikmenn Rose Hulman forystu í leiknum og var munurinn mestur átta stig. tslenzka liðið náði svo mjög góðum leikkafla f lok fyrri'hálfleiks og hafði 11 stig yfir í hálfleik, 48:37. I byrjun seinni hálfleiksins jókst munurinn enn og varð mestur yfir 20 stig. Bandaríska liðið gafst þó ekki upp og minnkaði muninn verulega, en þó ekki það mikið að sigur úrvalsins væri í hættu. Urslitin urðu svo 95:86 eins og áður sagði. Flestir leikmenn KKl-liðsins léku vel að þessu sinni, en fremstir í flokki voru þeir Jimmy Rogers, Kolbeinn Páls- son og Kristinn Jörundsson. Einnig gerðu þeir Trukkur Carter og Jón Sigurðsson lag- lega hluti og vakti það mikla kátínu áhorfenda þegar Allt í baklás hjá landanum og aftur tap gegn Júgóslavíu Trukkurinn tróð knettinum hvað eftir annað í körfuna með tilheyrandi látum. Um bandaríska liðið er það að segja að leikmenn þess eru flestir mjög ungir. Þeir voru greinilega þreyttir í þessum leik, eftir erfitt ferðalag og sagði þjálfari þeirra að leiknum loknum að þreytan hefði f það minnsta kostað lið hans 20 stig í leiknum. Lið Rose Hulman há- skólans hélt héðan f gær og mun leika á meginlandi Evrópu yfir hátíðarnar. Flest stig islenzka liðsins skoruðu Carter (24), Rogers 18, Kristinn Jörundsson (11), Símon Ólafsson (10), Kolbeinn Pálsson, Jón Sigurðsson og Torfi Magnússon allir 8 stig. -áij. 5 mörk, en nokkur úr vítaköstum. Attu þeir báðir sæmilegan dag, og einkum þó Ólafur, en Jón virkaði þreyttur í seinni hálfleik. Axel Axelsson komst ágætlega frá leiknum, en Páll Björgvinsson hefur verið eitthvað miður sín í leikjunum gegn Júgóslavíu. Islenzku markverðirnir standa hinum júgóslavnesku kollegum sínum Iangt að baki, en Ólafur Benediktsson varði þó vel meðan íslenzka liðið var að jafna leikinn í seinni hálfleiknum og hirti þá m.a. langsendingar Júgóslavanna fram völlinn Lhraðaupphlaupum. 1 stuttu máli: Landsleikur í handknattleik: Laugardalshöll, 20. desember: Island — Júgóslavía 20:25 (11:16) Gangur leiksins: Mfn. tsland Staðan Júgóslavfa 1. 0:1 Karalic 3. 0:2 Karalic 5. Axel 1:2 7. 1:3 Pocrajac 9. ÓlafurE. 2:3 9. Björgvin 3:3 10. 3:4 Radjenovic 10. Friðrik 4:4 12. 4:5 Karalic 12. 4:6 Pavicevic 12. 4:7 Horvat 13. ölafur J. 5:7 13. 5:8 Pavicevic 14. 5:9 Pocrajac 15. Páll 6:9 16. 6:10 Horvat 17. ólafur J. 7:10 17. 7:11 Pavicevic 18. 7:12 Karalic 19. Axel 8:12 20. 8:13 Horvat 22. 8:14 Pocrajac 23. Jón (v) 9:14 24. Jón (v) 10:14 25. 10:15 Horvat 27. Jón 11:15 30. 11:16 Karalic LEIKHLÉ 33. Axel 12:16 34. ólafur J. 13:16 35. 13:17 Fejsula 37. Páll 14:17 37. 14:18 Radjenovic 39. Ólafur E. 15:18 10. 15:19 Miljac 42. Jón 16:19 45. Ólafur E. 17:19 47. Jón 18:19 49. ólafur 19:19 50. 19:20 Bojovic 53. ðlafur 20:20 54. 20:21 Radjenovic 54. 20:22 Horvat 58. 20:23 Popovlc 60. 20:24 Pocrajac 60. 20:25 Timko MÖRK lSLANDS: Ólafur Einars- son og Jón Karlsson 5 hvor, Axel Axelsson og Ólafur Jónsson 3 hvor, Páll Björgvinsson 2, Björg- vin Björgvinsson og Friðrik Friðriksson 1 hvor. MÖRK JUGÖSLAVÍU: Karalic 5, Horvat, Pokrajac og Pavisevic 4 hver, Radjenovic 3, Timko, Miljac, Popovic og Fejzula 1 hver. BROTTVÍSANIR AF LEIK- VELLI: Ólafi Einarssyni, Horvat, Radjenovic og Bojovic var vikið af velli i 2 mínútur hverjum. MISHEPPNUÐ VlTAKÖST: Víta- köst voru varin frá Ólafi Einars- syni og Jóni Karlssyni og Páll Björgvinsson átti vítakast í stöng. DÓMARAR: Norsku dómararnir Bolstad og Larsson dæmdu þennan leik mun betur en leikinn á fimmtudaginn, en stóðu sig þó engan veginn vel. -áij. Sfmon Olafsson lék með úrvalslíði KKt og þessi hávaxni leikmaður gerði ýmislegt laglegt 1 leiknum, en virkaði þó helzt til ragur f leiknum. Aðrir leikmenn fslenzka liðsins á myndinni eru Kolbeinn Pálsson og Curtis

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.